Fréttir - Eyjafréttir - 25.03.1999, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 25. mars 1999
Bændabaka og Gullugums
Sælkeri síðustu
viku, Þórdís Sigfús-
dóttir, skoraði á
Guðlaugu Björg-
ólfsdóttur sem hér
tekur við.
„Ég þakka Dísu
hrósið en mér finnst
þetta nú oflof. Ég
ætla að bjóða upp á tvo rétti, franska
bændaböku sem ég kynntist í
sælkeraferð til Parísar en þar var
fararstjóri enginn annar en Sigmar B.
Hauksson, þannig að við fengum
aðeins að kynnast bæði sælkera- og
sveitamat. Ég veit ekki hvort er betra.
Hinn rétturinn er eftirréttur og gengur
undir nafninu Gullugums.
Frönsk bændabaka:
800 g lambagúllas
2 msk. heilhveiti
1 laukur
1 msk. olía
2 pressuð hvítlauksrif
2 msk. tómatþykkni
2 tsk. oregano
2 tsk. paprikuduft
salt
pipar
4 dl kjötsoð (vatn + teningur)
2 gulrætur
1 gul paprika
Vi blómkálshaus
Guðlaug Björgólfsdóttir
er sælkeri vikunnar
200 g nýir sveppir
smjördeig
Hitið olíuna. Veltið kjötinu upp úr
heilhveitinu og steikið í stutta stund
ásamt lauk og hvítlauk. Bætið síðan
við tómatþykkninu, kryddinu og
soðinu og sjóðið við vægan hita í
u.þ.b. 1 Vi klst. eða þar til kjötið er
orðið meyrt. Skerið grænmeti og
sveppi (ekki mjög smátt) og bætið út
í þegar 10 mínútur eru eftir af
suðutímanum. Smyrjið eldfast mót
og hellið kjöti og grænmeti í það.
Fletjið smjördeigið út þannig að það
sé mátulegt ofan á fatið. Leggið ofan
á eins og lok og þrýstið vel að
börmunum. Bakið við 175° þar til
deiglokið er orðið fallega gulbrúnt.
Gullugums:
I pk. makkarónukökur
'/2 melónur (2-3 tegundir)
slatti af vínbeijum
I pk. bláber
1 pk.jarðarber
1 dós rommkúlur
1 lítið Toblerone
2-3 pelar rjómi
4-5 kiwiávextir
Makkarónukökumar settar í skál
eða fat með háum börmum. Ávext-
imir skornir niður og settir yfir
(geymið smávegis í skreytingu).
Rommkúlur og súkkulaði saxað og
bætt út í. Rjóminn þeyttur og settur
yfir. Skreytt með kiwi, jarðarberjum
og vínberjum. Athugið að hafa má
rjómann sér. Þetta þarf að standa í 4-
6 klst. áður en það er borið fram.
Sem næsta sælkera ætla ég að
skora á Þyrí Olafsdóttur. Hún kann
mikið og margt fyrir sér í eldhúsinu
eins og ég hef fengið að kynnast.
1 --"W^ a—liJ—& li' tu- ii 1
Gunnhildur Hrólfsdóttir, rithöfundur, sagði frá því á dögun- um að það hefði vakið athygli sína í sumar að yngri kynslóðin í Eyjum setti samasemmerki við eldgos og Tyrkjarán, hvort tveggja hefði gerst fyrir þeirra tíð og minnið næði ekki til þeirra atburða. Kennari nokkur í Hamarsskóla fór í göngu með tíu ára nemendur sína á dögunum og skoðuðu þau meðal annars Hundraðmannahelli sem þeim hafði verið sagt af í sögutímum. Einn nemendinn kom stóreygurtil kennarans og spurðí: „Komust virkilega hundrað manns hérna inn í gosinu?“ Þegar leiðrétt hafði verið um atburði og að þetta hefði átt sér stað ÍTyrkjaráninu, sagði annar nemandi: „0, hvað ég vorkenni alltaf fólkinu sem var hérna í gosinu og Tyrkjaráninu."
Lúðvík er ágœtur skákmaöur
Skótaskákmeistari Vestmannaeyja árið
1999 er Björn fvar Karlsson. Á
skólaskákmótinu, sem nýlokið er, vann
hann alla sína andstæðinga og varþví
með fullt hús stiga. Björn ívar er
Eyjamaður vikunnar af þessu tilefni.
