Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2001, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 26. júlí 2001
Fréttir
19
Símadeild kvenna: IBV 1 - Valur 1 ____________
Baráttan um titil töpuð?
Blikar eru bara með allt of gott
lið til að tapa þessu niður, segir
Heimir Hallgrímsson þjálfari
Veðrið lék ekki við stelpurnar sl.
fostudagskvöld þegar Valsstúlkur
voru í heimsókn. Leikur þessi var
afar niikilvægur fyrir Eyjastúlkur
sem gátu blandað sér verulega í
toppbaráttuna með sigri.
ÍBV spilaði undan strekkingsvindi í
fyiTÍ halfleik og það tók þær 15
mínútur að brjóta ísinn, en þar var á
ferð Svetlana Balinkova eftir slærn
vamarmistök Valsstúlkna.
Eftir markið sóttu Eyjastelpur lát-
laust og höfðu mikla yfirburði, en
tókst ekki að auka forskotið fyrir
leikhlé. Seinni hálfleikur var mun
jafnari, þó Valsstúlkur hafi verið
meira með boltann, þá vom það Eyja-
stúlkur sem sköpuðu sér mun
hættulegri færi. En Valsstúlkur jöfn-
uðu á 87. mínútu með marki beint úr
aukaspymu.
íris Sæmundsdóttir og Elena
Einisdóttir áttu prýðisgóðan leik. eins
spilaði Pauline Hamill vel.
Eftir þessi úrslit er Ijóst að baráttan
um titilinn er nánast töpuð, 4 stig í
Blika á toppi deildarinnar og eins og
Heimir Hallgrímsson. þjálfari IBV,
orðaði það: „Blikar eru bara með allt
of gott lið til að tapa þessu niður.“
Síðustu tveir leikir hafa valdið
miklum vonbrigðum, jafnteíli við FH
og Val, lið sem eru í 6. og 7. sæti
deildarinnar , en þess ber þó að geta
að Ásthildur Helgadóttir hefur ekki
getað spilað vegna meiðsla í síðustu
leikjum og Nicky Grant var í leik-
banni í Valsleiknum og munar um
minna. ÍBV stelpurnar eiga eftir að
keppa við UBK og KR á útivelli og
geta því enn haft töluverð áhrif á
lokastöðuna í deildinni. Þó vonin sé
veik er möguleiki fyrir hendi, og
stelpumar hafa sýnt okkur það í sumar
að þær geta unnið hvaða lið sem er.
Liðið: “
Petra. Elfa, Pauline, Sigríður Ása,
Michelle, Berglind, Iris, Svetl-
ana(Elva), Bryndís, Lind, Elena
Mark ÍBV: Svetlana
HEIMIR Hallgrímsson þjálfari er ekki bjartsýnn á titla í sumar en
ekki er öll von úti.
Frjólsar: Vetmannaeyjamótið
Þrjú Vestmannaeyjamet lágu
Þann 17. og 18. júlí sl. var haldið
Vestmannaeyjamót í frjálsum
íþróttum. Alls mættu 40 krakkar til
leiks. Þrjú Vestmannaeyjamet féllu,
Árni Óli Ólafsson kastaði kringl-
unni 39,48 metra og setti nýtt Vest-
mannaeyjamet í sínum aldurs-
llokki, eins féll Vestmannaeyja-
metið í kringlukasti í flokki 11-12
ára, en Hallgrímur Hallgrímsson
kastaði 29,33 metra. Gauti Þor-
varðsson sló svo Vestmannaeyja-
metið í kúluvarpi í tlokki 11-12 ára
með kasti upp á 7,97 m.
Keppt var í 5 flokkum og greinamar
voru: Kringlukast, spjótkast, Iang-
stökk, 400 metra hlaup, 60 metra
hlaup. 100 metra hlaup, kúluvarp. 100
metra grindahlaup. 110 metra grinda-
hlaup, boltakast, 800 metra hlaup,
hástökk og 80 metra grindahaup.
I flokki krakka 8 ára og yngri voru
þau Kristín KormáksdóttirogTryggvi
Guðjónsson með bestan árangur en
þau fengu 2 gull og 1 silfur.
í llokki 9-10 ára voru þau Guð-
mundur Sigurmundsson og Berglind
Þorvaldsdóttir með frábæran árangur,
en þau sigruðu í öllum greinum
keppninnar og fóru heim með 6 gull-
verðlaun.
