Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.1998, Page 1
í
!
S
(
!
!
!
(
I
i
!
!
!
25. árgangur • Vestmannaeyjum 22. október 1998 • 43. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Vetur konungur bankaði
upp á í síðustu viku
þegar fyrsti snjórinn féll á
þessu hausti. Eins og svo
oft í Vestmannaeyjum,
varð þessi fyrsti
haustsnjór ekki langlífur,
kom á aðfaranótt
laugardagsins og var að
mestu horfinn um
kvöldið.
Unga fólkið varð himin-
lifandi þegar það vaknaði
á laugardagsmorguninn.
Fór í sinn kuldagalla, setti
upp húfu og vettlinga og
hélt til móts við veröldina
sem hafði skipt um ham
á einni nóttu. Á meðan
ungviðið bjó til snjóbolta
og renndi sér á
snjóþotum lét fullorðna
fólkið snjóinn, hálkuna og
annað sem honum fylgir
fara í taugarnar á sér.
Stjórn Sjómannafélagsins Jötuns og formaður Verðandi:
Skipstjórinn á ðleigi írirðir
ekki hafnarfrí skipveria
í síðasta blaði var rætt við
Guðmann Magnússon, skipstjóra á
Ofeigi VE vegna þess að áhöfn
skipsins er nú lögskráð á Grund-
arfirði. Þar komu m.a. fram ásak-
anir á Sjómannafélagið Jötun. Af
því tilefni vill stjórn Jötuns koma
eftirfarandi fram:
Guðmann Magnússon fer mikinn í
viðtali í síðustu Fréttum. Þar er hann
með ásakanir á Sjómannafélagið Jöt-
un. Hvað varðar lögskráningu sjó-
manna á m.b. Ófeigi VE 325, kveða
lögin svo á orðrétt: Lögskráning sjó-
manna fer fram á útgerðarstað skips.
Upphaf þess að Ófeigur fékk á sig
kæru vegna brots á kjarasamningum
var að kjarasamningur var brotinn.
Það er viðurkennt af útgerðinni þar
sem hún hefur greitt hluta sektarinnar.
Sú fullyrðing Guðmanns að það sé að
kröfu Jötuns að stoppað sé 4 daga í
mánuði í Eyjum er á misskilningi
byggð eða þá að hann hefur ekki lesið
bréf Jötuns til hans. Samkvæmt
kjarasamningum á að stoppa minnst 4
sólarhringa í mánuði eða 1 sólarhring
eftir hverja veiðiferð ef hún stendur
lengur en 5 sólarhringa. Er þetta svo
voðalega torskilið? En nota bene, það
á að taka hafnarfrí í heimahöfn skips.
Um það stendur deilan. Guðmann
vísar í samkomulag sem áhöfn hefur
skrifað undir um að þeir vilji hafa
þetta svona. Ef títtnefndur skipstjóri
hefði nú lesið yfir kjarasamninginn
sem hann og aðrir um borð í hans
skipi vinna eftir, þá hefði hann
fljótlega rekið augun í þessa klausu:
„Um sérsamninga gr. 1.39. Sér-
samningar útgerðarmanns við
einstaka skipverja eða skipshafnir
sem fara í bága við samning þennan,
eru ógildir, enda hafi viðkomandi
félag ekki samþykkt þá.“
Ekki hefur borist bréf frá útgerð
Ófeigs um þetta mál inn á okkar borð
svo að þetta samkomulag dettur niður
dautt.
í viðtalinu minnist Guðmann á að
stéttarfélag hans, Verðandi, hefði lagt
blessun sína yfir gjörðir hans í þessu
máli. Það verða þeir Verðandamenn
að eiga við sig sjálfir, en með
ólíkindum er ef satt er.
Skipstjórinn á Ófeigi talar um einelti
í viðtalinu, hann sé sá eini sem er
tekinn fyrir brot á hafnarfríum.
Guðmann veit vel að svo er ekki.
