Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.2002, Page 6

Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.2002, Page 6
6 Fréttir Fimmtudagur 24. janúar 2002 Allra veðra von á tónlistarhátíð ungra hljómsveita í Höllinni á laugardaginn Made in China ætlar að sjá og sigra -Óvíst með Brutal því einn úr sveitinni er kominn á sjó Þegar félögunum í hljómsveitinni Made in China datt í hug að halda litla tónleika í sal Listaskólans gátu þeir ekki ímyndað sér hversu mikið þessi hógværa hugmynd átti eftir að vinda upp á sig. Þeirra hugsun var að halda tónleika til að fjármagna kaup á græjum sem þá vantar í hljómsveitina. Fljótlega fengu þeir hljómsveitarmeðlimi Bmtal til að vera með sér í þessu og svo átti enn önnur unglingahljómsveitin úr Eyjum, Pink Out að spila fyrir þá í hléum. Nú nokkrum vikum síðar hafa þeir sett á laggimar stórtónleika ellefu unglingahljómsveita víðs vegar að af landinu og verða þeir á laugardaginn í Höllinni. Tónleikahaldið hefur fengið nafnið Músík festival, allra veðra von og er meginmarkmiðið að koma ungum óþekktum tónlistarmönnum á framfæri. Sigurvegarar músíktilrauna í fyrra verða meðal þeirra sem koma fram, en það er hljómsveitin Andlát. Heró- glímur sem lenti í þriðja sæti í sömu keppni verða einnig ásamt hljómsveit- unum Fake disorder, Hinir Endalausu, Org, Anobish, Caslor, Raper, Dauður Hross og Valíum frá Vestmanna- eyjum, en það er nýtt nafn á hljóm- sveitinni Pink Out. Að sjálfsögðu verða svo Made in China á svæðinu og mjög líklega Brutal, þó ekki sé það frágengið þar sem gítarleikarinn er á sjó. Hljómsveitimar koma víða að, t.d. frá Akureyri, Selfossi, Suðurnesj- unum, Seyðisfirði, Hellu og af höfuðborgarsvæðinu og má búast við stuði í Höllinni frá klukkan 17.00 á laugardag. Meðlimir Made in China eiga hug- myndina að þessum tónleikum en þeir hafa fengið góða hjálp við undir- búninginn. „Við viljum sérstaklega þakka Brynjari Frímannssyni rótar- anum okkar og Óðni Hilmissyni sem hefur hjálpað okkur mikið, eins hafa Grímur og Simmi í Höllinni verið einstaklega liðlegir við okkur,“ sögðu þeir félagar sem stefna ótrauðir á sigur í Músíktilraununum í febrúar. „Við værum ekki að fara nema við teljum okkur geta sigrað." Hljóm- sveitin Made in China stefnir á að fara í hljóðver í páskafríinu og líklega verður um að ræða annað hvort hljóðverið September eða Sýrland. Þeir munu spila þann 22. febrúar á Músíktilraunum en nóg verður að gera hjá þeim þá helgi. „Við spilum á föstudagskvöldi í Reykjavík og eigum að vera á laugardeginum að spila í Vatnaskógi, þannig að ef við komumst í úrslit þá verður laugar- dagurinn svolítið strembinn hjá okkur, enda eigum við þá að spila á tveimur stöðum.“ Þeir segja þessa tónleika opna fleiri möguleika íyrir þá. „Þetta gefur okkur tækifæri til þess að kynnast öðrum hljómsveitum og sjá hvað þeir eru að gera.“ Tvö lög verða frumflutt á tónleik- unum af hljómsveitinni og segja þeir félagar að fleiri lög séu á leiðinni frá þeim. Óli Palli, dagskrárgerðarmaður á Rás 2, verður kynnir á tónleikunum en hann er með þáttinn Rokkland sem margir kannast við og eins er ekki ólíklegt að leynigestur verði á svæð- inu, gömul poppstjama. 12 ára aldurstakmark er á tónleikanna sem hefjast klukkan 17.00 og er aðgangs- eyrir 800 krónur. Irkið helsti auglýsingamiðill okkar Fljótlega eftir Þjóðhátíð var hljóm- sveitin Brutal stofnuð, en hún telur sex meðlimi og spila þeir rokktónlist. Andri Eyvindsson er aðallagahöf- undur sveitarinnar og spilar jafnframt á hljómborð. „Við höfum haldið um þrjátíu æfingar en vegna aðstöðuleysis höfum við ekki getað æft eins mikið og við hefðum viljað," sagði Andri og bætti við að Óðinn Hilmisson hafi skotið yfir þá skjólshúsi og leyft þeim að æfa heima hjá sér. En það sé alveg ljóst að ef hljómsveitin á að þrífast þurfa þeir aðstöðu til frambúðar. „Við höfum komið fram fjórum sinnum opinberlega og stefnum ótrauðir á Músíktilraunir í febrúar." Þrátt fyrir ungan aldur hljómsveit- arinnar eiga þeir fjögur frumsamin lög, eitt þeirra, lagið Shouting out loud er þriðja vinsælasta lagið á vefsíðunni rokk.is, en þar getur þú náð í lög frá ýmsum hljómsveitum sem eru að koma sér á framfæri.“ Andri segir að stefnt sé að því að koma með disk á árinu. Aðspurður hvort draumurinn sé ekki að verða frægur segir Andri að auðvitað væri gaman að komast langt og það gæti allt eins komið fyrir þá eins og aðra. „Við höfum fengið frábærar viðtökur á laginu og það hvetur okkur til að taka upp fleiri lög. Við erum tilbúnir með tvö önnur lög sem heita It never changes og Killer instinct og fleiri í vinnslu.