Vestfirðir - 10.10.2013, Síða 4
4 10. október 2013
VestFIRÐIR
10. tBL. 2. ÁRGANGUR 2013
Útefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Ábyrgðarmaður: Ámundi
Ámundason, auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang
amundi@fotspor.is. auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.
is. ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, sími: 898-5933 & netfang: geirgudsteinsson@
simnet.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 3.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur.
FRÍBLAÐINU VESTFIRÐIR ER DREIFT Í 3.000 EINTÖKUM
Á ÖLL HEIMILI OG FYRIRTÆKI Á VESTFJÖRÐUM
Að elska fjölskyldu sína þykir flestum sjálfsagt mál, en að elska óvin sinn og bera fyrir honum virðingu er hreinn kærleikur. Kærleikurinn er einfaldur, sýndu hann því það er svo auðvelt og kostar ekkert. Einelti
er allt of algengt hér á landi, og oft líðst það þrátt fyrir fögur orð um að tekið
sé með festu á slíkri vanvirðu. Stúlka sem var fædd með skarð í vör hefur þurft
að þola slíkt einelti alla tíð. Það lýsir hins vegar afar bágum karakter þeirra
sem slíkt stunda, jafnvel heimsku. Þessi harðneskja í samskiptum fólks birtist
með ýmsum hætti og er allt of algeng er í nútíma þjóðfélagi. En kannski hafa
þeir unglingar sem telja einelti ekkert athugavert það eftir háttarlagi þeirra
fullorðnu. Þeir verða kannski varir við harðneskjulegar innheimtuaðgerðir
banka, tryggingafélaga og fleiri stofnana á eigin heimilum og finnst því ekkert
athugavert að endurspegla það. Sumar innheimtuaðgerðir eru ekkert annað
en gróft einelti. Virðing þjóðarinnar fyrir Alþingi er í molum, og þar er við
engan annan að sakast en sjálfa þingmennina. Þingmenn þjóðarinnar ættu
að sýna hver öðrum meiri kærleika, þá gengju þingstörfin kannski betur á
Alþingi og meiri virðing yrði borin fyrir stjórnmálamönnum almennt. Flest
kosningaloforð stjórnarflokkanna sem gefin voru á vordögum hafa ekki enn
séð dagsins ljós, en vonandi stendur það til bóta, a.m.k. hefur forsætisráðherra
boðað stórfellda hjálp til handa þeim heimilum sem verst standa fjárhagslega
með sérstakri bjartsýnisræðu þegar umræður voru um stefnuræðu ríkisstjórn-
arinnar. Almenningur vill trúa því að svo verði, annars fer allt í bál og brand
og þá verður svokölluð búsáhaldabylting aðeins hjóm eitt í samanburði við
þær aðgerðir sem reiður almenningur gæti gripið til. Hveitibrauðsdögum
ríkisstjórnarinnar lauk 1. september sl., nú bíður þjóðin raunhæfra aðgerða,
vonandi var til einhvers beðið allt sumarið.
Á árinu 2013 eru liðin fimm ár frá því að bankakerfið á Íslandi hrundi,
veigamiklir hlutar atvinnulífsins urðu fyrir stórum áföllum og efnahagsleg
holskefla reið yfir, ekki einungis hérlendis heldur einnig víða í nágranna-
löndum okkar. Staða sveitarfélaga var mjög misjöfn á þessum tímamótum.
Hluti þeirra hafði riðið á faldi efnahagsbólunnar meðan önnur höfðu ekki orðið
hennar vör heldur starfað í kyrrstöðu á margan hátt. Engu að síður brugðist
sveitarfélögin við breyttum aðstæðum og samstaða ríkti meðal þeirra um að
bregðast við með aðhaldi í rekstri, markvissari vinnubrögðum og vandaðri
fjármálastjórn. Rekstrarniðurstaða nokkurra sveitarfélaga á Vestfjörðum er
neikvæð eftir óreglulega liði, en hvergi virðist þó ástandið vera það alvarlegt
að aðvörunarbjöllur hringi. Rekstur smærri sveitarfélaga er þó sýni þyngri,
og hlutfallslega mun stærri hluti tekna þeirra sveitarfélaga fer til mennta- og
menningarmála og þá er svigrúmið minna til að veita aðra þjónustu, s.s. til
eldri borgara. Með vaxandi ferðamannastraumi til landsins vænkast vonandi
hagur sveitarfélaganna, en það felst mikil áskorun í því að að taka á móti
auknum fjölda ferðamanna á Íslandi. Náttúra landsins er helsta aðdráttarafl
erlendra ferðamanna, en yfir 80% þeirra nefna hana sem ástæðu Íslandsfarar.
Á sama tíma er náttúra landsins sérlega viðkvæm fyrir átroðningi og umferð.
Þessi grundvallaratriði undirstrika mikilvægi þess að setja náttúruvernd í
öndvegi á Íslandi, ekki eingöngu náttúrunnar sjálfra vegna, heldur einnig
vegna ferðaþjónustunnar í landinu.
