Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Síða 5

Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Síða 5
ÍÞRÓTTÁBLÁÐ hafnarfjarðar 5 HANDKNATTIEIKUR: Innan F. H., sem og annarra félaga, hefur áhugi fyrir handknattleik sem keppnisíþrótt, farið ört vaxandi. Fyrstu árin var reynt að halda þessari stefnu niðri, með því að æfa hann aðeins til þess að hressa upp, í lok erf- iðra leikfimistíma, en svo fór að lokum, að fimleikamir urðu að lúta í læægra haldi og handknattleikurinn tók stöðu þeirra á æfinga- töflu félagsins. Árangrar F. H. hafa verið mjög svo glæsi- legir í þessari íþróttagrein, þó sér í lagi hin síðari ár. í fyrra var til dæmis félagið í úr- slitum í öllum flokkum á Landsmóti íslands (innan húss). Með áröngrum sínum í ár hafa handknatt- leiksflokkar félagsins, fært sönur á að F. H. er þegar orðið hið leiðandi félag hér í Hafn- arfirði í þessari vinsælu íþróttagrein. Vann félagið mjög svo glæsilega Handknattleiks- meistaramót Hafnarfjarðar, með því að vinna í meistaraflokki kvenna með 5 mörkum gegn engu, í 2 fl. kvenna vann félagið með 5 : 1 og í 2. flokki karla vann F. H. með 9 mörkum gegn 4. í meistaraflokki karla tapaði félagið aðeins með einu marki gegn 3. Eins og kunnugt er er mörgum erfiðleikum bundið af æfa þessa íþrótt hér í Hafnarfirði, sem keppnisíþrót, svo vel sé við unandi. Sér- staklega koma erfiðleikarnir til greina innan- húss, þar sem hús það, sem félögin hafa til afnota, er svo lítið, sem raun ber vitni um. Smæð þess verður þess valdandi, að ógjörn- ingur er að setja saman fullkomið og heil- steypt lið, eða æfa staðsetningar. Mikill áhugi er því fyrir því hjá forráða- mönnum F. H. að breyta jafnvel nú á þess- um vetri um og taka upp að æfa körfuhand- knattleik í staðinn. Körfuhandknattleikurinn er að vísu algerlega ný íþróttagrein hér á landi en á vafalaust eftir að ryðja sér mikið til rúms, og jafnvel svo, að vera má að handknatt- leikur verði þar að víkja nokkuð til. Ástæð- an fyrir því, að stjórn F. H. hefur þetta í hyggju, er sú, að betra þykir að æfa körfu- handknattleik í litlu húsi, heldur en hand- knattleik. SUND: Síðan sundlaugin tók til starfa, hefir áhugi fyrir sundi farið mjög í vöxt innan F. H. Þó bar mest á honum fyrstu tvö árin eftir bygg- ingu laugarinnar, þ. e. 1944 og 1945. Og voru árið 1945 reglubundnar æfingar á veg- um félagsins. Sundmót Hafnarfjarðar fór fram bæði þessi ár, og var árangur F. H. svo glæsi- legur í bæði skiptin, að varla eru dæmi til í íþróttakeppni. Bæði árin vann félagið næst- um allar sundgreinarnar og í sumum hverj- um átti félagið 3 til 4 fyrstu menn að marki. KNATTSPYRNA: Félagið tók að æfa knattspyrnu, sem keppn- isíþrótt árið 1939. Það ár var og stofnað til flokkakeppni í knattspymu við Knattspyrnu- félagið Haukar hér í bæ. Þessi keppni hefir farið fram árlega síðan. Keppnin er reiknuð út í stigum og eru stig félaganna í vor- og haustmótunum lögð saman. Það félag, sem fær flestan stigafjölda úr báðum mótunum, hlítur svo heitið „Knattspyrnumeistarar Hafn- arfjarðar", og í viðurkenningarskyni silfurbik- ar gefin af í. S. í. Alls hefur keppni þessi far- ið átta sinnum fram, af þeim hefur F. H. unnið hana fimm