Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 12. desember 2002
Farið fram á 20 milljónir
til Þróunarfélagsins
-Stjórn félagsins gerir ráð fyrir að stærsti hlutinn verði endurgreiddur
með sölu Ondvegisréita
Fréttatilkynning:
Endalok
Hrekkja-
lómanna?
Endalok Hrekkjalómafélagsins fara
fram föstudaginn 13. desemberkl.
20.00. Lagl verður af slað frá
Illugagötu móts við 15a og haldið
að Smáragötu 26. Menn eru beðnir
að hafa með sér salt í pokum og strá
úr þeim á leiðinni. Fyrir framan
Smáragötu 26 verður kveikt á
friðarkertum og lagður blóm-
sveigur. Síðan verður stofnað nýtt
félag sem mun hljóta nafnið: „Hver
höndin upp á móti annarri."
Að lokinni þessari athöfn verður
farið niður í Félagsheimili. Þar mun
Sigurgeir Jónasson sýna myndir frá
skötukvöldi Hrekkjalóma frá því í
fyrra. Geta fyrrverandi félagsmenn
pantað sér myndir til að setja á
jólakort og senda hver öðrum um
ókomna framtíð.
Vefumarar
Fyrsti stúturinn frá
þjóðhátíð
í vikunni voru samtals 217 dag-
bókarfærslur hjá lögreglu. Þar af
voru tuttugu kærðir fyrir að hafa
ekki fært bifreiðir sínar til skoðunar
á réttum tíma. Einn var kærður
vegna rangrar ljósanotkunar. Sex
ökumenn voru sektaðir fyrir að hafa
ekki öryggisbelti spennt. Einn
ökumaður var kærður þar sem hann
var að tala í farsíma án handfrjáls
búnaðar.
Sérstakt eftirlit var um helgina
með ölvunarakstri og aðfaranótt
sunnudags var kannað með ástand
ökumanna á þriðja tug bifreiða og
er einn þeirra vera grunaður um
ölvun við akstur. Er þetta fyrsti öku-
maðurinn frá þjóðhátíð sem er
gmnaður um ölvun við akstur. Lög-
reglan hvetur vegfarendur að l'ara
varlega f komandi jólaumferð. Sér-
staklega þar sem von er á fleiri
gangandi vegfarendum.
ÞurfH að leysa
hundinn út
í vikunni var hundaeigandi látinn
greiiða gjald til að leysa út hundinn
sinn þar sem hann var laus í
bænum. Eins og hundaeigendum er
kunnugt er lausaganga hunda bönn-
uð og mun lögreglan láta þá hunda-
eigendur sem hún handsamar greiða
gjald fyrir að leysa þá út.
Bruni og rúðu-
brot í Lifró
Á þriðjudaginn var tilkynnt um
bmna og rúðubrot í húsnæði Lifrar-
samlagsins. Ekki var um mikið tjón
að ræða en þeir sem urðu varir við
gmnsamlegar mannaferðir við hús-
næðið em beðnir að láta lögregluna
vita.
Á fundi bæjarráðs á mánudaginn lá
fyrir bréf frá Inga Sigurðssyni
bæjarstjóra fyrir hönd stjórnar
Þróunarfélagsins þar sem farið er
fram á fjárhagslega fyrirgreiðslu
vegna Þróunarfélagsins.
Félagið fékk heimild bæjarráðs árið
2001 til þess að fara í skuldbindingar
m.a. vegna kaupa á tækjum og búnaði
fiskréttaverksmiðju og síðar upp-
setningu á henni í Stakkshúsinu við
Friðarhöfn. Ingi segir í bréfinu að nú
sé framkvæmdum við uppsetningu
verksmiðjunnar að Ijúka en ljóst að
þær eru dýrari en áætlað var. Er það
aðallega vegna aukinna krafna til
fyrirtækja í matvælavinnslu, ekki síst
þegar um útflutningsvöru er að ræða.
„Fjárhagur Þróunarfélagsins hefur
verið erfiður, en stefnt er að sölu á
verksmiðjunni og nú þegar er búið að
stofna hlutafélag um reksturinn er
nefnist Westmar ehf. Jafnframt hefur
Þróunaifélagið með vitund bæjaryfir-
Byggingaverktakafyrirtækið Steini
og Olli ehf hel'ur sótt um lóð fyrir
parhús við Bessahraun. Erindið var
samþykkt í skipulags- og bygginga-
nefnd bæjarins.
Að sögn Magnúsar Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Steina og Olla,
sóttu þeir um lóð fyrir eitt parhús.
„Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga fyrir nýjum íbúðum á þessum
valda fjölgað störfum í ferðaþjónustu í
Vestmannaeyjum og má reikna með
að það kosti félagið fjórar til fimm
milljónir króna á ársgrundvelli með
launatenglum og leigu á húsnæði.
Ekki hefur enn verið farið fram á
aðkomu bæjarsjóðs að þessu viðbótar-
verkefni."
