Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1998, Síða 13
Fimmtudagur 22.janúar 1998 Fréttir 13 Sigmund hf. og Markús Björgunarnet hf. í viðræðum: sameining mikill misskilningur að halda það einfalt mál að markaðssetja vöru á þessu sviði. Þetta eru þær hugmyndir sem við höfum verið að ræða og allir eru mjög jákvæðir fyrir. Einnig hef ég mikinn áhuga á því að reyna markaðssetningu gegnum Intemetið." Pétur segist eingöngu hafa einbeitt sér að björgunametum. „Maður fyrir borð“ sviðið sé miklu meira. Þar komi gálginn til sögunnar, við- vörunarbúnaður, sendibúnaður á mönnum, flotbúnaður og fræðsla. „Sú hugsun heillar mig svolítið, eins og komið hefur í ljós hjá Sigmund hf, að vera ekki bara með þetta sem vöm sem á að selja, heldur og að vera miðpunktur fyrir þekkingu á þessu sviði. Einnig að setja sér það markmið að vera með heildarlausnir." Bjarki segir að Þróunarfélag Vestmannaeyja hafi séð um að stofna Sigmund hf og Olafur Snorrason verkefnisstjóri séð um framkvæmda- hliðina. Bjarki segir að Vestmannaeyjabær hafi ekkert komið að stofnun þessa fyrirtækis nema með því að styðja við bakið á verkefninu gegnum Þróunarfélagið. Stofnhlutafé Sigmund hf. er 14 milljónir og segir Bjarki að lagt hafi verið inn erindi til Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í von um jákvæða niðurstöðu þar. Stjóm Sigmund hf. er skipuð eftirfarandi mönnum, Bjarki Brynjars- son stjómarformaður, Magnús Krist- insson útgerðarmaður, Þórarinn Elmar Jensen forstjóri Sjóklæðagerðarinnar. Varamenn em Stefán Ólafsson í Þór hf. og Pétur Guðjónsson markaðsstjóri Marel hf. Helstu hluthafar hins nýja fyrirtækis em ýmsir útgerðarmenn í Vest- mannaeyjum, Vélaverkstæðið Þór hf., en það fyrirtæki hefur framleitt Sigmundsgálgann, Sjóklæðagerðin 66° norður og DNG sjóvélar. Vestmannaeyjar mið- stöð öryggismála á sjó Pétur Th. Pétursson var einnig með kynningu á Markúsametinu og sögu þess fyrir áhugasama síðastliðinn fimmtudag. Fréttir báðu hann um að segja frá Markúsametinu og hverjar væm helstu hindranimar að fást við í markaðssetningu Markúsmetsins. Pétur segir að verið sé að ræða möguleikana á að framleiða björgunametin í Vestmannaeyjum fyrir alþjóðamarkað. „Fyrir mér er það mjög spennandi kostur að fara í náið samstaf við Sigmund hf,“ segir Pétur. „Það liggja nokkrar ástæður að baki þessum áhuga og sú helst að Vestmannaeyjar eiga gífurlega stóran þátt í því að Markúsametið varð viðurkennt. Skipstjórar og sjómenn hér studdu Markús heitinn gífurlega vel í þessari brautryðjendabaráttu hans og hér sannaði það fyrst gildi sitt. I Eyjum varð í raun vendipunkturinn þegar áhöfninni af Kampen var bjargað í nóvember 1983. Eg tel að hér í Eyjum væri hægt að koma á fót miðstöð öiyggismála á sjó, vegna þess að allar aðstæður em mjög góðar hér til prófunar á búnaði. Höfnin liggur vel við útflutningi og ekki síst að hér er stór hópur manna sem hefur áhuga á öryggismálum sjómanna." Pétur er fullviss um að frétta- flutningur blaða af því slysi hafi Pétur Th. Pétursson framkvæmdastjóri Markús Björgunarnets hf. opnað augu manna fyrir gildi netsins, meðal annars vegna þess að Morg- unblaðið birti mynd af netinu. „Að vísu hafði netið verið notað áður við björgun manna úr sjó, meðal annars hér í Eyjum en þegar Kampen fórst hér við suðurströndina var ísinn endanlega brotinn." Pétur segir að Markúsametið hafi tekið miklum breytingum í gegnum árin og unnið hafi verið markvisst að því að endurbæta það og fullkomna og vinna því markað bæði hér og erlendis. „Okkar markmið em ekki einungis maðurinn í sjónum heldur líka björgunarmennimir. Við viljum tengja þetta vel saman; áhöfnina, björgunarmennina og skipið, þannig að netið nýtist sem best við hvers kyns aðstæður. Við ætlum að reyna að vera með lausnir fyrir alla og viljum haga framleiðslu okkar í samræmi við það.