Fréttir - Eyjafréttir - 17.01.1985, Qupperneq 8
FRÉTTIK
Ekki eru nú neinar stór-
vægilegar fréttir af bryggjun-
um að þessu sinni. Tíð hefur
verið rysjótt undanfarna
daga og gert mönnum erfitt
um vik á öllum veiðum. Þó
koma þokkalegir dagar með
innskotum á milli.
Togarar
Frá áramótum hafa togar-
arnir landað sem hér segir:
Bergey 8. jan. 88,7 tonn,
Vestmannaey 10. jan. 134,2
tonn, Sindri 11. jan. 112,3
tonn, Halkion 11. jan. 74,4
tonn, Breki er í siglingu.
Netin:
Enn er dræmur afli í net
og yfirleitt dregið tveggja
nátta enda gefur tíðarfarið
ekki tilefni til annars. Aflinn
hefur verið frá 2 og upp í 3
eða fj ögur tonn og verða víst
fáir feitir af slíku. Þó skar
Ófeigur sig úr í síðustu viku,
er hann landaði á þriðjudags-
kvöld 13 tonnum. Svo datt
botninn úr því aftur.
Lína:
Tveir stórir bátar eru á
línu, Gullborg og Dala-Rafn.
Lítið hefur verið hjá þeim og
þegar þetta er ritað er Dala-
Rafn úti, væntanlegur seinna
í vikunni. Einna skást hefur
fiskirí verið hjá smábátun-
um, sem róa á línu, þá daga
sem gefur á sjó. Á þriðjudag
í síðustu viku var einna besti
dagurinn, var almennt þetta
frá hálfu tonni og upp í 2,7
tonn hjá Hilmari á Sigur-
birni. Á sunnudaginn var
landaði svo HILMAR á ný
hálfu öðru tonni. Þess má get
a að allur sá fiskur er slægður
hjá honum. Sama dag var
Kristbjörg Sveinsdóttir með
tonn og Gaui gamli með 900
kg. Þetta er góður afli, því
yfirleitt er róið með stutta
línu. Ef veður héldist sæmi-
legt nokkra daga, mætti búast
við drjúgum, afla hjá smábát-
unum.
Kvótamál:
Þessa dagana munu út-
gerðarmenn vera að huga að
nýskipan á kvótamálum. Sú
breyting hefur verið gerð frá
síðasta ári ao nu er hægt velja
milli fastákveðins afla-
kvóta eins og var yfir heildina
í fyrra og sóknarkvóta en
margir útgerðarmenn lýstu
einmitt yfir óánægju sinni í
fyrra með að geta ekki valið
á milli. Þessi breyting er eink-
um talin vera til hagræðis
fyrir togarana. Svo er það
víst allnokkur höfuðverkur
þegar menn þurfa að ákveða
hvor kosturinn skuli valinn
slíkt liggur víst ekki ævinlega
í augum uppi
Verkfall á
næsta leiti?
Ekki þykir horfa vænlega í
samningamálum sjómanna
og útgerðarmanna þessa dag-
ana. Samningum hefur verið
sagt upp og eftir ummælum
beggja aðila, Sjómanna-
sambandsins og LÍU, má allt
eins vænta þess að verkfall
skelli nú á næstunni. Kröfu-
gerð sjómanna er í fáum lið-
um að þessu sinni og ríkasta
áherslan lögð á hækkun
kauptrayggingar, fæðis-
greiðslur og lífeyrisréttindi.
Það er vissulega vonandi að
ekki þurfi að koma til verk-
falls sennilega hafa flestir
fengið sig fullsadda á verk-
föllum frá því í haust þó ekki
bætist enn við núna á vertíð.
Þau mál ættu að skýrast
næstu daga.
Eins og getið var hér að
framan er ein aðalkrafa sjó-
manna sú, að kauptrygging
hækki verulega. Kauptrygg-
ing hjá sjómönnum í uag er
þessi:
Skipstjóri, 1. stýrimaður og
l.vélstjóri .... kr. 27129
Matsv. 2. og 3. vélstj., 2.
stýrim., netamenn og báts-
menn ........... kr. 23388
Háseti.......... kr. 19410
Að auki hafa skipstjórar,
stýrimenn og vélstjórar fast
kaup, kr. 685,20 sem bætist
við mánaóartryggingu en
hásetar, matsveinar og neta-
menn fá svonefnda fatapen-
inga að upphæð kr. 1269,60
sem bætist við trygginguna.
Við látum svo lesendum
eftir að dæma hvort þeim
þykja kröfur sjómanna um
hækkun kauptryggingar á
rökum reistar. Persónulega
þykir þeim sem þetta ritar að
svo sé, allavega öfundar hann
ekki hásetana af mánaðar-
laununum.
Sigurgeir
TANGINN
1052
Helgartilboð okkar
Opið föstudag til kl. 19
Opið laugardag frá kl. 9-12.
Reykt folaldakjöt
á aðeins kr.
MUNIÐ
hrásalatið okkar ofsagóða
KÍNVERSKAR PÖNNUKÖKUR á aðeins kr. 48
SVIKINN HÉRI á aðeins kr. 198 kg.
Tölvuvæðing í Eyjaprenti
Fáar iðngreinar breytast jafn ört og prennonaðurinn í dag. Það sem var bylting í gær er orðið safngripur á morgun. Hjá Eyjaprenti
hefur verið keypt setningartölva, sem að ummáli er ca. fímmti partur gömlu vélarinnar, fímm sinnum léttari og tíu sinnum
fullkomnari.