Fréttir - Eyjafréttir - 03.09.1998, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. september 1998
Keikó
3
Helmingur af botni aðallaugarinnar
var útbúinn sem grjóturð með giljum
og skomingum með hrjúfu yfirborði
til að líkja sem mest eftir náttúrulegu
umhverfi hafsins.
I iauginn var hægt að útbúa strauma
og eins loftbólur og fleira. Neðan
yfirborðs laugarinnar var komið fyrir
tveimur stórum gluggum svo að fólk
gæti séð Keikó í lauginni og eins til
þess að hann gæti séð fólkið sem væri
að skoða hann.
Við laugina var byggður frystir sem
geymt gat rúm 54 tonn af frosnum
fiski sem er ársskammtur fæðis fyrir
Keikó en fæðisskammtur Keikós var
jafn mikill og allra annarra dýra í
Sædýrasafninu.
Keikó flunur frá Reino tíl
Newport
7. janúar 1996 var Keikó fluttur
flugleiðis frá Mexico til Newport í
Oregon þar sem honum var komið
fyrir í nýju lauginni. Keikó var þá
3052 kg. að þyngd og hann hafði ekki
synt í sjó í frá því hann fór úr
Sædýrasafninu í Hafnarfirði, eða í 14
ár.
Keikó dafnaði fljótt vel í nýju
lauginni og heilsa hans batnaði til
muna. í árslok 1996 hafði hann þyngst
um 453 kg. og var einungis með
húðáverka af völdum vörtuvíruss á
tveimur stöðum. Hann var einnig allur
mun frískari og kröftugri.
Fjöldi sérfræðinga og vísindamanna
fylgdist með Keikó og annaðist hann
og rannsóknir þeirra snérust ekki
eingöngu um heilsu og atferli Keikós
heldur fengust góðar upplýsingar um
atferli háhyminga almennt.
Keikó kennt að veiða sðr til
matar
Á árinu 1997 var farið að sleppa
lifandi fiskum í laugina hjá Keikó og
til að kenna honum að veiða þá sér til
matar. Þá er hann á árinu einnig loks
laus við alla sjúkdóma sem hafa hrjáð
hann frá flutningnum frá Islandi árið
1982.
5. júní var Keikó lyft upp úr
lauginni í fyrsta sinn eftir að hann kom
til Newport og hann vigtaður og
reyndist hann þá vega 9620 pund og
hafði þyngst um 1900 pund á þeim 18
mánuðum sem hann hafði dvalið í
Newport. í júlí og ágúst þjáðist Keikó
af lifrar og öndunarsjúkdómum sem
náðist fljótlega að lækna með
lyfjagjöf.
1 ágúst fangaði Keikó lifandi fisk í
lauginni hjá sér og var hann þá að
veiða bráð í fyrsta skipti í 18 ár. í
fyrstu át hann ekki bráðina heldur
færði þjálfurum sínum hana. í lok
þriggja vikna þjálfunartímabils hafði
hann veitt og étið a.m.k. einn þorsk að
eigin fmmkvæði.
Keikó valin ný og nattúruleg
heimkynni
f janúar 1998 fór Keikó í gegnum
tveggja mánaða ítarlega rannsókn og
er hann örugglega mest rannsakaði
hvalur í veröldinni. Rannsóknimar
leiddu .í ljós að Keikó virtist
fullkomlega heilbrigður og ekki
haldinn neinum sjúkdómum.
Þetta ár hefur verið unnið markvisst
að því að finna hentugan dvalarstað
fyrir Keikó í norður Atlantshafinu.
Um 5000 mílna strandlengja á þesu
svæði var skoðuð til að finna sem
hentugastan stað.
Niðurstaða Free Willy samtakanna
var að leita eftir því að fá að staðsetja
flotkví fyrir Keikó á Islandi og gáfu
íslensk stjómvöld leyfi til þess eftir að
fyrir lá að Keikó væri ekki sýktur af
sjúkdómum. Samtökin skoðuðu
nokkra möguleika sem í boði vom
sem staður fyrir flotkví Keikós og
niðurstaða þeirra var að staðsetja hana
í Klettsvíkinni í Vestmannaeyjum.
