Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.1998, Síða 13
Fimmtudagur 22. október!998
Fréttir
13
Alla Borgþórs
gefur út geisladisk
Nú er lokið upptökum á geisla-
disknum „BROTHÆTT“ með
söngkonunni og lagasmiðnum Ollu
Borgþórs. Alla hefur dvalið meðal
huldufólks austur á Seyðisfirði
fram að þessu. Alla er fæddur
Vestmannaeyingur en fluttist til
Seyðisfjarðar ung að aldri. I
textum og lagasmíðum Öllu gætir
sterkra áhrifa frá hrikaleika og
fegurð náttúrunnar.
Alla fer ekki alltaf troðnar slóðir í
lagasmíðum og útsetningum á disk-
inum og heyra má smá teknó, smá
rokk. og sætar ballöður. Tilraunir em
gerðar með ýmis hljóð og er hljóð-
færaleikur sjaldnast hefðbundinn.
Raddpælingar em og bæði frumlegar,
og lita skemmtilega.
Diskurinn er að stærstum hluta
unninn í Studíó september. Upptöku-
stjóm var í höndurn Hafþórs Guð-
mundssonar ásamt slagverki ofl.,
Þórður Guðmundsson spilaði á bassa,
hljómborð ofl. og Tómas Tómasson
sá um gítamndirleik. Aðrir sem komu
við sögu vom Einar Bragi Bragason
ogKjartan Valdemarsson. MagnúsR.
Jónsson og Martin Sammtleben sáu
um hönnun umslags. Alla gefur
diskinn út sjálf og Skífan dreifir.
Diskurinn kemur út 6. nóvember .
Fréttatikynning.
í síðustu viku var tekið í notkun nýtt og endurbætt útileíksvæði fyrir
börnin á leikskólanum í Kirkjugerði. Framkvæmdirnar hafa staðið yfír í
sumar, en auk bess sem leiksvæðið var steinlagt að stórum hluta voru
sett upp ný leiktæki og sandkassar fyrir byggingafræðinga fram-
tíðarinnar. Skipar bó hin nýja körfuróla veglegastan sess og ósjaldan
biðröð í róluna. Myndin er tekin af starfsfólki og börnunum við körfu-
róluna á formlegum vígsludegi svæðisins.
Byr VE væntanlegur frá Póllandi eftir helgi:
Að mestu leyti um
nýtt skíp að ræða
Byr VE er væntanlegur frá Pól-
landi á mánudag eða þriðjudag
eftir gagngerar breytingar og
endurbætur. Er nánast um nýtt
skip að ræða og er Byr nú full-
komið túnfiskveiðiskip og það eina
sem eftir er af gamla skipinu er
hluti af vélarrúmi, káeta og brú.
Fullkominn frystibúnaður er um
borð og getur fryst við allt að 70° á
Celsíus. Aætlað er að kostnaður
við breytingarnar sé um 150
milljónir króna.
Byr lagði af stað frá Póllandi á
sunnudagskvöldið og var á siglingu
út af Kaupmannahöfn þegar Fréttir
náðu í Svein Rúnar Valgeirsson
skipstjóra. Þeir ætluðu að koma við í
Skagen þar sem tekin verður olía og
gert við sjálfstýringu. Þeir höfðu
fengið þokkalegt veður, mest sex til
sjö vindstig og hafði skipið reynst vel
í alla staði að sögn Sveins. ,Ætli það
sé ekki auðveldara að tína til hvað
eftir er af gamla skipinu en segja frá
því hvað er nýtt," segir Sveinn þegar
hann er spurður út í breytingamar.
„Skipið var stækkað um 83% og ætli
það megi ekki segja að svipað
hlutfall sé nýtt. Allar íbúðir nema
káetan eru nýjar og eins borð-
salurinn. Aðalvélin er sú sama en
ljósavélin er ný, tæki í brúnni eru að
hluta ný og settir niður fjórir mjög
öflugir frystar og tvær frystipressur
sem frysta við allt að 70°. í lestunum
verður kuldinn 50° til 55°. Eftir
þessar breytingar er Byr sérútbúinn
til línu- og túnfiskveiða."
Byr var lengdur úr 35 m í rúmlega
39 m, breikkaður úr 6,70 m í 9 m og
dýptin verður 6,40 m en var 5,40 m.
Kostnaður við breytingamar er
nálægt 95 ntilljónum og með tækjum
og niðursetningu þeirra segir Sveinn
að heildarkostnaður nálgist 150
milljónir. „Þetta er talsvert umfrant
áætlanir okkar en við létum líka gera
meira en við ætluðuni í upphafi. Við
verðunt 15 til 16 um borð og förum
við á túnfiskinn fljótlega eftir að við
komum heim," sagði Sveinn Rúnar
að lokum.
óskar, Lh. og Guðni Grímsson, starfsmaður Áhaldaleigunnar.
