Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Föstudagur 1 ]. september 1998
Vestmannaeyjar
eins og filma í
framköllun
fómarlamb ákveðinna manngerða sem
svífast einskis til þess að ná fram
markmiðum sínum. Ergo Græðgi,
ósvífni og virðingarleysi gagnvart
öðrum líftegundum. Þess vegna er
Keikó talandi dæmi um harðvítuga
umhverfispólitík sem á sér stað í
heiminum í dag.“
Stefnuyfirlýsing benduheimspeki og
spakhygli margeflistöflunnar:
Háttskilyrtasta, eðlislægasta, efnis-
ríkasta, formleiknasta, gagnmynduga-
asta tjáningarvoldugasta, kynætt-
aðasta, tilvistartæknilegasta, skyn-
ræknilegasta, vísivitundarlegasta,
vakningarmagnaðasta, hvatningar-
öflugasta, gjöfulgöfugasta, sköpunar-
guðdómlegasta, tekningartíðasta,
stofnunartækasta, kröfuharðasta,
festulífsseigasta, þarfahugaðasta,
stjómvitrasta, sjálfagaðasta, bendu-
skipaðasta, lögmálasljósasta, orku-
kröftugasta, virkjunarviljugasta, uppi-
stafrænasta, afstæðasta, samstuðl-
aðasta, undirstöndugasta og niður-
staðlaðasta hugtak sem ég þekki og
skil er „Benda“
„Vegna þess er þess virði að vera til
sem andi og hugur með tilfinningu í
und og geði á ferð og flugi í verandi.
farandi og komandi, í nútíð, þátíð og
framtíð með guði, gyðju og goði, með
manni konu og bami, í náttúmríki með
dýmm og jurtum, sem líftegundin
maður og mannslíkami, lútandi
eiginlegri, mögulegri, stöðulegri, hæfi-
legri, breytilegri, haganlegri, listilegri,
lystilegri, hegðanlegri, varanlegri,
raunvemlegri, trúverðuglegri, ákjós-
anlegri, friðsamlegri, mennsku og
menningnu ásamt manneskju,
persónu, sál, erni sinni, lund. æði,
skapi, æsi og minni í starfandi,
gerandi, megandi, verðandi, hafandi,
hreyfandi, heyrandi, talandi, skoðandi,
þekkjandi, segjandi, syngjandi,
hlæjandi, -sýnandi ilmandi, snertandi,
lifandi, byggjandi o.s.frv. o.s.frv. í
óendanlegu benduheims- eða
heimssömunarveldi. -!
-segir Bjami H. Þórarinsson sjónháttar-
fræðingur og frumkvöðull sjónþinga
sem er að opna sitt tíunda sjónþing
Bjarni H. Þórarinsson
sjónháttarfræðingur og
frumkvöðull sjónþinga er í
bænum og er að fara halda
sitt tíunda sjónþing.
Eigum við kannski að tala um há-
hyminga?
„Ég spyr á móti emm við að tala um
staðbundinn háhyrning eða flökkuhá-
hyming?"
Bjami segir að hann hafi alltaf
langað til að koma til Eyja en síðast
var hann í Eyjum 1967. „Ég kom með
gömlu Herðubreið sem var í strand-
siglingum á móti Heklunni og Esj-
unni héma í gamla daga.“
Bjarni segir að hann muni ágætlega
eftir þessum ferðum en hann hafi
verið ánægðastur ef að vont var veður,
vegna þess að hann hafi notið þess að
sjá þegar öldumar brotnuðu á skipinu
og pusaði yfir. „Ég fékk far á milli
fótanna á brytanum 1955 á leið í sveit
á Homafirði. Það var mikið mál þá en
nú er breytt dínamík í flutningum.“
Bjami talar unt það að nú sé hálf öld
síðan hann kom til Eyja með
Herðubreið og segist hafa notið þess
að hafa farið þessa ferð á sínum tíma
en þá var sjónháttarfræðin ekki orðin
til og breyttir tímar nú. „Það er
merkilegt frá sjónarhóli sjónháttar-
fræðings að skynja þessa eyju. Fyrir
mér eru Eyjar eitt sjónþing og ég set
það í samhengi við hvemig og hversu
vel eyjamar hafa staðist tímans tönn.
