Fréttir - Eyjafréttir - 22.03.1988, Page 7
FRÉTTIR — Þriðjudacjinn 22. mars 1988
-L-
Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir 1987:
Besta ár í sögu
Sparisjóðsins
— Styrktar og menningarsjóður stofnaður til
minningar um Þorstein Þ. Víglundsson.
• Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja: F.v. Arnar Sigurmundsson,
Ragnar Óskarsson, Benedikt Ragnarsson Sparisjóðsstjóri, Gísli
Guðlaugsson, Þorbjörn Pálsson og Sigurgeir Kristjánsson stjórn-
arformaður. Myndin á veggnum er af Þorsteini Þ. Víglundssyni
fyrrverandi Sparisjóðsstjóra.
Aðalfundur Sparisjóðs Vest-
mannaeyja og Veðdeiídar fyrir
árið 1987 var haldinn 4. mars
s.I. Afkoma Sparisjóðsins var
góð á síðasta ári og reyndar var
árið það besta í sögu sjóðsins til
þessa, að sögn Benedikts Ragn-
arssonar sparisjóðsstjóra.
Á fundinum kom fram að
heildarinnlán í árslok voru kr.
320.857 þús. og höfðu aukist
um 38% á árinu 1987. Heildar-
innlán námu kr. 272.430 þús.
og er það aukning um 39%
milli ára. Stærsti útlánaflokkur-
inn var til húsakaupa og ný-
bygginga, eða 30,2%, skamm-
tímalán 20,0%, verslun 14,7%,
launalán 13,1%, iðnaður
12,2%, sjávarútvegur 6,4% og
annað 3,4%. Bundnar inni-
stæður í Seðlabanka fslands
námu í árslok kr. 59.785 þús.
en það eru 18,6% af heildar-
innistæðum. Auk þess hefur
Sparisjóðurinn þurft að kaupa
ríkisskulabréf, ríkisvíxla og
skuldabréf vegna halla á ríkis-
sjóði fyrir kr. 15.522 þús. en
þetta eru skyldukaup. Lausa-
fjárstaðan var jákvæð í árslok
um kr. 2.269 þús. á móti nei-
kvæðri lausafjárstöðu í árslok
1986 um 13.486 þús.
Heildartekjur á árinu 1987
voru 97.172 þús. og heildar-
gjöld kr. 86.669 þús. og tekju-
afgangur fyrir tekju- og eigna-
skatt kr. 10.502. sem er það
besta í sögu Sparisjóðsins. Að
öðru leyti vísast í reikninga
Sparisjóðsins, en þeir liggja
frammi öllum til sýnis í af-
greiðslusal.
Benedikt var spurður hvað
hann þakkaði þessa góðu af-
komu. „Ég held að síðasta ár
hafi verið sparisjóðunum
hagstætt. Við erum fyrstir með
reikningana í ár, og ég held að,
það eigi eftir að koma í ljós að
útkoma hinna sé svipuð."
Sparisjóðurinn opnaði veð-
deild um mitt síðasta ár og
gekk starfsemin ágætlega. í
upphafi voru veðdeildarbréfin
seld á 9,5% ávöxtunarkröfu,
er. fljótlega var ávöxtunarkraf-
an hækkuð í 9,75%. í lok ársins
var heildarsala bréfa kr. 33,470
þús. að nafnverði. Tilgangur
stofnunar veðdeildar var að
gefa sparifjáreigendum kost á
hærri ávöxtun á fjármunum
sínum, án þess að sækja það í
önnur byggðalög. í tengslum
við stofnun veðdeildar hefur
Sparisjóðurinn keypt hlut í
Kaupþingi h.f. Reykjavík, en
fyrirtækið er að hálfu í eigu
nokkra stærri sparisjóða í land-
inu.
Um Veðdeildina sagði Bene-
dikt að hún hefði skilað sér eins
og til var ætlast, þ.e. að halda
peningunum innan bæjar.
Þá var samþykkt á aðalfund-
inum, að tillögu stjórnar, að
stofna styrktar og menningar-
sjóð Sparisjóðs Vestmannaeyja
til minningar um Þorstein Þ.
Víglundsson fyrrverandi Spari-
sjóðsstjóra. „Það er ekki búið
að setja reglugerð fyrir sjóðinn
enn þá og því erfitt að svara
þessu. En meiningin er að veita
úr sjóðnum á hverju ári og þá
til einhvers verðugs verkefnis,“
sagði Benedikt. „Sjóðurinn
skal m.a. hafa það hlutverk að
veita styrk til framfara og
menningarmála í Vestmanna-
eyjum eftir nánari reglum, sem
stjórn Sparisjóðs Vestmanna-
eyja er falið að setja.“
Fimm manna stjórn er í
Sparisjóðnum, þrír kosnir af
ábyrgðarmönnum, Gísli Guð-
laugsson, Sigurgeir Kristjáns-
son og Þorbjörn Pálsson. Tveir
eru kosnir af bæjarstjórn, þeir
Arnar Sigurmundsson og
Ragnar Óskarsson. Varamenn
kosnir af ábyrgðarmönnum eru
Jóhann Björnsson, Hjálmfríð-
ur Sveinsdóttir og Kristmann
Karlsson, en Helga Jónsdóttir
og Guðmunda Steingrímsdóttir
kosnir af bæjarstjórn. Á fyrsta
stjórnarfundi eftir aðalfund,
var Sigurgeir Kristjánsson kos-
inn stjórnarformaður og Arnar
Sigurmundssonar varaformað-
ur.
