Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1998, Qupperneq 6
6
JÓLfiGJfiFfiHfiNDBÓK FRÉTffi '98
Fimmtudagur 10. desember 1998
Glæsilegt
jólahlaðborð
á Café María
Café María er einn þeirra
veitingastaða sem bjóða upp á
jólahlaðborð fyrir jólin og er
úrvalið meira en hver
meðalmaður ræður við. Stefán
Ólafsson matreiðslumeistari og
veitingamaður á Café Maríu og
Helena Ámadóttir kona hans
hafa ásamt öðru starfsfólki
staðarins lagt sig fram um að
gera hlaðborðið hið
glæsilegasta. Þegar kemur að
því að smakka á krásunum
standast þær fyllilega
væntingar sem augað lofaði.
Eina vandamálið er að taka
nógu lítið til að komast yfír að
smakka allt það sem
hlaðborðið hefur upp á að
bjóða.
Hlaðborðinu eru skipt í þrennt eins
og vera ber, forrétti, aðalrétti og
eftirrétti. í foirétt er m.a. rjómalöguð
humarsúpa, þrjár tegundir af paté,
síldarréttir og laxaréttir. Undirritaður
sleppti súpunni og skellti sér beint í
hina forréttina. Patéið var mjög gott og
það sama má segja um laxinn en
ekkert sló sfldinni við sem er hreint
lostæti.
Aðalréttir eru að mestu leyti hefð-
bundnir. Þar er að finna hamborgara-
hiygg með púrtvínsappelsínusósu,
rauðvínslamb með koníakssveppa-
sósu, roast beef, sænska jólaskinku,
hangikjöt og kalkún. Einnig voru
þama réttir sem almennt eru ekki
tengdir jólunum en eru góðir engu að
síður. Má þar nefna ofnbakaðan kjúk-
lingarétt, kínverskan chilirétt, bland-
aða sjávarrétti, hreindýrabollur og
lunda í villibráðarsósu. Meðlætið er
svo að mestu hefðbundið.
í eftirrétt, ef einhver hefur þá
magarými, er í boði ostabakki. Ama-
rettósúkkulaðiterta, fersk ávaxtaskál
og kiwi-ostaterta. Sá sem þetta ritar
Ájólahlaðborði Café Maríu er að finna rúmlega 40 rétti sem eru hver öðrum betri. Helsta vandamálið er að taka
nógu lítíð af hverrjum rétti til að komast vfir að smakka há alla.
smakkaði á Amarettotertunni sem er
hreint sælgæti.
Öll þjónusta og viðmót starfsfólks
er til fyrirmyndar og það er svo
sannarlega hægt að eiga rómantískt
kvöld yfir jólahlaðborðinu á Café
María. Ekki skemmir að hægt er að
taka börnin með og stendur þeim til
boða sérstakur matseðill. Frítt er fyrir
börn yngri en sex ára. en annars kostar
hlaðborðið 2700 krónur á manninn og
afsláttur er fyrir tíu eða fleiri. O.G.
Fréttir fengu Hárgreiðslustofu Guðbjargar og Snyrtistofuna
Aníta til að taka Sigríði Gunnarsdóttur og María
Ásgeirsdóttur. Hjá Anítu voru það snyrtifræðingamir Aníta
Vignisdóttir og Valgerður Jónsdóttir sem sáu um förðunina.
Hjá Guðbjörgu voru það Guðbjörg Sveinbjömsdóttir og
Lára Skæringsdóttir sem höfðu hendur í hári kvennanna.
Guðbjörg greiddi Maju og Lára greiddi Siggu.
Ekki verður farið út í það hér að reyna að lýsa því sem gert
var enda tala myndirnar sínu máli.
Svona litu Sigga og Maja út áður en hafíst var handa.
Árangurinn er glæsilegur og hér eru Sigga og Maja til í hvað sem er, hár og snyrting í
fyrsta klassa og í fötum frá Smart.