Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Síða 3
ÍÞRÓTTABLÁÐ HAFNARFJARÐAR
8
Fimleikafélag Hafnarfjarðar
Starfsemi þess og árangrar
Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefir nú ný-
lega hafið seytjánda starfsár sitt, svo ég ætti
ekki að vera í vandræðum með að finna efni
þennan pistil minn, því í starfsemi F. H. þessi
seytján ár, má eflaust finna efni í stórt fræði-
rit. — En þar sem stuttur tími er fyrir hendi,
aðeins ein dagur frá tilkynningu í. B. H. um
útgáfu blaðsins og þar til handritinu skal skila
og í öðru lagi er farið fram á að hafa þennan
pistil í sem skemmstu máli, hefi ég tekið þann
kostinn að fara ekki í neina sérstaka yfirlits-
sögu yfir starfsemi félagsins, heldur taka starf-
semi þess fyrir að mestu leyti eins og hún er
nú í dag.
næst hve árangur íþróttaæsku Hafnarfjarðar
hefir orðið, og þáttur hennar mikill í því að
auka og glæða áhuga landsmanna fyrir íþrótt-
mn og líkamsrækt. Þennan árangur má í fyrsta
lagi þakka hinni þrautseigu baráttu þeirra
manna sem fremst hafa staðið í starfi íþrótta-
hreyfingarinnar hér í bænum. í öðru lagi má
þakka árangurinn góðu samstarfi félaganna og
meðlima þeirra og þó sérstaklega hinu dug-
andi og baráttusama starfi íþróttamannanna
sjálfra til aukins árangurs á íþróttasviðinu.
LEIÐTOGAR OG GÓÐIR
ÍÞRÓTTAMENN:
ins og starfsemi þess, þá hefir krafan um
bættar íþróttaaðstæður vaxið að sama skapi.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefir því ávallt
laggt mikið kapp á það, að vinna að bættum
aðbúnaði íþróttastarfseminnar hér í bænmn.
Ljósasta dæmi þessa, er íþróttasvæði félags-
ins að Hörðuvöllum, sem að vísu, að félagið
kom upp, með styrk frá bæjarsjóði, — en sem
er eina og um leið það fyrsta íþróttasvæði, sem
reyst hefir verið hér í bænum, sem hefir verið
bjóðandi til iðkunnar frjálsíþrótta.
ÍÞRÓTTAGREINAR F. H.
FIMLEIKAR:
STOFNUN OG ÍÞRÓTTAGREINAR:
Aðalfrumkvöðull að stofnun Fimleikafélags
Hafnarfjarðar var Hallsteinn Hinriksson,
íþróttakennari, en hann var svo til nýkominn
hingað til bæjarins er hann ásamt nokkrum
ungum mönnum stofnuðu F. H. þ. 15. okt.
1929.
Þær íþróttagreinar, sem félagið lagði lengst
af stund á voru fimleikar og frjálsíþróttir. Síð-
ar er árin liðu var bætt fleiri í þróttagreinum
inn á stefnuskrá þess, og eru nú í dag á stefnu-
skrá félagsins fimleikar, frjálsíþróttir, knatt-
spyrna, handknattleikur og sund.
ERFIÐAR ÍÞRÓTTAAÐSTÆÐUR:
Eins og öllum Hafnfirðingum er kunnugt
þó sérstaklega þeim er íþróttir iðka eða eru
áhugamenn íþrótta, eru og hafa ávallt verið
hinar verstu aðstæður til íþróttaiðkana hér í
Hafnarfirði. Það má því teljast kraftaverki
komin, að ekki þarf að líða á löngu áður en
hægt verður að fara að hafast þar við.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar á skilið miklar
þakkir fyrir þann skilning, sem hún hefur sýnt
máh þessu, með því að veita S. S. H. rausnar-
legan styrk til skálabyggingarinnar, kr. 15000.
Einnig mun félagið fá styrk úr íþróttasjóði
Ríkisins.
Skálinn hefur að mestu leyti verið byggður
í sjálfboðavinnu, og þótt hann sé ekki orðinn
gamall, eiga þeir, sem hafa unnið við hann,
margar skemmtilegar endurminningar frá
veru sinni þar um helgar. Það er gaman að
heyra hamarshöggin hveða við í hverju horni
og sjá alla keppast við eftir beztu getu. Hér
verða allir smiðir af guðs náð um leið og þeir
eru komnir inn fyrir dyrnar. Að vísu kemur
fyrir, að einn og einn nagli bogni, en hvað
sakar það meðan allir fingurnir eru óskemdir.
