Fréttir - Eyjafréttir - 19.02.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 19. febrúar 1998
“ Slsifeiri
Innbakað nautahakk
Davíð Þór
Hallgrímsson var
sælkeri síðustu viku
og hann skoraði á
Þorstein Finnboga-
son sem hann sagði
vera fegursta pípu-
lagningamann á
norðurhjara ver-
aldar. Éins og Þorsteins var von og
vísa tók hann þessu með sínu alkunna
jafnaðargeði og tekur hér með við
sem sælkeri vikunnar.
„Ég vil byrja á að þakka Davíð Þór
fyrir áskorunina og ekki síst þessa
fögm lýsingu á mér þar sem hvert orð
er öðm sannara. En Davíð minn, mér
þykir leitt að geta ekki sagt það sama
um þig. Þegar ég leit yfir málara-
stéttina tók ég eftir því að þeir em allir
myndarlegri en þú..
Þar sem ég fíla mig best í eldhúsinu
við að matast vil ég að matseldin taki
stuttan tíma. Því kem ég með eina af
mínum uppáhaldsuppskriftum sem er
bæði stutt og laggóð.
Innbakað nautahakk:
smjördeigsplötur
500 g nautahakk
salt
pipar
Buitoni kryddsósa
Season all
1 stk. laukur
pepperoni
mozzarella ostur
egg
Hakkið er steikt á pönnu, salti,
pipar og Season All stráð yfir. Smátt
brytjaður laukur settur út í og að
síðustu sósan. Þá er smjördeigið flatt
út og jukkið sett á það, sfðan
pepperoni og osturinn. Þessu er síðan
lokað með smjördeigi. Þetta er
penslað með eggi og bakað í 20 - 30
mínútur við 180 - 200° hita. Borið
fram með salati og drykk eftir smekk.
Ekki sakar að konan sjái um
eldamennskuna.
Ég var ekki í neinum vandræðum
með áskorunina. Einn er sá sem
þykist mér fremri í einu og öllu. Sá er
Guðmundur Jóhannsson, forseti
Kiwanis, og því ætla ég að skora á
hann.
Hann getur beðið forsetafrúna að
bjarga sér ef hann lendir í
vandræðum.
Þorsteinn Finnbogason, sælkeri
O r ð
...að gárungarnir segi að útflutninugur
á siðfræði íslensks sjávarútyegs sé eitt
versta óþokkabragð sem Islendingar
gátu fundið í stríði sínu við Norðmenn.
Jafnvel hatrömmustu andstæðingum
Norðmanna hér á landi ofbjóði og þyki
heldur langt gengið.
...að nokkrir félagar út Svarta genginu
svokallaða séu að fara til Kanaríeyja nú
með vorinu. Þar í hóp var eitthvað
verið að .ræða ferðina þegar
Sigursteinn Óskars kvað uppúr með
það að það væri svo ódýrt að taka
leigubíl á Kanaríeyjum að það væri
ódýrara en að ganga. Eitthvað áttu
menn erfitt með að kyngja þessum
sannleika, en þá kom skýringin: Ef
maður gengur þarf maður að kaupa
sér tvo til þrjá öl á leiðinni og það er
dýrara en að taka leigubíl.
...að flestum þyki stofnun nýs
útgerðarfélags hið besta mál.
Svartsýnisrausarar og skrattamálarar
hér í bæ kalla þó ekki allt ömmu sína
og eru þegar byrjaðir að mála. Mála
hvern? Nú auðvitað skrattann á
vegginn.
...að Guðmundur Þ.B. Ólafsson verði
bæjarstjóraefni V-listans í komandi
kosningum.
/ z
■ ■
LEIDINLEGAST AB ÞRIPUTTA
Á laugardaginn varhóaði stjórn
ÍBV saman nokkrum hópi
manna. Tilefnið var að kjósa
iþróttamann ársins árið 1997.
Fáum kom á óvart að fyrirliði
ÍBV skyldi verða fyrir valinu. En
að þessu sinni var einnig
heiðruð gömul kempa sem gert
hefurgarðinn frægan, bæðií
knattspyrnunni fyrr á ámm og
svo í golfinu eftir að hann lagði
knattspyrnuskóna á hilluna.
Þetta var Haraldur Júlíusson,
sem fljótlega fékk viðumefnið
„gullskalli" vegna hæfni sinnar við að
skora skallamörk. í golfinu hefur hann
einnig fengið viðurnefni, „Halli pútt" en
hann þykir sérlega laginn þegar inn á
flatirnar er komið. Halli er Eyjamaður
vikunnar af þessu tilefni.
Fulltnafn? HaraldurJúlíusson..
Fæðingardagur og ár? 11. septem-
ber 1947.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? KvænturValgerði
Magnúsdóttur og við eigum þrjú börn.
Menntun og starf? Éger
netagerðarmeistari og hef unnið sem
slíkur síðustu 30 ár. Rek nú fyrirtækið
Net hf. með öðrum ágætum mönnum.
Laun? Sæmileg.
Helsti galli? Það veit ég ekki, þú
verður að spyrja aðra um það.
Helsti kostur? Assgoti góður í golfi,
sérstaklega púttunum.
Uppáhaldsmatur?
Hamborgarhryggurinn klikkar aldrei.
Versti matur? Siginn fiskur.
Uppáhaldsdrykkur? Góður bjór.