Fullt nafn? Björn ívar Karlsson.
Fæðingardagur og ár? 23. febrúar 1985
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Bý í foreldrahúsum,
foreldrar mínir eru Karl Björnsson og Ásta
Garðarsdóttir. Ég á yngri systur, Berglind,
sem er fimm ára.
Menntun og starf? Nemi í 8. bekk í
Barnaskóla Vestmannaeyja.
Laun? Þaueruengin.
Bifreið? Engin ennþá.
Helsti galli? Ég veit
það bara ekki.
Helsti kostur? Góður i skák.
Uppáhaldsmatur? Nautasteik.
Versti matur? Hafragrautur.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Allt frá
sinfóníum og upp í rapp.
Hvað erþað skemmtilegasta
sem þú gerir? Að tefla.
Hvað erþað leiðinlegasta sem
þú gerir? Að tapa skák.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir
milljón í happdrætti? Ég myndi
styrkja Taflfélag Vestmannaeyja.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Lúðvík Bergvinsson. Hann er
ágætur skákmaður.
Uppáhaldsíþróttamaður? Af
skákmönnum erþað indverski
stórmeistarinn Anand.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap?
Taflfélagi Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Þegar sýnt er frá skák í
sjónvarpinu, annars flestir gamanþættir og
spennumyndir.
Uppáhaldsbók? Allarskákbækur.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika og
stundvísi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Óstundvísi.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Dettifoss.
Hvenær byrjaðir þú að tefla ? Þegar ég var 11 ára.
Pabbi kenndi mér mannganginn.
Af hverju hefur áhugi fyrir skák minnkað hjá
ungu fólki á undanförnum
árum? Vegna þess að það ersvo
margt annað sem skyggir á
skákina, svo sem sjónvarp, tölvur
og fleira.
Attþú þér einhverja
uppáhaldsbyrjun? Já, flestar
vængbyrjanir, t.d. Reti-byrjun og
enski leikurinn.
Hvers konar skák er
skemmtilegast að tefla?
Venjulegar kappskákir, tveggja
tíma skákir.
Áttþú þér draum um að verða
stórmeistari? Já, það eralltaf
gaman að láta sig dreyma. En ég
ætla að láta námið ganga fyrir.
Eitthvað að lokum? Ég hvet sem
flesta til að mæta í Taflfélagið og
kynnast þeirri skemmtilegu íþrótt
sem skákin er.
NÝFfEDDIR VESTMfflNNfiEYINGfiR
Þann 5. mars
eignuðust
Svava
Gunnarsdóttir
og Stefán
Birgisson
dóttur. Húnvó
14 merkur og
var 50 sm að
lengd. Hún
hefur fengið
heitið
Hrafnhildur.
Með henni á
myndinni em
systkini hennar
Kolbrún Inga
og Gunnar Þór
Ljósmóðir var
Guðný
Bjamadóttir.
Þann 11. febrúar eignuðust Jóna Dóra Óskarsdóttir og Kristófer Helgi
Helgason dóttur. Hún vó 9 merkur og var 45cm að lengd. Hún hefur
hlotið nafnið Bergþóra Ósk. Hún fæddist á Landspítalanum.
Fjölskyldan býr í Reykjavík. Ljósmóðir Rannveig Rúnarsdóttir.
Á döfinni
25. mars Hcumes Hólmsteinn Gissurarson með
fyrirlestur um kvótakerfið eftir rúman
klukkutíma í Rannsóknarsetrinu
25. til 27
mars Tölvun heldur upp cí 6 órci qfmceli sitt
25. mars ÍBV-Haukar t Iþróttamiðstöðinni. Alli ó
völlinn og styðjum okkar menn
26. mars Bingó IBV íÞórsheimilinu. Ath. breyttan
tíma
27. mars Lúðrasveit Vestmcmnaeyja heldur upp cí 60
círct afinœlið í Listaskólanum. Fjölmennum
í veisluna
28. mars Myndlistarvor Islanclsbanka. Síðasti
sýningardagur myndlistasýningar Sissúar
ígctmlct dhaldahúsinu. Allir velkomnir.
28. mars Kristniboðskqffi í Safnaðarheimilinu