Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Side 2
2 Fréttir Fimmtudagur 22.janúar 1998 EnnerOddurmeð ábendingar ..Vestmannacyingar þekkja vel til Arna úr Eyjum. Jafnframt er hann landsþekktur fyrir texta við mörg af hinum vinsælu lögum Oddgeirs Kristjánssonar," segir Oddur Júlíusson í bréfi sínu lil bæjarráðs. „Nú hefur undirritaður komist að því að til er í handriti talsvert magn af óbirtum textum eftir Áma. Hér er um að ræða bæði sögur, ljóð og leikrit. Legg ég til að bæjarráð feli menningarmálanet'nd að semja við rétthafa, sem er ekkja Árna, um birtingu þeirra og jafnframt að fá handritin til eignar og varðveislu. Hér er tíminn dýrmætur og vert að hafa hraðan á þannig að ekkert fari forgörðum," segir Oddur einnig í bréfi sínu. Leiðrétting Vegna mistaka í vinnslu blaðsins í síðustu viku féll niður síðasta línan í vísu sem Þórunn Gísladóttir botnaði á þorrablóti Norðlendinga. Hér birtist vísan fullsköpuð og er Þórunn beðin velvirðingar á þess- um mistökum. / gleðisalinn ganga inn galdramenn að norðan. Hafa með sér hákarlinn og hlakka lil að horð 'ann. Neyðarblys? Á laugardaginn var tilkynnt um neyðarblys norðaustur af Faxa- skeri. Gerð var könnun á því hvort einhver skip eða bátar væru á þessum slóðunr en svo reyndist ekki vera. Aftur á móti hafði flugvél flogið í lágflugi þama með blikkandi rautt ljós á væng. Þar með var komin skýring á ljósinu í þetta skiptið en gott er að l'ólk sé vakandi fyrir rauðum neyðar- blysum. Bakkus tók öll uöld Töluvert var af fólki að skemmta sér á aðfaranótt sunnudagsins enda standa þorrablót sem hæst. Sú skemmtun gekk að nrestu leyti vel en lögregla þurfti að hafa afskipti af einum oftar en einu sinni og var honurn því komið til síns heima þar sem Bakkus hafði tekiö af honum öll völd. Sektað Þessa viku er Bifreiðaskoðun að störfum en alltaf eru einhverjir sem trassa að mæta og hafa nokkrir verið sektaðir vegna þess undan- farið. Lögreglan hvetui' bifreiða- eigendur til að hlýða kallinu til að forðast óþægindi og fjáriitlát. Skemmdirafvöldum sprengju Sl. fimmtudag vai' sprengd sprengja í anddyri Áshamars 63 og olli hún nokkrum skemmdum. Málið er í rannsókn og eru þeir sem geta veitt upplýsingar um atburðinn bent á að tala við lögreglu. Var mildi að ekki hlaust slys af. Stútur Á laugardaginn var ökumaður tekinn vegna gruns um ölvun við akstur. Hann viðurkenndi brot sitt og var sviptur ökuréttindum lil bráðabirgða. Sjúkraflugið boðið út eftir sex mánuði: Það er óvfst hvort ég býð í betta verkefni -segir Valur Andersen hjá Flugfélagi Vestmannaeyja Styrkveitingar til sjúkraflugs á landinu hafa verið færðar frá Samgönguráðuneytinu yfir til Heilbrigðisráðuneytisins. Sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigðis- ráðuneytinu fékk Flugfélag Vest- mannaeyja 4,2 milljónir króna á síðasta ári í sinn hlut vegna sjúkra- flugsins. Ekki lágu fyrir tölur um upphæð styrksins fyrir árið 1998, þar sem hann hefur ekki verið ákveðinn enn. í Samgönguráðuneytinu fengust þær upplýsingar að engir beinir styrkir væru veittir flugfélögum á landinu vegna almenns flugs. Hins vegar hefði Flugmálastjóm verið falið að bjóða út