Fréttir - Eyjafréttir - 01.10.1998, Blaðsíða 4
Velkomin um borð • í Eyjum laugardagiim 3. okt. 1998
ISLENSKIR UTVEGSMENN
Utgerðin styrkir IBV!
Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum óska knattspyrnuliði ÍBV til
hamingju með stórkostlegan árangur í sumar. í fyrsta skipti í
sögunni hefur ÍBV unnið tvöfalt, þ.e. bikarmeistaratitil og
íslandsmeistaratitil á sama árinu. Þetta er án efa stærsti
árangur í sögu ÍBV og verður lengi í minnum hafður. Útgerðar-
menn hafa stutt vel við bakið á knattspyrnuliði ÍBV sem og
öðrum íþróttagreinum í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina þótt
þeir styrkir hafi verið mun sýnilegri hin síðari ár. Þar má t.d.
benda á hin glæsilegu bátaskilti sem prýða norðurgrindverkið
við Hásteinsvöll.
Leó Snær Sveinsson, 16 ára nemi á vélstjórnarbraut FÍV:
Sjómennskan hefur
alltaf heillaS
„Sjómennskan hefur alltaf
heillað mig. Um leið og ég
lauk 10. bekk í vor ákvað
ég að fara í vélskólann og
stefni ég að því að klára öll
stigin og fara svo beint á
sjóinn," segir Leó Snær
Sveinsson, sonur Sveins
Valgeirssonar útgerðar-
manns á Byr VE og Þóru
Guðjónsdóttur.
Leó er aðeins 16 ára og hann er
sporgöngumaður forfeðra sinna
sem sóttu sjóinn stíft. Hér fyrr á
öldinni var það gangur lífsins að
ungir menn vildu ólmir komast
sem fyrst á sjóinn. Þetta viðhorf
hefur breyst í seinni tíð og því er
eftirtektarvert þegar ungir menn
taka strax stefnuna á sjóinn. Eldri
bróðir Leós, Guðjón Emil, er vél-
stjóri á Byr VE en báturinn er nú í
breytingum í Póllandi þar sem
Guðjón er fulltrúi útgerðarinnar.
Leó segir að fyrst í stað hafi
hann sett stefnuna á skip-
stjórnarnám en svo hafi honum
snúist hugur.
,,Ég ákvað að fara í vélskólann
því það er mun hagstæðara að
mörgu leyti. Atvinnumöguleikarnir
sem vélstjóri eru meiri því það
vantar alltaf vélstjóra í flotann.
Auk þess gefur þetta ákveðin
tækifæri ef þú vilt líka vinna í
landi. Ég er mjög sáttur við þessa
ákvörðun og stefni að því að klára
öll fjögur stigin sem er nám upp á
4 til 5 ár, eða líkt og mastersnám í
einhverju gáfulegu eins og félags-
eða sálfræði," segir Leó og hlær.
Leó stundar vélstjórnarnámið
við Framhaldsskólann í Vest-
mannaeyjum. Þar er hægt að taka
fyrstu tvö stigin. Fyrsta stigið tekur
eina önn en annað stigið þrjár
annir, að sögn Leós. Seinni tvö
stigin verður að taka í Reykjavík.
Leó er ánægður með námið, segir
það ekki sérlega erfitt eins og
komið er en verði vafalaust
þyngra eftir því sem á líður.
Leó hefur undanfarin þrjú sumur
róið með föður sínum á Byr og
líkað mjög vel. Hann segir að
þabbi sinn hafi hvatt sig til að fara
í námið enda sé nauðsynlegt að
læra.eitthvað til að ná sér í réttindi
upþ á framtíðina að gera.
,,Ég hvet unga stráka til að fara
í vélstjórnarnám. Það gefur ýmsa
möguleika og sjómennskan er í
mínum huga framtíðarstarf," sagði
Leó að endingu.
son. Daði segir að það hafi verið
góð reynsla.
„Ég mæli með náminu í Fisk-
vinnsluskólanum fyrir þá sem hafa
áhuga á því að gera það gott í
fiskvinnslunni. Þetta er ótrúlega
fjölbreytt nám sem býður upp á
ýmsa möguleika," sagði Daði.
Þess má geta að hann spilar hand-
bolta með IBV í vetur þrátt fyrir
að vera búsettur í Hafnarfirði.
- segir Daði Pálsson einn
Aðsókn er heldur að glæðast hjá
Fiskvinnsluskólanum í
Hafnarflrði. Ef til vill virkar
þetta nám ekki hvetjandi við
fyrstu sýn en staðreyndin er sú
að það er virkilega sniðugt fyrir
þá sem hafa áhuga á að starfa á
hinum ýmsum sviðum
fiskvinnslunnar. Að þessu sinni
er vitað um a.m.k. fjóra
Vestmannaeyinga sem eru í
fiskvinnsluskólanum, þar af
þrjá á fyrra ári en einn á seinna
ári, Daða Pálsson.
Daði segist vera í skýjunum með
námið í fiskvinnsluskólanum.
