Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. október 1998
Fréttir
11
Sett hefur verið upp heimasíða
á Internetinu sem helguð er
Keikó og komu hans til Vest-
mannaeyja. Þarerrekinn
undirbúningur að komu hans
bæði í máli, Ijósmyndum og
hreyfímyndum. Auk þess geta
þeir sem heimsækja síðuna
skráð sig í gestabók og látið álit
sitt í ljós á Keikó, flutningnum
og veru hans í Klettsvíkinni.
Fyrsti pósturinn sem berst nær
aftur til 6. júlí á þessu ári. Það
er margt forvitnilegt að sjá í
gestabókinni og greinilegt að
fólk hefur gífurlega öllugar
hugmyndir um hvernig tryggja
megi velferð Keikós og
hvemig hann gæti nálgast það
líf sem hinir frjálsu hvalir
sjávarins njóta. Og fyrst talað
er um frelsi, þá er gegnum
gangandi viðhorf fólks að
Keikó megi verða þeirrar náðar
aðnjótandi að komast úr kvínni
og í frelsið og er þá iðulega
brugðið upp hliðstæðum við
kvikmyndastjörnuna Willy, eða
dýr í dýragörðum sem svipt
hafa verið frelsi sínu.
Illkvittni landans
Einnig er sitthvað að ftnna í gesta-
bókinni sent ekki er jafn jákvætt og
sumt nokkuð illkvittið. Athyglisvert
er að slíkt hugarfar kemur að mestu frá
frá Islendingum eins og eftirfarandi
tilvitnanir sýna: Gunnar nokkur
Gunnarsson sendir til að mynda þessi
skilaboð 10. september sl. „Kill
Keikó, Keikó á grillið, V.S.O.P
Keikó“. Jósef Dan Karlsson sendir
þessa skoðun sína sama dag: „ Hann
drepst eftir nokkra daga, sjáiði bara."
Tveir Eskfirðingar, Jóhann Öm
Jónsson og Hálfdán Helgi Helgason
leggja þetta til gestabókarinnar 2.
september: „See you in Vestmanna-
eyjar“ og „See you soon!!!!!!!".
Baldur Bjamason á Höfn í Homafirði
sendir og eftirfarandi þann 9. ágúst:
„eins og það sé ekki nóg af
sardínuménna", hvaða merkingu sent
menn vilja svo leggja í það.
Ein athugasemd er send inn þann
26. september frá náunga sem kallar
sig Masse og ekki hægt að sjá hvar í
heiminum hann er staðsettur: „Vel-
kominn heim Keikó, bráðum verðum
við saman á ný, ég og þú... á diskinum
mínum.“, þó má kannski Iáta sér detta
í huga að maðurinn sé í öllu falli
orðinn nokkuð svangur og búi á
íslensku fátækramarkasvæði. Nokkrir
aðilar agnúast út í þetta og óska eftir
því að slíkum texta ætti að henda út af
netinu Svo mikið fyrir skoðanir á
þeim bæjum.
Segja álit sitt heimasíðunni
Fólk segir líka álit sitt á síðunni og
finnst að hún sé ekki með nógu góðar
og ferskar upplýsingar urn daglega
líðan hvalsins, auk þess sem mikið er
óskað eftir videomyndum frá kvínni.
Þessar kvartanair ágerast eftir því sem
nær dregur Keikódegi og síðan enn
frekar eftir að Keikó er kominn í
kvína. Mest áberandi em þó kvartanir
vegna þess hversu síðan er illa
uppfærð með nýjum upplýsingum og
einhver sem kallar sig DS spyr:
„Hvað er að ykkur íslendingum, vitið
þið ekki hvað það er að uppfæra
heimasíðu? Ef svo er lofið mér að
hjálpa ykkur." Við litum aðeins í
gestabókina til að gefa lesendum
Frétta færi á að meta innviði aðdáenda
hvalsins.
Amy Elinborg Macdonald skrifar
15. október frá Kanada: „Ég þakka
kærlega fyrir að fá að upplifa
reynsluna af tlutningi Keikós til Vest-
mannaeyja. Ég er mjög glöð að vita af
Keikó þar sem hann á heima og þeir
Gluggað í gestabók Keikós á Netinu
Háhymingurinn
er kominn í hóp
þotuliðsins
-sem skartar nöfnum eins og Björk
fyrirgefningar. Þakklæti og aðdáun
streymir frá hjörtum okkar til hinna
samúðarfullu Vestmannaeyinga sem
gerðu frelsun Keikós mögulega. Við
elskum þig kæri bróðir Keikó... alltaf
og ævinlega."