Þetta er eins og að fylgjast með filmu
í framköllun. Ég kom til að mynda
með Herjólfi hingað til Eyja og þar em
um borð mjög upplýsandi kort um
Vestmannaeyjar. Þar sá ég í sjón-
hendingu hvemig Heimaey er eins og
lykill. Fyrir mér hefur hann merkingu
og innst inni veit ég það að það er
merking fyrir Eyjamenn. Þessi lykill
er að einhverju kerfi, náttúrulegu kerfi
frá sjónarhóli sjónháttarfræðanna.
Fyrir mig hefur þessi heimsókn til
Eyja skerpt sjónina á landið og í
framhaldi af því sé ég samhengi.
Þegar ég kom í innsiglinguna var
Heimaklettur kominn í æðra veldi.
Sér f lagi að sjá nýja hraunið og þá vil
ég að fólk hafi gjaman líkinguna um
filmu í framköllun í huga sem ég
nefndi hér áðan. Þannig má líkja
þessu við lífið í dag þar sem sjónvarp
er ekki aðgengilegt nema hafa lykil.
Allt gerir sig gildandi með lykli.“
Þetta er tíunda sjónþing Bjarna og
löngu tímabært myndu margir segja
að halda sjónþing í Eyjum, en báran er
aldrei stök. „Ég hef haldið sjónþing
vfða um land og meira að segja um
borð í Akraborginni, en ég er kominn
af breiðfirskum sjómönnum svo það
kann hugsanlega að skýra málið, en
þetta hefur miklu meira þýðingu
vegna þess að það er endalaust hægt
að performera. Vonandi lýkur þessari
undrafögru þroskagöngu í skýjunum
aldrei.“
Nú talar þú mikið um Visinda-
kademíu, hvað er hún?
„Vísiakademía," segir Bjami og
hlær. „Vísiakademía er nýr vettvang-
ur mennta. Ný menntastefna og
menntastíll, og kannski menningar-
stíll. En númer eitt er þetta nýtt
þekkingarver, sjáver, sjónver og
sjónþing. Það er allt þama inni hverju
nafni sem nefnist. Það yrði að æra
óstöðugan að nefna allt sem að
Vfsiakaedemían tekur yfir, en hún er
lykill. Lykill að fólki landi og heimi.“
Nú er Bjami kominn í haaaaaaaaa-
aaaamm og ég veit ekki hvaðan á mig
stendur veðrið. „Vísiakademía verður
baráttutæki sem skirrist ekki við að
beita sínum réttlætanlegum meðulim,
menntun og aðferðum með bættan hag
manna og bætt kjör að stefnumiði.
Hún mun beita sér af fullum
heilindum fyrir betri viðskiptum og
samskiptum manna á meðal, þjóða á
meðal, ættflokka og kynstofna,"
Bjami segir að hann sem
sjónháttafræðiningur láti hann sig allt
varða og allt skilar sér í því sem ég
geri og hugsa.
En af hverju núna?
,£g og Keikó eigum ýmislegt sam-
eiginlegt og ef grannt er skoðað þá er
Keikó með sjónþing líka. Þetta er
ekki neinn einka performans Keikós“
En Keikó er ekki maður?
„Keikó stendur fyrir firringu sem er
fylgifiskur nútímamannsins. Keikó
kemur með ákveðna hugsun en Keikó
er saklaus skepna og þar af leiðandi
Frábær tölvuskóli fyrir
stelpur og stráka
> Skemmtilegt þemanám
> Jákvaett námsmat
> Skapandi námsumhverfi
> Samþætting námsgreina
• Persónuleg aðstoó
• Raunhæf verkefni
Framtíðarbörn er tölvuskóli fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-14 ára
þar sem áhersla er lögð á skemmtilegt þemanám. Allir fá tækifæri til að
njóta sín í fámennum hópum, sem gerir kennaranum kleift að fylgjast
með og aðstoða hvern og einn.
Vetrarstarfið okkar er að hefjast. í vetur gerast nemendur okkar
Könnuðir Framtíðarbarna sem kanna mörg ólík efni. Má þar nefna
tækni, vísindi, íþróttir ofl. Námsefni vetrarins spannar öll helstu
tæknisvið tölvu- og upplýsingatækninnar á afar fjölbreyttan hátt.
Irvnritun er hafin - hringdu núna
481 1938 og 553 3322
Kennt verður að
Skólavegi 1, efri hæð
(Athafnaverið) Vestmannaeyjum,
og hefst kennsla 14. september.
Kennari verður Eva Káradóttir.
FRAMTÍÐARBÖRN