“ Hann vill halda því fram að það að geta bjargað manni úr sjó eigi að vera hluti af fagi sjómannsins og fyrir því nefnir hann þrjár ástæður „Sjómaðurinn er yfirleitt næst slysstað. Hann er í mestri hættu sjálfur að falla fyrir borð og síðast en ekki síst það, að sjómaðurinn hefur mestu að hætta sjálfur, ekki síst ef mið er tekið af fjölskyldu hans og þeirri ábyrgð sem á honum hvílir, vegna þess að hann er fyrirvinna. Þær áhafnir sem vilja í raun standa klárar að hlutunum og æfa reglulega vil ég sjá með sérstaklega hannaðan galla fyrir björgunarmann og tengilínu og að hann fari í sjóinn eftir manni, ef á þarf að halda, frekar en að setja út bát. Það er ekki mikið umstang í kringum það og skipið oftast besta öryggis- tækið. Ég vil líta á Markúsametið sem miðil til þess að miðla þekkingu um þetta svið sem er „maður fyrir borð“. Staðreyndin er sú að við emm sennilega eina þjóðin í dag sem viðurkennir það að sækja mann í sjó eftir þvf sem ég best veit. Okkur finnst það samt mjög eðlilegt á íslandi nú orðið.“ Pétur segir að í ljósi aukinnar þekkingar á þessu sviði, sem hefur komið með Slysavamaskólanum og Markúsametinu hafi aðrar þjóðir samt horft á þetta sem ijarstæðu. Þær horfi frekar á tæknilausnir, „maður fyrir borð“ og setja út bát og svo framvegis. „Aðiar þjóðir telja ekki ömggt að setja björgunarmann í sjóinn. Það teljum við hins vegar stærsta gildi netsins, ef hægt er að breyta þessu viðhorfi með sameiginlegri markaðssetningu og framboði á viðurkenndum heildar- lausnum erlendis. Þá emm við á réttri leið.“ Spurningakeppni saumaklúbba á Suðurlandi Spumingakeppnin Saumað og svarað hefst í Útvarpi Suðurlands, FM 96,3 fimmtudaginn 29. janúar. Glæsileg verðlaun verða í boði fyrir sigurklúbbinn. Þátturinn mun verða á dagskrá, eins lengi og þátttökufjöldi klúbba leyfir en hann verður á dagskrá frá kl. 22:00 - 01:00 eftir miðnætti í þættinum Kvöldsiglingu. Hægt er að skrá sig og fá nánari upplýsingar í símum 482-3713 og 482-3855. Sendingartíðnin FM 96,3 er ný og gefst því Vestmannaeyingum og Rangæingum möguleiki til að ná útsendingunni. Fréttatilkynning. PéturTh.Pétursson framkvæmda- stjóri Markús Björgunarnet hf. var staddur í Vestmannaeyjum fyrir nokkru. Hann kom hingað til við- ræðna við framámenn í hinu nýstofnaða fyrirtæki Sigmund hf í Vestmannaeyjum um flutning framleiðslu Markús Björgunarnets hf. tii Vestmannaeyja. Efþettayrði að veruleika á þessu ári, gæti hugsanlega á næsta ári, orðið til um tvö til þrjú störf að ræða. Hins vegar eru möguleikarnir til stækk- unar nánast óþrjótandi með áfamhaldandi þróunarstarfl. „Markaðurinn er fyrir hendi það er bara að vinna hann,“ segir Pétur. Ekki er fullmótað enn hvort um sameiningu þessara fyrirtækja verður að ræða eða hvort þau verða í samstarfi. Það er þó ljóst að Markús Björgunamet hf yrði ekki framleiðandi og ekki þróunaraðili sem slíkur. Bjarki Brynjarsson, stjómarformaður Sigmund hfi, segir að mjög mikill vilji sé hjá báðum aðilum um að flutningurinn geti átt sér stað. Hann segir að í Vestmannaeyjum séu mjög góðar aðstæður til þess að vera með ffiamleiðslu af þessu tagi og hugmynd- in sé að gera Vestmannaeyjar að miðstöð fyrir þróun og framleiðslu björgunartækja til notkunar á sjó. Pétur segir að verið sé að skoða þann möguleika að Sigmund hf. kaupi framleiðsluréttinn og hann verði þá með gæðamál og markaðssetningu á vömm fyrirtækisins erlendis. „Þannig nýtist reynsla mín við þær hugmyndir sem hægt er að þróa hjá fyrirtækinu. Ég mun einnig halda utan um umboðsmennina, sýningar, kynningar þar sem skiptir máli að okkar andlit sjáist. Þessar vömr em allar háðar reglum og alþjóðasamþykktum og nú er geysilega mikil mótun á þessu sviði innan Evrópusambandsins og á vettvangi IMO, Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar. Það þarf sterkt og öflugt fyrirtæki til þess að koma þessu vel af stað. Mér finnst það mjög ákjósanlegur kostur, ef einn aðili vill halda utan um þessi mál, því það er Nýjasta útgáfa Markúsarnetsins. I tilefni af 100 ára afmæli Oddfellowreglunnar á Islandi 1. ágúst á síðasta ári afhentu Oddfellowstúkurnar Vilborg og Herjólfur í Vestmannaeyjum, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja fótapressu að gjöf síðastliðinn þriðjudag. Elías Friðriksson sjúkraþjálfari tók við tækinu fyrir hönd Heilbrigðisstofnunarinnar. Hann þakkaði það vinarbragð sem gjöf þessi bæri vott um og sagði hana kærkomna viðbót við annan tækjakost stofnunarinnar. Á myndinni eru fulltrúar gefanda.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.