Alice Ann Hiestand spyr þann 10.
september hvort ekki sé mögulegt að
fá að sjá aðra hvali eiga samskipti við
Keikó og einnig hvort hann muni eiga
þess kost að hitta móður sína, ef hún
er enn á lífi. Samt spyr hún að því
hvort ekki verði hægt að vemda hann
fyrir öðrum hvölum þegar hann fær
loksins langþráð frelsi. Hún segist og
vera í góðum tengslum við efnað fólk
sem yrði tilbúið að létta Keikó lífið
með fjárframlögum. „Ég veit að
Keikó lifir á sjávardýrum, en ég hef
velt því fyrir mér hvort hann borði
kannski tómata og melónur. Viljið þið
líka gefa honum silung sérstaklega frá
mér. Meðþakklæti Alice" Svomörg
voru þau orð.
Ungur maður segist eiga 21
Ijósmynd á tölvutæku formi frá því að
Keikó var veiddur. Ég fékk þær frá
náunga sem var á skipverji á bátnum
sem fangaði hann. Ég er að reyna að
setja upp vefsíðu til þess að gefa
öðrum tækifæri á að skoða þær."
sem stóðu fyrir flutningnum eiga
skildar miklar þakkir fyrir frábært
starf. Megi hann njóta langra ham-
ingjusamra daga og góðrar heilsu."
„Þetta er falleg síða,“ skrifar hópur
áhugafólks um hvalaskoðun þann 10.
október. ,Ujósmyndimar eru frábærar
og upplýsingamar sent gefnar eru
mjög mikilvægar, en hvemig hefur
Keikó það NÚNA. Er ekki mögulegt
að fá upplýsingar um hann uppfærðar
á hverjum degi ásamt veðrinu. Og eitt
enn, hvers vegna vom sumir íslend-
ingar á móti því að Keikó kæmi aftur
til fslands?"
Lorin Frey óskar eftir því 9. október
að einhver þurfi að setjast niður í 30
mínútur á dag til að uppfæra síðuna
með nýjustu fréttum um fæði Keikós,
hver hafi synt með honum, skapferli
og svo framvegis og spyr í lokin hvort
þeir sem eigi að sjá unt hann hafi verið
fluttir út í geiminn.
Linda Beth spyr einnig og er ekki
par hrifin af heimasíðunni: „Er þessi
heimasíða raunvemleg? Er mynda-
vélin í kví Keikós brandari, eða er
verið að gera grín að Amenkönum.
Hvar er Keikó, fallegasti háhyming-
urinn okkar?"
Hvalfriðunarmenn láta ljós
sitt skína
Nokkrir áhugamenn um hvalafriðun
og vemdun láta ljós sitt skína WD
Fleener tjáir sig um sandlægjuveiðar
þann 1. október, en fmmbyggjum
Kanada hefur verið veitt heimild til
veiða á sandlægju og herra Fleener
spyr í lokinn hvemig dauði sand-
lægjunnar geti lyft anda mannsins og
heiðrað menningu Makah fólksins og
Star Mac segir þann 25. september:
„Nú er Willie loksins frjáls. Ein-
beitum okkur nú að því sð stöðva
hvalaveiðar."
Nokkrir sem tjá sig um Keikó telja
flutning hans til Eyja misráðinn og
finnst út í hött að senda hann frá einni
kví til annarrar og að verið sé að ljúga
því að bömum heimsins að hann fái
frelsi. Carmen frá Vancouver hefur
eitthvað misvísandi upplýsingar um
kvína í Klettsvík og segir Keikó ekki
geta stokkið þar vegna þess að net sé
strengt yfir kvínna. „Vatnið er hreint í
Newport en gruggugt í Klettsvík svo
að Keikó sér í mesta lagi sex tommur
í kringum sig.“ Svo spyr hún hvort
þetta sé frelsi, engin leikföng og engir
vinir og svarar sjálf með því að segja
nei. „Keikó ntun verða óhamingju-
samur háhymingur í Klettsvíkinni.
Að ljúga því að milljónum bama að
verið sé að veita hvalnum frelsi er
rangt. Það er hægt að nota peningana
sem fóm í flutning Keikó til þess að
búa honum hamingjusamt líf í
Newport. Lofið honum að vera þar
áfram, hans vegna.“
Goh Sue Ling frá Kuala Lumpur
skrifar þann 29. ágúst: „Mér finnst
framtakið gott, en að setja hann í kví,
til hvers.Til hvers að taka hann úr
safninu og setja hann í kví,“ spyr hún
og segist bálreið. Hún segist vera 13
ára og hafi fengið áhuga á háymingum
eftir að hafa séð myndina Free Willie,
þegar hún var 7 ára. Síðan hefur hún
safnað öllu sem snýr að hvölum. ,Jýú
er herbergið mitt fullt af hvaladóti. Ég
ættleiddi meira að segja háhyrning.