Flotkví fyrir Keikó flutt
tilEyja
Þegar samkomulag um það lá fyrir
milli samtakanna og Vestmannaeyja-
bæjar var strax hafist handa við
undirbúning á flutningi kvíarinnar til
Eyja en búið var að hanna hana og
framleiða í Bandaríkjunum.
Flotkvíin sem er 80 metrar á lengd,
30 metrar á breidd og um 8 metrar á
dýpt var síðan flutt til íslands í júní.
Einingar kvíarinnar voru fluttar til
Keflavíkur með stærstu flutninga-
flugvél heims og henni síðan ekið í
Þorlákshöfn þaðan sem hún var flutt
með Herjólfi til Eyja.
Til Eyja var kvíin komin 22. júní og
hófst samsetning hennar fljótlega.
Síðan þá hefur verið unnið hörðum
höndum að samsetningu kvíarinnar og
hafa bæði íslendingar og Banda-
ríkjamenn unnið að því í sameiningu.
Samsetningu kvíarinnar lauk í ágúst
og hefur hún hlotið eldskím sfna í
tveimur brælum sem komið hafa síðan
hún var flutt út í Klettsvík.
Kvíin er tjóðruð niður með stórum
og miklum ankerum sem notuð vora í
síðari heimsstyrjöldinni og í fyrstu
brælum kom í ljós að hún haggast ekki
þótt hann verði brælinn á Víkinni.
Stefnt að Því að sleppa
Keikó
Samtímis því sem unnið hefur verið
að samsetningu kvíar Keikós í Eyjum
þá hefur áfram verið haldið þjálfun
Keikós í laug hans í Newport í Oregon
til að búa hann sem best undir það
þegar hann verður settur í sjóinn í kví
sinni í Klettsvikinni en þá hefur Keikó
ekki verið úti í villtri náttúra í 19 ár.
Það mun verða mjög vel fylgst með
háhymingnum í kví hans í Eyjum og
þjálfarar hans munu verða með
honum þar til hægt verður að sleppa
honum lausum, en óvíst er hvænær
það verður hægt.
KeíKó fluttur frá laugínní I
Newport tíl f lugvallarins
Undirbúningur að flutningi Keikós
til Vestmannaeyja er nú á lokastigi.
Háhymingurinn er tilbúinn til
flutningsins og búið er að skipuleggja
flutning hans mjög nákvæmlega. Það
er í mörg hom að líta varðandi
flutninginn og fjöldi fólks kemur að
því máli.
Flumingurinn hefst 9. september
um kl. 22:30 að íslenskum tíma. Þá
verður Keikó hífður upp úr laug sinni
í Newport f Oregon og settur í
sérhannaða flutningslaug sem fyllt er
með mjög köldu vatni. Flutnings-
lauginni er komið fyrir á flatvagni sem
dreginn verður eftir hraðbraut 101 til
flugvallarins í Newport en þangað era
um 5,5 kílómetrrar frá Sædýrasafninu.
Hraðbrautin verður lokuð meðan
flutningurinn fer fram og lofthelgi
verður sett um laug hans og
flutningsleið svo hann verði ekki fyrir
truflunum af völdum hávaða frá
flugvélunt eða þyrlum sem fjölmiðlar
hugsanlega myndu vilja nota til að
myndaflutninginn.
Keikó verður síðan komið fyrir í C-
17 flutningavél bandaríska hersins
sem er stærsta flutningavél hersins og
honum flogið beint til Vestmannaeyja.
Eldsneytisvél mun fylgja
flutningavélinni þannig að hún geti
tekið eldsneyti á flugi.
Komið verður til Eyja að
morgni10.september
Reiknað er með að vélin lendi á
Vestmannaeyjaflugvell klukkan níu
að morgni 10. september.
Flutningslaug Keikós verður þá strax
tekin úr vélinni með sérstökum
lyftubúnaði sem verður á flugvell-
inum og hún sett á flatvagn sem flytja
mun Keikó niður að höfn.
Frá flugvellinum verður farið sem
leið liggur niður Dalaveg, Heiðarveg
og Skildingaveg á Básaskersbryggju
en við austurkant hennar verður Iaug
Keikós hífð út á sérstakan pramma
sem dreginn verður út í Klettsvík þar
sem hann verður hífður í flotkvínna,
framtíðardvalarstað sinn.
