Fréttir - Eyjafréttir - 19.09.2002, Qupperneq 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 19. september 2002
Mikill munur á milli veðurathugunarstöðva:
Vestmannaeyjabær ekki
hálfdrættingur á við Stórhöfða
FRIÐRIK við veðurathugunarstöðina við kyndistöðina. Tilgangur
hennar er tvöfaldur, að afla upplvsinga um veðurfar í Eyjum og
þjóna bæjarbúum.
Þegar þetta er skrifaö eru aust-
suöuustan 16 metrar á Stórhöfða og
tíu stiga hiti. A sama tíma sýndi
veðurstöðin Vestmannaeyjabær níu
metra úr sömu átt og 11 stiga hita
og á þriðju veðurathugunarstöð-
inni, sem er á Nýjahrauni, voru
liðlega tíu metrar og hitinn losaði
tíu gráður.
Þessi mismunur er staðfesting á
þeirri vissu Eyjamanna að Stórhöfði er
mesti rokrass í heimi og þeirri vitn-
eskju sinni deildu þeir með öðrum
landsmönnum. Staðfestinguna fengu
allir oft á dag í veðurfréttum Veður-
stofunnar í Utvarpinu þar sem
Stórhöfði bar yfirleitt höfuð og herðar
yftr aðrar veðurstöðvar með sín tólf
vindstig og gott betur þegar best lét.
Vestmannaeyingar hafa verið svo-
h'tið viðkvæmir fyrir þessu, benda á að
Stórhöfði er fjall, nær 130 metra hátt
og því ósanngjamt að veðurleg ímynd
Vestmannaeyja skuli byggjast á tölum
þaðan.
Það hafði lengi verið draumurinn að
fá veðurstöð í bænum og nú er hann
orðinn að veruleika og gott betur því
tvær nýjar stöðvar voru settar upp í
sumar, önnur við kyndistöðina við
malarvöllinn og hin á Nýjahrauni.
Mörgum bæjarbúum fannst stað-
setningin við kyndistöðina úl í hött því
í miklum austanveðmm kemur sterkur
vindstrengur á milli Eldfells og
Helgafells og skellur á þessu svæði.
Þessar áhyggjur virðast hafa verið
ástæðulausar því yfirleitt er vind-
mælirinn við kyndistöðina, sem hjá
Veðurstofunni heitir Vestmannaeyja-
bær, hálfdrættingur miðað við
Stórhöfða.
Oskar Sigurðsson, sem ráðið hefur
ríkjum í Stórhöfða í áratugi og fylgst
þar með veðri og vindum, segist hafa
fylgst með nýju veðurstöðinni eins og
hver annar. Hans skoðun er að yfirleitt
muni helming á vindhraða. „I suðvest-
anveðrinu sunnudaginn 1. september
sá ég aldrei meira en sex vindstig niðri
í bæ en þá fór vindhraðinn hjá mér
upp í 37 metra eða liðlega tólf
vindstig," sagði Oskar.
„Þetta er ótrúlega mikill munur en
það vantar lengri reynslu til að geta
borið þetta saman af einhverju viti.“
Þegar Oskar var spurður um veðrið
í sumar var hann nokkuð sáttur. „Það
var gott í heildina en undanfarið hefur
verið nokkuð blautt og svo hefur verið
síðan í ágúst. I gær og fram á nótt var
úrkoman 50 mm og gerist hún sjaldan
meiri," sagði Oskar en rætt var við
hann á þriðjudaginn í síðustu viku.
Hitaveita Suðumesja borgaði öll
tæki við stöðvamar á Nýjahrauni og
Kyndistöðina með sérstökum verk-
takasamningi við Veðurstofuna, að
sögn Friðriks Friðrikssonar veitustjóra
HS í Vestmannaeyjum. Hann segir að
vindur á hrauninu sé heldur meiri en
við Kyndistöðina, einkum í austanátt
en annars sé um helmingsmunur á
vindi í bænum og á Stórhöfða. „Til-
gangurinn er að afla upplýsinga um
veðurfar í Vestmannaeyjum, vind og
annað slíkt en við emm alltaf að hugsa
um vindmyllur til orkuframleiðslu og
að þjóna bæjarbúum,“ sagði Friðrik.