Að lokum spyr hún hvort ekki sé hægt
að setja myndavél á bakuggann Keikó
svo að hægt sé að fýlgjast með honum
og finnst ekki mikill munur á tanki í
Newport og kví í Klettsvíkinni.
Margur sem tjáir sig urn Keikó og
flutning lians til Eyja sér málið í
gengum gleraugu tilfinninganna og
ekki laust við að kenna megi guð-
legrar upphafningar í málflutningi við-
komandi. Mary Dygert segist 11.
september vera í vafa um að rétt hafi
verið að flytja Keikó til Eyja. „Keikó
sagði sjálfur við þá sem skilja hann að
hann vildi vera áfram í Oregon, þegar
hann var spurður að því. Hann vildi
vera áfram innan um bömin. því
Keikó fyndist bömin vera fjölskylda
sín og hann myndi gera sitt besta til
þess að að kenna þeim. Munið þið
hvað kom fyrir ljónin í myndinni
Borin frjáls? Keikó vertu
hamingjusamur og heilsu-hraustur, og
megi guð vera með þér. Ég held að
þér veiti ekki af aðstoð guðs sem er
möguleg."
Og annað slíkt dæmi kemur hér frá
Saucy Shirley í Santa Fe 8. september.
Sæll ástkæri bróðir. Vegna þess að þú
ert einstakur og fagur stálu mennirnir
ekki einungið lífi þínu, heldur öllunt
heiminum og þess vegna varðstu fljót-
lega aðeins skuggamynd af stór-
kostlegum háymingi. Andlegur
styrkur þinn kæri bróðir hlýtur að vera
ótrúlegur að geta lifað af þessa
martröð sem varað hefur í svo mörg
ár. Við biðjum þig auðmjúklega
Blautlegar ástríður
Þó nokkuð ntargir íslendingar hafa
sent kveðjur inn á gestabókina og eru
þær allar á jákvæðum nótum að und-
anskildunt þeim sem sagt er frá hér að
framan.
Mikael Magnússon sendir frá
Kenýa þann 11. september: Alveg
frábært og garnan að sjá Vestmanna-
eyjar aftur í sviðsljósinu. Vel hönnuð
síða. Kær kveðja Mik.
Amar Thor Jónsson skrifar þann 9.
september og viðrist hat'a einhverjar
blautlegar ástríður til hvalsins: Keikó,
Þú ert fallegur drengur. Ég naut þess
að sjá þig leika þér með gúmmí-
slöngumar og þá ástríðu sem þú lagðir
í verkið. Þú hlýtur að hafa mikla þörf
fyrir „konu“ drengur, (á líklega við
kýr). Ástarkveðjur Amie.
Kristín skrifar svo þann 10. sept-
ember: „Velkominn heim Keiko, þú
ert algjör dúlla og krútt. Kem bráðum
í heimsókn til þín.“ Kristín.
Og að lokum er hér tilkynning um
að Keikó hafi verið tilnefndur til
„Heimshomasteinsins", sem er viður-
kenning sem Töðugjaldahátíð Suður-
lands og Sunnlenska fréttablaðið
standa að. Hallur Hallson mun hafa
veitt Heimshomasteininum viðtöku
fyrir hönd Keikós þann 16. ágúst sl.
Viðurkenninguna fær Keikó fyrir þátt
sinn í því að auglýsa ísland erlendis og
vegna heimkomu hans til íslands.
Margir frægir og mikilsmetnir ein-
staklingar hafa fengið Heimshorna-
steininn og nægir þar að nefna Björk
Guðmundsdóttur og er því óhætt að
segja að Keikó sé kominn formlega í
hóp fræga liðsins.
Smáey VE 144 kom til heimahafnar á mánudaginn eftir breytingar sem gerðar voru á skipinu
hjá Velsmiðjunni Stál á Seyðisfirði. Að sögn Guðmundar Alfreðssonar, útgerðarstjóra Bergs-
Hugins ehf. sem gerir út Smáey, var hún lengd um tæpa 3 metra og sett niður ný Ijósavél.
„Breytingarnar hafa tekist mjög vel og öll vinnubrögð til fyrirmyndar. Skipið reyndist vel á
heimsiglingunni og aðstaða á dekki hefur batnað til muna við lenginguna," sagði Guðmundur.
Mynd Guðm. Alfreðsson.