flug til Grímseyjar, Gjögurs, Kópaskers og Raufarhafnar. Þetta útboð er í samræmi við reglugerðir Evrópusambandsins sem Alþingi hefur samþykkt og kveður á um þjónustu við afskekktar byggðir. Valur Andersen hjá Flugfélagi Vestmannaeyja segir að hann hafi fengið styrk vegna sjúkraflugsins í fjögur ár, en hann hafi séð um sjúkraflugið í tólf ár samfellt. „Ég hef verið beðinn að taka að mér sjúkraflugið næstu sex mánuði," segir Valur. „Eftir það veröur það boðið út. Ég er ekkert viss um að ég muni bjóða í þetta verkefni. Það fylgja þessu miklar kvaðir. Það er í lagi að aðrir taki að sér þetta verkefni, ef þeir treysta sér til, bara að þjónustan sé til staðar í bænum. Vélin sem ég hef haft í þessu hefur verið að fljúga í þrjátíu og fimm mínútur að jafnaði á dag á ári sem er engan veginn ásættanlegt, þó styrkur komi til." Valur segir að verkefni á þessa vél hafi dregist mikið saman vegna samkeppni og betri samgangna. „ Það er hugsanlegur möguleiki að þetta gengi í samstarfi við aðra aðila, en vél sem ætluð er til sjúkraflugs yrði að vera staðsett í Eyjum á nætumar og eiga hér heimahöfn." Brjótarúðurmeð byssum Þessa dagana hefur verið tilkynnt um rúðubrot í nokkrum húsum og til þess hafa verið notaðar einhvers konai' byssur. Líklegast er að þetta séu bauna-, túttu- eða loftbyssur og að notast sé við litlar og harðar kúlur úl að skjóta göt á riiðumar. Búið er að brjóta margar rúður og tjón fólks töluvert. Lögregla fer fram á það við foreldra að kanna hvort börn þeirra hatl byssur eins og lýst var fyrir ofan í fómm sínum. Uirðumútíuístareglur Það verður að segjast eins og að flestir unglingar okkar em til fyrirmyndar fólk en sumir stíga vMspor og verðum við í sameiningu að leiða þá á rétta braut. segir lögreglan. Það er nauðsynlegt að foreldrar fylgist með því hvað unglingar þeirra hafa fyrir stafni og stoppi þá af ef þeir verða varir við að þeir séu að gera eitthvað sem veldur þeim eða öðrum hættu og óþægindum. Það er mikilvægt að halda útivistarreglumar því það má greinilega sjá að þeir unglingar sem ekki virða þær lenda frekar í vandræðum en hinir. Hættulegur leikur á Eldfelli: Maður brenndist illa á fætí -Skósólinn brann þegar hann steig ofan á mælirör fyllt af vatni Gatið á sólanum var eins og eftir byssuskot. Fyrir skömmu brenndist ungur maður illa á fæti á Eldfelli. Hann var þar ásamt félögum sínum og fundu þeir rör sem stungið var niður efst í fellsöxlinni. Þeir fylltu það af vatni og steig hann ofan á það með fyrrgreindum afleiðingum. Slysið kom til kasta Höskuldar Kárasonar, hjá Vinnueftirlitinu sem segir að þarna hafi verið um hættulegan leik að ræða. „Ég fór og kannaði aðstæður og kom í ljós að rörið er 1,5 m á lengd og lokað í endann. Því var stungið niður í öxlina þar sem hitinn er mestur. Eftir að þeir helltu vatninu í rörið steig maðurinn ofan á það og lokaði því alveg með þunga sínum. Vatnið byrjaði að sjóða og varð að gufu sem bræddi sig í gegnum sólann. Varð af því gat eins og eftir stóra byssukúlu og afleiðingin var mikið brunasár," segir Höskuldur. Höskuldur segist hafa íjarlægt rörið og vill hann vekja athygli á að hugsanlega sé fleiri rör að