Vestfirðir - 10.10.2013, Blaðsíða 2
2 10. október 2013
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Myndlistarfélagið á Ísafirði
hefur áframhaldandi
sýningarhald í Slunkaríki
Myndlistarfélagið á Ísafirði býður nýja meðlimi vel-
komna í félagið. Félagið hefur verið
starfrækt frá árinu 1984 og hefur fé-
lagið eflt starfið til muna á þessu ári
með tilkomu Opinar vinnustofu og
áframhaldandi sýningarhaldi í Slunk-
aríki sem hefur fengið sinn stað á
ganginum í Edinborgarhúsinu. Þeir
sem hafa brennandi áhuga á myndlist
eða starfa á sviði lista erum hjartan-
lega velkomnir í félagið sem fundar
1-2 á ári. Áhugasamir sendi inn nafn
og tölvupóst á edinborg@edinborg.is
eða á facebook síðu Slunkaríkis www.
facebook. com/Slunkariki.
Fjölbreytt og áhugavert sýningarhald er ætíð í Slunkaríki sem og í öðrum
sölum í edinborgarhúsinu.
Árshátíð Dýrfirðingafélagsins
haldin um næstu helgi
Árshátíð Dýrfirðingafélagsins 2013 verður haldin 12. október í sal
eldri borgara í Stangarhyl 4 í Reykjavík.
Húsið opnar kl. 18: 00 og hefst borð-
hald kl. 19: 00 með girnilegu hlaðborði.
Hin vinsæla hljómsveit Hafrót leikur
fyrir dansi. Veislustjóri verður Ragnar
Gunnarsson og Bjarni Guðmundsson
frá Kirkjubóli flytur minni Dýrafjarðar.
Fleira verður til gamans gert, m. a. er
happdrættið á sínum stað með fjöl-
mörgum glæsilegum vinningum, vika
í Átthaga er einn af þeim. Dýrfirðingar
nær og fjær eru hvattir til að mæta og
eiga skemmtilegt kvöld saman því
maður er manns gaman!
Þingeyri er eflaust mörgum ofarlega í huga margra þeirra sem mæta á árs-
hátíð Dýrfirðingafélagsins.
Bjartsýni ríkjandi þegar saltverk
Norður & Co var opnað á Reykhólum
Fjölmenni mætti þegar salt-verksmiðjunnar Norður & Co var opnuð á Reykhólum fyrir
skömmu en þar var mættur forseti
Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson
og klippti á borða með eigendunum,
Garðari Stefánssyni og Sören Roskilde.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son ávarpaði samkomuna og sagði
um leið og hann klippti á borðann að
framleiðsla hágæðasalts væri hafin hjá
Norður og Co. Forsetinn gerði víðreist
um Reykhólasveitina, heimsótti m. a.
bæði barnaskólann og hjúkrunar- og
dvalarheimilið Barmahlíð.
Verksmiðjuhús Norður & Co við höfnina á reykhólum, skammt frá Þörungaverksmiðjunni.
,,Burtu með sorg og sút”
- karlakórar syngja á Tálknafirði og Ísafirði á komandi helgi
Söngferðalög er hluti af starfsemi Karlakórsins Þrasta, og bráð-nauðsynlegur hluti í félagslegu
tilliti. Þrestir hafa á undanförnum
árum farið víða, m.a. um Evrópu, til
Þýskalands og til Bandaríkjanna þar
sem sungið var í Carnegie Hall í New
York. Innanlandsferðir eru einnig
farnar öðru hverju og tekið er þátt í
söngmótum, m.a. í Kötlumótum, en
það er söngmót Sambands sunnlenskra
karlakóra sem haldið er á nokkurra ára
fresti. Landsmót eru haldin á nokkurra
ára fresti og vorið 2012 stóð Karlakór-
inn Ernir fyrir Heklumóti á Ísafirði, en
það er söngmót karlakóra fyrir vestan,
norðan og austan. Á það mót mættu
margir karlakórar.
Nú halda Þrestir til Vestfjarða og
syngja þar í kirkjunni á Tálknafirði
föstudaginn 10. október kl. 20.00 og á
laugardeginum kl. 16.00 í Ísafjarðar-
kirkju. Með Þröstum á Tálknafirði
syngja í nokkrum lögum og einnig
einir sér félagar í Karlakórnum Vestra,
vestasta karlakór í Evrópu! Á Ísafirði er
það svo Karlakórinn Ernir sem tekur
þátt í sönggleðinni með sama hætti.
Hér er einstakt tækifæri til að heyra
í elsta starfandi karlakór landsins, en
Karlakórinn Þrestir varð 100 ára 19.
febrúar 2012 auk þess að heyra í heima-
mönnum.
karlakórinn ernir.
karlakórinn Vestri.
karlakórinn Þrestir.