Íþróttablað Hafnarfjarðar

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Qupperneq 4

Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTABLAÐ HAFNARFJARÐAR þeim fimm bæjarkeppnum sem fram hafa farið, höfum við Hafnfirðingar (sem allir hafa verið úr F. H.) unnið keppnina tvö s. 1. ár. F. H.-INGUR Á ERLENDUM ÍÞRÓTTAVETTVANGI: Einn F. H.-ingur hefir hlotið þann sóma að véra valinn til þess að keppa fyrir land vort á erlendum íþróttavettvangi. Var það Olíver Steinn Jóhannesson, er keppti í lang- stökki á Evrópumeistaramótinu, sem fram fór í Oslo sumarið 1946. Vakti árangur Olívers geysimikla athygli, og jafnframt var stökkstíll hans einn sá bezti er sást á mótinu. Bróðir Olívers, Þorkell Jhannesson, er einn meðal hinna ungu manna er valdir hafa verið til þjálfunar undir hina væntanlegu Olýmpíu- leika, er haldnir verða á smnri komanda í London. íþróttagrein sú er Þorkell æfir er þrí- stökk, en í þeirri grein hefir hann sýnt sig vera með færustu íþróttamönnum lands vors. ÍSLANDS- OG DRENGJAMEISTARAR: íslands- og drengjameistar hefur F. H. átt marga á undanförnum árum, og er eigi rúm að telja það hér, en til gamans mætti máske nefna, að Olíver Steinn, var sjö sinnum í röð íslandsmeistari í langstökki. Árangur einstaklinga F. H. hafa eigi orðið einungis til þess að hefja nafn félagsins til hinna mestu virðingar, heldur og til lofs fyrir dugnað og áræði hafnfirzkrar íþróttaæsku. er hefur náð beztum árangri það ár, sam- kvæmt finnsku stigatöflunni. Er skjöldurinn farandgripur og vinnst eigi til eignar, nafn handhafa skal ávallt letrað á skjöldinn. F. H. skjöldurinn var fyrst afhentur 1940 og hlaut hann þá Olíver Steinn. 1941 hlaut Magnús Guðmundsson skjöldinn, en 1942 hlýtur Olív- er skjöldinn aftur og hefir verið handhafi hans síðan. Fyrir árið í ár er ekki farið að afhenda skjöldinn, en í ár mun annaðhvort Olíver St. hljóta skjöldinn eða bróðir hans Þorkell Jó- hannesson. AFREKSBIKAR DRENGJA: Afreksbikar drengja (innan 19 ára) er gef- inn Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, af íþrótta- bandalagi Vestmannaeyja. Bikar þessi skal ár- lega afhendast þeim dreng í Hafnarfirði, er nær beztum árangri í frjálsum íþróttum sam- kvæmt finnsku stigatöflunni. Nafn handliafa skal í hvert skipti grafið á bikarinn. Handhaf- ar þessa bikars hata verið : 1943 Sævar Magn- ússon, 1944 Þorkell Jóhannesson og 1946 Árni Gunnlaugsson. í ár hefur þessi bikar ekki ver- ið afhentur, en hann mun hljóta hinn ungi og glæsilegi hástökkvari F. H. Sigurður Frið- finnsson. Sigurður er aðeins 16 ára að aldri, en það er álit allra er veitt hafa honum at- hygli, að eigi verði langt að bíða þess, að hann verði sér, félagi sínu og bæjartélagi til hins mesta sóma, sem íþróttamaður ekki ein- ungis hér heima, heldur og erlendis líka. Olíver Steinn Jóhannesson stekkur tjfir 7 m. fyrstur allra íslendinga. lagsins hafa unnið að aukinni iðkun frjáls- íþrótta hér í Hafnarfirði er hið markverðasta og vert þess að eftir því sé tekið. Er félagið hóf starfsemi sína á þessu íþróttasviði, var ekki neitt það til hér í bænum er kallast gæti, að- stæður til iðkunar frjálsíþrótta. En með þraut- seigu starfi hefir hinn sérstæði árangur náðst. — Iþróttasvæðið að Hörðuvöllum, er hið sam- eiginlega tákn staðreindanna. — Við íþrótta- svæðið á Hörðuvöllum minnast frjálsíþrótta- menn F. H., með hlýleik og aðdáun, þess starfs, er liggur að baki því, að svæðið komst upp. Enginn skal halda að erfiðleikar byrjun- aráranna séu gleymdir. F. H.