Fréttir - Eyjafréttir - 19.02.1998, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 19. febrúar 1998
Hlynur Stcfánsson Iþrótta-
maður Vestmannaeyja 1997
-Haraldur Júlíusson fékk viðurkenningu fyrir frábæran árangur í kanttspyrnu og golfi
Hlynur Stefánsson tekur uið uerðlaunagripum úr hendi Þorsteins
Gunnarssonar.
Eyjamenn lifa og
hrærast í knattspyrnu
-segir íþróttamaður Vestmannaeyja 1997
Landakirkja
Fimintudagur 19. febrúar
Kl. 17:00 T.T.T. (10- 12ára)
Laugardagur 21. febrúar
Kl. 14:00 ÚtförÖnnu Guðrúnar
Erlendsdóttur
Sunnudagur 22. febrúar
Kl. 11:00 Sunnudagaskólinn -
Strákurinn Silli kemur í heirnsókn
Kl. 14:00 Almenn guðsþjónusta
- Skátamessa! Ólafur Ásgeirsson,
skátahöfðingi, stígur í stól
-Ingveldur Ýr Jónsdóttir
sopran-söngkona syngur.
KL. 20:30 " KFUM & K Landa-
kirkju - unglingafundur.
Mánudagur 23. febrúar
Kl. 20:30 Bænasamvera og
Biblíulestur í KFUM & K
húsinu
Þriðjudagur 24. febrúar
Kl. 16:00 Kirkjuprakkarar (7-9
ára)
KL. 20:30 Eldri deild KFUM &
K fundar í húsi félaganna
Miðvikudagur 25. febrúar
Kl. 10:00 Mömmumorgunn -
Öskudagsgleði!
Kl. 12:10 Kyrrðarstund í hádegi
- Kl. 12:00 Orgelleikur í
kirkjunni.
Kl. 15:30 Fermingartímar -
Barnaskólinn
Kl. 16:30 Fermingartímar -
Hamarsskóli
Kl. 20:00 KFUM & K húsið
opið unglingum.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Þriðjudagur
Kl. 17:30Krakkakirkja(aldurinn9
-12 ára)
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur
Föstudagur
KL. 17:30 Krakkakirkja af lífi og
sál (fyrir böm frá 3-9 ára)
Kl. 20:30 Unglingastarfið
Laugardagur
Kl. 20:30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 15:00 Vakningarsamkoma
Samskot til Lindarinnar
Aðventkirkjan
Laugardagur 21. febrúar.
Kl. 10:00 Biblíurannsókn
Allir velkomnir.
Baháí SAM-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B,
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20:30.
Allir velkomnir.
Heitt á könnunni
Biblían
talar
Sími
481-1585
Á laugardaginn var íþróttamaður
Vestmannaeyja valinn í 20. sinn og
kom fáum á óvart að Hlynur
Stefánsson, fyrirliði Islandsmeistara
ÍBV 1997, skyldi verða fyrir valinu.
Þorsteinn Gunnarsson. formaður
valnefndar ÍBV, rakti glæsilegan feril
Hlyns á í knattspymu sem hann
kórónaði sl. sumar með frábærri
frammistöðu í Islandsmeistaraliði IBV
þar sem hann var fyrirliði liðsins.
„Hlynur lék sinn fyrsta leik með ÍBV
1982 en stimplaði sig inn í fótboltann
í sínum fyrsta alvöru leik, 1983, með
því að skora þrennu. Hlynur lék með
IBV í 2. deild 1984 og 1985 en hélt til
Noregs 1986 og lék með 3. deildarliði
í Þrándheimi. 1987 kom hann heirn á
ný til ÍBV en 1988 lék hann með
Víkingi. Aftur sneri Hlynur heim
1989 og átti stóran þátt í því að koma
ÍBV upp í 1. deild og var lykilmaður
liðsins næstu þrjú árin. 1992 fór
Hlynur í atvinnumennsku og lék með
Örebro í Svíþjóð næstu þrjú árin við
góðan orðstír. Með Örebro lék Hlynur
101 deildaleik í Allsvenskan og
skoraði 11 mörk,“ sagði Þorsteinn.
„Árið 1996 snéri Hlynur heim í
heiðardalinn og mun hann væntanlega
ljúka ferli sínum með ÍBV. Hlynur á
að baki 25 A landsleiki og 1 mark,
einn með U-21 árs landsliðinu. 5 með
18 ára landsliðinu og 9 með 16 ára
landsliðinu. Hlynur hefur því leikið
með öllum landsliðum Islands. I
fyrrasumar lék Hlynur eins og
hershöfðingi í vöminni, stjómaði
Iiðinu eins og fyrirliða sæniir og var
að flestra mati jafnbesti maður liðsins.