Mikill f jöldí Iréttamanna
kemurtilEyja
Fjöldi fréttamanna mun koma til
Eyja í tengslum við flutninginn á
Keikó og verða fréttir sendar beint frá
Eyjum til sjónvarpsstöðva f Ameríku
og Evrópu. Það má því búast við
talsverðum hamagangi í öskjunni hjá
fréttafólkinu meðan á þessu stendur.
Sérstök svæði á leið Keikós frá flug-
velli í Klettsvík verða afmörkuð fyrir
fréttamenn til að þeir hafi góða
aðstöðu til að sinna störfum sínum.
Flutningsleið Keikós frá flugvelli
verður lokuð fyrir umferð á meðan á
flutningnum stendur en Vestmanna-
eyingar munu geta fylgst með
flutningnum til hliðar við flutnings-
leiðina og eru þeir hvattir til að láta
þennan heimsviðburð ekki fram hjá
sér fara.
Skólabömum verður gefið færi á að
fylgjast með flutningnum enda
einstakt tækifæri fyrir þau að taka þátt
í þessum viðburði og víst er að börn
víða um heim vildu verða í þeirra
sporam að morgni 10. september.
Keikóverðurflutturmeð
Herjólfi ef ekki verður
flugfært
Eins og Eyjabúar þekkja er ekki á
vfsann að róa með flug til
Vestmannaeyja og því er til
varaáætlun ef C-I7 vélin getur ekki
lent í Eyjum sökum ófærðar.
Hún mun þá lenda í Keflavík og
Keikó verða fluttur landleiðina til
Þorlákshafnar þar sem Herjólfur mun
bíða hans og flytja hann til Eyja.
Reiknað er með að Herjólfur komi til
Eyja um klukkan þrjú og þá verður
Keikó fluttur á austurkant Básaskers-
bryggjunnar þaðan sem hann verður
fluttur út á prammann og í Kletts-
víkina.
Það er því ljóst að hvemig sem skap
veðurguðanna verður 10. September
þá mun Keikó koma til Eyja og
komast í náttúrulegt umhverfi í fyrsta
sinn síðan hann var veiddur á
íslandsmiðum fyrir 19 áram.
Keikó uið glugga á búri sínu i
NewporL
Eyjamenn hafa tekíö uel á
mótistarfsmönnumFree
WillyKeikó
Allur undirbúningur að flutningi
Keikós til Eyja hefur gengið mjög vel
og era forsvarsmenn Free Willy Keikó
stofnunarinnar ákaflega ánægðir með
þær móttökur sem starfsmenn þeirra
hafa fengið í Eyjum
Vestmannaeyingar hafa tekið vel á
móti þeim, lagt sig fram um að leggja
þeim lið og leysa hvem þann vanda
sem upp hefur komið.
Miðað við þau kynni sem Free
Willy Keikó samtökin hafa af
Vestmannaeyjum og íbúum bæjarins
era þau þess full viss að Kekó mun fá
hlýjar og góðar móttökur þegar hann
flytur „löghemili" sitt frá Newport í
Oregon í Klettsvíkina í Vestma-
nnaeyjum og verður boðinn
velkominn bæði af mönnum og
dýram í Éyjum við heimkomuna.
Keikó á laugarbarminum í Newport í Oregon.
iHilclciv til VesÉmiuiiiueijingu
Free 1Villy Reikó Foundation þakhar Vestmannaeyingum fyrir jáhvæóar undirtektir, greióvikni og hjálpsemi vió starfsmenn stofnunarinnar sem unnið
hafa aó undirbúningi flutnings Reikós til €yja. Allir hafa lagst á eitt um að greiða götu starfsmanna okkar og veitt þeim fyrirgreiðslu og aðstoð.
Við erum Vestmannaeyingum þakklátir fyrir þessar góðu viðtökur og þær hafa sannfært okkur um að við vorum heppnir með staðarval fi/rir
dvalarstað Reikós.
Miðað við reynslu okkar af Vestmannaeyingum og þeirri einstæðu náttúruparadís sem eyjarnar ykkar eru trúum við því að Reikó mun líka vel vistin í
nábýli við Vestmannaeyinga og honum muni farnast vel / sfnum nýju náttúrulegu heimkynnum.
Með kveðju
Free KDiWtj Reiko Foundation