“ Andri segist sérstaklega vilja þakka ANDRI: Irkið er helsti auglýsingastaðurinn okkar og lagið Shouting out loud hefur dreifst ótrúlega hratt vegna umsagnar á irkinu og ber að þakka það, Óðni og Högna bróður hans fyrir alla hjálpina. „Eins má nefna Eggert í Tónlistarskólanum og alla sem hafa staðið við bakið á okkur, reddað okkur aðstöðu og aðra hjálp.“ Andri segir að intemetið sé sá stað- ur sem nýtist þeim best í að koma sinni tónlist á framfæri. „Irkið er helsti auglýsingastaðurinn okkar og lagið Shouting out loud hefur dreifst ótrú- lega hratt vegna umsagnar á irkinu og ber að þakka það,“ sagði Andri Eyvindsson að lokum. Óvíst er hvort hljómsveitin Brutal kemur fram á tónleikunum á laugardag þar sem annar gítarleikari hljómsveitarinnar er á sjó og tveir meðlimir hljómsveitarinnar eiga allt eins von á því að vera kallaðir á ung- lingalandsliðsæfingu í knattspymu, en þetta verður ekki ljóst fyrr en nær dregur helgi. En þeim sem áhuga hafa á að hlusta á kappana er bent á að fara á vefsíðuna rokk.is og hlusta á fyrsta lag þeirra, Shouting out loud. Sigursveinn. MEÐLIMIR Made in China fóru til Óskars ljósmyndara í myndatöku og er einn liðurinn í því að koma sér á framfæri. Óðinn Hilmisson hjálparhella: Nú er komin fram kynslóð sem nennir Mikil vakning hefur verið undan- farið hjá ungum tónlistarmönnum og spretta unglingahljómsveitir upp hver á eftir annari. Þetta byrjaði þegar unglingahljóm- sveitin Made in China fékk tækifæri að spila á síðustu þjóðhátíð og síðan þá hafa sjö unglingahljómsveitir verið stofnaðar. Það sem helst tefur fyrir framfömm hjá þessum krökkum er aðstöðuleysi, en æfmgahúsnæði er af skornum skammti sem og almennur hljómsveitarbúnaður. Óðinn Hilmisson hefur verið við- loðandi hljómsveitarbransann frá því að hann var unglingur og starfaði sjálfur í þessum bransa, m.a. í ung- lingahljómsveitinni Titanic þannig að hann þekkir vel til þeirra vandkvæða sem geta fylgt. „Það jaðrar við bítlaæði hvemig vakningin hefur verið hér síðustu mánuði en ég er voðalega hræddur um að aðstöðuleysi eyðileggi töluvert þessa þróun. Eins vantar þá græjur til að byrja. Vil ég hvetja alla sem luma á græjum að redda strákunum, til að koma þeim af stað.“ Óðinn er á því að tvær af þeim hljómsveitum sem komið hafa fram séu metnaðarfyllstu hljómsveitir sem komið hafa fram í Vestmannaeyjum. „Bæði strákamir í Made in China og Bmtal em að semja sjálfir, þetta em strákar frá 14 til 17 ára og lögin þeirra em mjög góð. Sérstaklega er hægt að nefna Andra Eyvindsson hljómborðsleikara Brutal. Er ég á því að þar sé stórtónskáld að koma upp. Ég hef unnið töluvert með móður hans, Báru Grímsdóttur, og sé að í syninum er sama náðargáfan þegar kemur að tónlist,“ sagði Óðinn og bætti við að hljómsveitirnar tvær séu þær efnilegustu sem komið hafa fram síðan Logar sáust fyrst. Óðinn hefur ákveðnar skoðanir á því hvað betur má fara varðandi aðstöðu fyrir þessa stráka. „Núna er Bmtal með aðstöðu heima hjá mér, reyndar eins og Tónsmíðafélagið og má kannski segja að heimili mitt sé undirlagt að vissu leyti undir þetta. Það er alveg ljóst að það gengur ekki til lengdar og bæjaryfirvöld verða að koma inn í þetta,“ sagði Óðinn. Benti hann á að ef skoðaðir em aðrir staðir á landinu þá eru félags- heimilin yfirleitt með aðstöðu fyrir hljómsveitir til að æfa sig og því ekki hér? „Þetta verður að ganga fljótt fyrir sig, þessir strákar eru ekki síður dýrmætir en t.d. íþróttamenn og það hefur sýnt sig að þeir unglingar sem nenna em annað hvort í íþróttum eða tónlist. Þetta em ótrúlega duglegir strákar og ég vill meina að upp sé komin ný kynslóð sem nennir að hafa fyrir hlutunum, en það vantar að styðja við bakið á þeim.“ Óðinn nefnir sem dæmi um hvað þurfi að gerast, að vera með hljóm- sveitarlöggu. „Þetta væri aðili sem kann á flest hljóðfæri og getur hjálpað þeim í gegnum smávandamál sem eiga það oft til að stoppa þessa krakka, og koma þeim vel af stað á hverju hljóðfæri fyrir sig.“ Óðinn segir alveg sama hvort um er að ræða íþróttastarf, kórstarf eða hljómsveitarstarf, þetta sé allt á svipuðum nótum. „Óft er um að ræða að einn eyðileggur fyrir heildinni og prímadonnur halda þessum hlédrægu niðri, það er alveg sama hvort um er að ræða unglinga eða fullorðið fólk, alla vega er fullorðna fólkið ekkert betra og besta dæmið um þetta er George Harrison sem var örugglega besti söngvari Bítlanna en fékk ekkert að vera í frontinum fyrr en allt var sprungið í loft upp,“ sagði Óðinn Hilmisson að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.