finna í Eldfelli. „Vil ég vekja athygli fólks á að vera ekki með einhverjar tilraunir með þessi rör. Það er ennþá talsverður hiti í fellinu og á meðan svo er borgar sig að fara að með allri gát. Ef menn þurfa að stinga niður rörum til mælinga þarf að fjarlægja þau um leið og búið er að nota þau." Georg sýslumaður sækir um stöðu ríkislögreglustjóra: Er annar tveggja umsæklenúa sem Iwlst ertalinnkoma Olgreliw Georg Kr. Lárusson, sýslumaður, er meðal sjö umsækjenda um stöðu ríkislögreglustjóra. Dómsmálaráðherra veitir embættið en hann er erlendis og kemur í fyrsta lagi í ljós í næstu viku hver hlýtur hnossið. Umsækjendur auk Georgs eru Amar Guðmundsson skólastjóri Lög- regluskólans, Hjördís Björk Hákonar- dóttir héraðsdómari, Haraldur Jóhann- essen varalögreglustjóri í Reykjavík, Stefán Hirst skrifstoustjóri lögreglu- stjóra, Valtýr Sigurðsson héraðsdóm- ari og Þórir Oddsson vararíkislög- reglustjóri. Staða ríkislögreglustjóra losnaði þegar Bogi Nflsson tók við stöðu ríkissaksóknara um síðustu áramót. Samkvæmt heimildum Frétta er Georg meðal tveggja umsækjenda sem helst koma til greina. Það átti að ákveða hver fengi embættið sl. fimmtudag en ráðherra hafði ekki tekið ákvörðun áður en hann fór til útlanda. Hann kemur upp á laug- ardaginn og það gerist því ekkert fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Sjálfur segist Georg vera á báðum áttum í afstöðu sinni. Hann viður- kennir að þama sé um spennandi starf að ræða en það henti sér líka vel að vera sýslumaður í Vestmannaeyjum. „Okkur líkai' mjög vel héma og bömin vilja alls ekki flytja. Ég kem því ekki til með að leggjast í þunglyndi þó ég hreppi ekki embætti ríkislögreglu- stjóra," sagði Georg. Heimatílbúnar sprengjur Það hefur borið nokkuð á heimatilbúnum sprengjum að undanfömu og hafa þær í nokkmm lilfellum valdið nokkmm skemmd- um. Lögreglan vill ítreka að þama er um hættuspil að ræða því sprengjumar eru oft rnjög öflugar og geta hæglega valdið miklum skaða. Bæði þeim sem með þær fara og ekki síður þeim sem gætu komið að þegar þær springa. flmínningfrá lögreglu Umferðin gekk nokkuð vel í vikunni en nokkrir hafa verið sektaðir fyrir of hraðan akstur, of marga farþega, útrunnin ökuskír- teini, vanbúnað bifreiða og öryggis- belti. Það er aldrei sérlega vinsælt að greiða sektir hvað þá þegar punkta- kerfið er komið í gagnið. Það er einfalt að aka eftir umferðarlögum og þá losna menn við afskipti lögreglu og blessaða punktana. Vilja úrbætur Fyrir bæjarráði á þriðjudaginn lá fyrir bréf frá Bninavarðafélagi Vestmannaeyja þar sem rætt var um úrbætur í húsnæðismálum Slökkviliðs Vestmannaeyja. Lækkun viðmiðunarmarka Félagsmálaráð samþykkti á nýlegum fundi að viðmiðunarmörk vegna fjárhagsaðstoðar lækki sem svarai' þætti húsaleigu í úti'eikningi. Er þetta gert þar sem Vestmanna- eyjabær hóf greiðslu húsaleigubóta frá 1. janúarsl. (FRÉTTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/'-frettir. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði, i Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli og Söluturninum Smiðjuvegi 60 Kópavogi. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.