Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 11

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 11
Fimmtudagur 12. desember 2002 Fréttir 11 HEIÐAR snyrtir var oft með kynningar í Miðbæ á meðan sól hans reis sem hæst. SNYRTIVÖRUKYNNING frá LanCome, Dúddý og Guðbjörg. HEIÐAR leiðir ungar konur í allan sannleika um gæði vörunnar. DÚDDÝ, á námskeiði í París. þröngar skálmar og nú eru þær orðnar útvíðar aftur. Þegar ég er úti að versla finnst mér oft heilmikil kúnst að fínna út hvað passar og lika það sem gengur fyrir okkur á Islandi. Útlendingar kaupa oft allt annað en Islendingar. Akveðnir litireru í tísku hverju sinni en það fer alltaf mest af svörtu. Það eru auðvitað bjartari litir í gangi yfir sumarið en svartur er langvinsælastur, ekki bara hér á landi heldur um allan heim. Brúnir litir og drapp eru inn núna líka og indíánastfll.“ Þú hefar eiimig verslað með snyrtivörur? „Já, ég fékk líka hingað snyrti- námskeið sem voru vel sótt. Heiðar snyrtir kom oft með litgreiningar- námskeið sem vom ofsalega vinsæl. Þá komu snyrtifræðingar frá snyrti- vömfyrirtækjum með namskeið þar sem kennd var almenn umhirða húðarinnar, förðun o.fl. Það komu margar konur á þessi námskeið sem vom mjög vinsæl en um það bil tíu vom í hverjum hóp og þessi námskeið vom á öllum tímum ársins. Það kostar mikla vinnu að halda verslun gangandi og öllu því sem til þarf. Dúddý segist hafa verið heppin með starfsfólk í gegn um tíðina. „Við vomm oft tvær og þrjár héma í búð- inni þegar mest var að gera en það hefur náttúrlega minnkað þar sem hér býr færra fólk en áður. En viðskipta- hópurinn er breiður, ég er með bamaföt og konur frá tuttugu og fimm ára aldri og upp úr versla mikið við mig. Ég hef ekki stflað mikið inn á unglingana.þeir versla meira í tísku- búðunum. Ég er reyndar með snyrti- vömr sem konur á öllum aldri kaupa hjá mér.“ Dúddý segir að viðskiptahættir hafi óneitanlega breyst töluvert á þessum 30 ámm. „Nú er vara nánast öll staðgreidd en áður var allt að þriggja mánaða greiðslufrestur. Útsölur eru með öðmm hætti og standa nú lengur yfir. Tilboð eru í gangi allt árið sem segir okkur að markaðurinn er þröngur. Þá hafa ýmsir vöruflokkar færst yfir í matvöm- og stórmarkaði. Okkar samtök, Kaupmannasamtökin, em mjög virk og hafa komið mörgu góðu til leiðar. Hefur það ekki síst átt við matvöruverslunina.“ Þegar Dúddý er spurð út í inn- kaupaferðir Eyjamanna upp á land sagði hún: „Ég vil hvetja Vestmanna- eyinga til að nota þá þjónustu sem hér er, ekki bara í verslun, heldur öllum þjónustugreinum því þannig eflum við okkar heimabyggð," sagði Dúddý og lagði áherslu á orð sín. Oft Iangur vinnutíini Ekki er víst að allir geri sér grein fyrir hversu mikil vinna felst í því að eiga og reka verslun. Vinnutími er oft æði langur og að ýmsu þarf að huga. „Verslunin er opin virka daga frá klukkan tíu á morgnana til klukkan sex síðdegis og á laugardögum frá tíu til hádegis. Ég afgreiði auðvitað í versluninni og auk þess verður maður að fylgjast með því hvað vantar og þess háttar. Það þarf að taka upp vömr þegar þær koma í hús, hengja upp föt, stilla upp í hillur og fleira. Ég sé um að skreyta glugga og þess háttar sjálf en víða í Reykjavík em sérstakir glugga- skreytingarmenn. I kring um jól er mikil traffík og maður er stundum genginn upp að hnjám ef svo má að orði komast. Þá er opið lengur en venjulega en þeim tíma fylgir alltaf skemmtileg stemning. Það má segja að vinnutíminn sé óendanlegur því oftast er maður á einn eða annan hátt með hugann við þetta,“ segir Dúddý. Hún segir ágætlega hafa gengið að samræma verslunarreksturinn og heimilið en þau Guðni eiga Ijögur böm sem öll eru uppkomin. Þau eru Hlöðver Sigurgeir, Olafur Oskar, Sigríður Agústa og Viktor. „Það var meira að gera þegar krakkamir vom yngri en Guðni hefur alltaf verið duglegur í heimilisstörfunum. Hann var oftast búin að elda þegar ég kom heim og tók þátt í jólaundirbúningnum og öllu sem þurfti að gera. Þannig að það gekk allt vel.