Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.1998, Blaðsíða 12
Hlfinningaríkur
blaðamannafundur
Blaðamannafundur var haldinn
í Kiwanishúsinu í gær með full-
trúum Keikó stofnunarinna og
þeirra aðila sem stóðu að
flutningi hvalsins Keikó til
landsins. Fundurinn var að sjál-
fsögðu tileinkaður heim-komu
Keikós og vel heppnaðri fór hans
yfír hálfan hnöttinn. Á fund-
inum var nokkur dramatísk
spenna svo ekki sé vægar til orða
tekið. Sérlegur heilsugæslu-
læknir Keikós var djúpt
snortinn og bjóst maður við að
hann brysti í grát þá og þegar
svo mikil var tilfínningin í tali
hans og er allra góðra gjalda
verð. Á fundinum voru og
flugmenn C-17 vélarinnar,
sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi, Þorsteinn Ingi Sigfússon,
Craig O. McCaw forstjóri
Keikóssamtakanna ásamt fleira
stórmenni.
Á fundinum kom í ljós að
flutningur Keikós væri aðeins eitt
skref í langri göngu sem fram
undan væri og vert væri að fagna
þessum nýjasta íbúa Eyjasam-
félagsins. Sagt var að þetta skref
væri sigur fyrir heiminn allan sem
hægt væri að læra mikið af og
dæmi um draum sem hafi ræst.
Mikið var rætt um löskun C-17
vélarinnar og lokun fíugvallarins af
þeim sökum og óttuðust tjöl-
miðlamenn mjög að verða
innlyksa í Eyjum. Hápunktur
fundarins var þó undir lok hans
þegar einn starfsmanna Keikó-
samtakanna rétti fulltrúa sam-
takanna GSM síma sem tilkynnti
að loknu samtalinu að höfrungur
hefði komið að kví Keikós og átt í
samræðum við hann nokkra stund.
Varð þá mikið klappað og gleði
stór braust út í salnum.
Þorsteinn Ingi Sigfússon fulltrúi
Hákóla íslands í Rannsóknarsetri
Háskólans í Vestmannaeyjum lýsti
yfir ánægju sinni með Keikó og
benti mönnum á þá fræðslu-
möguleika og þekkingarsjóði sem
fælist í komu Keikó til Islands á
öllum sviðum mennta. Því næst
var fundi slitið og menn gátu farið
að huga að því að pakka niður og
snúa sér að næsta heimsviðburði
að sjónvarpa beint um heimsbyggð
alla.
Síðustu fréttir
Samkvæmt heimildum hefur
Keikó það gott í kvínni og mun
hafa átt náðuga og friðsæla nótt.
Hann nærist vel og ekki annað að
sjá en að lífið leiki við hann.
Einnig kom það þjálfurum hans
skemmtilega á óvart hversu fljótt
og vel Keikó tók við sér eftir að
hann kom í kvínna. Búst var við
að hann myndi hugsanlega fá
einhverjar harðsperrur, eftir
ferðalag sitt um hálfan hnöttinn.
Keikó ber sig samt mannalega ef
nota má slíkt orð um einn ágætan
hval.
FIUTNWOAR -VtSTMMINAEYJUM
Pogfifg hrtkhnríá kmd mm tr.
Vöruafgreidsla
Mdldlogaveai 4 Sfmi 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavílc
AðaHlutnloflar HéMasgöhi 3
jfigl 501 3030
Öll móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
FAX481 1927 Œ 481 1909 - 896 6810
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEMDÍFEitöABÍU
*481-2943,
* 897-1178
Eftir nokkrar tafirá
flugvellinum gekk
flutningur Keikós í kvínna
eins og best var á kosið.
Greinilegt var að allur
undirbúningur hafði verið
góður og hugsað fyrir
nánast hverju smáatriði.
Sjálfur virtist Keikó mjög
afslappaður enda hefur
hann ferðast með
flugvélum frá íslandi til
Kanada, þaðan til Mexíkó
þaðan sem hann var
fluttur til Portland og svo
loks til Eyja.
Opid cillci yiíko cIqqq
fm
Haygamdlðiga
smnrauidaga
Opemi
sattudat^s