Hlynur var valinn knattspyrnumaður
ársins hjá knattspyrnudeild ÍBV sl.
sumar og var stigahæstur í einkunna-
gjöf Morgunblaðsins ásamt Ólafi
Þórðarsyni."
I mati valnefndar segir að Hlynur
sé fyrirmynd jafnt innan vallar sem
utan. Þeir sem þekkja vel til hans vita
að þar fer metnaðarfullur og
heilbrigður leikmaður sem ávallt
leggur sig allan fram til þess að ná
markmiðum sínum. Hlynur á að baki
124 leiki fyrir ÍBV í efstu deild og
hefur skorað samtals 21 mark.
Frábær árangur í 30 ár
Undanfarin þrjú ár hefur valnefnd
ÍBV heiðrað einstaklinga sem hafa
verið í eldlínunni í íþróttalífi Vest-
mannaeyja í gegnum tíðina. Þeir
einstaklingar sem hafa verið verð-
launaðir eru Ámý Heiðarsdóttir, Jón
Bragi Amarsson og Sigbjöm Óskars-
son. Að þessu sinni ákvað valnefndin
að heiðra golfarann síunga og besta
skallamann ÍBV fyrr og síðar að
margra mati, Harald Júlíusson, fyrir
framlag hans í þágu íþrótta í
Vestmannaeyjum.
I ræðu formanns valnefndar kom
fram að Haraldur Júlíusson varð ungur
á meðal okkar fremstu knattspymu-
manna og kylftnga. Hann lék sinn
fyrsta leik með ÍBV í 2. deild 1966.
„Árið 1967 varð sögulegt hjá
Haraldi því þá komst IBV í fyrsta
skipti upp í 1. deild í sögu
bandalagsins, en í fyrra vom liðin 30
ár frá þessum þáttaskilum í knatt-
spyrnusögu ÍBV. Haraldur varð í
fyrsta sinn Vestmannaeyjameistari í
golfi 1967. Næstu árin lék hann
knattspymu með ÍBV í I. deild og var
einn af bestu kylfmgum landsins.
Hann segist sjálfur hafa tekið
knattspymuna fram yfir golftð, eða
þangað til 1975 að hann lagði
knattspymuskóna á hilluna en sneri
sér alfarið að golfíþróttinni. Haraldur
lék samtals 91 leik í fremstu víglínu
fyrir ÍBV í efstu deild, frá 1969 til
1975 og skoraði 36 deildarmörk.
Væntanlega hefur stór hluti þeirra
verið með skalla. Þegar ÍBV varð
bikarmeistari 1972 með því að leggja
FH að velli á gamla Melavellinum 2-0
við slæmar aðstæður, skoraði
Haraldur bæði mörk ÍBV.
Oft á tíðum urðu árekstrar á milli
íþróttagreina hjá Haraldi. Árið 1970
fékk Haraldur leyfi þjálfara ÍBV til
þess að sleppa leik við KR á
Melavellinum til þess að taka þátt í
landsmótinu í golfi. Þegar Haraldur
lauk næst síðasta degi á landsmótinu
fór hann beint á Melavöllinn til að
horfa á leik KR og ÍBV. Hálftími var
eftir þegar Haraldur mætti og hafði
KR einu marki yfir. Haraldi var skellt
í búning og hann settur inn á og
auðvitað skoraði hann jöfnunamtarkið
rétt fyrir leikslok. En fómar-
kostnaðurinn við jöfnunarmarkið var
dýrkeyptur þvf Haraldur meiddist á
hendi og gat hann ekki beitt sér á fullu
síðasta hringinn á landsmótinu þar
sem hann var í toppbaráttu."
Á síðasta ári vom liðin 30 ár síðan
Haraldur varð fyrst Vestmanna-
eyjameistari í golfi. „Alls hefur hann
orðið níu sinnum karlameistari GV í
gegnum tíðina. Hann er enn í fremstu
röð kylfinga GV og gefur ekkert eftir,
nema síður sé. Þess má einnig geta að
Haraldur varð fimmtugur 11.
september sl.
Haraldur, kærar þakkir íyrir framlag
þitt í þágu íþróttahreyfingarinnar í
Vestmannaeyjum í gegnum tíðina,"
sagði Þorsteinn.
