Fréttir - Eyjafréttir - 12.02.1998, Síða 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 12. febrúar 1998 • 6. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Utgerðarfélag Vestmanna-
eyja að komast á koppinn
Verður almenningshlutafélag á sviði sjávarútvegs
í bæjarráði á þriðjudaginn er
greint frá því að í bígerð sé stofnun
almenningshlutafélags á sviði
sjávarútvegs. I fundargerð bæjar-
ráðs kemur fram að bæjarstjóri
kynnti málið en nánari upplýsingar
þar er ekki að finna.
Fréttir hafa reynt að afla upplýsinga
um hvað þarna sé á ferðinni en allir
sem rætt var við verjast allra frétta.
Það er þó Ijóst að kveikjan að félaginu
er að Gullborg VE og Hrauney VE
voru auglýstar til sölu með öllum
veiðiheimildum. Hraus mönnum
hugur við því að sjá á eftir bátunum
og kvótanum sem þeim fylgir úr
bænum.
Eftir því sem næst verður komist
hafa nokkrir útgerðarmenn komið að
málinu og eru þeir tilbúnir í að leggja
fram hlutafé. Síðan hefur málið undið
upp á sig og er unnið að enn stærri
verkefnum. Einn, sent rætt var við,
segir að undirtektir hafi verið hreint
með ólíkindum. „Allir sem leitað
hefur verið til eru tilbúnir að leggja
fram fjármagn. Mér sýnist að komin
sé upp vakning um að spyma við
fótum í útgerðarmálum Eyjanna og ef
allt gengur að óskum eigum við eftir
að sjá hér fleiri báta og aukinn kvóta,“
sagði hann.
Hjólin komin áfulltf næstu viku
í gærkvöldi lét flotinn úr höfn eftir
rúmlega vikulangt verkfall sjómanna.
Utspil sjómanna á þriðjudaginn, að
bjóðast til að fresta verkfalli til 15.
mars, varð til þess að leysa um
hnútinn í bili a.m.k. Erfitt er að meta
áhrif verkfallsins á atvinnulíf í Eyjum
en Ijóst er að þau eru töluverð. Öll
fiskvinnsla nema í Vinnslustöðinni
hefur stöðvast en allt fiskvinnslutolk
er þó ennþá á launaskrá og atvinnu-
leysi hefur ekki aukist.
Einhver sló á
puttana á
einhverjum
Þegar rætt var við Elías Björns-
son formann Sjómannafélagsins
Jötuns eftir að ákveðið var að
fresta verkfallinu sagði hann að
sjómenn hafi í engu breytt
afstöðu sinni.
„Kröfur okkar eru á borðinu og
öllum kunnar." Hann segir að sjó-
menn hefðu verið til í frestun
verkfalls, en útgerðarmenn dregið
lappimar í fimm klukkutíma á
þriðjudagskvöldið. ,íað sló ein-
hver á puttana á einhverjum
einhvers staðar, sem breytti afstöðu
útgerðarmanna. Ég veit ekki hvað
gerði útslagið, en það er Ijóst að
það hefur virkað og menn eru
ánægðir með að geta haldið á
miðin á miðnætti og sest að
samningaborðinu með það fyrir
augum að leysa deiluna."
Amar Sigurmundsson sagðist í gær
hafa verið að fara yfir stöðuna og
hefði komið í ljós að Vinnslustöðin er
að vinna Rússafisk sem endist
langleiðina út næstu viku, Isfélagið
kláraði allan sinn fisk á þriðjudaginn
og minni fiskverkunarfyrirtækin hafa
lítinn sem engan ftsk.
„Ahrif verkfallsins verða töluverð þó
verkfallið sé að leystast. Fyrsta loðnan
kemur ekki fyrr en um helgi í fyrsta
lagi og bolfiskur fer ekki að berast að
Þegar Ijóst varð seinnihluta dags í
gær að útgerðarmenn höfðu sam-
þykkt tillögu sjómanna, að fresta
verkfalli frani til 15. mars, tók
bæjarlífið fjörkipp, sérstaklega þó
við höfnina. Flestir tóku þá
ákvörðun að leggja strax úr höfn
um leið og frestunin tæki gildi, þ.e.
kl. 23 í gærkvöldi.
Sighvatur Bjamason, hjá Vinnslu-
stöðinni, sagði, þegar við ræddum við
hann í gær, að þeirra floti færi um leið
og verkfalli lyki, flestir um
ellefuleytið. „Ætli maður verði ekki
að feta f fótspor Magga Kristins og
mæta á bryggjuna og leysa land-
festar," sagði Sighvatur. „Þetta eru
bara svo mörg skip að maður verður á
harðahlaupum. Það kemur sér að
maður er í góðri þjálfun," sagði
Sighvatur, hinn ánægðasti yfir að
lausn skyldi hafa fundist á deilunni.
Nú gilda þær reglur að lögskrá þarf
að nýju að verkfalli loknu. Sigurður
Ámason, annar tollfulltrúa, sem sjá
um skráningu í Eyjum, sagði í gær að
fyrr en undir aðra helgi,“ sagði Amar.
Hann sagði óbeinu áhriftn vera þau
að menn héldu að sér höndum í fram-
kvæmdum og aðrir væru í biðstöðu.
„Jákvæðu fréttimar eru þær að
starfsfólk fiskvinnslufyrirtækjanna er
enn á launaskrá og atvinnulausum
hefur ekki tjölgað. Það var um 2% í
janúar sem er heldur minna en í fyrra.
Samkvæmt þessu ættu hjól atvinnu-
Iífsins að vera komin í fullan gang um
og eftir miðja næstu viku.
ekki hefði myndast nein biðröð hjá
þeim vegna frestunar verkfallsins.
„Fyrirkomulagið er orðið allt annað
en var á skráningunni. Nú eru komin
faxtæki um borð í flest skipin og
skipstjóramir, sem hafa skráningar-
bækur um borð, senda okkur
einfaldlega upplýsingar um áhöfnina
áfaxi. Aðrir senda skeyti með sömu
upplýsingum. Sennilega er vissara að
setja stóra rúllu í faxtækið í kvöld, það
má búast við vænum bunka í fyrra-
málið,“ sagði Sigurður.
Hjá Heildverslun H. Sigurmunds-
sonar var seinnipartinn í gær allt á
fullu við að afgreiða kost í flotann.
Guðrún Jóhannsdóttir sagði að margir
hefðu verið búnir að taka hluta af
kostinum fyrir verkfall, vömr sem
þyldu geymslu. ,J2n þessa stundina er
allt á fullu með að afgreiða mjólk,
brauð, kjöt, ávexti og grænmeti því
mér skilst að allir steftii á að fara út kl.
11 í kvöld," sagði Guðrún og var
síðan þotin í að afgreiða kost.
1YGGI
IIR
7LDUNA
ggingamálin á
ig þægilegan há
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTOÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813:
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga nema sun. Kl, 08:15 Kl, 12:00
sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18.00
Uerjólfiur
BRUAR BILIÐ
Sími481 2800 Fax 481 2991