Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Side 15
Fimmtudagur 12. desember 2002 Fréttir 15 KRAKKARNIR tóku lagið. Kröftugir tíundubekkingar í Hamarsskóla: 250 mættu á fjáröflunarkvöld -þar sem safnað var fyrir Noregsferð ÞAU Anna Kristín, Eyþór, Haraldur og Eva Brá eru ákveðin í að safna nógu miklum peningum til að komast með bekkinn til Noregs og endurgjalda með því heimsókn norskra jafnaldra þeirra. Það var líf og fjör í Höllinni sl. fimmtudagskvöld þegar nemendur tíunda bekkjar Hamarskólans héldu fjáröflunarkvöld vegna fyrir- hugaðs ferðalags þeirra til Noregs. Norskir nemendur komu hingað til lands í október sl. og er hugsunin að endurgjalda heimsóknina og að kynnast starfsháttum norskra skóla og menningu þeirra og tungumáli. Nemendumir sáu um undirbúning og að sögn Svövu Bogadóttur kennara stóðu þau sig með mikilli prýði. „Ég er mjög ánægð með krakkana, þau hafa verið afskaplega jákvæð og dug- leg.“ Svava sagði ennfremur að þetta væru fyrirmyndarunglingar og hún kviði ekki framtíðinni ef allir ung- lingar væm svona duglegir. Margt var gert til skemmtunar og sáu Eva Brá Barkardóttir og Haraldur Karlsson um að kynna herlegheitin fyrir gestum. Þau, ásamt Eyþóri Björgvinssyni og Önnu Kristínu Magnúsdóttur, spjöll- uðu við blaðamann eftir skemmtunina og voru ánægð með útkomuna. „Við fengum um 250 gesti sem var nokkuð betra en við áttum von á,“ sagði Eva Brá. Haraldur tók við og fór að lýsa því sem fram fór. „Litlu lærisveinamir byrjuðu kvöldið og síðan tóku tveir meðlimir hljómsveitarinnar Made in China lagið, það var Freestyle sýning, reyndar þrir dansar, Ema Sif, Annaka og Ama Hmnd sýndu, Sædís Birta og Erna Sif og loks sjö stelpur úr tíunda bekk Hamarsskólans. Svo vom líka tvær tískusýningar. Annars vegar frá Axel Ó og Jazz og líka sýning á fötum sem nemendur tíunda bekkjar hafa verið að búa til.“ Þau héldu áfram að telja upp og var þar meðal annars happadrætti. „Það komu jólasveinar í heimsókn og drógu vinningsnúmerin. Meðal þess sem var í verðlaun var Herjólfsferð og flug fram og til baka með íslandsflugi. „Svo var leikrit þar sem fjórir nem- endur vom í aðalhlutverki, Guð- mundur, Eyþór, Pálmi og Jóna Heiða.“ Eyþór bætti við að fyrirhugað hafi verið að hafa bingó en hætt var við það. „Það hefði tekið of langan tíma, við ákváðum frekar að hafa happa- drætti og svo stefnum við á að hafa sérstakt bingókvöld eftir áramót.“ Lokaatriðið var að sögn þeirra fjór- menninga tilvalið til þess að enda kvöldið. „Þá tókum við lagið og sagði Rúnar hljóðmaður að þetta hefði verið falskasti kór sem fram hefur komið í Höllinni," sagði Haraldur og tóku allir undir það. „Þetta var svaka gaman, við tókum lagið meiri snjó.“ Þetta er ekki fyrsta fjáröflun þeirra tíundu bekkinga sem em að reyna að safna sér fyrir ferð til Noregs. „Það komu hingað krakkar frá Noregi sl. vetur og við erum að reyna að safna fyrir ferð til að endurgjalda þá heimsókn," sagði Anna Kristín. Þau sögðu það kosta eitthvað um eina og hálfa milljón króna og þetta kvöld gaf þeim um 170 þúsund krónur upp í það. „Svo vomm við með kleinusölu fyrr í vetur og gekk það vonum framar," sagði Eva og Haraldur bætti við: „Við náðum eingöngu að selja í litlum hluta bæjarins þar sem kleinurnar seldust upp en ég vil bara koma því á framfæri að Eyjamenn þurfa ekki að óttast, við munum koma aftur með kleinurnar okkar og þá vonandi náum við að fara í þá bæjarhluta sem eftir em.