Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Síða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Síða 20
e nn hársnyrtistofa SÍMI 481 3666 ^mmmm^m^mmmmJ LJmTERHS VEITINGAHUS BÁRUSTÍG 11 SÍMI 481 3393 IGóður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. Sendibílaakstur - innanbæjar Vilhjálmur B * 481-2943 tt 897-1178 tt ergsteii imúm nsson mútt HLUTI af jólamatnum sem Vöruval býður upp á. Svínahamborgarahryggur vinsæll Hamborgarhryggur og hangikjöt í blómaverslunum Krónan: Hugsum um viðskiptavininn Ingimar Georgsson, kaupmaður í Vöruval, segir jólasiiluna aðeins vera farna í gang og er það heldur seinna en í fyrra. „Salan var náttúrulega talsverð í nóvember á efni í smábökubakst- urinn,“ sagði Ingimar. Aðspurður um hvað væri vin- sælast á borðum Eyjamanna um jólin sagði hann það líklega verða svínahamborgarahrygg. „Verðið á svínahamborgararhrygg hefur lík- lega aldrei verið hagstæðara. Einnig er hangikjötið alltaf vinsælt og svo hefur aukist mikið undanfarin ár sala á kalkún. Sffellt fleiri velja svo léttreykt lambakjöt sem ég er hrifinn af. Svo eru náttúrulega vandræði með rjúpuna sem veiðisl ekki neitt en ég á þó von á því að ég fái einhverjar til sölu fyrir jólin.“ Hvað er Ingimar sjálfur með á aðfangadagskvöld? „Eg býst við að þetta verði hefðbundið, þ.e. reyktur og grafinn lax í forrétt, svínaham- borgarahryggur í aðalrétt og svo er heimatilbúinn frómas í eftirrétt." Ingimar sagði það hafa aukist undanfarin ár að fólk sé með for- rétti. „Sala á sjávarfangi, frosnu, hefur aukist mikið og hefur salan endurspeglað aukið úrval af þessum vörum," sagði Ingimar en bætti við að fólk væri almennt mjög íhalds- samt með jólamatinn. „Það er svo tilbúið að prófa eitt- hvað nýtt um áramótin eða ein- hverja aðra daga þama á milli.“ Laufabrauðið er alltaf að auka vinsældir sínar og segir Ingimar að hann selji enn talsvert meira af ósteiktu en steiktu. „Þó hefur verið að draga saman með þessu undan- farið og held ég að það sé vegna þess að sífellt fleiri hafa laufabrauð á boðstólum, það er alltaf fastur kjarni fólks sem vill steikja brauðið sjálft,“ sagði Ingimar og var þar með rokinn enda í nógu að snúast í desembermánuði hjá kaupmönnum. Á morgun mun verslunin Krónan byrja að selja jólatré og eru þau Eiríkur Sæland í Eyjablóm og Guðný Þorleifsdóttir í Blóma- stofunni Bárustíg mjög óánægð með þá ákvörðun Krónunnar. „Þeir eiga ekki einu sinni matinn sem okkur vantar og oft era þær vörur sem verið er að bjóða upp á löngu útrunnar," sagði Guðný og vildi að stjórnendur Krónunnar ein- beittu sér að því að gera betur í þeint málum frekar en að fara út í blómasölu. „Við erum að reyna að halda uppi þjónustu hér á ársgrundvelli og svo koma svona verslanir og hirða af okkur toppana. En við höldum svo uppi þjónustu allt árið,“ sagði Eiríkur. Þau hafa ákveðið að snúa bökum saman gegn þessu og ætla að bjóða Síldveiðar og vinnsla hafa nú í haust ekki verið svipur hjá sjón, niiðað við undanfarin ár og voru margir teknir að örvænta um útkomu þessa hausts. En í fyrrinótt kom góður kippur í veiðarnar. Gullberg landaði hér í gærmorgun 300 tonnum af síld sem fór til vinnslu hjá Isfélaginu og í gær var Faxi á leið til Eyja með 700 tonn sem einnig verða unnin hjá Isfélaginu. Þá er Harpa á miðunum, upp á hamborgarhrygg og hangikjöt í blómabúðunum á laugardaginn. „Við hvetjum fólk til þess að koma og kaupa hjá okkur jólasteikina eða kaupa hana í Vöruvali eða hjá H. Sigurmundsson. Þetta eru Eyja- verslanir, ekki verslanir sem stýrt er af auðhring ofan af landi,“ sögðu þau að lokum. Ástþór Jónsson, verslunarstjóri Krónunnar, staðfesti það í samtali við Fréttir að verslunin byrji að selja jólatré seinni partinn í dag. „Krónubúðirnar hafa gert þetta ár eftir ár og ég get ekki sem versl- unarstjóri skorast undan því að bjóða upp á besta verðið á jóla- trjám. Hjá okkur ganga kúnnarnir fyrir og við reynum að bjóða sem lægstu verð á öllum vörum.“ Verðið á trjánum verður 1995 og 2495 krónur. var seinnipartinn í gær búin að fá 50 tonn og var að toga. Þá ætti Gull- berg að vera komið aftur á miðin þegar þetta birtist á prenti. Sighvatur Bjaraason fékk 250 tonn í einu hali í gær sem væntanlega verða unnin hér líka. Þessi góði síldarafli virkar eins og vítamín- sprauta á atvinnulífið í Eyjum sem að undanförnu hefur verið með dapurlegra móti og von að áfram- hald verði á þessum veiðum. Loksins, loksins síld! Beauvaise Agúrkur Beauvaise Agúrkusalad Beauvaise Asíur Beauvaise Rauðkól Beauvaise Rauðrófur Beauvaise Rifsgéle B.K.I. kaffi 500 gr B.K.I. kaffi 400 gr Oetker fromage Campbells súpur frú Ora Aspas skorinn 411 gr Ora Maiscorn Vi ds Egils Appelsín 2,0 Itr Egils maltöl 0,5 Itr Lindu ískex Bassetts lakkrískonfekt 1 kg Tobleroni 100 gr Macintosh dós 2 kg Macintosh dós 480 gr SS. birkireykt læri úrb , kr/kg 1798, SS. birkireyktur framp. Úrb kr/kgll99,

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.