Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Blaðsíða 2
2
Velkomin um borð • í Eyjum laugardaginn 3. okt. 1998
V^LKOtlZN tAJI QOK& LhA&kKDterZNN 3.0*
iWi¥I'S h i Bfc-ffite b an aíi"
Gígja VE 340
Smíðuð 1966 í Harstad Noregi og er í
eigu ísfélags Vestmannaeyja. Hér er um að ræða eitt
af nótaskipunum í Eyjaflotanum og því fróðlegt að
koma um borð og skoða sig um.
Báturinn er 365 brl, 49 metra langur, 6 metra breiður
og 7,8 metra djúpur. Aðalvél er Callesen 662 kw.
Kaupár: 1982. Skipstjóri: Atli Sigurðsson.
Nótaveiðin er skemmti
legur veiðiskapur
Atli Sigurðsson, skipstjóri á Gígju,
hefur verið lengi til sjós og komið víða
við. Gígja er eingöngu á nótaveiði, þ.e.
loðnu og síld og segist Atli kunna
ákaflega vel við þann veiðiskap.
„Það er ekki hægt að bera nótaveiði
saman við troll og net. Það fara
margir dagar í að leita að
loðnu og síld og staðsetja
torfur með litasónarnum.
Þá er kastað og þetta getur
verið fljóttekinn afli. En
stundum er þetta
barningur eins og gengur.
Tækin í brúni eru mjög
nákvæm," segir Atli en reynd-
ar má segja að brú á skipi í dag sé
meira og minna full af tækjum og
- segir Atii tólum sem skipstjórar og stýrimenn þurfa
að kunna tökin á.
Þar sem Gígja er eingöngu á
nótaveiðum er hún á sjó 6-7 mánuði á ári,
að sögn Atla. Mikil ásókn er í pláss og
komast færri að en vilja.
Atli segir að Gígja sé gott skip
þótt vissulega sé það komið til
ára sinna. Hann hvetur
bæjarbúa til að skoða skipin
sem verða til sýnis á
laugardaginn því þarna
gefist einstakt tækifæri
fyrir fólk að koma um borð
og sjá við hvaða aðstæður
sjómenn starfa í dag.
Vestmannaey VE 54
Smíðuð 1973 í Muroran Japan
og er í eigu Bergs-Hugins ehf.
Vestmannaey er í dag gerð út sem frystitogari og því
er ákaflega fróðlegt að sjá hvernig sú vinnsla fer
fram um borð. Þessi skuttogari er 636 brl., rúmlega
60 metra lang-ur, 9,5 metra breiður og 5,5 metra
djúpur. Aðalvél er 2300 hestöfl. Kaupár: 1988.
Skipstjóri: Birgir Þór Sverrisson.
Vinna fyrir stelpur sem
þora að prófa nýja hluti
Sæbjörg Logadóttir, dóttir Loga heit-
ins Snædals og Höllu Gunnarsdóttur,
hefur verið háseti um borð í frystitog-
aranum Vestmannaey undanfarin tvö
ár. Faðir hennar var skipstjóri til
margra ár en Jón bróðir hennar er
stýrimaður á Smáey og þá var eldri
systir hennar, Sigrún, einnig á
Vestmannaey í nokkur misseri.
,,Mér líkar þetta bara vel. Mig
langaði til að prófa eitthvað annað
en að hanga í landi. Yfirleitt eru
þetta 3 til 4 vikna túrar. Mér finnst
þeir ótrúlega fljótir að líða, sérstak-
lega ef vel fiskast. Við erum yfirleitt
fjóra daga í landi en ég er svo í fríi
fjórða hvern túr og tek mér gott sumar-
frí," segir Sæbjörg.
- segir
Sæbjörg
Logadóttir
háseti
Hún er ekki eini kvenmaðurinn um
borð. Lilja Matthíasdóttir og Andrea
Eyjólfsdóttir hafa einnig verið fastráðnar
sem hásetar. I síðasta túr bættist svo sú
fjórða við. Halldóra Fannarsdóttir.
„Við vinnum við ýmislegt um borð svo
sem snyrtingu, pökkun, útslætti, blóð-
guno.fl. Við stöndum 6 tíma vaktir.
Við erum 26 um borð þannig að
þetta er lítið og samanþjappað sam-
félag. Við drepum tímann með því
að horfa á myndband, spilum,
lesum, sofum eða hreinlega litum í
litabók. Eg mæli eindregið með þes-
sari vinnu fyrir stelpur sem þora að
prófa eitthvað nýtt. Svo er þetta þess
virði launalega séð," segir Sæbjörg.
og er í eigu Gunnlaugs Ólafssonar. Gandí er aðallega
á snurvoð og netum og hefur gengið ákaflega vel.
Gandí er glæsilegt skip sem alla tíð hefur verið vel
haldið við og því er gaman að koma þarna um borð.
Báturinn er 212 brl, tæplega 40 metra langur, 6
metra breiður og 6,8 metra djúpur. Aðalvél er Grenaa
552 KW 751 HÖ. Skipstjóri: Njáll Kolbeinsson.
Matarvenjur hafa treyst
alveg ótrúlega á 15 árum
Stefán Sigurðsson hefur verið kokkur
á Eyjaflotanum í 15 ár, þar af þau 7
síðustu á Gandí. Þegar slegið var á
þráðinn um borð var verið að draga
og því varð kokkurinn fyrir svörum.
Að sögn Stefáns hefur alltaf fiskast
vel á Gandí og því er það
eftirsótt pláss að komast þar
um borð. Gandí er á netum
og snurvoð og eru 11 um
borð á netum og 9 á snur-
voð.
,,Ég fer upp á dekk á
snurvoðinni en þá erum við
á 16 tíma vöktum. Á netum
fer ég upp á dekk ef tilefni er
til. Ég hef gaman að því að elda.
Hér um borð eru nokkrir miklir mat
menn en það eru þeir eldri. Þessir yngri finnst mér
■ segir Stefán
Sigurðsson,
kokkur
óttalegar kerlingar enda eru þeir af þess-
ari sjoppukynslóð. Matarvenjur um borð
hafa breyst alveg ótrúlega mikið á þess-
um 15 árum mínum á sjó. Hér áður fyrr
átu menn mun meira. Nú eru karlarnir
farnir að hugsa meira um skrokkinn á
sér en áður og borða ekki eins
mikið," segir Stefán.
Á laugardaginn gefst
bæjarbúum kostur á að
skoða Gandí VE. Stefán
hvetur bæjarbúa til þess að
láta verða af því. Gandí er
vel útbúinn bátur, bæði á
snurvoð og net. Skipið er
stórt og hefur alla tíð verið
ákaflega vel við haldið og ber
eigendum sfnum gott vitni