“ Þau vildu að lokum koma á fram- færi þakklæti til allra þeirra fyrirtækja sem hafa styrkt þau með einum eða öðrum hætti. „Eins viljum við þakka þeim sem mættu á fimmtudags- kvöldið og styrktu okkur og að sjálfsögðu Svövu Bogadóttir kennara sem kom þessu öllu af stað og Rúnari hljóðmanni viljum við þakka sérstak- lega fyrir liðlegheitin,“ sögðu fjór- menningamir að lokum. GÍSLI og Haraldur í hljómsveitinni Made in China tóku lagið. Volare á íslandi: Siyrkir Umhyggju Á jólafundi Volare seni haldinn var í Reykjavík 9. desember sl. var af- hentur styrkur til tveggja fjöl- skyldna sem eru með langveik börn. Volare ehf„ sem býður upp á heilsu- og snyrtivömr sem framleiddar eru úr Aloe Vera plöntunni, ákvað á síðasta ári að láta eitt prósent af veltu fyrirtækisins ganga til styrktar góðu málefni. Umhyggja, félag langveikra bama, var styrkt í ár um 420 þúsund krónur sem fóm til tveggja fjölskyldna á þeirra vegum. Á myndinni sést Sjöfn Jónsdóttir sem á þrjú langveik böm taka við 210 þúsund krónum ásamt gjafakörfu úr höndum Guðmundu Hjörleifsdóttur, framkvæmdastjóra Volare á Islandi. Fyrir hönd hinnar fjölskyldunnar tók Dögg Káradóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju, við sömu upphæð ásamt gjafakörfu. Einnig er á myndinni Ragna Mar- inósdóttir formaður Umhyggju. K I ■ U ' f H f Jólatónleikar Kórs Landa- kirkju ó sunnudagskvöld Jólatónleikar Kórs Landakirkju verða kl. 20.00 sunnudaginn 15. desember í Landakirkju. Að þessu sinni höfum við fengið góðan gest að norðan, einn af hinum sívinsælu Álftagerðisbræðrum, Oskar Pét- ursson sem syngja mun með kórn- um auk einsöngslaga. Einnig mun Anna Alexandra Cwal- inska, sópransöngkona syngja með kórnum. Stjómandi og orgelleikari er Guðmundur H. Guðjónsson, Flutt verða innlend og erlend lög í anda jólanna. Er tilvalið fyrir fólk að líta upp úr jólaundirbúningnum og slappa af við fallega tónlist. Aðgangseyrir er krónur 1000. Stjómin. ÓSKAR Skipalyftan: Erfið staða núna -En þetta ár hefur verið mjög gott, aivinnulega séð, segir forstjóri „Verkefnastaðan er slæm hjá okkur og hefur verið um nokkurt skeið,“ sagði Gunnlaugur Axelsson, forstjóri Skipalyftunnar, aðspurður um hvað væri framundan hjá fyrirtækinu. „Fyrirtækið hefur aðeins haldið uppi dagvinnu það sem af er vetri og það er nokkuð annað en við höfum átt að venjast á undanfömum ámm. Á þessum árstíma hafa alltaf verið næg verkefni og vinna við skip milli úthalda. En nú hefur þetta verið mjög dauft. Ég veit ekki með vissu hvað veldur þessu, kannski eru það breyttir útgerðarhættir, skipin em orðin færri og stærri og þau stærri leita annað.“ Gunnlaugur segir ekkert fast í hendi með verkefni eftir áramót, ekkert sem vitað er um á þessari stundu. „Aftur á móti hefur nú ekki alltaf verið langur fyrirvari á þeim verkefnum sem við höfum fengið þannig að sú staða getur verið fljót að breytast. En þetta ár, sem slíkt, hefur verið mjög gott, atvinnulega séð, hjá okkur. Það var Núpur sem bjargaði því og ég vil helst ekki þurfa að hugsa það dæmi til enda ef hann hefði ekki verið hér. Það verkefni hélt uppi háu atvinnustigi hjá okkur alveg fram í september." Þrátt fyrir að staðan sé ekki sem best í dag, segir Gunnlaugur að það sé svo sem ekkert svartnætti. „Þetta er frekar erfitt eins og málin standa í dag en við höfum áður staðið frammi fyrir svip- uðu og alltaf hefur þetta bjargast. Ég hef ekki trú á öðru en að þessi staða komi til með að breytast með hækkandi sól,“ sagði Gunnlaugur að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.