Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1999, Page 20
Vilhjálmur Bergsteinsson
V 481-2943 IMMEPABÍli.
* 897-1178
Fréttabikararnir voru að venju
afhentir á lokahófi fótboltans sem
fram fór á laugardagskvöldið.
Koma þeir í hlut efnulegustu
leikmanna í karla og kvennaflokki.
Það voru þau Atli Jóhannsson og
Elfa Ásdís Olafsdóttir sem hlutu
Fréttabikarana fyrir tímabilið
1999.
Omar Garðarsson, ritstjóri Frétta,
afhenti bikarana og gerði um leið
grein fyrir forsendum valsins. Hann
sagði að Atli Jóhannsson væri sannur
íþróttamaður sem getur átt framtíðina
fyrir sér en hann er á fyrsta ári í 2.
flokki. „Atli er vinstri fótarmaður en
getur leikið bæði á miðju og vinstri
kanti. I sumar lék hann oftast sem
útiliggjandi á kantinum og leysti það
hlutverk vel af hendi,“ sagði Omar.
„Atli er fæddur 5. október 1982 og
var á sínu fyrsta ári í öðrum flokki í
sumar. Hann er mjög skynsamur og
klókur leikmaður og með góða
yfirferð. Atli er samviskusamur og
stundar æfingar vel. Hvað framtíðina
varðar, þá á hann alla möguleika á að
ná langt. Hann þarf reyndar að
styrkjast eins og algengt er með stráka
á hans aldri en ef hann nennir að æfa
eigum við eftir að sjá hann gera góða
hluti í meistaraflokki ÍBV.“
Elfa Ásdís Olafsdóttir er leikmaður
með 2. flokki og meistaraflokki ÍBV.
Er hún góður og verðugur fulltrúi
ungra vestmannaeyískra kvenna sem
nú eru að vaxa úr grasi.
„Það er ekki ofsögum sagt að
kvennaknattspyma hefur tekið stór-
stígum framfömm í Vestmannaeyjum
síðustu misseri og ár. Em nú að koma
hér upp stúlkur sem þekkja ekkert
nema sigur eins og sést af árangri
yngri flokkanna. Nú em þessar stúlkur
að skila sér upp í meistaraflokk ÍBV
ein af annarri og er ömgglega styttra í
titla þar á bæ en margan gmnar.“
Ómar sagði að Elfa Ásdís Ólafsdóttir
væri fædd 2. nóvember 1983 hefði
hún mjög margt til að bera sem prýða
þarf íþróttamann sem ætlar sér að ná
árangri. „Hún er mikil baráttukona á
vellinum, leggur sig 100% fram í
hverjum leik og er mjög metnaðarfull.
í fyrra varð hún íslandsmeistari með
2. flokki og í sumar fékk hún sína
fyrstu reynslu með meistaraflokki.
Elfa Ásdís lék alla leiki með
meistaraflokki í sumar sem er mikið
afrek af ekki eldri leikmanni. I
meistaraflokki er hún vinstri
bakvörður og kom í hennar hlut að
gæta sumra sterkustu framherjanna í
deildinni. Leysti hún það hlutverk vel
af hendi þrátt fyrir ungan aldur en hún
varð 16 ára á mánudaginn. í 2. öðrum
flokki spilar hún svíper og er
leikstjómandi. Hún lætur vel til sín
heyra og fer ekkert fram hjá henni af
því sem er að gerast á vellinum. Elfa
Ásdís er mjög líkamlega sterk þrátt
fyrir að vera ekki eldri. Hún þolir ekki
að tapa, er samviskusöm og mætir á
allar æfingar. Hún hefur góð áhrif á
hópinn, er sem sagt draumur hvers
þjálfara.
Það hefur verið okkur á Fréttum
mikil ánægja að taka með þessum
hætti þátt í því sem er að gerast í
fótboltanum í Eyjum. Flestir sem
hlotið hafa Fréttabikarinn hafa náð
langt með ÍBV og er það von okkar
og trú að svo verði einnig með Elfu
Ásdísi og Atla. Til hamingju bæði
tvö,“ sagði Ómar að lokum.
HANDAHAFAR Fréttabikaranna 1999, Atli og Elfa Ásdís.
AUi on Elfa Ásdfs fengu Fréttabíkarana
Námskeið fyrir
alla veiðimenn
Mánudaginn 8. nóvember kl.
18.00 verður haldið
veiðinámskeið á vegum
veiðistjóraembættisins.
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður
segir að veiðimenn verði að hafa
veiðikort, hvort heldur þeir eru
með skotvopnaleyfi eða stundi
eingöngu lundaveiði með háf. „Þó
að lundaveiðitímabilinu sé lokið og
langt í það næsta er nauðsynlegt
fyrir verðandi veiðimenn að sækja
slík námskeið. Þó að ekki sé
ætlunin að kenna mönnum meðferð
skotvopna eða hvemig á að munda
háf, þá er nauðsynlegt að
veiðimenn þekki fuglategundir og
hvenær má veiða hinar ýmsu
tegundir. Þeir sem stunda veiðar á
viltum fuglum og spendýmm þurfa
veiðikort, hvort sem veitt er með
skotvopni, eða háf.“
Hægt er að sækja námskeiðsgögn
á lögreglustöðina og vert að menn
geri það í tíma. Námskeiðið kostar
5000 kr. og veiðikort 1600 kr.
Eyjamenn í enska boltann
Á þriðjudaginn náðist samkomulag
um kaup íslenskra fjárfesta á
meirihluta hlutafjár í knattspyrnu-
félaginu Stoke City FC. Formleg
eigendaskipti verða á Britannia-
knattspyrnuvellinum í Stoke-on-
Trent 15. nóvember næstkomandi.
Að samningunum unnu tveir
Eyjamenn, Ásgeir Sigurvinsson og
Magnús Kristinsson sem ásamt
nokkrum Eyjamönnum er hluthafi í
nýja félaginu, Stoke Holding, eignar-
haldsfélagi íslensku fjárfestanna. í
samtali við Fréttir vildi Magnús ekki
greina frá því hverjir standa með
honum að kaupunum en sjálfur er
hann formaður Stoke Holdings sem
hefur aðsetur í Luxemburg.
Fréttir verða í Stoke þegar skrifað
verður undir samninginn.
Sjábls. 17.
MAGNÚS Berg
Magnússon í Stoke-
búningingnum.