Á mánudaginn vann Sigurjón Jóhannsson að því að koma upp bættu
hljóðkerfi í Bíóinu.
Bætt hljóðkerfi í Bíóinu
Sigurgeir Seheving, rekstraraðili Bíósins, fékk til sín mann í síðustu
viku til að laga hljóðkerfi hússins. Um var að ræða Sigurjón
Jóhannsson sem rekur eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í uppsetningu
og viðhaldi hljóðkerfa í bíóhúsum landsins. Sigurjón sagði um að
ræða stillingu á leiserlesara á hljóðið sem gerir það að verkum að
tónsviðið verður víðara. Er þetta að sjálfsögðu allt tölvustýrt og sagði
hann að styrkurinn færi úr átta kílóriðum upp í sextán.
„Einnig er verið að setja upp djúpbassa hátalara og þá verður
kerfið komið eins nálægt digital hljóðkerfi og hægt er að komast,“
sagði Sigurjón og bætti við að það þurli mjög æft eyra til að heyra
muninn.
Fyrsta sýningin í Bíóinu er fyrirhuguð á sunnudaginn en þá verður
myndin Pétur Pan sýnd.
Neiverslunin fleece.is íVm:
Hafa fengið pantanirfró Singa-
poreog Serbíu
Sprett úr spori hefur settaf stað
netverslunina fleece.is. í boði er
llísfatnaður sem Björg
Valgeirsdóttir hannar og saumar
ásamt Erlu Einarsdóttur móður
sinni. Netverslunin var opnuð
formlega 20. júní en Guðbjörg
Ingólfsdóttir, verslunarstjóri í
Föndru í Reykjavík, hannaði og
setti upp síðuna.
Á netinu er hægt að kaupa
peysur, kjóla og barnafatnað úr
flísefni og til stendur að bæta við
fleiri vörutegundum s.s. húfum,
vettlingum og ungbarnavörum.
„Eg elska flís og flísvörur en mér
fannst vörur úr þessu efni vera of
sportlegar og vanta dömulegri
fatnað. Þetta hefur auðvitað verið
að þróast undanfarin ár. Eg hef
verið að sauma flísfatnað og útbúa
snið sem fólk hefur fengið hjá mér,
þessi vara hefur verið vinsæl og
því ástæða til að bjóða hana á
netinu.“
Af hverju á netinu?
„Markaðurinn er lítill og við erum
ekki með gegnumstreymi í bænum
eins og til dæmis á Selfossi. Eg
bjóst við að markhópurinn yrði á
íslandi en netið er auðvitað á
heimsvísu. Við höfum þegar
fengið tvær pantanir frá
Singapore og eina frá Serbíu.
Verslunin fór rólega af stað en við
fáum fleiri og fleiri pantanir.
Björg segir netverslunina vera
viðbót við annað sem þær Erla eru
að gera. „Við erum með verslun
hér og ætlum að halda því áfram.
Þá erum við með trévörur sem
Erla sér alfarið umog seljum
mikið upp á land. Ég hef haft
mikið að gera við að merkja
íþróttagalla og handklæði í sumar
og er þegar farin að fá pantanir
fyrir jólin. Þá er ég að búa til snið
og þykist vera hætt að sauma fyrir
fólk en þó koma alltaf upp ákveðin
verkefni.“
Þær mæðgur Erla og Björg hafa
staðið fyrir mörgum námskeiðum
og nú er að hefjast námskeið í gerð
íkonamynda, kortagerð og fleiru.
„Bútasaumsklúbburinn er alltaf í
gangi og trúlega verður námskeið
eftir áramótin. Við höfum alltaf
nóg að gera, tíminn er fljótur að
líða, og við látum okkur ekki
lciðast, “ sagði Björg að endingu
og kvaðst vera bjartsýn á
framtíðina í Eyjum.
SÝNISHORN af flísfatnaði
sem hægt er að kaupa á
Netversluninni fleece.is. Björg
hannar fötin og saumar ásamt
Erlu móður sinni.