Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 12. desember2002
BERGEY, hjá Axel Ó. sýnir Guðnýju boli sem þar er til í miklu úrvali.
Jólaverslun
svipuð og í fyrra
-segja kaupmenn, prátt fyrir lakara
atvinnuástand
Atvinnuástand í Vestmannaeyjum
hefur oft verið betra um þetta leyti
árs en verið hefur að þessu sinni og
minna fé í umferð af þeim sökum.
Ekki væri óeðlilegt að slíkt kæmi
niður á jólaversluninni. Við leit-
uðum svara hjá nokkrum kaup-
mönnuni um það hvernig jóla-
vcrslunin hcfði komið út hjá þcim.
„Þetta hefur gengið ágætlega, mér
sýnist í fljótu bragði að þetta sé svipað
og í fyrra og engin ástæða til að
kvarta, segir Eyjólfur Heiðmundsson,
verslunarstjóri í Versluninni 66.
Eyjólfur segir reyndar ekki miklar
sveiflur í jólaverslun milli ára, hvorki
í magni né heldur milli vörullokka.
„Alla vega ekki í þeim vömflokkum
sem við verslum með, þetta er svona
svipað frá ári til árs og engar stórvægi-
legar sveiflur."
Þá segir Eyjólfur að fólk sé ekkert
fyrr á ferðinni með innkaup í ár en
verið hefur. „Þetta er svipuð rútína,
þessi vika og sú næsta vega alltaf
mjög þungt í verslun, ekki bara hjá
okkur heldur líka hjá öðmm og ég á
ekki von á að nein breyting verði á því
að þessu sinni," sagði Eyjólfur.
í góðu standi
„Þetta hefur verið fínt, í góðu standi,
kannski heldur rólegra en í fyrra ef
eitthvað er,“ sagði Svavar Sigmunds-
son í Brimnesi, um jólaverslunina.
„Miðað við ástandið í atvinnu-
málum í bænum, hefði maður kannski
átt von á samdrætti í verslun en svo
virðist ekki vera. Það sem við erum
aðallega að selja á þessum tíma er
jólaskraut og seríur og þess háttar og
svo rafmagnstæki með, auk þess sem
fólk er að lagfæra og endurbæta á
heimilum sínum. Svo þegar líður nær
sjálfum jólunum þá er meira keypt af
gjafavöm.“
Svavar segist ekki hafa orðið var við
sérstaklega meiri traffík með nýju
kortatímabili að þessu sinni. „Maður
varð miklu meira var við það í fyrra,
kannski er fólk farið að hugsa sinn
gang betur enda kemur að skulda-
dögum í kortaviðskiptum rétt eins og
öðmm viðskiptum. En aðalverslunin
hjá okkur hefur alltaf verið þrjá
síðustu dagana fyrir jól og ég á ekki
von á að það breytist. Eins á ég von á
líflegri verslun nú um helgina ef
veðrið verður skaplegt."
Hefur snjóleysið einhver áhrif á
jólaverslunina? „Ég veit það ekki, ég
er sjálfur ekki mikið fyrir snjó og mín
vegna mætti snjórinn alveg bíða fram
á aðfangadag," sagði Svavar í
Brimnesi.
Enginn samdráttur
Áslaug Bjamhéðinsdóttir, í Verslun-
inni Jazz, segir að verslun fyrir jólin
hafi verið góð. „Ég átti satt að segja
von á einhverjum samdrætti, miðað
við atvinnuástandið, en það hefur ekki
borið á því. Þetta er mjög svipað og í
fyrra og svo kom nóvember mjög vel
út hjá okkur, þá var talsvert að gera og
það væri ekki sanngjamt að vera
óánægður."
Áslaug segist hafa fundið fyrir meiri
verslun strax eftir mánaðamót og
sömuleiðis þegar nýtt kortatímabil
hófst. „Lfldega hefur það sitt að segja
hjá okkur að við emm með lága
álagningu og lágt vöruverð þar sent
við höldum öllum kostnaði í lágmarki.
Ég held að slíkt skili sér þegar fólk
hefur minna milli handanna en áður.
Eins og ég sagði, þá hefur þetta verið
mjög gott en síðasta vikan fyrir jól er
svo ævinlega toppurinn í versluninni
og ég reikna ekki með neinni breyt-
ingu á því að þessu sinni.“
Er líflegri verslun ef snjór liggur yfir?
„Æ, það held ég ekki. Ég er alveg
sátt við þetta eins og það er, auð-
veldara fyrir þá sem bera út póstinn og
fleiri. Ég vil helst ekki fá snjó fyrr en
svona kortér fyrir jól, hann má koma á
Þorláksmessu en helst ekki fyrr,“
sagði Áslaug.
Andrés gerði grein
fyrir Gíbraltar-ferðinni
Andrés Sigmundsson (B) gerði
grein fyrir ferð sinni til Gíbraltar í
síðasta mánuði á fundi bæjarráðs á
mánudag.
Þar var háhraðaferjan Shannon
Alexis skoðuð sem mögulegur kostur
á siglingum milli lands og Eyja eins
og sagt hefur verið frá í Fréttum.
