Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Qupperneq 4
Fréttir EYJAMAÐUR VIKUNNAR Ég nýt þess að stjórna kórnum -en ég elska að Anna Alexandra Cwalinska stjórnaði Samkórnum af mikilli prýði um síðustu helgi og varþað álit margra tónlistargesta að sjaldan hafi kórinn verið betri. Anna er einnig frábær söngkona og ætlar hún að syngja á hinum árlegu jólatónleikum Kórs Landakirkju nk. sunnudagskvöld. Anna er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Fullt nafn? Anna Alexandra Cwalinska. Fæðingardagur og ár? 20.ágúst 1975. Fæðingarstaður? Poznan.Póllandi. Fjölskylda? Móðir mín er söngkennari á Neskaupstað og faðir minn er skáld í Póllandi. Svo á ég bróður sem er að læra til læknis. Hvað ætlaðirþú að verða þegar þú yrðir stór? Mig hefur alltaf langað til að starfa við tónlist og var ekki nema sex ára þegar ég fór að reyna að spila á píanó. Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Ég á nú engan bíl en langar helst að eigajeppa. Uppáhaldsmatur? Sælgæti. syngja Versti matur? Skyndibitamatur, Mc- Donalds og þess háttar. Uppáhaldsvefsíða ? www.altavista.com. Uppáhaldstónlist? Ég hlusta á allar tegundir tónistar svo lengi sem hún er vel gerð. Aðaláhugamál? Lestur, dans og að læra tungumál. Hef nú þegar lært hollensku, þýsku, frönsku og ensku. Er núna að basla við að læra íslensku. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Vestmannaeyjar, engin spurning. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag? Katarina Witt listskautari. Stundar þú einhverja íþrótt? Ég hleyp, syndi og hjóla ásamt því sem ég hef mjög gaman af því að fara í göngutúra. Ertu hjátrúarfull? Já, stundum. T.d. þegar ég er á sviði og nóturnar detta af nótnastatífinu, verð ég að stíga ofan á þær, annars verða tón- Anna Alexandra Cwalinska Mynd: Óskar Björgvinsson leikarnir ekki góðir. Uppáhalds sjónvarpsefni? Ég horfi mjög lítið á sjónvarp. Besta bíómynd sem þú hefur séð? Life is beautiful, Titanic og Sister Act. Hvað finnst þér gera fólk aðlaðandi? Heiðarleiki, góðsemi við náungann, fólk sem er ábyrgðar- fullt og orðheldið. Hvað finnst þér gera fólk fráhrindandi? Ekkert sérstakt sem kemur upp i huga mér. Nú ert þú bæði söngvari og stjórnandi kórs, hvort starfið á meiraviðþig? Égnýtþessað stjórna kórnum en ég elska að syngja. Eitthvað að lokum? Viðvonumst til að sjá sem flesta í Landakirkju á sunnudagskvöldið. I hh> . v MATGÆÐINGUR VIKUNNAR Heilgrilluð luða Ég vil hyrja cí því að juikka œskuvinkonu minni kcerlega fyrir traustið!!!!! Þar sem nú er tími aðventunnar og frœn undan er mikið kjötcitfumsl mér tilvalið ctð koma með uppskriftir að tveimur fiskréttum, sem vel eigci heima cí veisluborðum. Heilgrilluð lúða Heil smálúða. I beikon smurostur sveppir rauðlaukur svartur pipar salt matvinnslurjómi Hrærið saman ostinum við smavegis af rjóma til þess að mýkja ostinn. Skerið sveppina og laukinn smatt niður, blandið því saman við ostinn, kryddið aðeins með pipar og salti. Þvoið lúðuna mjög vel. Flakið aðra hliðina og roðrífið flökin. Skerið eftir hryggsúlunni á þeirri hlið sem enn er fiskur á og rennið hnífnum niður með sín hvorri hliðinni til þess að mynda bil á milli beina og holds. Setjið roðrifnu flökin í opið og fyllið upp með ostasósunni. Setjið lúðuna á bakka og inn í ofn í ca. 40 mínútur, misjafnt eftir stærð lúðunnar. Ágætt