Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Síða 2
2
Jólagjafahandbók '98
Fimmtudagur 10. desember 1998
Hátíðarmatseðill
að hætti Stefáns
á Café Maríu
í huga margra eru jólin
kærkomið tækifæri til að
gera sér dagamun í mat og
drykk. A jólum eru
fjölskylduboð snar þáttur í
tilverunni og í mörgum
tilfellum er þetta eina skiptið
á árinu sem ættingjar hittast.
Því er oft reynt að vanda til í
matseld í fjölskylduboðum.
Og þótt hangikjötið, gæsin,
kalkúnninn og hamborgar-
hryggurinn standi alltaf
fyllilega fyrir sínu, er líka
gaman að prófa eitthvað
nýtt, eitthvað sem kemur á
óvart.
Við fengum Stefán Ólafsson,
matreiðslumann á Café
Maríu, til að setja saman
fyrir okkur þríréttaðan
hátíðarmatseðil, ásamt einni
góðri tertu með kaffinu.
Stefán segir að þessi matur
tengist ekkert endilega
jólum, hægt sé að bjóða upp
á hann hvenær sem er. Aftur
á móti séu þetta sannkallaðir
veisluréttir, án þess þó að
vera flóknir í matreiðslu.
Forréttur
Rjómalöguð humarsúpa:
20-30 humarhalar
Knorr humarkraftur
svört piparkorn
salt og pipar
koníak
2 msk. tómatpuré
11 rjómi
ólífuolía
21 vatn
maizenamjöl
Brjótið humarskelina og
mænudragið humarinn. Hitið
ólífuolíu í potti og brúnið
humarskelina í henni. Kryddið
með salti, pipar og piparkomum
og bragðbætið með koníaki og
tómatpuré. Hellið 2 lítrum af
vatni yfir og látið sjóða í 20 mín.
Sigtið þá skelina frá, setjið soðið í
pott og þykkið það með
maizenamjöli. Bætið humarkrafti
út í og humarhölunum, látið þá
sjóða í 5 mín. og setjið þá einn
lftra af rjóma út í.
Aðalréttur
Humarfylltur Iambahryggur
1 stk. lambahryggur
15 humarhalar
15 stk. sveppir
1 stk. rauðlaukur
I msk. humarkraftur
brauðrasp
rjómi
kjötnet
Úrbeinið lambahrygginn og
kryddið hann bæði að innan og
utan með salti og pipar. Snúið
ykkur svo að fyllingunni.
Humarhalar, sveppir og
rauðlaukur er saxað smátt eða sett
í blender. Léttbrúnið blönduna
síðan í olíu á heitri pönnu. Setjið
humarkraft saman við, salt pipar
og ijóma og þykkið með
brauðraspi. Látiðkólna.
Humarfyllingin er sett inn í
hrygginn, honum rúllað upp og
hann settur í kjötnet. Stráið salti
og pipar yfir. Steikið í ofni við
175° í 75 mínútur.
Sósa:
Setjið safann af kjötinu í pott og
smávegis mjólk út í. Látið sjóða í
fimm mín. og þykkið með
maizenamjöli. Bætið púrtvíni út í,
kjötkrafti og síðast rjóma.
Með þessu er gott að bera
kartöflur með rauðlauk og beikoni
sem er svissað smástund á pönnu.
Einnig er mælt með rósinkáli og
blómkáli sem er gratinerað með
camembert osti og ijóma.
Eftirréttur
Heitt súkkulaði með rjóma
eða ís
100 g suðusúkkulaði
II mjólk
vanilludropar
Hitið mjólkina, setjið súkkulaðið
út í og hrærið. Bragðbætið með
vanilludropum. Setjið rjóma eða
ís í hvem bolla.
Með kaffinu
Amaretto súkkulaðiterta
200 g smjör
200 g Síríussúkkulaði
200 g strásykur
4 eggjarauður
100 g hveiti
1 tsk. instant kafliduft
4 eggjahvítur
100 g saxaðar heslihnetur
1 dl Amaretto líkjör
Bræðið saman smjör og
súkkulaði við vægan hita. Þeytið
eggjarauður og sykur saman þar til
það er orðið létt og ljóst. Hellið
súkkulaðiblöndunni út í, hveiti og
kaffidufti og síðast hnetum og
líkjör. Að lokum er stífþeyttum
eggjahvítum bætt varlega út í.
Setjið í hringlaga tertuform með
lausum botni og bakið við 200° í
30 til 35 mín.
Súkkulaðikrem:
2 1/2 dl rjómi
50 g suðusúkkulaði
1 msk. smjör
2 msk. Amaretto líkjör
Þeytið rjómann. Bræðið
súkkulaði og smjör í vatnsbaði og
bætið líkjör út í. Blandið varlega
saman við þeyttan ijómann.
Sprautið kreminu á tertuna. Apri-
kósumarmelaði er smurt á tertuna
og hún hjúpuð með
suðusúkkulaði. Skreytt með
súkkulaðikremi.
Hind Hannesdóttir framreióir matinn á Café María og er hér með sýnishorn af
bvísemhareríboóí.
T»
m
m kk.
mm n
Fyrir jólasendingar um land allt
Til/frá Reykjavík 0-9 kg 10-19 kg*
Reykjanes, Suóurland, Vesturland 350 kr. 450 kr. pakkinn
Vestfiróir og Hrútafjöróur til Akureyrar 450 kr. 650 kr. pakkinn
Austurland, frá Húsavíktil Hornafjarðar 550 kr. 750 kr. pakkinn
Akureyri 350 kr. 650 kr. pakkinn
Heimkeyrsla á Akureyri 350 kr. pakkinn
Pakkar sóttir/sendir í Reykjavík 45o kr. pakkinn
* Ef pakkar eru stærri gildir venjuleg veróskrá. 1 rúmmetri jafngildir 350 kg.
VSK og þjónustugjald er innifalið í verði.
Vió bjóóum merkimióa og fylgibréf.
Afgreióslutími Flutningamióstöóvar Vestmannaeyja:
Opió mánudaga til fostudaga frá kl. 8:00 til 17:00. Lokaó á laugardögum.
Lokað á aófangadag.
Landflutningar
J FV
FLUTNINGAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA, Frióarhöfn, 900 Vestmannaeyjar, Sími 481 1080