Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 14
14 Fréttir Fimmtudagur 12. desember 2002 MIKILL kraftur var í Samkúrnum og Anna lét ekki sitt eftir liggja og lagði sig alla í stjúrnunina. Jólatónleikar sem stóðu svo sannarlega undir nafni Árlegir júlatónleikar Samkórsin Vestmannaeyja voru á sunnu- daginn í Vélasalnum. Uppselt var á tónleikana og hefur örugglega engum leiðst því sjaldan hefur kórinn veriö betri og lagavalið bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Nýr stjórnandi hefur tekið við kórnum og er hann að gera góða hluti. Tónleikar kórsins hafa átt sér sama- stað í Safnaðarheimilinu en nú flutti hann sig um set í Vélasal Listaskólann sem þrátt fyrir að vera mjög hrár hentar vel undir tónleika sem þessa. Það hefur fleira breyst því nýr stjóm- andi hefur tekið við af Báru Grímsdóttur sem hafði stjórnað Sam- kómum l'rá því hann var endurvakinn árið 1994. í hennar stað er komin önnur kona, Anna Cwalinska, sem hefur aðrar áherslur. Kom það greinilega fram í flutningi kórsins sem hefur sjaldan verið kraftmeiri og betri. Það er líka gaman að fylgjast með Önnu sem lifir sig inn í stjórnanda- hlutverkið. En eitt hefur Anna tekið eftir Bám, sem er fjölbreytt Iagaval en ekki bara sungin þessi hefðbundnu jólalög sem sum hver að minnsta kosti em farin að hljóma óþægilega oft. Tónleikar Samkórsins á sunnudag- inn stóðu fyllilega undir nafni sem jólatónleikar og vom sannarlega sá gleðigjafi sem maður vill sjá á jólaföstu því það þarf líka að sinna andlegu hliðinni, ekki síst á jólaföstu þegar stutt getur verið í myrkur og dmnga þrátt fyrir öll jólaljósin. omar@ eyjafrettir. is MK býður upp á myndlistarsýningu og hlöðuball á Lyngfelli Magnús Kristinsson, útvegsbóndi til sjós og lands, ætlar að fá hcsthúsinu á Lyngfclli nýtt hlutverk þegar hann opnar þar myndlistarsýningu annað kvöld með 23 málverkum eftir Stúrval. „Tilefnin eru eru nokkur en ég ætla ekki að tíunda þau hér,“ sagði Magnús í samtali við Fréttir. „Málverkasýningin verður annað kvöld og til klukkan tvö á laugardaginn. Þegar sýningunni lýkur mun séra Kristján Björnsson vígja skeiðvöllinn sem ég og mitt fólk höfurn verið að koma upp á Lyngfelli. Ætli hann sé ekki eini einkaskeiðvöllurinn á landinu? Um klukkan fjögur kemur Simmi rútubflstjóri með hóp eldri borgara sem ég hef boðið á hlöðuhall að Lyngfelli sem byrjar klukkan hálf fimm. Það verður því nóg um að vera á Lyngfelli um helgina,“ sagði Magnús að lokum. MAGNÚS er tilbúinn í slaginn á hlöðuballinu. Eyverjar skrifa: Jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja MYNDIN er tekin eftir að gengið hafði verið frá samkoniulaginu. F.v. Davíð Guðmundsson í Tölvun, Jún V. Gunnarsson EJS, Guðmundur Ingi Júhannesson, verslunarstjúri í Tölvun og Örn Þúr Alfreðsson, tæknistjúri EJS. Tölvun verður umboðsaðili fyrir Dell Samgöngur við Vestmannaeyjar eru ekki í þeim farvegi sem þorri Eyjamanna vill sjá þær í. Sumir ganga jafnvel svo langt að halda því fram að samgöngur séu okkar akkil- esarhæll í byggðaþróun. Eyverjar, félag ungra sjálfstæðis- manna hefur markað sér skýra stefnu hvað samgöngur varðar þar sem við teljum mikilvægt að horft verði til framtíðar og tillit tekið til krafna um sveigjanlegan brottfarar- og komutíma sem og kröfunnar um hraðar og ör- uggar samgöngur. Nútímalifnaðar- hættir, sem einkennast meðal annars af áherslu á símenntun og aukinni sókn í hvers