I flokki II og 12 ára krakka var
keppt í 5 greinum og bestum árangri
þar náðu María Rós Guðmundsdóttir
með 2 gull. I silfur og 2 brons og hjá
piltunum var það Gauti Þorvarðsson
með 3 gull og 2 silfur og eins og áður
sagði nýtt Vestmannaeyjamet í kúlu-
varpi.
Kári Ingvason varð hlutskarpastur í
llokki 13-14 ára en í þeim 5 greinum
sem þar var keppt í fékk hann 3 gull, 1
silfurog I brons.
í elsta hópnum sem skartaði
krökkum 15 ára og eldri var Tryggvi
Hjaltason með 3 gull, 2 silfur og i
brons, en Guðjón Ölafsson kom með
2 gull, 2 silfur og 2 brons. Árni Óli
Ólafsson fékk svo 2 gull, 1 silfur og I
brons. Hjá stúlkunum var það Hildur
Jónsdóttir sem nældi sér í 5 gull-
verðlaun.
HM í fitness
Sigurlína meðal keppenda
Spek-
ingurinn
Heldur hefur sigið á
ógæfuhliðina í spádómum Jóns
undanfarið en hann er sann-
færður um að ná 100% árangri
þessa vikuna.
FH-ÍBV Símadeild karla
2-1 fyrir FH og í Ijósi sögu okkar á
útivelli mun mark IBV vera
sjálfsmark hjá Heimi Guðjóns.
ÍBV-KR 2. II. kvcnna
2-0. Margrét Lára klárar KR líkt og
í fyrra.
ÍBV-UBK 2. H. kvenna
2-0. létt hjá stelpunum, Erna Dögg
og Berglind skora.
ÍBV-Fram Símadcild karla
4-0 Menn verða komnir í há-
tíðarskap og rúlla yftr Framara,
Tómas Ingi kemur sterkur inn eftir
meiðslin og skorar tvö og Palli
Almars og Atli Jóh skora sitt hvort
markið með þrumuskotum.
Sigurlínu Guðjónsdóttur hefur
verið boðin þátttaka í heims-
meistaramóti IFBB litness sem
haldið verður í Rio de Janeiro,
Brasilíu. Sigurlína var sem kunnugt
er þriðja á Islandsmeistaramótinu
sem haldið var á Akureyri sl. vor.
,.Ég stefni á að fara. en mótið
verður haldið 26. til 29. okt. nk.
Trúlega förum við þrjár frá íslandi
sem keppendur og ég byrjaði að
undirbúa mig fyrir viku, ég hef
Eyjamenn duttu út úr Coca Cola
hikarnum sl. sunnudag er þeir
töpuðu 1-0 fyrir FH í Hafnarfirði.
Leikur þessi þótti leiðinlegur á að
horfa, Hafnftrðingar skoruðu strax á
20. mínútu og eftir það lögðust þeir í
vörn. Eyjamenn sóttu talsvert eftir
markið en tókst ekki að skapa sér nein
verulega hættuleg færi, skyndisóknir
yfirleitt tekið sex vikur en nú ætla ég
að taka þrjá mánuði.“ Sigurlína segir
frábært að fá þetta tækifæri þvf þetta
sé rosalega stórt mót og margar konur
lift fyrir að taka þátt í svona móti og
taki sér örugglega lengri tíma en þrjá
mánuði til undirbúnings. „Ég ætla
fyrst og fremst að halá gaman af þessu
og sjá hvemig svona mót fer frarn.
Það verður byrjað á að dæma kepp-
endur eftir samanburði og þeir
funmtán efstu munu sýna rútínu."
FH reyndust hættulegar og varði
Birkir nokkrum sintium glæsilega.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði
reyndar mark þegar um 10 mínútur
vom eftir en það var dæmt af réttilega
vegna rangstöðu. En þrátt fyrir þunga
sókn á lokamínútunum með Hlyn
Stefánsson fýrirliða sem fremsta mann
tókst Eyjamönnum ekki að jafna og
Þegar Sígurlína er spurð hvort það sé
þess virði að leggja þetta á sig segir
hún svo vera. „Ég er alveg til í að
leggja þetta á mig og ég gef mér lengri
tíma í þetta núna en áður. Maður
verður þreyttur inn á milli en þetta er
þess virði. Ég er byrjuð á að breyta
mataræði og æfa.“ Sigurlína segir að
óneitanlega fylgi þessu nokkur kostn-
aður en vonast til að fargjöld fyrir
hana verði greidd en Smári ætlar að
sjálfsögðu að fylgja henni í keppnina.