“ Ódýrara hér en í Reykjavík Þegar Dúddý er spurð hvemig hún sjái fyrir sér framtíð Eyjanna eftir þrjátíu ára verslunarrekstur segist hún alltaf hafa verið bjartsýn. „Annars væri maður ekki í þessu. Ég vil Eyjunum allt það besta og mér finnst hálfgerð neikvæðni í gangi héma og fólk mætti vera bjartsýnna. Það er ekkert nýtt að það sé rólegt héma á haustin. Ferðamenn hafa verið mikil lyfti- stöng fyrir verslunina á sumrin og margar konur sem koma hingað á sumrin versla heilmikið í búðinni hjá mér og öðrum verslunum í bænum. Mér finnst Vestmannaeyjar ekki nærri nógu mikið auglýstar. Helga Dís Gísladóttir, sem var með Rómu, er mjög hugmyndarík. Hún kom með þá hugmynd að auglýsa Vestmannaeyjar sem verslunarstað og laða þannig að ferðamenn. Hugsunin var að hingað kæmi fólk ofan af landi úr sveitunum og ætti hér góða helgi og verslaði í leiðinni. Þetta væri auglýst upp og útbúinn góður pakki. Vöruverð er oft á tíðum lægra hér sem skýrist að hluta til vegna þess að verslunarpláss er mjög dýrt á höfuðborgarsvæðinu. Húsaleiga er himinhá í þessum stóru veslunarhöllum eins og Kringlunni og Smáralindinni það segir sig sjálft að það kostar heilmikið að reka verslanir þar. Hægt að laða hingað fleiri ferðamenn Ég held að það séu miklir möguleikar á því að laða hingað innlenda og erlenda ferðamenn og það þarf að setja af stað markaðsetningu. Menn verða þá að gera sér grein fyrir hvað þeir ætla að bjóða upp á og hvað þeir ætla að selja. Höllin hefur til dæmis breytt heilmiklu fyrir Vestmannaeyjar og dregið að sér ferðamenn. Fólk sér ástæðu til að punta sig og fer í fínni fötum að skemmla sér á vönduðum og glæsilegum skemmtistað, þetta hefur allt heilmikið að segja. Margir útlendingar em alveg heillaðir af náttúmnni hér. Ég man til dæmis eftir enskum sölumanni sem kom hingað í söluferðir fyrir nokkrum árum. Hann var svo hrifinn að hann tók fjölskylduna með sér og þegar hann kom heim til mín upp á Smáragötu settist hann við gluggann og naut útsýnisins og sagðist aldrei hafa séð neitt í líkingu við það. Við Stjáni Óskars höfum verið að spjalla um það okkar á milli að ferða- málaráð þyrfti að gefa út veglegt upplýsingarit um Vestmannaeyjar. Þar væri sagt frá sögu Vestmannaeyja sem er nú ekki lítil eða ómerkileg. Það mætti segja frá Tyrkjaráninu, kynna merkar fomminjar frá landnámstíð í Herjólfsdal, fræða fólk um sjósókn og vinnslu á físki og þróunina sem hefur orðið f greininni. Gosið 1973 og allt sem viðkemur því er stór partur af okkar sögu og tengist okkar menn- ingu. 1 þessum bæklingi þyrfti að koma fram hvaða þjónusta er í boði eins og verslanir og veitinaghús. Margir sem koma hingað í fyrsta skipti em alveg hissa á því hvað hér eru margar búðir og vömúrval gott. Fólk hefur ekki hugmynd um þetta og heldur að staðurinn sé miklu minni og veit ekki um þjónustustigið og reiknar ekki með að hér sé til dæmis hjól- barðaverkstæði. Þjónustuna þarf að kynna markvist," segir Dúddý sem ekki er af baki dottin eftir þrjátíu ára rekstur á verslun. gudbjorg @ eyjafrettir. is Ferðamenn hafa verið mikil lyftistöng fyrir verslunina á sumrin og margar konur sem koma hingað á sumrin versla heilmikið í búðinni hjá mér og öðrum verslunum í bænum. Mér finnst Vestmannaeyjar ekki nærri nógu mikið auglýstar. Helga Dís Gísladóttir, sem var með Rómu, er mjög hugmyndarík. Hún kom með þá hugmynd að auglýsa Vestmannaeyjar sem verslunarstað og laða þannig að ferðamenn. Hugsunin var að hingað kæmi fólk ofan af landi úr sveitunum og ætti hér góða helgi og verslaði í leiðinni. Þetta væri auglýst upp og útbúinn góður pakki. Vöruverð er oft á tíðum lægra hér sem skýrist að hluta til vegna þess að verslunarpláss er mjög dýrt á höfuðborgarsvæðinu. Húsaleiga er himinhá í þessum stóru veslunarhöllum eins og Kringlunni og Smáralindinni, það segir sig sjálft að það kostar heilmikið að reka verslanir þar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.