Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 25.11.1999, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 25.11.1999, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 25. nóvember 1999 Fréttir 19 Handknattleikur kvenna: IBV 22 - Víkingur 22 Klúður í lcikslok kostaði eitt stig HASPENNA var síðustu andartök leiksins og fáir komust hærra en Óskar Freyr sem hvatti stúlurnar til dáða. Tvívegis hafði þurft að fresta viðureign IBV og Víkings en loks á laugardaginn var flautað til leiks í Iþróttamiðstöðinni. Ohætt er að segja að ÍBV hafi verið miklu betra liðið í leiknum, en það dugði ekki. Eyjastelpur leiddu nánast allan leikinn með allt að fimm mörkum, en slæmur kafli á lokamínútunum kom í veg fyrir að liðið landaði sigrinum. Voru síðustu andartök í leiksins alls ekki fyrir hjartaveika, en jafntefli varð niðurstaðan, 22-22. IBV byrjaði leikinn á því að ná góðri forystu, en vöm liðsins var mjög góð á þessum kafla og fyrir aftan hana stóð Vigdís Sigurðardóttir sem varði m.a. sex skot á fyrstu átta mínútum leiksins og alls 11 í fyrri hálfleik. En það virðist ekki henta liðinu að vera með forskot því að bakslag kom í leik liðsins og gestimir gengu á lagið og minnkuðu muninn í eitt mark fyrir leikhlé, 13-12. Seinni hálfleikur fór vel af stað fyrir ÍBV, liðið náði fjögurra marka forskoti, 19-15 og ekkert virtist geta farið úrskeiðis. En stelpumar vilja líklega gleyma síðustu mínútum leiksins sem fyrst, því að Vfldngar gerðu sér lítið fyrir og jöfnuðu leikinn 21-21 þegaraðeins þtjár mínúturvoru til leiksloka. Síðustu mínútumar reyndu mikið á tilfmningar blaða- manns þar sem eina stundina var fagnað en aðra bölvað. Hvað eftir annað fékk IBV tækifæri til að skora sigurmarkið og þegar það virtist vera komið þá var fagnaðurinn svo mikill að það gleymdist að klára leikinn og Víkingar skomðu jöfnunarmarkið þegar ftmm sekúndur vom eftir af leiknum, aðeins um átta sekúndum eftir að Amela skoraði. Vöm liðsins var ekki nógu góð í leiknum ef frá em taldar fyrstu 15 mínútur leiksins. Aðeins tvær í liði Víkinga sáu um að skora 18 af 22 mörkum þeirra og er ótrúlegt að leikmenn ÍBV hafi ekki tekið þær fastari tökum. Mörk ÍBV: Amela 6/3, Guðbjörg 5, Hind 4, Ingibjörg 4, Mette 2, Anita 1. Varin skot: Vigdís 15. Handbolti: ÍHK -ÍBV Einbeitinsarieysi í Kópavosi Á laugardaginn mætti ÍBV HK í Kópavoginum. ÍBV hefur oft þurft að bíða lægri hlut á útivelli og virðist engin breyting ætla að verða þar á. Hvað eftir annað í leiknum virtist sem liðsmenn væm hreinlega ekki tilbúnir til leiks, boltanum var kastað út af vellinum, sóknarbrot dæmd á liðið og það sem sveið hvað mest var nýtingin á hraðaupphlaupum liðsins. Ætla mætti að menn sem æft hafa íþróttina í tíu ár eða meira ættu að geta skilað boltanum í netið af sex metra færi, en svo var ekki í þetta skiptið. Það var svo í takt við leikinn að HK bar sigur úr býtuin, 26 - 20 eftir að staðan í hálfleik var 11-9. Mörk ÍBV: Guffi 5/2, Miro 5/1, Malli 3, Svavar 2, Bjartur Máni 2, Aurimas 2 og Hannes 1. Varin skot: Gísli 11 Góður sigur fyrir austan í körfunni IV fór í reisu til Egilstaða á dögunum og mætti þar heimamönnum í Hetti. Liðið hefur verið í nokkuð erfiðu prógrammi að undantörnu, en góður sigur gegn Valsmönnum gaf leikmönnum liðsins byr undir báða vængi. Liðið átti ekki í miklum vandræðum með mótherjana og öruggur sigur vannst 71-84, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 39-45. Amsteinn Ingi sagði að leikur ÍV hafi verið nokkuð góður. „ Þetta