því er bikardraumurinn úti þetta árið.
Um leið urðu Eyjamenn að sætta sig
við enn eitt tapið á útivelli.
Liðið:
Birkir, Páll, Hlynur, Kjartan, Hjalti
Joh.. Marc Goodfellow (Jón Helgi),
Lewis Neal, Tommy Schram.
Bjamólfur (Hjalti Jóns), Gunnar, Atli
Bikarinn: FH 1 ÍBV 0
ÚtivöUurinn Eyjamönnum erfiður
Árný setti
Islandsmet
Þann 21. júlí sl. var Islandsmót
öldunga haldið í Mosfellsbæ.
Eyjamenn áttu þar einn fulltrúa,
Árnýju Heiðarsdóttur sem keppti í
tveimur greinum í flokki 45-49 ára.
I þrístökki stökk hún 9,67 metra og
bætti Islandsmetið um tæpa 30 cm,
þrátt fyrir að hafa ekki keppt í
greininni í 4 ár. í langstökki féll
Islandsmetið einnig en þar stökk
Árný 4,82 metra. Norðurlandamót
öldunga fer fram í Svíþjóð um
rniðjan ágúst og er Árný að íhuga
þátttöku þar.
Sigur á FH
Annar flokkur kvenna sigraði FH
örugglega á laugardaginn, lokatölur
urðu 5-0 og skoraði Margrét Lára 4
mörk og Erna Dögg I. Á
mánudaginn kepptu þær svo við
Fjölni og sigruðu 3-0, Margrét,
Sara og Erna Dögg skoruðu
mörkin. Stelpumar hafa nú keppt 3
leiki og unnið þá alla ömgglega og
eru einnig komnar í undanúrslit í
bikamum.
Bjarnólfur áfram
Bjamólfur Lárusson miðjumað-
urinn snjalli hefur skrifað undir
samning út tímabilið hjá ÍBV. Eins
og fram hefur komið hafði Bjam-
ólfur klausu í samningi sínum sem
gaf honum færi á að fara ef eitthvert
gott tilboð kæmi í hann erlendis frá.
Svo varð þó ekki og ákvað
Bjarnólfur að framlengja samning
sinn við ÍBV a.m.k. út þetta tímabil.
Árni Óli í 4. sæti
Árni Oli Ólafsson í Óðni fór á
meistaramót Islands sem haldið var
7. júlí sl. Ami keppti í spjótkasti og
kastaði 52,89 m og bætti þar með
Vestmannaeyjametið, sem hann átti
sjálfur, um 2,33 m. Glæsilegur
árangur sem skilaði honum 4.
sætinu á mótinu. en þess má geta að
Jón Amar Magnússon tugþrautar-
kappi varð þriðji.
Úrslit með forgjöf
A Vestmannaeyjameistaramótinu í
golft var keppt í öldungaflokki bæði
með og án forgjafar. Úrslitin án
forgjafar eru birt á síðunni hér við
hliðina en í keppni með forgjöf urðu
úrslit þessi:
1. Jóhann P. Andersen 207 h
2. Guðni Grímsson 211 h
3. Ólafur M. Kristinsson 212 h
Framundan
Fimmtudagur 26. júlí
kl. 20.00 FH-ÍBV Símadeild karla
Föstudagur 27. júlí
kl. 20.00 KA-ÍBV 3.11. karla
kl. 17.00 ÍR-ÍBV 5. fl. karla
kl. 20.00 Árborg-KFS 3. deild kk
Laugardagur 28. júlí
kl. 14.00 ÍBV-KA 3. fl. kvenna
kl. 14.00 Njarðvík-ÍBV 5. fl. karla
Hnátumót 6 11. kvenna
Pollamót 6 fl. karla
Sunnudagur 29. júlí
kl. 14.00 IBV-KR 2.11. kvenna
Þriðjudagur 31. júlí
kl. 20.00 IBV-UBK 2. fl. kvenna
kl. 17.00 ÍBV-Vulur4.11. Kvenna
kl. 20.00 KFS-GG 3. deild kk
Miðvikudagur 1. ágúst
kl. 20.00 IBV-Fram Símadeild
karla
kl. 17.00 ÍBV-Leiknir5.11. karla