-ingum er enn í fersku minni, hástökksútbúnaðurinn hans Sigga Gísla, er hann æfði sig við, á túninu fyrir framan húsið heima hjá sér. Ekki heldur er gleymd hin harða og óslétta hlaupabraut Skólabrautarinnar. Og ógleymanleg er stökk- grifjan hans Hallsteins, sem hann útbjó á Grímstúninu fyrir vestan gamla sundskálann. Þarna í grifjunni æfði Hallsteinn stangarstökk, og var það álit margra manna að hvert stökk hans væri djörf tilraun til sjálfsmorðs. — BÆJARKEPPNIN OLLI MIKLUM BREYTINGUM. Frjálsíþrótamenn F. H. hafa til margra ára tekið þátt í flestum og öllum íþróttamótum er haldin hafa verið hér í bænum og í Reykjavík. En mestan þátt í aukningu frjálsíþróttaiðk- anna hefur þó bæjarkeppnin við Vestmanna- eyjar átt. Við þá keppni hefir hinn einbeitti vilji íþróttaæsku F. H. komið skýrast í ljós. Er fyrst var stofnað til þessarar keppni, var öllum Ijóst að ógjörningur var fyrir F. H. að vinna hana. Gerði þar bæði val ííþróttagreina, þeirra er keppnin saman stóð af, og einnig ójafnar íjDróttaaðstæður. — En átak jíarf til, ef verk á að vinna---svo varð og um F. H. — Fyrir atbeina þáverandi fonnanns félagsins GísJa Sigurðssonar, var íþróttasvæðinu að Hörðuvöllum lirundið í framkvæmd. Hin góðu skilyrði sögðu fljótlega til sín, bæði Jivað árangur íþróttamanna snerti, sem og fjölda þeirra sem æfðu. Og nú er svo komið, að af FRJÁLSÍÞRÓTTAVERÐLAUN F. H. Undanfarin ár hefir það verið venja innan Fimleikafélags Hafnarfjarðar, áð veita árlega afreksverðlaun þeim íþróttamönnum í Hafn- arfirði, er ná beztum árangri í frjálsíþróttum, og eru árangrarnir reiknaðir út samkvæmt finnsku stigatöflunni. Verðlaun þessi eru sem liér segir: F. Ii. SKJÖLDURINN: HANDHAFI „BESTl ÍÞRÓTTAMAÐUR HAFNARFJARÐAR“. F. H. skjöldurinn var gefinn Fimleikafélagi Hafnarfjarðar á 10 ára afmæli þess. Gefendur skjaldarins voru fyrstu lieiðursfélagar félags- ins, en það eru þeir: Benedikt G. Waage, for- seti Í.S.Í., Hallsteinn Hinriksson, íþróttakenn- ari, og Bjarni Bjarnason, skólastjóri og íþrótta- kennari að Laugavatni. Skjöldur þessi er liinn fegursti gripur, út- skorinn af Ríkarði Jónssyni. Skjöldurinn skal árlega veitast þeim íþróttamanni í Ilafnarfirði, METBIKAR DRENGJA: Glímuufélagið Ármann í Reykjavík færði F. H. þennan bikar að gjöf á 15 ára afmæli F. H. Metbikar drengja er veittur þeim dreng, er bezta met setur, og ef eigi er sett met ár- lega, skal bikarinn í vörzlu handhafa, þar til betra met verður sett. Metbikarinn var fyrst aflientur í fyrra og lilaut liann þá Árni Gunn- laugsson. í ár hefir eigi formleg afhending bikarsins átt sér stað, en hann á að liljóta að þessu sinni Sigurður Friðfinnsson. KASTBIKAR HAFNARFJARÐAR: Er Vestmannaeyjingarnir voru liér að keppa 1946 ,afhentu þeir í. B. H. að gjöf silfurbik- ar, er ætti að afliendast árlega þeim íþrótta- manni hér í bænum er beztum árangri næði í köstum á árinu. í fyrra lilaut bikar þennan Sigurður Kristjánsson. í ár hefur þessi bikar eigi verið afhentur en hann mun liljóta Sig- urður Júlíusson, sem er mjög áhugasamur og efnilegur kastmaður.

x

Íþróttablað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/1083

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.