Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Side 14
14
Fréitir
Fimmtudagur 12. júlí 2001
Midnight Sun Fashion Show á Skansinum:
Frábær sýning í dulmögnuðu umhverfi
Sýningin Midnight Sun Fashion
Sliow fór frum á Skansinum á
laugardagskvöldið eins og áætlað
var. Það blés ekki byrlega fyrir
sýningunni því mcstallan
laugardaginn rigndi cins og hcllt
væri úr fötu. Allan tímann var
ákvcðið að halda því til streitu að
nota Skansinn fyrir sýninguna en
varaáætlun hljóðaði upp á sýningu
í Höllinni. Til þess kom ekki því
þegar kom i'ram á laugardags-
kvöldið stytti upp og hélst hann að
mestu leyti þurr á meðan á sýn-
ingunni stóð.
Búið var að setja upp tjöld og
annan búnað yst á Skanssvæðinu
og átti að nýta fremsta hluta
hafnargarðsins fyrir sýninguna.
Þegar til átti að taka reyndust
tjiildin of lítil og var sýningin færð
innar á garðinn og sýningarfólk og
hönnuðir fengu inni í húsi
Bæjarveitna við sjálfan Skansinn.
Þar var bæði þröngt og vantaði allt
til alls og sýningafólkið varð að
ganga niður bratta brekku áður en
komið var niður á bafnargarðinn.
Það fór illa með skótauið og erfitt
var að ganga niður bratta
hellulagða brekkuna. Allt varð
þetta til að seinka sýningunni sem
hófst loks rétt fyrir klukkan eitt
um nóttina. Eftir það rann hún
áfram áreynslulaust en var
mögnuð upp með Ijósum, háværri
og taktfastri tónlist. En það sem
nokkru leyti stal senunni var um-
hverílð sem í hálfrökkrinu skóp
sýningunni magnað yfirbragð og
hönnuðirnir ungu sem þarna voru
að lcggja sjálfa sig í dóm
heimspressunnar máttu vel við
una því myndir teknar við þessar
aðstæður hljóta að vekja
umtalsverða athygli.
Eins og álfar liðu fyrirsæturnar
eftir hafnargarðinum, klæddar
búningum sem henta illa í íslenskri
sumarnóttinni en þær létu það
ekki á sig fá og báru búningana
með mikilli reisn. Ungu
hönnuðirnir komu frá níu löndum,
Bandaríkjunum, Frakklandi,
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi,
Danmörku, Færeyjum, Japan og
Islandi. Er það samdóma álit
þeirra sem rætt var við að margt
af því sem þarna kom fram hafi
verið mjög athyglisvcrt.
* wv W Æ WL t:- ' m
Leið til að
koma sér á
framfæri
Thonias Lampinen er einn af ungu
hönnuðunum sem komu frá Finn-
landi.
Hann sagði að staðurinn hel'ði verið
frábær en aðstæður langt í frá að vera
nógu góðar. „Þegar til átti að taka var
tjaldið sent við áttum að vera í alltof
lítið og þá var eiginlega allt í upp-
lausn,“ segir Thomas.
Hann sagði að húsið sem þau fengu
inni í hali líka verið alltof lítið og þar
hafi vantað allt sem nauðsynlegt er
þegar sýna á föt. Á þar við t.d. strau-
borð og straubolta.
Þetta er í fyrsta skipti sem Thomas
sýnir fyrir utan Finnland og hann sér
þarna tækifæri til að koma sér á
framfæri. „Ég vona að hún eigi eftir
að skila árangri fyrir okkur sem
komum frá Finnlandi. Kosturinn við
svona sýningar er að sýna sig og sjá
aðra og vona svo bara það besta,“
sagði hann að lokum.
BRUGÐIÐ var á leik með
gestina og meðal annars var
farið upp í gíg á
föstudagskvöldið þar sem þeir
og starfsfólk sýningarinnar
þáðu léttar veitingar.
Hárgreiðslufólk og
snyrtifræðingar kom bæði frá
Eyjum og fastalandinu. Hér má
sjá Þórunni og Maju á
Hárhúsinu og Fanný á
Snyrtistofu Ágústu í félagsskap
tveggja stúlkna af fastalandinu.
Fyrir aftan þær eru Auður og
Dóra hárgreiðslukonur.
RAGNHEIÐUR Borgþórs. leggur lokahönd á förðun einnar sýningarstúlkunnar sem hingað kom alla
leið frá Mflanó.
Anna Rut Steinsson:
Góð sýning við erfiðar aðstæður
Anna Rut Steinsson, sem átti fatnað
á sýningunni í samstarfi við Helgu
Sólveigu Sigurjónsdóttur, var sátt
við sjálfa sýninguna en hún segir að
aðstæður hafi verið hrikalegar.
„Það var þröngt í húsinu þar sem
við fengum aðstöðu og þar voru
hvorki strauborð né strauboltar sem er
nauðsynlegt að hafa við höndina á
sýningum," segir Anna Rut.
„Hins vegar var frábært að koma til
Vestmannaeyja og móttökurnar þar
voru alveg frábærar. Kosturinn er að
við komumst í sambönd við fólk og
nú erunt við að vinna í að fylgja því
eftir. Svo er bara að vona að eitthvað
komi út úr þessu.“
Anna Rut segir að margt athyglis-
vert hafi komið fram á sýningunni og
greinilegt hefði verið að hönnuðirnir
lögðu sig fram. „Það var enginn með
leikaraskap þama og allir veru
greinilega að leggja sig alla fram.
Hugmyndin að vera með sýningu eins
og þessa á Skansinum er alveg
brilljant og umhverfið er mjög fallegt.
Hún var samt á mörkunum að vera
framkvæmanleg vegna bleytunnar og
það var mjög erfitt fyrir sýningar-
fólkið að fara upp og niður brekkuna."
ÞESSI föt voru meðal þess sem Anna Rut og Heiga Sólveig sýndu.
ÞÆR voru ekki allar efnis-
miklar flíkurnar sem stúlkurnar
sýndu á Skansinum.