Fréttir - Eyjafréttir - 11.05.2000, Side 17
Fimmtudagur 11. maí 2000
Fréttir
17
ÆftÆ Magnús
Eiríksson
á Fjörunni laugardagskvöldið
strax á eftir Eurovision um kl. 22
EIKA FYRIR DANSI A EFTIR
HEIÐARVEGI ■ SIMI 481-1101 ■ GSM 698-1101
Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar 15. maí
Eitt af markmiðum með alþjóðlegum degi fjölskyldunnar er að undirstrika mikilvægi hennar og hlutverk. Fjölskyldan
er homsteinn samfélagsins og sterk og ástrík fjölskyldutengsl stuðla að öryggi og betri líðan fjölskyldumeðlima.
Mikilvægt er að fjölskyldumeðlimir rækti samband sitt hver við annan og styrki stoðir íjölskyldunnar með því að eiga
ánægjulegar samverustundir eftir annríki dagsins. í tilefni af alþjóðlegum degi Qölskyldunnar mánudaginn 15. maí nk.
hefur Vestmannaeyjabær ákveðið að veita fjölskyldum í Eyjum ókeypis aðgang að Náttúmgripasafni, Safnahúsi og
Sundhöll Vestmannaeyja þennan dag. Fjölskyldur em hvattar til að nýta sér þjónustu þessara stofnana sem eina leið
til þess að efla tengslin.
Hera Osk Einarsdóttir félagsmálastjóri.
Isólfur Gylfi Pálmason alþingismaður skrifar:
Frábær árangur ÍBV-
stelpnanna í handboltanum
Það hefur verið
einkar ánægjulegt
að fylgjast með
stórkostlegúm á-
rangri IBV í
handknattleik á
þessari leiktíð.
Karlaliðið stóð sig
með ágætum þó
ekki næði það að
springa fullkomlega út. Það gerði hins
vegar kvennalið IB V. Þær komu, sáu
og sigmðu í orðsins íyllstu merkingu,
og náðu þeim einstaka árangri að
verða Islandsmeistarar í handknattleik.
Þá hafa knattspymumenn IBV um
langt árabii verið í sérflokki á lands-
vísu. Það er því ekki úr vegi að stinga
niður penna til þess að óska leik-
mönnum, sem og forráðamönnum
íþróttastarfsins í Vestmannaeyjum,
hjartanlega tii hamingju með þennan
glæsilega árangur.
En hverju skilar árangur sem þessi
stað eins og Vestmannaeyjum? Ljóst
er að svona góður árangur vekur verð-
skuldaða athygli um allt land og eflir
samstöðu fólks. Aldrei hefur, mér
vitandi, verið rannsökuð sú mikla
hollusta sem áhorfendur fá út úr því að
öskra sig hása á íþróttaviðburðum, en
hún er vafalaust mjög mikil og hefur
án efa góð áhrif á fjölskyidulíf. Þetta
eflir einnig stolt heimamanna og getur
haft veruleg áhrif á allt æskulýðsstarf
á stöðum sem þessum, því árangurinn
er smitandi og gott æskulýðs- og
íþróttastarf hefur vemlegt uppeidislegt
Það var ánægjulegt að horfa
á fyrirliða
handknattleiksliðs kvenna,
Ingibjörgu Jónsdóttur, í
sjónvarpsþætti á dögunum,
þar sem hún sagði frá því
að áhugi ungra stúlkna á
handknattleik hafi marg-
faldast í Vestmannaeyjum í
framhaldi af góðu gengi
liðsins.
gildi og getur bjargað ungu fólki frá
óreglu og þeirri hræðilegu vá sem
fíkniefnaneysla er. Fíkniefnaneysla er
talin mesta vá sem heijar á mannkynið
á nýrri öld.
Það var ánægjulegt að horfa á fyrir-
liða handknattleiksliðs kvenna, Ingi-
björgu Jónsdóttur, í sjónvarpsþætti á
dögunum, þar sem hún sagði frá því
að áhugi ungra stúlkna á handknattleik
hafi margfaldast í Vestmannaeyjum í
framhaldi af góðu gengi liðsins. Um
langt skeið hefur verið gert upp á milli
íþróttaiðkunar kvenna og karla á
Islandi, þar sem karlaíþóttum hafa
verið gerð betri skil og meiri
peningum hefur varið til karla en
kvenna í íþróttastarfi. Það er í raun
afar ósanngjamt. Fjölmiðlar virðast
hafa breytt nokkuð um stefnu í
þessum efnum að undanförnu enda
ekki síður gaman að fylgjast með
íþróttaiðkun kvenna en karla.
Um leið og ég óska Islands-
meistumm kvenna í ÍBV hjartanlega
til hamingju með frábæran árangur ber
að þakka íþróttafólkinu og þeim
fjölmörgu sem fóma tíma og
peningum í fómfúst og gefandi starf
fyrir íþróttahreyfinguna. Árangur
ykkar vekur margfalt meiri og
jákvæðari athygli á Vestmannaeyjum
en fólk gerir sér grein fyrir. Haldið
áfram á sömu braut.
Knattspymu- og golfvertíðin er
framundan og þá er vissara að að
hysja upp sokkana og pússa kylfumar.
Höfundur er alþingismaður
EKKI er það næturlífið sem er viðfangsefnið þessa dálks í
dag, heldur er litið við á listasýningu og barnaballi sem eru
sönnun þess að það er Iíf fyrir miðnætti.
SÝNINGASTJÓRI Listavors Islandsbanka ásamt listamiinnunuin
sem nú sýna í Galleríi Ahaldahúsinu, f.v. Birgir Andrésson, Ólafur
Lárusson, Benedikt Gestsson og Ásgeir Lárusson
JÓI á Hólnum, Ólafur og Sigrún eiginkona Ólafs Lárussonar.
SELMA og Andrea sem fyrir skömmu skemmtu á Höfðanum
freistuðu krakkanna svo um munaði. Hefur lengri biðröð fyrir framan
skemmtistað ekki sést síðan Höllin var og hét.
ANDREA og söngkona sem við ekki þekkjum Ilytja atriði úr
Ávaxtakörfunni.
s^f!
1 11 1 1
Hjiýö,| Æ'~ 1 1 frb 1 II™ *
FLUGFELAG ISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is