Uppáhaldstónlist? Ég er hrifinn af
nær allri tónlist nema þungarokki og
rappi.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir? Að vera með góðum
félögum að
spila golf.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir? Að þrípútta.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Ég myndi nú
bara taka því rólega. Það breytti litlu
fyrir mig. Líklega myndi ég borga það
sem þarf.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Enginn sérstakur, ég er mjög
ópólitískur maður.
Uppáhaldsíþróttamaður? Jack
Nicklaus, golfleikari hefur alltaf verið
mitt uppáhald.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Já, Golfklúbbnum og
ÍBV.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Því er
fljótsvarað, það eru íþróttir, helst goif
og fótbolti.
Uppáhaldsbók? Ég er nú ekki mikill
bókaormur, það eru aðallega blöðin
sem ég les núorðið. En á árum áður
gluggaði ég dálítið í Þórberg og þótti
Ofvitinn góður.
Hver eru helstu áhugamál þín? Það
er golfið og að vera með fjölskyldunni.
Svo finnst mér gaman að ferðast.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika og það að menn komi vel
fram.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Hið gagnstæða.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Eyjarnar, þegar þær skarta
sjnu fegursta, t.d. vestur á Hamri.
Áttirðu von á þessari
viðurkenningu? Nei, biddu fyrir þér.
Ég hélt að tilefnið væri allt annað
þegar ég var boðaður til þessa fundar.
Ég hélt að þetta væri í tilefni þess að
30 ár eru liðin síðan við unnum okkur
upp í 1. deild í fótboltanum, ætti bara
að hóa okkur saman þessum gömlu
jöxlum. En þetta kom mér skemmti-
lega á óvart.
Ætlarðu að halda áfram í íþróttum?
Já, það geri ég meðan ég get staðið í
lappirnar. Að vísu eru komin ein sex
eða átta ár síðan ég hætti í
fótboltanum. Við vorum að leika okkur
við þetta í hádeginu innanhúss. En
maður var orðinn svo stirður að það
var ekkert gaman að því. En golf ætla
ég að spila alveg fram að jarðarförinni
minni.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir þessi orð?
-Golf? Skemmtilegar stundir í Dalnum
með góðum félögum.
-Fótbolti? ÍBV í stuði.
-Halli Óskars? Léttur í golfinu,
sérstaklega ef Sigurgeir er með í
hollinu.
Eitthvað að lokum? Ég vil bara þakka
innilega fyrir þessa viðurkenningu sem
mérvarveitt. Húnkommér
skemmtilega á óvart.
Stúlka. Þann 9. febrúar eignuðust Hjördís Inga Amarsdóttir
og Ingimar Hreiðar Georgsson Heiðarvegi 64, stúlku. Hún vó
14 merkur og var 52 sm. að lengd. Það eru systkini hennar
sem sitja hjá henni. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Arnór
bakari
Rjómabollur
Vatnsdeigsbollur
Berlínarbollur
Bollur ón rjóma 5 stk. í pk.
Bollur eins og þær gerðust bestar í gamla daga.
Uppskriftir fró Karli O.J. Björnssyni bakarameistara
Bolluveistaln hefst n.k. föstudag í þessum verslunum
Vöruval
KA Goðahrauni
KATanganum
Þakkirírá Sambýlinu
Heimilisfólk og starfsfólk
Sambýlisins óskar bæjarbúum
gleðilegs árs. við vitum ekki hvemig
við fæmm að, ef ekki allir hugsuðu
svona hlýlega til Sambýlisins og
starfsins sem þar fer fram. Það er
alveg einstakt hvað félagasamtök,
einstaklingar, áhafnir og fyrirtæki
hugsa vel til okkar. við viljum geina
bæjarbúunt frá gjöfum sem okkur
hafa borist á árinu 1997 og þakka um
leið öllum gefendum fyrir þeirra
framlag og hlýhuginn sem þeirn
sylgir.
Fyrst skal nefna áhöfnina á
Vestmannaey VE hefur gefið
sambýlinu allar dósir sem falla til hjá
þeim í mörg ár, og hafa þessir
peningar fjánnagnað haust- og
vorferðalög heimilismanna.
Lionsfélagar komu færandi hendi
með rystikistu og kjöt fyrir jólin.
Vorið kom og færði okkur 60000
krónur sem er notað í að kaupa
heimilistæki og tól.
Kiwanisfélagar komu og færðu
okkur sælgætiskassa. Rótarý-félagar
komu með sitt árlega útijóatré og
seríu, 'samt lúðra-blæstri þriggja
drengja úr tónlistar-skólanum.
Áhöfnin á Bylgjunni Ve færðu
okkur ftsk ásamt ftskmarkaðinum og
Sigurjóni Óskarssyni og frú sem gefa
okkur fist þegar okkur vantar, einnig
færðu þau okkur Paté körfu fyrir jólin.
Amór bakari og frú koma oft færandi
hendi með brauð og bakkelsi.
Sveinafélag jámiðnaðarmanna lánaði
okkur íbúð sín v/vorferðar
endurgjaldslaust.
Auður og Gunnar Ingi í Smart
komu færandi hendi fyrir jólin annað
árið í töð og færðu öllu
heimilismönnum gjafakort uppá 5000
krónur. Frábært framlag það. Við
viljum færa öllum gefendum okkar
bestu þakkir og óskir um gæfu og
gengi í starfi og leik urn ókomin ár.
Með bestu kveðjum
Heimilsfólk og starfsfólk
Sambýlisins