Stjórn Þróunarfélagsins óskaði eftir
aðkomu bæjarsjóðs með þeim hætti að
Vestmannaeyjabær yfirtaki hlutabréf
Þróunarfélagsins í Eignarhaldsfélagi
Veslmannaeyja að nafnvirði þijár
milljónir króna og í íslandslaxi ehf. að
nafnvirði 525 þúsund krónur sem
munu koma til lækkunar á við-
skiptareikningi Þróunarfélagsins hjá
bæjarsjóði. Ennfremur er óskað eftir
að Vestmannaeyjabær geri ráð fyrir í
endurskoðaðri fjárhagsáætlun fimm
milljónum sem viðbótarframlagi árs-
ins sem eingöngu má rekja til ferða-
mála. Er það rökstutt meðal annars
með meiri umsvifum hjá ferða-
stað, en við reiknum með að byrja á
vormánuðum, mars til apríl.“ sagði
Magnús.
Mikið er að gera hjá fyrirtækinu og
hafa starl’smenn verið um 20 að
staðaldri þetta árið. „Við teljum að
verkefnastaðan geti orðið mjög góð á
komandi ári ef veturinn verður okkur
hagstæður. Stærstu verkefnin núna eru
bygging D-álmu við Hamarsskóla og
málafulltrúa sem fer úr hálfu starfi í
fullt starf og ráðningu starfsmanns í
um fjóra mánuði yfir sumartímann,
leigu á húsnæði ásamt kostnaði við
innréttingar á húsnæði við Bása-
skersbryggju.
Að lokum er óskað eftir því að
Vestmannaeyjabær ábyrgist til við-
bótar lán sem ÞV tekur að upphæð
fimmtán milljónir króna vegna fram-
kvæmda í nýju húsnæði og uppsetn-
ingu tækja og búnaðar fiskréttaverk-
smiðjunnar Óndvegisrétta. Fjárhæðin
mun verða endurgreidd eða yfirtekin
þegar sala á verksmiðjunni hefur farið
fram. Óskað er eftir jákvæðum við-
brögðum bæjarráðs við erindinu.
Bæjarráð samþykkti erindið og að
gert verði ráð fyrir yfirtöku hlutabréfa
í Eignarhaldsfélagi Vestmannaeyja og
Islandslaxi ehf. annars vegar og auka-
framlagi upp á fimm milljónir til
Þróunarfélagsins við endurskoðun
fjárhagsáætlunar.
saltgeymsla fyrir Saltkaup sem rís á
lóð Vinnslustöðvarinnar. Við höfum
líka unnið að miklum endurbótum hjá
Vinnslustöðinni, t.d. byggt nýtt ketil-
hús við loðnubræðsluna og fitugildru
tengda frárennsli bræðslunnar. Þá
erum við að innrétta nýja starfsmanna-
aðstöðu hjá Isfélaginu ásamt starfs-
mönnum þess,“ sagði Magnús.
Guðrún Erlingsdóttir (V) sá sér
ekki fært að samþykkja ábyrgð á
lántöku til Þróunarfélagsins fyrr en
sýnt hefur verið fram á að aðrir eig-
endur félagsins hafi fengið vitneskju
um væntanlegar lántökur og samþykkt
þær. Auk þess vill hún að það liggi
fyrir hvort og þá hvemig viðkomandi
aðilar ætli sér að koma að endur-
fjármögnun félagsins. Guðrún spurði
einnig hvernig staðið var að fjölgun
starfa í ferðaþjónustu Vestmannaeyja
og leigu húsnæðis við Básaskers-
bryggju og innréttingu á því. Einnig
hvenær og hvemigþað var kynnt fýrir
bæjarfulltrúum. Óskaði hún eftir
skriflegum svömm fyrir næsta
bæjarstjómarfund sem er í dag.
Guðjón Hjörleifsson (D) óskaði
eftir að bóka. „Beini því til bæjar-
fulltrúa Vestmannaeyjalistans að
Björn Elíasson sitji næsta bæjar-
stjómarfund þar sem málefni Þró-
unarfélagsins verða rædd.“
Handbolta-
miðar ó
tombóluverði
Við leikmenn meistaraflokks ÍBV
stöndum nú fyrir smáglaðningi fyrir
síðasta heimaleik IBV fyrirjól. Hér
eigum við að spila við Víkinga sem
er leikur sem verður að vinnast.
Vikingar hafa reyndar verið að bíta
frá sér upp á síðkastið og þurfum
við því á stuðningi áhorfenda að
halda!!! Við erum að bjóða
fyrirtækjum 10 miða á 2000 kr
(aðeins 200 kall miðinn). Nokkrir
peyjar munu ganga í fyrirtæki í dag
og á morgun en einnig er hægt að
hafa samband við Sigga Braga í
Sjóvá-Almennum og fá BÚNT.
Annars óskum við bara Eyja-
mönnum gleðilegra jóla og
þökkum stuðninginn á árinu sem er
að líða
Fréttatilkynning.
Spila ó sumar-
flötunum ó
laugardaginn!
Fádæma hlýindi hafa verið í Eyjum
í haust og byrjun vetrar og muna
elstu menn ekki eftir öðru eins.
Golfarar ætla að nota tækifærið á
laugardaginn og halda 9 holu
golfmót. Það sem meira er, þá
verður keppt á sumargrínum sem er
einstakt nú þegar aðeins tólf dagar
em til jóla. Eru kylfingar hvattir til
að dusta rykið af golfkylfum sínum
og taka þátt í þessum einstaka
viðburði.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar:481 1300 & 481 3310.
Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR
eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
STEINI og Olli eru að reisa saltgeynislu á lóð Vinnslustöðvarinnar.
Nóg að gera hjó Steina og Olla:
Fyrirhuguð bygging
parhúss í Bessahrauni