kyns menningu og dægradvöl, gera það að verkum að ferja í Þorlákshöfn kemur aldrei til með að svara kröfum samtímans, og hvað þá kröfum framtíðarinnar. Það er skoðun Eyverja að einungis tvennt geti fullnægt þörfum nútíma samfélags í Vestmannaeyjum og er þar rætt um jarðgöng og ferjulægi í Bakkafjöru, og þá sérstaklega jarð- göng. Á meðan ríkið stendur í fjár- mögnun jarðganga og alls konar vegaframkvæmda um allt land er ekki óeðlileg krafa Eyjamanna að sitja við sama borð og krefjast samgangna sem eru eins góðar og tækni leyfir. Eyverjar hafa jafnframt bent á að samgöngur ntilli lands og Eyja hvort sem er með ferjulægi í Bakkafjöru og/eða jarðgöngum eru ekki einkamál Eyjamanna heldur stórt hagsmunamál fyrir öll sveitarfélög á Suðurlandi. Leiða má líkur að því að straumur ferðamanna um Suðurland stóraukist við slíkar samgöngubætur svo ekki sé nú minnst á greiðari leið Sunnlend- inga að útskipunar og uppskipunar- höfn. Jafnframt myndu slikar sam- göngur stytta leið margra Sunn- lendinga að þjónustu sem Vest- mannaeyjar bjóða upp á svo sem framhaldsskóla, sjúkrahúsi, íþrótta- miðstöð og mörgu lleira. Eyverjar hvetja Vestamannaeyinga til að setja markið hátt í öllum kröfum um samgöngur. Krafa okkar er einföld. Við krefjumst þess að nú þegar verði lagt fé í að gera sam- göngur við Þorlákshöfn eins góðar og þær geta orðið til að brúa bilið þar til fúllnægjandi samgöngum verði komið á. Um leið krefjumst við þess að tafarlaust verði hafist handa við rannsóknir og síðan framkvæmdir við jarðgöng. Með þessu eru Eyverjar að fylgja eftir frumkvæði þingmanna Sjálfstæðisflokksins um vegtengingu milli lands og Eyja. Við munu halda áfram að vinna að þessu máli þrátt fyrir að nefnd á vegum samgönguráðherra sé að störfum og stefnum því til að mynda að fundi (sem nánar verður auglýstur síðar) um vegtengingu milli lands og Eyja og hvaða möguleika það skapar fyrir Eyjar og nánasta umhverfi nú strax á nýju ári. Eyverjar Nýlega gerðu fyrirtækið EJS og Tölvun í Vestmannaeyjum með sér samkomulag sem felur í sér að Tölvun bætist í hóp endursölu- og þjónustuaðila Dell vélbúnaðar. í upphafi árs 1998 gerðu EJS og bandaríski tölvurisinn Dell Computer Corporation með sér sölu- og þjón- ustusamning og með honum var grundvöllur lagður að framboði á vörum frá Dell á Islandi. Fram að því höfðu Islendingar ekki notið þjónustu Dell sem skyldi þar sem ein af grund- vallarreglum Dell er að selja vöruna beint til viðskiptavina sinna. Starfsmenn EJS kynntu sér starfsemi Dell í Bandaríkjunum og fylgdust með framgangi fyrirtækisins í Evrópu. Eftir þá undirbúningsvinnu var tekin sú ákvörðun að EJS seldi og þjónustaði vörur frá Dell, þar sem ljóst var að búnaður Dell hentaði vel kröfuhörðum fyrirtækjum og stofn- unum. Og nú hefur Tölvun bæst í hóp þeirra sem sjá um þjónustu fyrir þennan búnað. Jón V. Gunnarsson, söiustjóri hjá EJS, segir það mikið ánægjuefni að ganga til samstarfs við Tölvun. Verið sé að auka þjónustu Dell á markaðnum og þetta sé liður í því átaki. „Tölvun er að útvíkka starfsemi sína með það að markmiði að auka þjónustu við Vestmannaeyinga. Dell er heimsþekkt hágæðavörumerki og Dell tölvur eru vinsælustu tölvumar í heiminum í dag. Það er okkur því mikil ánægja að geta boðið þessa vöru í Vestmannaeyjum," segir Davíð Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tölvunar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.