„Margar hendur vinna létt verk“. — Þessa
þurfum við að minnast eftir áramótin, þegar
vinna hefst að nýju við skálann. Ef við erum
aðeins nægilega samtaka um að fjölmenna um
hverja helgi upp í skála, verður þess ekki langt
að bíða, að draumurinn rætist.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefir alla sína
tíð verið sérstaklega heppið með val manna
til hinna ýmsu forustustarfa félagsins, og einn-
ig hefir ávallt innan fél. ríkt góður íþrótta-
andi, sem skapað hefir heilbrigði, ánægju og
árangursríka félagsstarfsemi. Þessum tveim
staðreyndum er fyrst og fremst að þakka það
að vegur F. H. er eins glæsilegur nú í dag og
rami ber vitni um.
Af þeim forustumönnum F. H. er ég tel
mestan þátt eiga í gengi félagsins allt frá
fyrstu tíð vil ég nefna hér: Hallstein Hinriks-
son, Sigurð Gíslason, Guðjón Sigurjónsson, og
Gísla Sigurðsson.
Af íþróttamönnmn þeim er lagt hafa drúgan
þátt að því að vinna félaginu frægðar, (að
þeim undanskildum er áður eru nefndir) má
nefna: Olíver Stein Jóhannesson, Þorkel Jó-
hannesson, Sævar Magnússon, Jóhannes Ein-
arsson, Svein Magnúss., Magnús Guðmundss.
Sigurð, Harald og Ingimund Sigurjónssyni og
Kjartan Elíasson, sem nú er vafalaust bezti
knattspyrnumaður Hafnarfjarðar.
FJÖLÞÆTTASTA ÍÞRÓTTAFÉLAG
HAFNARFJARÐAR:
Mörg hafa þau árin verið, sem Fimleika-
félag Hafnarfjarðar, hefur verið að mestu
leyti eitt um að halda uppi íþróttastarfsemi
hér í Hafnarfirði. Félagið hefir allt frá stofnun
þess vaxið jafnt og þétt að aukinni starfsemi
og meðlimatölu. — Nú í dag er Fimleikafélag
Hafnarfjarðar fjölþættasta íþróttafélagið hér
í bænum.
Það segir sig sjálft, að við aukningu félags-
Það má telja að fimleikar hafi verið ein
helzta orsök þess að Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar var stofnað. Og sú var tíðin, að aðal-
starfsemi félagsins, í það minsta að vetrinum
til, var helguð þeim. Og á hverju ári var það
mikil ánægja bæjarbúa að horfa á hina mörgu
góðu og glæsilegu fimleikamenn félagsins, er
þeir sýndu listir sínar.
En raunin hefir orðið sú, að í Fimleikafélagi
llafnarfjarðar, sem og í mörgum öðrum fél.,
hefir þessi holla og skemmtilega íþróttagrein,
orðið að lúta í lægra haldi, fyrir hinum ýmsu
keppnisíþróttum, þó einkanlega handknatt-
leiknum. Sterk orsök þessa, er einnig sú, að
við erfiðar aðstæður til iðkunnar fimleika hef-
ir verið að etja. Hús það, sem félögin hafa til
starfrækslu vetrarstarfsemi sinnar, er hið sama
og er félagið var stofnað. Þá þegar á stofnár-
um þess voru tímar þeir er félagið hafði til af-
nota í húsinu fullskipaðir. Síðan hefir félagið
vaxið og starfsemi þess aukizt, en tímafjöldi
félagsins,, í íþróttahúsi Barnaskólans hefir
eigi verið hægt að auka að sama skapi. —
Áhugi fyrir fimleikum er þó ekki með öllu
dauður innan félagsins, og má það fyrst og
fremst þakka því að kennsla yngri flokkanna,
hefir ávallt verið hagað svo að fimleikar hafa
verið aðalatriði hennar. Nú í ár hefir verið
gerð tilraun til að vekja aftur við lýði, hina
fögru íþrótt, meðal eldri flokka félagsins og
virðist sú tilraun standa til hins betra.
FRJ ÁLSÍÞRÓTTIR:
Hjá félaginu hófust frjálsíþróttir 1934. Starf
það er frjálsíþróttamenn F. H. og stjórnir fé-
Sýningargluggi á 15 ára afmæli F. II.
Verðlaunagripir og Verðlaunapeningar.