Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 24. febrúar 2000
ísólfur Gylfi spyr samgönguráðherra um útboð á rekstri Herjólfs:
Megum ekki gerast
kaþólskari en páfinn
-í því að elta ákvæði ES um útboðsreglur
frettir
Þrjár f vrirspurnir
Ragnar Óskarsson bar fram fyrir-
spum í þremur liðum á fundi
bæjarráðs á þriðjudag. í fyrsta lagi
spyr Ragnar hverju sú upphæð
nemi sern lögð hefur verið á bæjar-
búa í formi holræsagjalds frá því að
byrjað var að innheimta það
sérstaklega. í öðru lagi er spurt
hver kostnaður sé orðinn vegna
hönnunar á núverandi íþróttamið-
stöð og öðrum mannvirkjum sem
verið er að hanna og Vestmanna-
eyjabær og stofnanir hans eiga eða
taka þátt í kostnaði við. Og í þriðja
lagi spyr Ragnar hve háar upphæðir
og eða aðra vinnu bæjarsjóður og
stofnanir hans hafi lagt fram til
verkefnisins Hraun og menn.
Óskað er eftir sundurliðun fyrir
hverja stofnun.
Lögfræöiley únekt
A fundi bæjarráðs á þriðjudag lá
lyrir bréf frá samgönguráðuneytinu
þar sem gerð er grein fyrir
lögfræðilegri úttekt yegna útboðs á
rekstri Herjólfs. ítrekaðar voru
fyrri samþykktir bæjarráðs um að
forræði málefna Herjólfs verði
áfram í höndum heimamanna.
Kirkjuhóll verður rlfinn
Bæjarráð hefur samþykkt kaup-
samning vegna kaupa bæjarins á
Bessastíg 4 (Kirkjuhól). Þegar
hefur verið gert ráð fyrir þeim
kaupum í fjárhagsáætlun. Áætlað
er að rífa húsið og opna Bessastíg
til austurs út á Skólaveg til að létta
á umferð við Bamaskólann.
StyrkurvegnaVorsins
Handknattleiksráð karla ÍBV hefur
farið frtmt á styrk frá bænum vegna
sýningarinnar Vor í Eyjum. Þetta
erindi var samþykkt á síðasta fundi
bæjarráðs.
Kuenfólk í slaysmálum
Ein líkamsárás var kærð til lögreglu
eftir helgina og átti hún sér stað
aðfaranótt laugardags. Tildrögin
vom þau að tveimur stúlkum
sinnaðist eitthvað á einu af öldur-
húsurn bæjarins og voru hendur
látnar skipta. Ekki urðu þó alvarleg
slys at'því tuski.
Grýttieggjum
Á aðfaranótt laugardags gerði
einhver sér til dundurs að kasta
eggjum í bifreið sem stóð við
Faxastíg. Lentu eggin m.a. inni í
bifreiðinni sem öll var útbíuð eltir.
bæði að utan sem innan.
Slysogóhapp
Eitt slys var tilkynnt lögreglu í
vikunni. Tólf ára barn fótbrotnaði
þegar það var að renna sér á sleða
við Þórsheimilið. Barnið var flutt
með sjúkratlugi til Reykjavíkur til
aðgerðar. Þá varð eitt umferðar-
óhapp í vikunni þegar snjó-
mðningstæki rann utan í hús. Litlar
skemmdir urðu á húsinu og engar á
tækinu.
Búðahnupl
Endrum og sinnum fellur fólk í þá
freistni að hnupla varningi úr versl-
unum. í ilestum verslunum er tekið
á þeim málum með því að kalla
lögreglu til. Slíkt gerðist í vikunni
en þá voru tveir átta ára drengir
staðnir að hnupli í verslun KÁ við
Goðahraun.
ísólfur Gylli Pálmason spurði í
fyrirspurnartínia á Alþingi fyrr í
mánuðinum hvað liði útboði á
ferjusiglingum milli lands og Eyja.