Sýnum þessum málum skilning í samhengi, látum ekki gróðarsjónarmið ráða
ferðinni þegar kemur að móttöku erlendra ferðamanna. Þar skiptir búseta
nákvæmlega engu máli.
Geir A. Guðsteinsson ritstjóri
Er raunverulega von
á hjálp við heimili í
fjárhagsvanda?
Leiðari Markaðsmál sjávarútvegs í
ljósi rannsókna og þróunar
Þann 6.september sl. var haldin sjávarútvegsráðstefna á Ísafirði. Áherslur ráðstefnunnar voru
rannsóknir og þróun í sjávarútvegi
ásamt gæða og markaðsmálum sjávarút-
vegs. Sérstök áhersla lögð á vestfirskan
sjávarútveg og samkeppnishæfni hans.
Ráðstefnuna setti Sigurður Ingi Jó-
hannsson, auðlinda-, sjávarútvegs- og
umhverfisráðherra sem var sótt af
rúmlega 90 manns. Í erindi sínu talaði
ráherra um tækifæri í sjávarútvegi
Vestfjarða sem væru einna helst fólgin
í þekkingu svæðisins á sjómennsku og
nálægð við auðlind því væri mörg tæki-
færi fyrir svæðið. Þrátt fyrir þá sérstöðu
að smábátaútgerð á Vestfjörðum væri
mikilvægari en annarsstaðar á landinu
gæti sóknarfæri Vestfjarða einmitt verið
í útgerð þeirra. Smábátaútgerð væri að
mörgu leiti hliðholl umhverfi sínu. Sér-
staða svæðisins til framtíðar væri því
hágæða fiskur með umhverfisvænum
veiðum undir ábyrgri stjórnun sem
mætti m.a. upprunamerkja. Sækjast
ætti eftir meiri gæðum og hærra verði.
Slíkar áherslur gætu skapað sérstöðu og
gert ímynd Vestfjarða skýrari á mörk-
uðum. Ráherra velti þeirri spurningu
fram hvort nýta mætti veiðigjöldin með
öðrum hætti t.d. á Vestfjörðum að hluti
veiðigjalda færi til byggðarlaga? Þá
ekki endilega eingöngu til sjávarútvegs
í byggðunum heldur til uppbyggingu
samfélags þeirra. Sem gæti stuðlað að
bættri þjónustu og mannlífi á Vest-
fjörðum. Í lok ráðstefnunnar skrifuðu
Atvinnuþróunarfélag Vestfjara og Matís
undir samstarfssamning sem snýr að því
að efla samkeppnishæfni sjávarútvegs
með því að skoða tæknilega stöðu sjáv-
arútvegs og virðiskeðjuna nánar með
áherslu á þau tækifæri sem hægt væri
að hagnýta.
Guðný Káradóttir hjá Íslandsstofu
fjallaði um vörumerki og markaðs-
setningu íslenskra sjávarafurða. Um-
fjöllunarefni fyrirlestursins var m.a. af
hverju skipta vörumerki máli?; hvað
erum við að meina með orðinu brand/
vörumerki?; hvað er mörkun/branding?;
hvernig er hægt að byggja upp sterkt
vörumerki?; er það ávinningur fyrir ís-
lensk sjávarútvegsfyrirtæki eða greinina
í heild að byggja upp sterkt vörumerki?
og getur sjávarútvegurinn haft hag af
því að nýta sér vörumerkið Ísland í sínu
markaðsstarfi?
Aukin samkeppni
,,Samkeppni í sölu á sjávarafurðum er
að aukast,” sagði Guðný Káradóttir. ,,Þá
má spyrja hvað íslenskir framleiðendur
geti gert til að mæta aukinni samkeppni
á erlendum mörkuðum. Sjávarafurðir
eru seldar um allan heim og auðkenndar
með ýmsum hætti – eða ekki auðkennd-
ar. Í mikilli samkeppni er eðlilegt að
spyrja hvort hvað íslenskir framleið-
endur geti gert til að mæta aukinni eft-
irspurn á markaði. Skiptir uppbygging
á vörumerki þá einhverju máli? Vöru-
merki þjóna ekki aðeins þeim tilgangi að
auðkenna vörur og þjónustu heldur gefa
þau einnig viðskiptavinum til kynna
hvaða væntingar þeir geta gert til vöru
eða þjónustu – jafnvel til lands. Fyrir-
tæki með sterkt vörumerki geta sett upp
hærra verð fyrir sína vöru og geta búist
við meiri eftirspurn.”
Fleiri skilgreiningar
Vörumerki má túlka út frá hinu sýnilega
og áþreifanlega vörumerki sem birtist
m.a. í þeim vörumerkja-auðkennum
sem valin en líka út frá óáþreifanlegum
og huglægum þáttum sem viðskiptavin-
ir tengja við vörumerkin, jafnvel tónlist
og lykt.