að setja álpappír yfir í restina til þess að hlífa. Bcrið fram með hrísgrjónum og fersku hrásalati (frábært að hafa baunaspírur, beikonbita og fetaost í salatinu) Þetta er glæsilegur og gómsætur réttur á veisluborðið. Ingibjörg Bjarnadóttir Saltfiskur frá Biskayahéraði 600 gr saltfiskbitar - vel útvatnaðir (hncikkastykkin best) 6 rauðar paprikur 2 meðalstórir laukar 4 hvítlauksrif ! cllþurrt livítvín eða mysa liveiti steinselja olía Þerrið salfiskinn. Veltið hcmum upp úr hveiti og steikið í mikilli olíu við meðalhita þcir tilfiskurinn er orðinn gullinn að lit. Takið þcífiskinn af 'pönnunni. Lútið paprikurnar út í sjóðandi vatn, sjóðið í 2 mínútur og lcítið síðcm kólna í vatninu í 10 mínútur til þess ctð þcvr mýkist. Skerið laukinn og hvftlaukinn mjög smcítt niður. Lcitið laukinn og hvítlaukinn takci lit í olíutini sem fiskurinn var steikur í. Afhýðið paprikumar og skerið í litlci bitci, bœtið á pönnuna ásamt víninu, aukið hitann og látið sósuna sjóða niður í 5 mínútur. Setjið síðcm sósuna í grcenmetiskvöm eða stappið vel þannig að ekki verði kekkir í henni. Látið fiskinn í eldfast mót og hellið sósunni yfir. Hitið upp í ofni. Skreytt með steinselju. Boriðfram með nýju smábrauði. Njótið vel. Ég skora á Dóru Björk - hans Viðars málara. Hún á svo góðar matreiðslubækur! ___________Fimmtudagur 12, desember 2002 Nýfæddir 90- " Vestmannaeyingar Þann 4. september 2002 eignuðust Elín Jóhannsdóttir og Samúel Sveinn Bjamason son sem skírður hefur verið Bjami Guðjón. Hann var 15 merkur og 54 sm við fæðingu. Með Bjama Guðjóni á myndinni er stóra frænka hans, Guðrún Osk. Fjölskyldan býr íVest- mannaeyjum. 1. des hátíð grunnskólanna í Vestmannaeyjum fór fram í Höllinni fimmtu- dagskvöldið 28. nóvember. Hápunktur kvöldsins var spurningakeppni milli Hamarsskóla og Bamaskóla Vestmannaeyja. Þar fór Hamarsskóli með sigur af hólmi, bæði í keppni milli kennara og nemenda. En auk þess var mikið um dýrðir; danssýning, hljóðfæraleikur, tískusýning o.m.fl. Hljómsveitir stigu á stokk og nemendur skólanna dönsuðu og skemmtu fram eftir kvöldi. Spyrill í spumingakeppninni var að vanda hinn ágæti Ragnar Oskarsson. Nokkrir aðilar og fyrirtæki í bænum gáfu góða vinninga og eiga þakkir skilið íyrir. Á myndinni má sjá nokkra nemendur sem skemmtu sér greinilega mjög vel. Á döfinni— 4* Desember 12. Stekkjarstaur, fyrsti jólasveinninn kemur tilbyggða. 12. Opinn bæjarstjórnarfundur kl. 18.00 í Listaskólanum. 13. Essó deild karla: ÍBV - Víkingur kl. 20.00. 13.-14. Síðustu sýningar leikritsins „Auga fyrir auga" 13.-14. Myndlistarsýning: M.K. sýnir 23 málverk úr einkasafni sínu eftir myndlistarmanninn „Stórval" í hesthúsinu í Lyngfelli. 13. Málverkasýning í Gallerý Listakoti kl. 20.00. Hópur listamanna sýnir myndir sínar. 14. Golfmót kl. 11.00. 9 holu punktakeppni. Keppt verður á sumargrínum. 15. Jólatónleikar Kórs Landakirkju kl. 20.00. 16. Jólatónleikar Kórs Barnaskólans í sal skólans kl. 18.30. 16. Afmælisfundur Kvenfélags Landakirkju í Höllinni kl. 19.00. 18. Hin árlega jólasýning Fimleikafélagsins Ránar kl. 18.00. 18. Afhending einkunna og prófsýning Framhaldsskólans. 20. Bókaáritun og tónleikar. Gerður Kristný, Finar Kárason og KK verða á svæðinu. Þú getur fylgsl nánar með hvað er á döfinni á www.eyjafretlir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.