Vestfirðir - 10.10.2013, Page 6
6 10. október 2013
Vaxandi ferðamannastraumur til landsins:
Eykur þörfina fyrir rannsóknir
í íslenskri ferðaþjónustu
Ferðamálastofa boðaði til morgunverðarfundar á Grand Hótel 1. október sl. Þar voru
kynntar niðurstöður greiningar á
þörfinni fyrir rannsóknir í íslenskri
ferðaþjónustu. Mikil umræða hefur
verið síðustu misserin um mikilvægi
rannsókna fyrir þróun og uppbyggingu
ferðaþjónustu og eftirspurn er mikil
eftir margs konar gögnum sem tengjast
ferðaþjónustu á einn eða annan hátt.
Þó svo margt gott hafi áunnist á síð-
ustu árum er ljóst að verulega vantar
upp á fjármuni til gagnasöfnunar og
rannsókna á sviði ferðaþjónustu. Það
hefur margoft komið fram í opinberri
umræðu að greinin situr ekki við sama
borð og aðrar helstu atvinnugreinar
þjóðarinnar þegar kemur að opinberu
framlagi til rannsókna og að úr því
verði að bæta. Miklar áskoranir bíða
þessarar ört vaxandi atvinnugreinar og
góður grunnur til að mæta þeim þarf
að byggja á faglegum rannsóknum og
greiningarvinnu. Niðurstöður úr þeirri
greiningu sem unnar hafa verið eru
mikilvægt innlegg í þá vinnu.
Ýmiss ferðaþjónusta á Vestfjörðum hefur verið að aukast, gistirýmum fjölgar,
og þar sem ókunnir eiga kannski síst von er alveg ómetanleg þjónusta fyrir
ferðamenn, eins og að Hvítanesi í Skötufirði. Hver þiggur ekki kaffi og
pönnukökur á þessari leið?
Líflegt starf hjá
Félagi Álftfirðinga og
Seyðfirðinga vestra
Pubquiz og bjórkvöld var haldið hjá Félagi Álftfirðinga og Seyð-firðinga vestra 4. október sl. á
Classic Rock í Ármúla og voru félags-
menn hvattir til að fjölmenna og eiga
eina góða samverustund fyrir aðalfund
félagsins sem fram fer sunnudaginn 3.
nóvember nk.
Alla þessa viðburði má sjá á heima-
síðu félagsins, sudavik.123.is, og
verður tilkynntur með pósti til þeirra
sem ekki hafa aðgang að netinu, þegar
nær dregur. Allir þeir sem ekki hafa
skráð netfangið sitt eru hvattir til að
senda það á kofrinn@gmail. com, það
auðveldar samskiptin.
Félagsheimili Súðvíkinga var til margra ára í þessu húsi, og þar hafa eflaust
margir brottfluttir Álftfirðingar og Seyðfirðingar skemmt sér vel, og jafnvel
sakna þess tíma.
Neyðarkall heilbrigðis-
þjónustunnar
Uppsögn Björns Zoega fram-kvæmdastjóra Landspítalans undirstrikar þá alvarlegu
stöðu sem heilbrigðisþjónusta lands-
manna er komin í. Allar starfsstéttir
heilbrigðisþjónustunnar hafa sent út
neyðarkall. Þær staðfesta að ekki er
lengur hægt að veita það félagslega ör-
yggi og þau gæði heilbrigðisþjónustu
sem landsmenn vilja hafa og talin var
sátt um. Sérfræðideildir eru undir-
mannaðar, nauðsynlegustu tæki mörg
biluð og úrelt. Heilu landshlutarnir eru
án fullnægjandi heilbrigðisþjónustu
langtímum saman. Fólk þarf að ferð-
ast hundruð kílómetra til að sækja
nauðsynlega læknisþjónustu. Landspít-
alinn, flaggskip sérhæfðar heilbrigðis-
þjónustu er í sárum. Þessi staða hefur
hinsvegar átt sér aðdraganda og á ekki
að koma neinum á óvart. Hún kemur
í raun lítið sem ekkert „hruninu“ við,
heldur er það notað sem skálkaskjól
og afsökun fyrir aðgerðum og að-
gerðarleysi undanfarinna ára. Einmitt
í ,,hruninu“ áti að forgangsraða í þágu
heilbrigðisþjónustunnar.
Reyndar má segja að fram-
kvæmdastjóri Landspítalans hafi ekki
átt annars úrkosta en að segja af sér
eftir launahækkunina sem gerð var
að tjaldabaki fyrr á árinu. Enda fylgdi
þeim gjörningi eðlileg hrina átaka um
kaup, kjör og starfsaðstæður alls heil-
brigðisfólks í kjölfarið.
Ég hef áður lýst því hversu mér
blöskraði hræsnin í ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur, sem ég sat í
um tíma, allt velferðartalið og „verja
heilbrigðisþjónustuna“ þegar svo hún
var miskunnarlausast skorin niður og
kostnaði velt yfir á notendur.
Stjórnir og tengsl og aðkoma heima-
manna við opinbera heilbrigðisþjón-
ustu var skorin af í ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks; það
að blanda heimamönnum eða samfé-
laginu, notendum í sína eigin grunn-
þjónustu, truflaði einkavæðinguna og
torveldaði niðurskurðinn. Að skera af
heilbrigðisstjórnir í heimahéruðum var
sérstakt kappsmál framsóknarmanna í
heilbrigðislögunum 2003.
Það voru mikil mistök þegar hug-
tökunum í lagaumgjörð um heilbrigð-
ismál var breytt úr þjónustu í rekstur.
Það sem við þurfum fyrst og fremst
er grundvallar hugarfarsbreytingu að
baki heilbrigðisþjónustunnar, miklu
frekar en að umræðan snúist aðeins
um þúsundir rúmmetra af steinsteypu.
Jón Bjarnason
Jón bjarnason, fyrrverandi þingmaður
Norðurlandskjördæmis vestra.