Hlynur Stefánsson, nýkjörinn
Iþróttamaður Vestmannaeyja 1997,
segir að hann hafi ekki verið búinn
að spá neitt sérstaklega í þennan
titil. „En eftir á að hyggja þá átti ég
nú frekar von á því að knatt-
spyrnumaður yrði fyrir valinu,
vegna þess að við urðum nú
Islandsmeistarar og stóðum okkur
vel í sumar. Það var bara spurn-
ingin um það hver yrði fyrir valinu,
vegna þess að það voru svo margir
að standa sig vel í liðinu. En þetta
er að sjálfsögðu viðurkenning fyrir
allt liðið og knattspyrnuna í
Vestmannaeyjum, og þá sem
standa að henni.“
Hlynur segir að gildi þessarar
viðurkenningar sé ótvírætt bæði fyrir
Vestmannaeyjar og það íþróttastarf
sem unnið er hér. „Þetta hefur jákvæð
áhrif á yngri menn. Ég hef nú samt
ekki litið á mig sem einhverja
fyrirmynd þannig. Ég hef verið í
þessu fyrst og fremst fyrir sjálfan mig
og þá sem standa að mér og ÍBV. Ég
held að ég sé samt ekkert verri
fyrirmynd en hver annar ef út í það er
farið.“
Hvemig sérðu komandi knatt-
spymuvertíð fyrir þér?
„Við höfum titil að verja og allir
vilja sigra okkur. Við höfum að vísu
misst ákveðna lykilmenn í liðinu, eins
og flest lið í deildinni en það er verið
að finna menn í þær stöður. Svo
höfum við væntingar til þeirra manna
sem eru að koma upp. En við sem
eftir emm í liðinu verðurn að bæta við
okkur snúning, ef við ætlum að halda
sama stöðugleika og verið hefur. Við
höfum æft mjög vel og ég tel að við
ættum að hafa alla burði til þess að
standa okkur. Við erum að fara í
æfingaferð til Kýpur á laugardaginn.
Og svo verður önnur æfingaferð í
apríl til Portúgals, en þá verður meira
af yngri mönnum tekinn með sem
hafa verið að æfa í vetur."
Hlynur segist nú ekki eiga von á því
þessi útnefning verði honum til
einhvers sérstaks frarna. „Þegar ég
spilaði út í Svíþjóð, þá vomm við
meiri fyrirmyndir yngri krakka og oft
fór langur tími í að gefa eigin-
handaráritanir þar eftir leiki. Mér
finnst þetta vera heldur fjarlægara
héma, en það kann að breytast eftir að
við fómm að ná betri árangri og verða
í fremstu röð. Aukin umfjöllun hrífur
krakkana, eins og eftir bikarleikinn í
fyrra, þá fengum við myndaalbúm frá
krökkum sem höfðu teiknað myndir
af okkur í bikarleikjunum. Við fórum
tveir leikmenn í einn bekkinn og heils-
uðum upp á krakkana. Þannig að það
fer ekki framhjá neinum hvemig við
emm að standa okkur.“
Færðu aldrei leiða á knattspym-
unni?
,Auðvitað getur maður fengið nóg
og fótboltinn orðið of fyrirferðamikill,
þannig er meðalhófið kannski best.
Hins vegar verður því ekki neitað að
fótboltinn er ákveðið sameiginlegt
hugarfóstur Eyjamanna og allir hafa
sína skoðun, enda líka stærsta
íþróttagreinin og flestir sem koma að
henni á einn eða annan hátt. Þannig
að menn lifa og hrærast fyrir knatt-
spymuna. Og þegar vel gengur er það
nrjög jákvætt fyrir bæjarfélagið. Við
leikmennimir höfum auðvitað mikla
ábyrgð og er nauðsynlegt að sýna gott
fordæmi. Og þegar vel gengur vilja
allir taka þátt. Þegar mótbyrinn er þá
sér maður fyrst hverjir em alvöm
stuðningsmenn liðsins."
Hlynur hefur skrifað undir tveggja
ára samning við ÍBV og hann hefur
fulla uú á því að liðið komi til með að
halda sínu striki og vera í toppbar-
áttunni næstu árin.
íþróttamenn Vestmannaeyja í 20 ár
1978: Óskar Sigurpálsson, lyftingamaður
1979: GunnarSteingrímsson, lyftingamaður
1980: Páll Pálmason, knattspyrnumaður
1981: Sigmar Þröstur Óskarsson, handboltamaður
1982: Sigfríð Björgvinsdóttir, sundkona
1983: Gylfi Garðarsson, kylfingur
1984: Árni Sigurðsson, sundmaður
1985: Þorsteinn Gunnarsson, knattspyrnumaður
1986: BirgirÁgústsson, kylfingur
1987: Sindri Óskarsson, kylfingur
1988: Nökkvi Sveinsson, knattspyrna
1989: SigurðurGunnarsson, handboltamaður
1990: Logi Jes Kristjánsson, sundmaður
1991: Sigmar ÞrösturÓskarsson, handboltamaður
1992 og 1993: Þorsteinn Hallgrímsson, kylfingur
1994: Andrea Elín Atladóttir, handboltakona
1995 og 1996: Logi Jes Kristjánsson, sundmaður