Tillaga frá Andrési og Guðjóni
Hjörleifssyni (D) var lögð fram:
„Bæjarráð leggur til við samgöngu-
hóp samgönguráðherra um sam-
göngur við Vestmannaeyjar, að
kannað verði til hlítar hvort háhraða-
ferja eins og Shannon Alexis geti
hentað til siglinga á siglingaleiðinni
Vestmannaeyjar - Þorlákshöfn. Niður-
staða í þeirri könnun liggi fyrir í
lokaskýrslu samgönguhóps um næstu
áramót.
Verði niðurstaðan jákvæð verði
reynt að fá skipið leigt í takmarkaðan
tíma með hugsanleg kaup í huga.
Jafnffamt verði samgönguráðherra og
samgöngunefnd Alþingis kynnt þessi
ákvörðun."
Guðrún Erlingsdóttir (V) bókaði að
hún myndi taka afstöðu til málsins á
næsta l'undi bæjarstjómar.
Skólamálaráð:
Gjaldskrá leikskóla
hækkar um 8%
Á fundi skúlnmáluráös í síðustu
viku var samþykkt 8% hækkun á
gjaldskrá lcikskóla bæjarins.
Er þetta sama breyting og hefur
orðið á launavísitölu frá síðustu
gjaldskrárbreytingu I. september
2001 til ársloka í ár.
Ennfremur segir að þrívegis hall
gjaldskrárhækkun verið frestað vegna
tilmæla og stuðnings við aðgerðir
aðila vinnumarkaðarins og stjómvalda
sem miðuðu að því að halda verðlags-
breytingum innan viðmiðunarmarka á
þessu ári.
Ennfremur var samþykkt að fæðis-
gjöld hækki urn 5,4% frá næstu
áramótum. Þetta þýðir fyrir foreldra,
með bam í fullri níu tíma vistun,
hækkun um tæpar tvö þúsund krónur
á mánuði. í dag kosta níu tímar 20.277
krónur en verða 21.900 krónur.
Fæðis- og hressingargjald hækkar úr
3255 krónum í 3431 krónu.
Framvegis verða leikskóla- og
fæðisgjöld endurskoðuð tvisvar á ári,
þann I. janúar og 1. júlí ár hvert.
Guðrún Érlingsdóttir (V) sat hjá við
afgreiðslu málsins.
Axel O á Bárustíginn
Eigendur Axel Ó skóverslunar hafa
fest kaup á Bárustíg 6 þar sem
verslunin Mozart var til húsa í
mörg ár. Nú er þar m.a. verslunin
Do Re Mi.
Að sögn Steindórs Ámasonar var
gengið frá þessu í síðustu viku og
verður eignin afhent nýjum eigendunr
I. júní á næsta ári. Með kaupunum er
verið að stækka verslunina mikið.
„Fyrst maður er að þessu á annað borð
þýðir ekkert annað en að hafa trú á
því,“ sagði Steindór aðspurður um
gengi verslunarinnar. “Ég trúi ekki
öðru en að fólk versli heima þar sem
sömu vömr og við emm að bjóða upp
á em oft á tíðum dýrari fyrir sunnan.“
Magnús Steindórsson, verslunar-
stjóri, segir að ekki séu fyrirhugaðar
neinar áherslubreytingar heldur væri
áfram um að ræða verslun með
íþróttavömr og skó.
Hafna tilboði í rekstur
líkamsræktarinnar
Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs
þann 5. desember var tilboð Lík-
amsræktarstöðvarinnar í rekstur
líkamsræktarsalar Iþróttamið-
stöðvarinnar tekið fyrir.
Ráðið mælti nreð að tilboðinu yrði
hafnað þar sem það væri algjörlega
óraunhæft. Guðrún Erlingsdóttir (V)
bað um nánari útskýringu á því á
bæjarráðsfundi á mánudaginn og
óskaði eftir að hún yrði tilbúin fyrir
fund bæjarstjómar sem er í kvöld.
Hún sagðist ekki taka afstöðu til
málsins íyrr en þær upplýsingar liggja
fyrir. Bæjarráð fól íþróttafulltrúa að
svara fyrirspuminni.
ÞURÍÐUR og Hugrún frá Eykyndli afhcnda Hirti lækni og Gunnari
framkvæmdastjóra gjötina.
LÁRUS tekur við gjöfinni úr höndum Eykyndilskvenna.
Eykyndilskonur hafa verið duglegar undanfarið að leggja góðum
málcfnum lið. Þær afhentu stjórn sjúkrahússins 250 þúsund krónur til
kaupn á hjartasónartæki. Var þetta gert í tilefni af opnun nýju
sjúkradeildarinnar í október. Þær gáfu einnig hjartarafstuðtæki um borð
í Herjólf að verðmæti um 150 þúsund krónur og verður farið í það á
næstunni að kenna skipstjórnarmönnum Herjólfs á tækið. Lárus
Gunnólfsson skipstjóri sagði við það tilefni um leið og hann þakkaði fyrir
gjöfina að hann vonaöist þó til að þurfa aldrei að grípa til tækisins. í gær
voru þær svo á ferðinni upp á lögreglustöð þar sem þær afhentu
lögreglunni stafræna myndavél að verðmæti 90 þúsund krónur.