Fleiri hafa verið kærðir fyrir brot á
kjarasamningum en hann. En
munurinn á þeim og honunr er sá að
þeir hlupu ekki með þetta í blöðin
heldur gengu frá sínum málum og
viðurkenndu brot sitt og tóku svo á
sig rögg og hættu þessari vitleysu.
Þess má að lokum geta að skip-
stjórinn á mb. Ófeigi VE 325 hefur
stundað það um árabil að brjóta
samningana um hafnarfrí, og hefur
fengið aðvörun frá Sjómannafélaginu
Jötni vegna þess, sem hann hefur í
engu sinnt, segir í ályktuninni sem
stjóm Sjómannafélagsins Jötuns
skrifar undir.
Skipstjóra og stýrimannafélagið
Verðandi hefur komið á framfæri
athugasemd um þetta nrál þar sem
segir að ekkert samráð eða samband
hafi verið haft við félagið eins og lesa
megi úr viðtali við Guðmann í síðasta
blaði. „S.s. Verðandi vill nota lagið og
koma á framfæri við alla félagsmenn
sína, nær og tjær, ákvæði í kjara-
samningum fiskimanna, kaflanum um
hafnarfrí á botnvörpuveiðum þar sem
kveðið er skýrt á um að áhöfn skulu
tryggðir rninnst fjórir frídagar í
mánuði og að hvert hafnarfrí telst
aldrei skemmri en 24 tímar. Brot á
samningi getur varðað sektum. Það er
ykkar, ágætu félagsmenn að halda
gerða samninga," segir í bréfinu sem
Magnús Öm Guðmundsson formaður
félagsins skrifar undir.
Árni Johnsen blæs til sóknar fyrir komandi alþingiskosningar:
Eðlileg þiéun að ég
taki fyrsta sædð
Árni Johnsen hefur einn Sjálf-
stæðismanna í Suðurlandskjör-
dæmi gefið út yfirlýsingu þess efnis
að hann bjóði sig fram í fyrsta sæti
á Iista flokksins vegna Alþingis-
kosninganna í vor.
Hann hefur verið í öðru sæti á list-
anum um árabil og honum finnst
eðlilegt að sækjast þess vegna eftir
fyrsta sæti. Aðspurður hvem hann
sæi sem helsta keppinaut sinn vildi
hann ekki tjá sig um það. „Hins vegar
em allir alltaf keppinautar í pólitík.
Ég sé ekki annað en það sé bara
eðlileg þróun að ég taki fyrsta sætið.“
Hvemig metur þú möguleikana á
því hvort efnt verði til prófkjörs eða
uppstillingar?
, j>að er alveg opið. Efsamkomulag
næst um röðun manna á listann er
það hið besta mál, ef hins vegar
stefnir í harðan slag og lendingin
verður prófkjör þá tek ég þátt í því og
held mínu striki. Um þetta er hins
vegar erfitt að tjá sig vegna þess að
menn eru rétt að átta sig á stöðu
mála.“
Ámi segir að hann hafi ekki vitað
fyrir að Þorsteinn myndi gefa út
þessa yfirlýsingu unt að hann gæfi
ekki kost á sér. „Þetta kom í Ijós á
síðasta degi og menn voru óvissir
hvemig ætti að bregðast við og
auglýsing mín í laugardagsmogg-
anum um fundaherferð mína nú er
ekki birt í ljósi ákvörðunar Þorsteins.
Þetta er heldur engin tilviljun. því ég
var löngu búinn að ákveða að fara í
þessa fundaferð, en varð að fresta
henni nú til haustsins vegna anna í
vor og sumar, en vissulega ákvað ég
að hafa auglýsinguna sama dag og
fundur kjördæmisráðsins var. Mér
þótti það mjög heppilegur tími.“
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 ■ Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími481323
Herjólfur fer í slipp
Fagranesið siglir 10.október til 4. nóvember
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Alladaga 8.15 13.00
Ucriólfur simiíSoofax^i 2991