Vestfirðir - 10.10.2013, Qupperneq 14
» DIESELSTILLINGAR
» VARAHLUTAÞJÓNUSTA
» SÖLU- OG MARKAÐSDEILD
» TÚRBÍNUVIÐGERÐIR OG SALA
Við flytjum að
Dvergshöfða 27
Við höfum
þjónað íslenskum
sjávarútvegi í áratugi
Vesturhraun 1 - 210 Garðabæ
Sími 535 5850 - framtak.is
Bás G40
14 10. október 2013
Meðalhitinn í Bolungarvík
var 6,1 stig í september
Hiti í septembermánuði var nærri meðallagi áranna 1961 til 1990, en um víð-
ast hvar rúmlega 1 stigi undir með-
allagi síðustu tíu ára. Úrkomusamt
var á landinu og þurrkar víða daufir.
Mikið norðanillviðri með nokkrum
sköðum gerði um miðjan mánuðinn
og setti niður talsverðan snjó á heiðar
og í fjöll.
Meðalhiti í Reykjavík var 7,1 stig,0,2
stigum neðan meðallags áranna 1961
til 1990, en 1,6 stigum undir meðal-
lagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti
september síðan 2005, en hiti var mjög
svipaður í september í fyrra. Í Bol-
ungarvík var meðalhitinn 6,1 stig sem
er 0,1 stig undir meðallagi. Hæstur var
meðalhiti mánaðarins á Garðskaga-
vita,8,1 stig og 7,9 í Surtsey.
Úrkoman mældist 89,7 mm í
Reykjavík. Það er um 35% um-
fram meðallag áranna 1961 til 1990
og þannig var það víða á vestan-
verðu landinu. Úrkoma í Reykjavík
mánuðina júní til ágúst mældist 36%
meiri en í meðalári. Hún var nánast
jafnmikil í þessum mánuðum árið
2008. Úrkoman mældist 1 mm eða
meiri 61 dag. Það er 16 dögum fleiri
en í meðalsumri. Fjöldinn náði síðast
60 sumarið 2003 (62 dagar).
bolungarvík.
BÍ/Bolungarvík endaði í
5. sæti 1. deildar karla
BÍ/Bolungarvík hafnaði í 5. sæti 1. deildar karla í knattspyrnu en fyrir síðustu umferð var liðið með
37 stig eftir 3:2 sigur á Leikni Reykja-
vík og átti möguleika með sigri í síðasta
leiknum að komast upp í úrvalsdeild
karla, en þá varð liðið að treysta á úrslit
í öðrum leikjum, þ.e. að liðin fyrir ofan
það að stigum töpuðu sínum leikjum.
Þetta var Fjölnir, Víkingur Reykjavík,
Haukar og Grindavík. Það gekk ekki
eftir, en BÍ/Bolungarvík vann Tindastól
í síðasta leik sumarsins 2:0 með mörkum
Loic Cédric Mbang Ondo og Theodore
Eugene Furness og hlaut 40 stig. Fjölnir
og Víkingur fara upp í úrvalsdeildina en
upp úr 2. deild í 1. deild koma HK í Kópa-
vogi og Knattspyrnufélag Vesturbæjar,
KV, en úr deildinni féllu KF í Fjallabyggð
og Völsungur á Húsavík.
Í lok leiksins gegn Tindastóli sem
fram fór á Sauðárkróki sýndi dómari
leiksins þjálfara BÍ/Bolungarvík, Jör-
undi Áka Sveinssyni, rauða spjaldið eftir
að Jörundur hafði fyrr í leiknum fengið
að sjá það gula. Þetta var líka hlutskipti
Hafsteins Rúnars Helgasonar sem sá
rautt spjald í lok leiksins. Það er heldur
dapurt að þjálfari þurfi að líta rauða
spjaldið, ekki síst í lok leiks þar sem lið
hans hefur unnið sigur.
Fyrsta deild kvenna
Lið BÍ/Bolungarvíkur í 1. deild kvenna
A-riðli, endaði í 8. sætinu með 9 stig,
en bæði efstu liðin í A-riðli, Fjölnir og
ÍA, unnu sér sæti í úrvalsdeild kvenna.
Úr úrvalsdeild féllu í 1. deild kvenna
HK/Víkingur og Þróttur.
Frá leik bÍ/bolungarvík í sumar gegn Haukum í Hafnarfirði. Skotið fór hárfínt
framhjá.
Dominosdeild karla í körfubolta:
KFÍ spáð
erfiðum vetri
KFÍ lendir í 11. eða næst neðsta sæti úrvalsdeildar karla í körfubolta, Dominosdeildinni,
ef mark má taka á spá þar um sem birt
var í byrjun vikunnar. KR er spáð Ís-
landsmeistaratitlinum og Keflavík 2.
sæti en Valur hlýtur samkvæmt spánni
12. eða neðsta sætið. KFÍ byrjar mótið
á morgun, föstudag 11. október, með
leik á Ísafirði gegn Njarðvík sem kemur
með ungt og sprækt lið til leiks. Njarð-
víkingum er spáð 3. sætinu í deildinni á
leiktímabilinu 2013 – 2014. Ísfirðingar
fara svo til Keflavíkur í næsta leik og
leika við heima menn föstudaginn 18.
október.
Fulltrúi kFÍ í Laugardalnum , Jón
Hrafn baldvinsson, þegar kynnt var
spá þjálfara, fyrirliða og formanna
félaganna.
Fyrirliðar liðanna sem keppa í Dominosdeild karla á komandi leiktíð.