Isólfur Gylfi sagði að í svari
ráðherra hefði komið fram að útboðið
yrði jafnvel nú í febrúar og að
Herjólfur hl'. mætti bjóða sjálfur í
siglingamar. Isólfur sagði og að ekki
væri hægt að bera saman ferju-
siglingar milli lands og Eyja og aðrar
ferjusiglingar á landinu, eins og til
Grímseyjar og Hríseyjar svo dæmi
væru tekin.
„Ég spyr mig líka að því, vegna
þess að talað er um að bjóða út
eldsneyti á ferjur, sem ekki hefur verið
Eimskipafclag íslands hefur verið í
góðri samvinnu við Athafnaverið í
Vestmannaeyjum og gert við það
samstarfsamning sem kemur
verinu að góðum notum ekki síður
en Eimskipafélaginu.
Páll Marvin Jónsson, framkvæmda-
stjóri Athafnaversins, segir að styrkur
Eimskips til Athafnaversins sé mjög
til fyrirmyndar. „Það er hins vegar
von okkar að fleiri fyrirtæki í Eyjum
komi til móts við okkur og nýti sér þá
aðstöðu sem við bjóðum upp á. Þetta
er þáttur í uppbyggingu Athafnavers-
ins og að gera það sýnilegt sem lifandi
vettvang menntunar í samfélaginu,"
sagði Páll Marvin.
Eimskip hefur markað sér ákveðna
fræðslustefnu, en grundvöllur hennar
er að fyrirtæki geti vaxið. þroskast og
haldið samkeppnisstöðu sinni í sí-
breytilegu umhverfi. Mikilvægur
þáttur í því er að starfsmenn þess hafi
tækifæri til að auka við þekkingu sína
og fæmi. Fræðsludeild sér um skipu-
lag fræðslumála, undirbúning nám-
skeiða og skráningu á þau og þar
starfa fræðslustjóri og tveir fræðslu-
fulltrúar.
Guðný Káradóttir kynningarstjóri
Eimskipafélagsins segir að félagið
styrki Athafnaverið og fái aðstöðu í
staðinn til námskeiðahalds og fræðslu
fyrir starfsmenn félagsins í Eyjum.
Guðný segir það koma sér mjög vel að
geta haft aðstöðu í Eyjum til þess að
efla fræðslu og mennlun starfsmanna
sinna. „Eimskip leggur áherslu á að
styðja samfélagið þar sem Eimskip er
með starfsemi. Það á ekki eingöngu
við um starfsmenn Eimskips með því
að auka færni þeirra og kunnáttu í
störfum sínum, heldur og ekki síður
samfélagið sem heild. I því augna-
miði höfum við styrkt íþrótta-
hreyfmguna og menningarstarf af
gert hér á landi hingað til, að ef við
ætlum að verða kaþólskari en páfinn í
útboðsmálum og að framfylgja regl-
um ES, verðum við að gera það á
öllum sviðum en ekki bara þar sem
okkur dettur í hug hverju sinni,“ sagði
ísólfur Gylfi.
Hann sagði að það sem skipti líka
Vestmannaeyinga miklu máli væru
fargjöldin. „Ég minnist þess þegar
umræðan var um fargjöldin fyrir einu
til tveimur árum að Vestmanna-
eyjahöfn og Þorlákshafnarhöfn slógu
af viðlegugjöldum Herjólfs og ég spyr
hvort slíkt yrði gert í útboði núna. Það
kom fram í svari ráðherra að útboðið
yrði hugsanlega nú í febrúar og ég var
ýmsum toga og er þá skemmst að
minnast myndlistarverkefnisins,
„Listin með Eimskip til Eyja“ sem
Eimskip styrkti síðastliðið haust í
Vestmannaeyjum."
Um síðustu helgi var haldið tölvu-
námskeið í Athafnaverinu fyrir starfs-
fólk Eimskipafélagsins í Vestmanna-
eyjum, en námskeiðið er liður í
samstarfi Athafnaversins og Eim-
skipafélagsins.
