Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Qupperneq 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Kynna disk á
Hraunbúðum
-Með lögum Ágústs Péturssonar sem bjó í nokkur ár í Eyjum
Nýverið kom út geisludiskur með
liigum eftir Agúst Pétursson,
dægurlagahiii'und og harmoniku-
leikara en hann hefði orðið 80 ára
|)ann 29. júní sl. hef'ði honum enst
aldur. Diskurinn heitir Hittumst
heil og er það fjölskylda Agústs
sem gefur diskinn út og í
Vestmannaeyjum fæst hann í KÁ
versluninni við Strandveg.
Dóttir Ágústs, Ágústa Sigrún,
var umsjónarmaður útgáfunnar en
flytjendur auk hennar eru
söngvararnir Bergþór Pálsson,
Harpa Harðardóttir, Kinar
Clausen, Agnes Kristjónsdóttir og
karlakvartettinn Út í vorið.
Hljóðfæraleikarar eru Vilhjálmur
Guðjónsson og Árni Seheving, sem
jafnframt sjá um útsetningar,
Alfreð Alfreösson, Gunnar
Gunnarsson, Keynir Jónasson,
Sigurður Flosason og Einar Valur
Scheving.
Ágústa segir að um sé að ræða
(ólf nýjar upptiikur á liigum
Ágústs en jafnframt eru á
diskinum þrjú hnrmonikulög eftir
hann, sem fengu undlitslyftingu
með nútímatækni. Liigin eru dans-
og dægurliig frá árunum 1945-70,
liig eins og Þórður sjóari,
Æskuminning, Harpan ómar að
ógleymdu laginu Gleym-mér-ei
sem varð til í Vestmannaeyjum.
Ágúst (Metúsalem) Pétursson
var fæddur 29. júní 1921 á
Hallgilsstöðum í Norður-
Þingeyjarsýslu en ólst upp skammt
þar frá, á hænum Hiifnum við
Finnafjörð, sonur hjónanna Péturs
Metúsalemssonar og Sigríðar
Friðriksdóttur sem var systir
Binna í Gröf. Þegar hann var rétt
um tvítugt, á árunum 1939 til 1940,
fór hann til Vestmannaeyja að
læra húsgagnasmíöi hjá Ola
Grán/, þá iðn sem hann vann við
upp frá því, lcngst af hjá Gamla
Kompaníinu í Reykjavík.
„Ágúst faðir minn, lék á ýmis
hljóðfæri,“ segir Ágústa. „Hann
lærði á orgel hjá fóður sínum sem
var organisti í sóknarkirkjunni á
Skeggjastöðum við Bakkaflóa og
lærðu öll systkinin
undirstöðuatriði í tónlist hjá
honum. Fyrstu harmonikuna
eignaðist hann ungur að árum en
hún var hnappanikka og sá hann
sjálfur um að ná tiikum á
hljóðfærinu. Kftir að liann kom til
Vestmannaeyja spilaði hann á
saxófón með lúörasvcitinni undir
stjórn Oddgeirs Kristjánssonar.
Ásamt því raddæfði hann og söng
fyrsta bassa í oktett sem kallaði sig
Smárakvartettinn og var
starfræktur á árunum 1944 til
1945 í Vestmannaeyjum. Hann
spilaði á dansleikjum í Alþýðu-
liúsinu og í Samkomuhúsinu í
Vestmannaeyjum lungann af þeim
tínia sem hann bjó þar á árahilinu
1940-45“
Ágústa segir að á þeim tíma hafi
orðið til lagið Gleym-mér-ei við
texta Kristjáns frá Djúpalæk.
„Bæjarstjórinn ákvað að hanna
llutning á laginu vegna þess að í
textanum var minnst á Drottin, en
það þótti alls ekki hæfa á þeim
tíma. Árni Tryggvason segir frá
þessu í hók sinni en hann hafði lært
lagiö eftir eyranu af manni sem
lærði það af manni sem var
staddur á umræddum danskleik
þar sem lagið var flutt. Árni kom
svo 35 árum scinna til Ágústs og
bað um að fá að flytja lagið á
skcmmtun í Austurbæjarbíói og
kunni lagiö enn kórrétt.“
Þær mæðgur, Ágústa Sigrún og
Guðrún Dagný Kristjánsdóttir,
ætla að gera sér ferð til
Vestmannaeyja í tilefni af útgáfu
disksins. Ágústa hyggst syngja
fyrir íbúa á Hraunbúöum,
mánudaginn 30. júlí kl. 14.30 og
kynna efni disksins. Segir Ágústa
að eldri borgarar í
Vestmannaeyjum séu sérstakelga
boðnir velkomnir sem og aðrir
áhugasamir.
Dóttir Ágústs, Ágústa Sigrún, var umsjónarmaður útgáfunnar
kynnir hún geisladiskinn á Hraunbúðum.
Ása Sif Gunnarsdóttir, 17
ára stúlka, fædd í Vestmannaeyjum
I Sænska
landsliðið á
Islandshestum
Asa Sif Gunnarsdóttir, dóttir
h jónanna Niinu Egilson og Gunnnrs
Kóra Magnússonar, gerði það
lieldur betur gott á sænska rneist-
aramótinu á Islandshestum sem
haldiö var í Uppsöluni dagana 12. -
15.júlí.
Ása vann á hesti sínum, Brag frá
Hofstöðum, 150 metra skeið og
gæðingaskeið. I fimmgangi lenti Ása í
þriðja sæti í a-úrslitum og uppskar því
tvö gull og eitt brons í þeim þremur
greinum er hún tók þátt í.
Ása er borin og barnfædd í Vest-
mannaeyjum 31. ágúst 1984. Móðir
hennar Nana Egilson vann lengst af á
Rauðagerði og faðir hennar Gunnar
Kári vann á Fréttum.
Árið 1986 lagði tjölskyldan leið
sína til Svíþjóðar og á unga aldri
byrjaði Ása í hestamennskunni, til að
byrja með á Shetlandseyjahestum,
sem eru dverghestar, síðan á stórum
hestum. En eftir nokkur ár var
dömunni fannn að leiðast bykkju-
skapurinn og passaði |iá faðirinn upp á
að mæla með Islandshestatilraun.
Ása kolféll fyrir þessari hestateg-
und, hefur æft stöðugt frá ellefu ára
aldri og tekið þátt í keppnum út um
alla Svíþjóð.
Margir leiðbeinendur hafa komið
við sögu á þessum tíma, en undanfarin
ár hefur hún aðallega þjálfað fyrir Olil
Amble og nú í ár fyrir hjónin Magnús
og Önnu Skúlason.
Með þessum árangri hefur Ása
tryggt sér stöðu í sænska unglinga-
landsliðinu en sá böggull fylgir
skammriti að hún verður að gerast
sænskur ríkisborgari, en sú regla var
tekin í gildi í mars sl.
Hestinn Brag fékk Ása hjá Olil
Amble í byrjun ársins 2000 og varð
strax ljóst að hesturinn hafði mikla
keppnishæftleika. Bragur frá Hof-
stöðum er undan Gormi frá Stóra-Ási
og Stroku frá Hofsstöðum.
ÁSA Sif á Brag sem hefur mikla keppnishæfileika. Bragur frá Hofstöðum er undan Gornti frá Stóra-Ási
og Stroku frá Hofstöðum.