Ráðinn endurskoðandi er
Þorvarður Gunnarsson hjá
Endurskoðunarskrifst. Sig.
Stefánssonar h.f. en endur-
skoðendur kosnir af ábyrgð-
armönnum eru Elín Alma Art-
húrsdóttir og Gunnlaugur Ax-
elsson.
Sparisjóðsstjóri er Benedikt
Ragnarsson og skrifstofustjóri
Guðjón Hjörleifsson.
Á aðalfundinum minntist
stjórnin, eins stofnenda
sjóðsins, Óskars Jónssonar,
Sólhlíð 6, en hann lést í des-
ember sl.
Að lokum vildi Benedikt
koma á framfæri áhyggjum sín-
um af fjölgun nauðungarupp-
boða hér í Vestmannaeyjum.
„Vanskil eru orðin gífurleg og
samfara því hefur nauðungar-
uppboðum fjölgað. Ég get
nefnt sem dæmi að það heyrði
til algjörra undantekninga ef
eign fór á nauðungaruppboð
fyrir gos. En þetta hefur breyst
mikið, ’ því á síðasta ári var
Sparisjóðurinn neyddur til að
kaupa 3 hús á nauðungarupp-
boði og það sem af er þessu ári
eru þau orðin 3. Þetta er mjög
vont fyrir byggðarlagið og í
raun hættulegt,“ sagði Bene-
dikt, og sagði ástæður þessa
margar, m.a. að verðlag fast-
eigna hefði ekki hækkað eins
og áhvílandi lán á þeim.
LEIGUBÍLA ÞJÓNUS TA
Opið 7:00 - 24:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar.
— ÖRUGG ÞJÓNUSTA. ÞÚ HRINGIR OG VIÐ KEYRUM. —
„n«íTv>, Síminn er 2038 I VI \«&«T\\I
Landakirkja
Bænastund
á föstu
í dag kl. 18:00
Sóknarprestur
TIL SÖLU
Kirkjuvegur 19, efri hæð og ris, mikið
endurnýjar, stór og góð lóð. Getur losnað
fljótlega.
Upplýsingar á staðnum og í síma 2567
eða hjá fasteignasölum.
ATVINNA
Duglegan og samviskusaman mann
vantar í mikla vinnu strax. Akkorðsvinna
og gott kaup. Frítt fæði á vinnustað.
Upplýsingar aðeins á staðnum.
BRETTI HF
íslandsmótið í „Free style“ dansi:
Ölver fékk
bronsið
Ölver Jónsson, fulltrúi Vest-
mannaeyja I íslandsmótinu í
Free-style dansi, hafnaði í 3.
sæti í Islandsmótinu sem fram
fór á Hótel íslandi um síðustu
helgi. Þá keppti hópurinn
Nettó í hópkeppninni og stóð
sig vel þrátt fyrir að hann næði
ekki verðlaunasæti.
„Ég er auðvitað í skýjunum
með þetta, í raun og veru gat
allt gerst í keppninni . Þátttak-
endur voru 11, allt stelpur
nema ég, og allar með tilbúna
dansa frá dansskólunum í
Reykjavík. Ég var hinsvegar
með frumsaminn dans eftir
sjálfan mig þannig að ég má vel
við una,“ sagði Ölver í samtali
við FRÉTTIR.
Ölver stefnir enn hærra í
danslistinni, því í ágúst n.k.
heldur hann utan til Bandaríkj-
anna sem skiptinemi í 1 ár.
• Ölver Jónsson.
Sagði Ölver að þar myndi hann
væntanlega nema einhverja
danslist og yrði vonandi reynsl-
unni ríkari þegar hann kæmi
heim.
ALHLIÐA RAFLAGNAÞ JÓNUSTA
INTÝLAGINriR — ENDURBÆTUR — VIÐHALD
VIÐGERÐIR Á SIEIVCEINrS HEIMILISTÆKJUM
Friðþjófur Sigursteinsson, rafverktaki S 2280
FRÉTTIR - AUGLÝSINGAR - FRÉTTIR - AUGLÝSINGAR - FRÉTTIR - AUGLÝSINGAR - FRÉTTIR -