Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2001, Síða 17
Fimmtudagur 15. júlí 2001
Fréttir
17
Sumarstúlka Vestmannaeyja 15 ára
Keppendur aldrei
verið fleiri en í ár
Eftir að hafa farið úr einu húsinu
annað er Sumarstúlkukeppnin, sem
nú er huldin í 15. sinn, komin í
framtíðarhúsnæði í Höllinni.
Púlmi Lorenzson og eiginkona
hans, Marý Siguijónsdóttir, veitinga-
menn á Gestgjafanum og skemmti-
staðnum Skansinum sem þá var einn
sá skemmtilegasti á landinu, eiga hug-
myndina að Sumarstúlkukeppninni.
Það var sumarið 1986 að þau viðmðu
þessa hugmynd við Fréttir sem strax
slógu til. Það kom í hlut Frétta að sjá
um að kynna stúlkumar en um
skemmtunina sjálfa sáu Pálmi og
Marý og gerðu það af miklum
myndarskap.
Aðeins einu sinni hefur keppnin
fallið niður þessi 15 ár og var ástæðan
sú að ekki var til húsnæði sem hentaði
og því er þetta 15. keppnin frá
upphafi. Eftir að Pálmi og Marý hættu
rekstri hefur Sumarstúlkukeppnin
farið á milli húsa í Vestmannaeyjum. í
kringum 1990 var hún haldin á
Hallarlundi, eftir það tóku við
Kiwanishúsið og svo aftur farið á
upphaflega staðinn sem fengið hafð
nafnið Höfðinn og mátti svo sannar-
lega muna fífil sinn fegurri. Það er svo
loks í ár að Sumarstúlkukeppnin er
komin í húsnæði við hæfi.
Á þessum 15 ámm hafa um og yfir
100 stúlkur tekið þátt í Sumar-
stúlkukeppninni sem hefur verið að
þróast. Meira hefur verið lagt í að
undirbúa stúlkumar fyrir keppnina og
öll stjóm hennar hefur verið f höndum
framkvæmdastjóra. Framkvæmda-
stjóri nú er Dagmar Skúladóttir sem er
að stjóma keppninni í fjórða skiptið.
Aðrar sem komið hafa að keppninni
em Selma Ragnarsdóttir. Hafdís
Kristjánsdóttir, Bima Vigdís Sigurðar-
dóttir, Ragnheiður Borgþórsdóttir og
fleiri. Allar hafa þær unnið mjög gott
starf og átt þátt í að gera Sumar-
stúlkukeppnina eins myndarlega og
raun ber vitni.
Fréttir hafa frá upphafi verið fasti
punkturinn í Sumarstúlkukeppninni
og eftir að Pálmi og Marý hættu
sínum rekstri hefur blaðið haft
yfimmsjón með keppninni. Því hefur
oft fylgt mikil vinna en skemmtileg.
Sýnilegi hlutinn af framlagi Frétta til
keppninnar er kynningin á stúlkunum
LINDA Björk Ólafsdóttir var
Sumarstúlkan 1991.
fyrir keppnina. Ýmist hafa blaðamenn
Frétta tekið myndir af stúlkunum eða
við höfum fengið ljósmyndara í lið
með okkur. Meðal þeirra em Sigfús
Gunnar Guðmundsson í Foto og Halla
Einarsdóttir Ijósmyndari sem myndaði
stúlkumar í ár.
Margir fleiri hafa komið við sögu
og má í því sambandi nefna Bjama
Ólaf Guðmundsson sem verið hefur
kynnir hátíðarinnar í ein tíu ár. Þá má
ekki gleyma Rúnari Karlssyni sem
hefur lagt okkur lið með stjóm
tónlistar og Ijósa. Hefur það á
stundum verið mikið púsl því ekki
hefur alltaf verið til staðar ljósa- eða
hljóðbúnaður.
ÖIlu þessu fólki kunna Fréttir hinar
bestu þakkir fyrir þeirra framlag og
eru styrktaraðilar þar ekki undan-
förðunarfræðingar lagt sitt af mörkum
til að Sumarstúlkukeppnin kæmist á
þann stall sem hún er á í dag. Tilkoma
Hallararinnar býður upp á stór-
kostlegar aðstæður fyrir uppákomur
eins og Sumarstúlkan er. Það er því til
einhvers að hlakka á laugardags-
kvöldið því frábærar aðstæður bjóða
upp á ennþá betra og skemmtilegra
kvöld.
Frá upphafi hafa landsins frægustu
hljómsveitir verið á dansleiknum sem
er fastur liður á Sumarstúlku-
keppninni. Það er engin undantekning
núna og mun hljómsveitin Sóldögg sjá
um að halda uppi fjöri á dansleiknum.
STÚLKURNAR hafa gert sér ýmislegt til skemmtunar á undir-
búningstímabilinu. Fóru þær m.a. í útreiðartúr með Gunnari
Arnasyni hestabónda.
skildir. Einnig hafa hárgreiðslufólk og
EINS og svo oft áður hefur Sumarstúlkukeppnin notið góðs af
Hressó þar sem stelpurnar hafa fengið að æfa endurgjaldslaust. Hér
eru þær á einni æfingunni í Hressó og er Hildur Sólveig í
aðalhlutverki.
Snorri fiskútflytjandi, Einar Óla ljósmyndari á DV, Bryndís í
Samfylkingunni, Þyrí og Binna á Herjólfi voru að sjálfsögðu mætt í
Skvísusundið.
Skvísusundið
lokkar og laðar
Goslokanna var minns um hclgina og var mikið líf og fjör í
Skvísusundinu á laugardagskvöldinu. Ahygli vakti hversu margir
brottfluttir Vestmannaeyingar voru komnir til að skemmta sér með
Eyjabúum og urðu fagnaðarfundir með mörgum. í krónum var
ýmislegt til skemmtunar, Gísli Brynjólfsson spilaði á nikkuna við
góðar undirtektir, dans var stiginn undir tónum Eymannafélagsins
og Arni Johnsen náði að venju upp stemmningu þar sem hann
spilaði og söng. Flestir ef ekki allir skemmtu sér mjög vel enda veður
gott fram eftir nóttu.
HVERNIG skyldi vera að kyssa þessa ungu snót?
ÓLI var mcðal margra brottfluttra sem voru mættir á gos-
lokahátíðina í Skvísusundi.