Gyða Richter fræðslufulltrúi hjá
Eimskip var að kenna á námskeiðinu
og sagði hún þetta í annað sinn sem
hún kæmi til Eyja í slíkum tilgangi.
„Núna er ég með framhaldsnámskeið
þar sem farið er yfir helstu atriði í
Word og Excel og er liður í fræðslu
starfsmanna félagsins. Starfsemi fyrir-
tækja byggist orðið mjög mikið á
tölvuvinnslu, en námskeiðið er öllum
í raun og veru óánægður með hversu
seint þetta var ákveðið. Það kom líka
fram í ræðu minni hversu stuttan
aðlögunartíma fólk hefði, sem skapaði
óvissu og hvort af útboði yrði núna
eða framlengt til ársloka 2000, en það
var að hluta til ástæða fyrirspumar-
innar.“
ísólfur Gylfi sagði að í Ijós hefði
komið í viðtölum hans við Grím
Gíslason stjómarfonnann Herjólfs hf.
að í tíð fyrrverandi samgönguráðherra
hefði hann sagt á fundi í Vest-
mannaeyjum að siglingar Herjólfs
yrðu ekki boðnar út. „Þetta er því
stefnubreyting frá ákvörðun síðustu
ríkisstjómar, samt skiptir það og miklu
starfsmönnum opið hvort sem þeir
þurfa að nota tölvur við vinnu sína eða
ekki.“
Gyða segir það mjög ánægjulega
þróun að geta komið á staði úti um
landið þar sem Eimskip hefur starf-
semi til þess að efla þjálfun starfs-
fólksins og menntun. „Við emm að
vinna í sama fyrirtæki og mér finnst
gaman að hitta fólkið á þessum
stöðum. Vinnuumhverfi þessermjög
ólíkt því sem gerist fyrir sunnan, því
það er í raun að vinna störf sem skipt
er á margar deildir í Reykjavík, en þar
er umfangið eðlilega svo miklu
meira.“
Gyða segir að um sé að ræða nýtt
viðhorf gagnvart starfsfólkinu úti um
landið. „Við höfum ásett okkur að
þjóna landsbyggðinni eins vel og við
getum og reynum eftir bestu getu að
máli eins og kom fram í svari sam-
gönguráðherra að þjónustan myndi
ekki minnka og það er auðvitað
grundvallaratriði. En meginniður-
staðan er sú að Herjólfur má bjóða í
fiutningana.“
Isólfur Gylfi segist samt spyrja sig
þeirrar spumingar hvort Herjólfur hf.
sé ekki nógu vel rekinn í dag. „í raun
og veru eru margar spumingar enn þá
um málið. Ég vék líka að þessu í
umræðu á miðvikudaginn í þinginu
um vegaáætlun. í raun svaraði sam-
gönguráðherra jressari spumingu ekki,
en hugsanlega gerir hann það síðar.“
koma til móts við þarfir hennar.
Auðvitað áttum við okkur á því að það
er ekkert einfalt mál fyrir skrifstofu
þar sem em fáir starfsmenn að
hlaupast íyrirvaralaust til Reykjavíkur
á námskeið. Þess vegna er mjög gott
að geta haldið námskeið á viðkomandi
stöðum. Stundum komumst við hins
vegar ekki hjá því að kalla fólk í
bæinn hvort heldur utan af landi eða
erlendis frá.“
Gyða vildi að lokum lýsa yfir
ánægju sinni með samstarf Áthafna-
versins og Eimskip. „Aðstaðan er
mjög góð og tölvukosturinn líka. Ég
hef fengið mjög góða þjónustu héma
og Hans hefur verið mjög hjálpsamur
og gott að koma hingað. Viðbrögð
starfsfólksins hafa líka verið mjög góð
og það er ekki síður mikilvægt.“
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eimskip nýtir þjónustu Athafnaversins
AÐSTAÐA til tölvukcnnslu í Athafnaverinu. Gyða Richter leiðbeinir starfsmönnum Eimskips á
námskeiðinu.