Talað er um brand elements, en
það eru þeir þættir sem valdir eru til
að einkenna vöruna og aðgreina hana
frá annarri vöru. Þetta eru ekki bara
sýnileg einkenni, þetta geta verið atriði
eins og tónlist og jafnvel lykt. Þannig
má segja að vörumerkið verði til hjá
neytandanum - upplifun neytandans
sem mótar það og ákvarðar hversu sterkt
eða jákvætt það er.
Framleiðni og arðsemi
,,Í nýlegri samantekt sem gerð var um
samkeppnishæfni Íslands og íslenskra
atvinnugreina kemur frá að sjávarút-
vegurinn ber af hér á landi hvað varðar
framleiðni og aðrsemi starfseminnar.
En því er einnig slegið föstu að aukin
verðmætasköpun muni ekki nást með
aukinni veiði vegna náttúrulegra tak-
markana. Verðmætaaukningin gæti
hinsvegar aukist með því að bættu
markaðsstarfi og því verðmæti sem
býr í vörumerkinu Ísland eða íslensk-
um uppruna afurðanna. Þetta rímar við
þær kannanir sem sýna þá þróun að fólk
vill vita hvaðan hráefnið kemur,” sagði
Guðný Káradóttir.
Sjávarútvegsráðstefnan fór fram á
Ísafirði.
Nýtt tölvu- og tækniþjónustu-
fyrirtæki á Tálknafirði
Tölvur og Net er nýtt tölvu- og tækniþjónustufyrirtæki sem er
til húsa á Strandgötu 38 á Tálknafirði.
Þar var formlega tölvuverkstæði þann
þann 1. október sl. Tölvur og Net er
skrásett vörumerki undir fyrirtæk-
inu Hergerður ehf. Tölvur og not,
eða ToN.is eins og það er stundum
kallað, er með endursölu samninga
við Advania, Tölvulistann, Icetronica
og Orbit frá Noregi til að geta þjón-
ustað öll fyrirtæki og einstaklinga
á sunnanverðum Vestfjörðum og
jafnvel víðar.
Fiskeldi í köldum strandsjó Íslands
-vel heppnuð ráðstefna á Patreksfirði
Ráðstefna um fiskeldi í köldum strandsjó fór fram á Patreksfirði dagana 3. og 4. október sl. Margir
þekktir fyrirlesarar sóttu ráðstefnuna,
m. a. Per Gunnar Kvenseth sem hefur
víðtæka reynslu af rannsóknum og ráð-
gjafastörfum innan Norsks fiskeldis.
Per Gunnar er yfirmaður heilbrigð-
ismála hjá fyrirtækinu Villa Organic,
sem framleiðir vottaðan lax, bæði í
Suður Noregi og í Austur Finnmörku.
Þá ávarpaði einnig ráðstefnuna Cyr
Couturier sem starfar sem sérfræðingur
við sjávarútvegsstofnun við háskólann
í St. Johns, Memorial Univercity. Cyr
Couturier hefur jafnframt unnið náið
með samtökum fiskeldismanna í Ný-
fundnalandi sem og innan fiskeldis og
skelræktar þar sem hann hefur m. a.
verið formaður þeirra samtaka. Fyrir-
lestur var um „burðarþol fjarða til fisk-
eldis – Ancylus fjarðalíkanið“ sem Geir
Helge Johnsen, Rådgivene Biologer As
frá Noregi flutti, og vakti mikla eftirtekt
þeirra sem ráðstefnuna sóttu.
Fjöldi Íslendinga fluttu einnig fyr-
irlestra á ráðstefnunni og má nefna,
Héðinn Valdimarsson og Hafstein
Guðfinnsson frá Hafrannsóknastofnun,
Helga Jensson frá Umhverfisstofnun,
Gunnar Eydal frá Teiknistofunni Eik,
Jón Örn Pálsson og Jónatan Þórðarson
frá Fjarðalax og Shiran Þórisson fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða.
Alls komu 170 gestir frá fiskeldisfyr-
irtækjum, stjórnsýslu, rannsóknastofn-
unum og frá ýmsum þjónustugreinum
og 120 gestir mættu til hátíðar-
kvöldverðar á fimmtudagskvöldið. Sam-
hliða ráðstefnunni var haldin vörusýn-
ing frá fyrirtækjum frá Íslandi, Noregi
og Færeyjum í fremri sal félagsheimil-
isins. Með tilkomu Fosshótels Vestfirðir
á Patreksfirði er mögulegt að halda slíka
viðburði í bænum. Félagsheimili Pat-
reksfjarða hentar einstaklega vel til ráð-
stefnuhalds og fremri salurinn rúmar
vel sérhæfða vörusýningu. Vegna þess
hversu góðar viðtökur ráðstefnan fékk
hefur Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
og Fiskeldisklasi Vestfjarða í hyggju að
endurtaka slíkan viðburð með reglu-
legum hætti á komandi árum.
Fjölmargir sóttu ráðstefnuna sem er líklega sú fjölmennasta sem haldin
hefur verið um fiskeldi enda er fiskeldi vaxandi atvinnugrein og verulega
gjaldeyrisskapandi.