Óskar Elías Óskarsson í Áhalda-
leigunni er þessa dagana að færa út
starfsemi sína og ætlar nú að bjóða
upp á alhliða hjólbarðaþjónustu til
allra bifreiðaeigenda sem eiga og
reka fólksbfla, sendibfla og jeppa.
Óskar segist vera með aðstöðu í
húsnæði Áhaldaleigunnar að Skild-
ingavegi 10 til 12, beint á móti Fjöl-
verk og við hliðina á Slökkvi-
tækjaþjónustunni. „Hjá okkur fá bif-
reiðaeigendur alla þjónustu sent snýr
að hjólbörðum og felgum og við
höfum mjög góða aðstöðu til að taka á
móti væntanlegum viðskiptavinum.
Við erurn með bílalyftu og getum
tekið inn tvo til þrjá bíla í einu í
upphitað húsnæði,“ segir Óskar.
Óskar er með fullkominn tækja-
búnað og hvert skipti sem komið er
með bíl í umfelgun fylgir jafnvægis-
stilling. „Til þess erunt við með
tölvustýrt tæki sem tryggir fullkomna
jafnvægisstillingu sem bæði eykur
öryggi bflsins og kemur í veg fyrir
óþarfa slit sem getur skemmt hjóla-
legur og valdið slysunt.“
Óskar hefur ekki bara bílinn í huga
í þjónustu sinni og ætlar hann að sjá til
þess að fólki leiðist ekki á meðan það
bíður. „Meðan fólk býður getur það
skroppið upp á loft, fengið sér kaffi og
kökubita og skoðað myndir. Þar er
líka sími við hendina ef einhver þarf
að hringja á meðan hann bíður. Eg
stefni á að hafa lifandi þjónustu og
hringi til þeirra sem ekki hafa tíma og
læt þá vita þegar bíllinn er tilbúinn.“
Þá stefnir Öskar að því að vera með
fjölbreyttan lager af dekkjum og
felgum sem hann segir að muni kosta
það sama hjá sér og í Reykjavík. „Við
verðum með allt sem Hjólbarðahöllin
er með. Það eru dekk af gerðinni
Kumho og Marshall og felgur sem
þeir flytja inn sjálfir og hafa reynst
mjög vel. Verðum við sumar- og
vetrardekk og heilsársdekk."
Þó Óskar leggi megináherslu á að
vera með vörur frá Hjólbarðahöllinni
þá ætlar hann ekki einskorða sig við
hana. „Eg verð með dekk og felgur frá
Heklu, Bílabúð Benna, Jöfri, ísdekk,
Sólningu og fleirum. Auk þess
munum við sérpanta ef óskað er og
allt verður þetta á sama verði og í
Reykjavík. Þar fyrir utan er afsláttur
sem fer eftir því hvað verslað er fyrir
mikið og svo er maður alltaf
sveigjanlegur í viðskiptum þó öll verð
miðist við staðgreiðslu.'*
Þegar snjór og hálka hellast yfir ætlar
Óskar að hafa opið um helgar og eins
er hægt að hóa í hann þegar þörf
krefur. „Um helgar er ég líka tilbúinn
að hleypa mönnum á lyftuna gegn
vægu gjaldi.'þ
Ekki segist Óskar óttast samkeppni
sem fyrir er á þessum markaði. „í
Vestmannaeyjum eru a.m.k. 1400
bflar og mér sýnist að það hljóti að
vera pláss fyrir tvö dekkjaverkstæði.
Allir sem eru í rekstri verða að taka
samkeppni en hún verður að vera
heiðarleg. Sjálfur verð ég áfram með
áhaldaleigu, múrbrot, kjarnaborun,
pallaleigu, veggsögun, körfubfl. vatns-
bfl, háþrýstidælur og fleira til
bygginga og hjálpa með því þeim sem
vilja hjálpa sér sjálfir," sagði Óskar
Óskarsson að lokum.
Göngudagur
Hin árlega gönguferð fjöl-
skyldunnar á vegum
menningarmálanefndar var
farin laugardaginn 17. október
síðastliðinn. I tilefni af ári
hafsins var að þessu sinni
gengið um hafnarsvæðið og
hófst gangan á Skansinum og
var gengið inn í Botn undir
leiðsögn Jóhanns Friðfinns-
sonar safnstjóra Byggða-
safnsins. Undir lok göngunnar
var Fiska- og Náttúru-
gripasafnið heimsótt, þar sem
Kristján Egilsson safnstjóri
leiddi gesti um safnið og
upplýsti um þá góðu og
sjaldgæfu gripi sem það hefur
að geyma. Göngunni lauk svo í
Listaskólanum við Vesturveg,
þar sem rifjaðar voru upp
minningar frá Palla- og
Króatímanum. Að lokum lék
Gísli Brynjólfsson átthagalög af
fingrum fram á píanó við
frábærar undirtektir göngu-
garpanna, vel höldnum og
rjóðum eftir gönguna, drekk-
andi kafFi ásamt með kleinum
að seðja hungrið.