Fréttir - Eyjafréttir - 25.03.1999, Side 11
Fimmtudagur25. mars 1999
Fréttir
Afgreiðsla loftskeytastöðvarinnar endurnýjuð í Vestmannaeyjum
Þiónustusvæðið austur af Evium og allt að Langanesi
Björgólfur ingason einn starfsmanna Loftskeytastöðvarinnar
Loftskeytastöð Landssímans í
Vestmannaeyjum hefur nú verið
hliðtengd við fjarskiptastöðina í
Gufunesi. Þetta þýðir að af-
greiðslumennirnir í Vestmanna-
eyjum og Reykjavík geta unnið
jafnt með flestöll þau radíótæki sem
þjóna skipaflotanum á svæðinu frá
syðri hluta Vestfjarða suður um og
að Langanesi. Þetta er enn eitt
dæmi um fjarvinnu sem nýjasta
tækni í fjarskiptum gerir mögulega
og styrkir dreifðar byggðir landsins.
Magnús Waage forstöðumaður
skipaþjónustu hjá Landssíma íslands
var í Eyjum á föstudaginn í tilefni af
opnun nýrrar aðstöðu.
Magnús segir að í raun sé enn þá
verið að fækka stöðvunum um landið,
en með tilkomu GMDSS, sem er nýtt
alþjóðlegt iyrirkomulag í neyðar- og
öryggisfjarskiptum skipa, farsímanns,
sjálfvirkrar tilkynningarskyldu og
fjarskiptum skipa um gervihnetti hafi
umfang þessarar starfsemi gjörbreyst.
"Við höfum þurft að fækka mannafla,
en á sama tíma erum við að reyna að
gera það á þann hátt að það hafi
hverfandi og helst engin áhrif á öiyggi
sjófarenda. Ein aðferðin er sú að sam-
nýta fólkið. Það erum við að gera hér,
að tengja Vestmannaeyjaradíó og
Reykjavíkurradíó, þannig að starfs-
menn þessara stöðva geti sinnt
sameiginlega stærra landssvæði. Ef
upp kemur mikil umferð hjá einum og
lítið hjá hinum getur hann frekar
hugað að örygginu fyrir allt svæðið,
en ekki að einn maður sé önnum
kafinn. Þetta er hagkvæmt og öryggið
haldið í heiðri."
Magnús segir ástæðuna fyrir því að
fara þá leið að hafa eina stöð starfandi
í Reykjavík og aðra úti á landi sé sú að
menn hafi verið bundnir af
ákvörðunum sem teknar hafi verið um
tækniuppbyggingu á síðustu tveimur
áratugum. „Þessar ákvarðanir gerðu
það að verkum að við getum ekki
sinnt þessari þjónustu alfarið úti á
landi. Við neyðumst til að halda, að
lágmarki úti einum manni á vakt í
Reykjavík. Þegar það varð ljóst
ákváðum við að ekki yrði fækkað
meira úti á landi en í Reykjavík, eða
að samdrátturinn héldist hlutfallslega í
hendur þar og úti á landi. Síðan
sjáum við fram á að eftir tvö til þrjú
ár héðan í frá verði ekki þörf nema
fyrir tvær stöðvar og tvo til þrjá
starfsmenn á vakt, sem sinna gæslu á
öllu landinu. Það er Reykjavík með
einn mann og Vestmannaeyjar með
einn mann. Þegar bætt verður við
manni yfir daginn kemur hann inn í
Reykjavík."
Hver er ástæðan fyrir því að
Vestmannaeyjar voru valdar en ekki
einhver annar staður á landinu?
"Hún er tvíþætt. Annars vegar að í
Eyjum var öll aðstaða fyrir hendi og
mjög gott starfsfólk og góður andi
milli þeirra og sjómanna. Það sem
réði kannski úrslitum var fjárhags-
dæmið. Við komumst að sam-
komulagi við þá sem reka CANTAT 3
sæstrenginn um að starfsmenn tækju
að sér bakvakt. Það er einn
starfsmaður við CANTAT 3
sæstrenginn í Vestmannaeyjum og
það náðist samkomulag um að þjálfa
starfsmenn loftskeytasöðvarinnar til
að hlaupa í skarðið ef þessi fasti
starfsmaður væri ekki við. Þama
fengum við inn viðbótartekjur, sem
eru það drjúgar að ákveðið var að
byggja þessa stöð upp frekar en aðrar.
Við urðum að byggja upp til þess að
takast á við fækkanimar án þess að
það kæmi niður á örygginu, með því
að bæta aðstöðu og samtengja. Þetta er
það sem við emm að gera hér í dag."
Magnús segir að helsti ágallinn á
þessu kerfi sem hefur verið gagn-
rýndur sé að sú þekking sem
starfsmenn höfðu á staðháttum á
hverjum stað hafi minnkað. "Þetta er
helsti ágallinn við fækkun starfsmanna
og stöðva um landið. Við eram samt
að reyna að vinna á móti þessu með
því að koma upp kortum og láta starfs-
mennina kynna sér staðhætti.
Starfsmennimir hér í Vestmanna-
eyjum byrja á því að verða tengdir
svæðinu austur af Eyjum, allt að
Langanesi, en ekki stærra svæði í einu
til þess að þeir geti byggt upp
þekkingu á svæðinu. Menn í svona
vinnu kynnast mjög fljótt staðháttum
og aðstæðum allt í kringum landið.
Við leggjum mikið upp úr því að
starfsmenn kynni sér vel staðhætti á
þeim stöðum sem þeir eiga að sinna
og þau viðmið sem sjómenn nota
gjaman."
Hefur öryggið aldrei verið meira en
nú?
"I heildina hefur öryggið aldrei
verið meira en nú vegna þess að fleiri
leiðir era til staðar í öryggismálunum.
Um borð í skipum nú eru tæki sem
ekki vora til fyrir nokkram áram, eins
og neyðarbaujur og í stærri skipum
hafa menn sjálfvirkt stafrænt valkall.
Einnig era skipin búin INMARSAT C
gervihnattakerfi um borð sem hægt er
að senda út neyðarköll á og sjálfvirka
tilkynningaskyldan mun koma
smábátunum að veralega góðu gagni.
Um hina gömlu hefðbundnu leið, með
að kalla í land, getum við ekki sagt að
öryggið sé meira, en unnið er að því
að það verði ekki minna."
\
AFMÆLI AFMÆLI AFMÆLI
Frá 25. mars - 27. mars
Nú heldur Tölvun upp á 6 ára afmœli sitt
með pompi og pragt, t.d.:
Sími 481-1122
Opnun vefsíðu: hotsex.eyjar.is
Sjóðheit tilboð í gangi
Spennandi leikur þar sem vinningurinn er m.a.
Thomson hljómtœkjasamstœða!
Frá fimmtudegi verður hjá okkur sérfrœðingur frá Canon
Langur laugardagur í Tölvun
Heitt á könnunni og kalt á krananum !!!
Fyrstu 6 sem kaupa Tal kort fá Tal úr í kaupbœti
Thomson, urrandi tilboð á hljómtœkjasamstœðum og
29" sjónvarpstœkjum
Sérfrœðingur frá Opnum kerfum kynnir Hewlett Packard
Allt að 66% afsláttur af PC-tölvuleikjum
/