Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.1986, Page 5
FRtTTIU
reti'riR
Guðmunda Steingrímsdóttir:
Málefni aldraðra
enn í brennidepli
Mikið hefur verið rætt og
ritað um málefni aldraðra að
undanförnu.
í 4. tölublaði Frétta 23.
jan. sl. skrifar Sigurður Jóns-
son grein sem ber fyrirsögn-
ina: „Málefni aldraðra í
brennidepli“. Þar segir meðal
annars.
„Á Hraunbúðum eru nú 44
vistmenn. Fyrir aðeins2 árum
voru vistmenn einungis 32
þannig að heilmikið var þá
ekki nærri fullnýtt. Á þessu
sést að mikil breyting hefur
orðið á skömmum tíma. “ Til-
vitnun lýkur.
Nú gætu menn spurt, hefur
starfsfólki á Hraunbúðum þá
ekki fjölgað líka? Að sögn
Sólveigar Guðnadóttur for-
stöðumanns hefur einungis
fengist aukning sem nemur
tæplega einu stöðugildi.
Nú eru stöðugildin 18,3 og
Guðmunda Steingrímsdóttir
eru þá allir taldir með s.s.
yfirmenn, föndurleiðbein-
endur, matráðskona, ræsting,
þvottakona og starfsstúlkur.
Átta stúlkur ganga vaktir all-
an sólarhringinn en tvær eru
á föstum næturvöktum.
Ekki hjúkr- l
unarsjúklingar
Þegar Hraunbúðir tóku til
starfa var ekki gert ráð fyrir
hjúkrunarsjúklingum. En
það eru þeir sjúklingar sem
þurfa alla aðhlynningu líkt og
um kornabörn væri að ræða .
Nú eru 6 hjúkrunarsjúkl-
ingar á Dvalarheimilinu og
10 aðrir sjúklingar sem þurfa
aðstoð t.d. við að þvo sér og
klæða o.s.frv.
Tvær starfstúlkur eru á
kvöldvakt og eiga þær að
sinna þörfum allra vist-
manna, gefa kvöldmat, vaska
upp, gefa lyf, hjálpa sjúkling-
um að hátta o.s.frv. Ljóst
hlýtur að vera að 2 starfs-
kraftar geta með ekki gert
þetta með góðu móti.
Þjónustuíbúðir,
hvað er það?
Nafnið bendir til þess að
fólkið sem býr í þessum íbúð-
um eigi rétt á þjónustu eftir
þörfum. En vegna mikils
skorts á starfsfólki er útilokað
að veitr. þónustu nema í al-
gjörum neyðartilfellum.
Þetta fólk getur að vísu
komið á Hraunbúðir og keypt
sér mat, farið í föndur og
notið félagsskapar við annað
fólk. En ef það veikist þó
ekki væri nema það fengi
uppgangspest, hver á þá að
hugsa um það?
Er þetta fólk þá ekki alveg
jafn illa sett í þessum „þjón-
ustuíbúðum“ eins og í sínu
eigin húsnæði?
Ég held að meirihlutinn í
bæjarstjórn ætti að hrósa sér
minna af fullnýtingu Hraun-
búða en snúa sér að ráðningu
á starfsfólki í staðinn.
Því aðeins með því móti
geta Hraunbúðir gengt því
hlutverki sem þeim er ætlað
Sintiaujílýsiiigtir
Bíll til sölu
Cortína árg. 71 til sölu á
aðeins 7000 kr.
Þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar í síma 2695.
Karlmannsúr fannst
Einar klink fann karlmannsúr
fyrir utan vörusölu S.Í.S. á
mánudaginn.
Hann biður eiganda úrsins að
hafa samband við sig.
Peningum glatað
Tapast hafa 15 þúsund
krónur.
Finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 2425.
Góð fundarlaun.
StMúiftt Stmi m toiiu mi | 4ÉL 1
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega
7und í
svaka stuði
Helgin kemur upp á mánaðarmót að þessu sinni, föstudagur-
inn er þjóðhátíðardagur Gallíu og á laugardag hefst 19 vika
vetrar og fyrsti dagur marsmánaðar - sem sé næg ástæða til
að fara út að skemmta sér.
Hljómsveitin 7und spilaði í Sigtúni um síðustu helgi og
mætir nú aftur á heimaslóðir endurnærð eftir borgsarferðina.
Spakmæli helgarinnar: Góð samviska kemur oft aí slæmu
minni.
RESTAURANT- POBB
k 6estolaf inn /I
fimmtudagskvöld: Pöbbdeildin skemmtir. Fimmtudagskvöldin
á Gestgjafanum eru pottþétt.
Hálft í hvoru
skemmta föstudags og laugardagskvöld. Síðast þegar að Hálft í
hvoru tróðu upp á Gestgjafanum- var meira stuð en elstu menn
muna:
Komdu tímanlega - það borgarsig.
Matargestir pantið borð tímanlega.
Bítlaprógram Pöbbdeildarinnar hefur slegið rækilega.í gegn. Sunnu-
dagskvöldin á Gestgjafanum eru af mÖrgum. talin hápunktur helgar-
innar. Hvernig væri að skella sér ?
Reykingar eru
heilbrigðisvanda-
_ mál sem þú
U I getur átt þátt
í að leysa.
LANDLÆKNIR
Skrifstofa í Vestmannaeyjum:
Heimagötu 22 götuhæð.
Viötalstími: 15.30 - 19.00
þriðjudaga-föstudaga ©1847
Skrifst. í Reykjavík: Garðastræti 13.
Viðtalstími: 15.30- 19.00
mánudaga, ©13945
JÖN HJALTASON, hrl.
KÚLUHÚSI^
auglýsir
OPIÐ Á LAUGARDAG 9 -12
Stórlækkun á eggjum: aðeins 119 kr. kg.
Kjúklingctr 243 kr. kg.
Helgartilboð á kjötvörum:
Svínalærisneiðar......... 299 kr. kg.
Svínakótelettur........... 497 kr.kg.
Nautahakk................ 299 kr. kg.
Nautagúlach.............. 466 kr. kg.
Ungkálfahryggur.......... 199 kr. kg.
Ungkálfaframhryggur.......199 kr. kg.
Ungkálfabuff............. 299 kr. kg.
Ungkálfagúlach........... 299 kr. kg.
Lifur og hjörtu 129 kr. kg. og auk þess 2 kg.
sykur 38.90 kr. pakkinn.
Finax hveiti 2 kg. 49.30 kr.
Bakarí á staðnum.
OPIÐtil 19.30
ALLA virka daga.
Heimsendingarþjónusta