„Námið er mjög fjölbreytt og
gefur mikla atvinnumöguleika.
fjögurra Eyjamanna í námi
Þeir sem útskrifuðust í vor höfðu
úr mörgum atvinnutilboðum að
velja, það var hringt í fólkið, slík
var eftirspurnin. Þessu fólki
bjóðast góð laun miðað við að
þetta skuli vera tveggja ára nám.
Einn Vestmannaeyingur útskri-
faðist í vor, Þóra Hrönn
Sigurjónsdóttir (Oskarssonar) og
hún starfar nú sem sölustjóri hjá
Sæmarki. Þeir sem útskrifast úr
skólanum fá vinnu sem verk-
stjórar, gæðastjórar eða jafnvel í
sölumennsku sem tengist sjá-
varútvegi," segir Daði.
Fyrir nokkrum misserum stóð til
að leggja niður Fiskvinnsluskól-
ann í Hafnarfirði vegna dræmrar
við skólann
aðsóknar. í
fyrrahaust hófu
8 manns nám og í
haust hafði þeim
fjölgað í 13. Daði segir
að átak hafi verið gert í því
að kynna námið betur víða um
land, m.a. í Eyjum, með fyrr-
greindum árangri. Þrjár Eyja-
stúlkur eru í Fiskvinnsluskól-
anum núna, þær Sædís Sigur-
björnsdóttir, Rósa Guðmunds-
dóttir og Laufey Sveinsdóttir.
I sumar vann Daði sem verkstjóri
og gæðastjóri hjá Skagstrend-
ingi-Dvergasteini á Seyðisfirði en
þar er framkvæmdastjóri Vest-
mannaeyingurinn Bergur Ágústs
Velkomin í
heimsókn!
Laugardaginn 3. október
frá kl. 15-18 er öllum
bæjarbúum boðið að
skoða:
Gígja VE 340
Vestmannaey VE 54
GandíVE 171
Gullborg VE
Breki VE 61
Lóðsinn
(Skipin verða öll við
Binnabryggju)
Frystihús ísfélagsins
Fiskimjölsverksmiðja
Vinnslustöðvarinnar
Eyjaís
Lúðrasveit Vestmannaeyja
leikur um borð í bátunum.
Veitingar á öllum stöðum og
ýmislegt annað til gamans
gert. Allir velkomnir
Eyjaís
Bylting í ísnum! Þeir
sem eru komnir til vits og
ára muna eflaust eftir því
þegar stöðvarnar voru sjálf-
ar með ísframleiðslu fyrir
ekki svo löngu og ísnum
var keyrt með vörubílum í
bátana! Nú er öldin og
tæknin önnur því ísnum er
dælt beint í bátana úr
ísverksmiðju okkar Eyjamanna. Eyjaís hf. er verksmiðja sem framleiðir ís
fyrir Eyjaflotann. Eyjaís var stofnuð 1986 af útgerðum og fiskvinnslu-
fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Alls hefur verksmiðjan framleitt um
270.000 tonn af ís þessi 12 ár, eða að meðaltali eitt tonn á hvert manns-
barn ! Afkastageta verksmiðjunnar er um 120 tonn á sólarhring eða 30
tonn á klukkutíma. Alls er geymslurými fyrir 600 tonn af ís. Hægt er að
afgreiða þrjá aðila í einu með ís. Mest var ísframleiðslan 1990 eða 30.000
tonn sem má rekja til mikils gámaútflutnings á þessum tíma. Á undanför-
num árum hefur ísframleiðsla Eyjaíss verið um 20.000 tonn á ári.
Eyjaís hf. verður opið almenningi til sýnis á laugardaginn. Gengið er upp
vestanmegin á húsinu upp miklar áltröppur.Þarna gefst Vestmannaeyingum
kostur á að sjá ísverksmiðjuna í fullum gangi.
góðu sambandi
við sjómenn
Framkvæmdastjóri Eyjaíss og
jafnframt eini starfsmaðurinn í
dag er Guðmundur Jóhannsson en
hann hefur starfað þar frá stofnun,
1986. Hann segist vera í góðu sam-
bandi við sjómenn á Eyjaflotanum
enda er hann á vakt nánast allan
sólarhringinn.
„Þetta er orðin sjálfvirk stöðþannig
að menn afgreiða sig sjálfir. Ég þarf
auðvitað alltaf að vera á vaktinni ef
eitthvað kemur upp á. Starfið er
skemmtilegt og samstarfið við sjó-
mennina á flotanum mjög gott.
Sjómenn eru hressir og skemmtilegir
og yfirleitt léttleiki sem þeim fylgir,"
segir Guðmundur.
En til hvers þarf að dæla öllum
þessum ís um borð?
„Til þess að halda ferskleika í
hráefninu um borð í skipunum svo
það nýtist sem best í vinnslunni í
landi."
Guðmundi líst vel á að útgerðir,
stöðvarnar og Eyjaís hafi opið hús
þar sem allir bæjarbúar eru velkomn-
ir. Mun færri starfi við sjávarútveg-
inn í dag heldur en áður og ótrúlegar
tækniframfarir hafi átt sér stað í þess-
um geira undanfarin ár.