var bara fínt hjá okkur. Við vomm alltaf yfir í leiknum, alltaf skrefi á undan og maður hafði alltaf á tilfinningunni að við myndum vinna leikinn. Sem dæmi um yfirburði okkar þá spiluðu varamennimir mikinn hluta af seinni hálfleik og héldu forystunni. Við emm eins og er í 3-4 sæti í deildinni, en næsti leikur mun skera úr unt hvort við verðum í toppbaráttunni en þá spilum við gegn IR, liðinu sem við töpuðum naumlega fyrir í bikamum. Við ætlum okkur að sjálfsögðu sigur í þeim leik og sýna þannig hinum liðunum í deildinni að við emm allavega komnir til að vera.“ Stigahæstir í liði ÍV: Addi 23, David22, Davíð 13, Valdi ll,Ámi 10. Háðung í bikarnum ÍBV spilaði gegn Gróttu/KR í SS-bikarkeppni karla síðasta miðvikudag. Til að gera langa sögu stutta þá fóru leikar svo að IBV tapaði gegn 1 .deildarliðinu Gróttu/KR með 23 mörkum heimamanna gegn 22. Ohætt er að segja að liðið hafi þar með toppað slakan árangur sinn á útivelli, en síðustu tvö tímabil hefur ÍBV aðeins sigrað einu sinni í 15 tilraunum. En allt hlýtur þetta að koma. Handknattleikur: Bikarinn Ekkert bikar- ævintýri í ár ÍBV mætti liði Hauka í SS-bikar- keppni kvenna síðasta miðviku- dagskvöld. Vonast var til þess að IBV fylgdi eftir góðu gengi gegn Hafnarfjarðar- liðinu, en liðin höfðu mæst einu sinni á þessu tímabili, í Hafnarfirði þar sem Eyjastelpur vom óheppnar að ná aðeins jafntefli. Haukastelpurnar höfðu greinilega ummið heimalærdóminn fyrir kvöldið, því að þær tóku öll völd í seinni hálfleik og sigmðu 22 - 25, eftir að fyrri hálfleikur hafði endað jafn 10 -10. Það er því ljóst að ekkert bikar- ævintýri verður í ár, hvorki hjá körlum né konutn í handboltanum eða hjá strákunum í körfunni. Mörk ÍBV: Amela 8/4, Ingibiörg 3, ,--_T . , , b J 6 AMELA var markahæst. Diddi ólöglegur Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Kristinn Þór Jóhannesson leikmaður ÍV verið ólöglegur með liðinu. Diddi spilaði síðasta leik- tímabil með Valsmönnum og svo virðist að leikmaðurinn sé ennþá samningsbundinn þeim. Diddi spilaði ekki með ÍV gegn Hetti og mun hann missa af næstu tveimur leikjum liðsins. Nýr leikmaður kemur með Goran Samkvæmt heimildunt Frétta berst knattspymuliði ÍBV enn liðsstyrkur. Leikmaðurinn sent um ræðir er fyrirliði liðs Gorans Aleksic, og landi hans, og hefur spilað á vinstri vængnum. Ekki náðist í Þorstein Gunnarsson framkvæmdarstjóra knattspyrnudeildar til að staðfesta fréttina. Tryggvi skrifaði undir hjá Tromsö Tryggvi Guðmundsson knatt- spyrnumaður hefur endumýjað santning sinn við norska liðið Tromsö. Tryggvi átti eitl ár eftir af samningi sfnum við félagið og setti stefnuna á að komast annað, en forráðamenn settu mikinn þrýsting á hann sem varð til þess að Tryggvi framlengdi samning sinn urn eitt ár. Eyjamenn fara til Kýpur Úrvalsdeildarlið ÍBV íknattspyrnu tekur þátt í alþjóðlegu móti á Kýpur f febrúar. Þetta verður í ljórða skiptið á fimm árum sem Eyjamenn verða með á þessu móti en þeir sigruðu þar í fyrstu atrennu árið 1996. Eyjamenn ætlu tvisvar utan í vetur því þeir fara einnig í æfmgabúðir í Portúgal. Framundan Föstudagur 26. nóvember Kl. 20.00 ÍBV - Fram, karlar Laugardagur 27. nóvember Kl. 13.30 ÍB V-KA, konur Sunnudagur 28. nóvember Kl. 14.00 ÍBV-KA 2.11. kvenna Kl. 15.30 ÍV-ÍR karfan Mánudagur 29. nóvember Kl. 19.50 ÍBV-Hauktu- 2.fl. karla Miðvikudagur 1. deseinber Kl. 20.00 Stjaman-ÍBV karlar Mahoni 11 og18 þi snúninga HÚS BYGGINGAVÖRUVERSLUN ESTMANNAEYINGA

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.