sinnum, þ. e. 1940, 1941, 1942, 1946 og 1947. — Bikar keppni er einn- ig í öllum aldursflokkunum, og hefir F. H. jafnframt unnið nokkra þeirra til fullrar eign- ar. Til hinnar svo nefndu Rafhakeppni, var stofnað 1943. F. H. vann keppni þessa þrjú fyrstu árin og þar með bikar þann er Raf- tækjaverksmiðjan h.f. gaf, til fullrar eignar. Árið 1946 gaf Rafha á ný bikar til keppninn- ar, svo hún félli eigi niður. Knattspyrnufé- lagið Haukar unnu keppnina þá, en í ár vann F. H. keppnina og er því handhafi bikarsins f / / nu í ar. F. H.-INGAR TEKNISKIR KNATTSPYRNUMENN: Frá því sjónarmiði hve erfiðar aðstæður til æfingar knattspyrnuíþróttarinnar eru hér í bænum, sakir hinna slæmu skilyrða, má telja að knattspymumenn F. H. séu á góðri leið með að verða hinir efnilegustu knattspyrnu- menn. Má það fyrst og fremst þakka því, að ávallt frá fyrstu tíð, hefir sú regla verið ríkj- andi meðal knattspymumanna félagsins, að leggja ríka áhrezlu á hina tæknilegu hlið knattspyrnunnar, bæði hvað knattspyrnumeð- ferð, staðsetningar og skipulagningu leiks snertir. Ef leikmaður hefir sýnt „égisma“ eða byggt leik sinn á líkamlegum yfirburð- um, hefir hann fljótlega fundið að samastað- ur var eigi fyrir hann, meðal knattspyrnu- manna F. H. Hér að framan hefi ég í sem styðstu máli leitast við að draga fram það helzta ogmark- verðasta í starfsemi Fimleikafélags Hafnar- fjarðar. Hefi ég eigi stuðst við annað en per- sónulega vitneskju mína, um starfsemi félags- ins, og á sama grundvelli gæti hver einasti F. H.-ingur skrifað slíka grein sem þessa, — því táknrætt dæmi fyrir félagslíf F. H. er, hve félagarnir eru nánir hver öðrum og stjórn félagsins og framkvæmdum hennar. Þótt að- aláhugamál einhvers F. H.-ings sé t. d. knatt- spyrna, er áhugi hans eigi síðri fyrir starfsemi frjálsíþróttamanna félagsins, og á vetrum get- ur hann verið með virkustu mönnum meðal fimleika- og handknattleiksmanna félagsins. Framkvæmdastarf F. H. er unnið að mestu leyti af nefndum, sem skipaðar eru af stjórn félagsins, en stjórn félagsins samanstendur jafnan af formönnum nefndanna. Með þessu skipulagi er stjórnin jafnan í nánu sambandi við allar starfsgreina félagsins, sem og félag- ana sjálfa. Þetta samstarf félaganna er eigi sízt að þakka hið heilbrigða og frjálslynda félagslíf, sem ávallt hefir ríkt innan félagsins, og árangrar þeir er félagið og einstaklingar innan þess hafa náð á undanförnum árum. En gott félagslíf og efnilegir einstaklingar eru aðeins hin félagslegu atriði til þess að skapa góða íþróttamenn og heilbrigða og frjálsa íþróttaæsku. Góðar aðstæður til í- þróttaiðkunnar eru stærstu og veigamestu at- riðin í því að geta alið upp góða íþrótta- menn og konur. Þess vegna byggist framtíð F. H., sem annarra íþróttafélaga hér í bæn- um, að miklu leyti við framtakssemi bæjaryf- irvaldanna hér í bænum og framkvæmdmn þeirra í því að bæta hinar slæmu aðstæður, sem eru hér í bænum til iðkunar hverskonar íþrótta. Ámi Ágústsson. íjiróttamenn og konur í Sundlaug Hafnarfjarðar við heimsókn forseta íslands Herra Sveins Björnssonar.

x

Íþróttablað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/1083

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.