Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Síða 7
ÍÞRÓTTÁBLAÐ IIAFNARFJARÐAR
7
hagstætt veður í sumar, sýndu stúlkurnar
mjög lofsverðan áhuga í æfingasókn. Voru
það sérstaklega yngri stúlkumar sem sýndu
þann áliug, enda flestar eldri stúlkurnar ekki
heima vegna atvinnu sinnar. Þess skal getið,
að flestar yngri stúlkurnar í fél. eru á aldr-
inmn 13—14 ára og kepptu þær við Knatt-
spymufélag Reykjavíkur. Unnu „Hauka“-
stúlkurnar glæsilega þennan leik, eða með
4 : 0. Má búast við að þær yngri stúlkur, sem
nú æfa á vegum félagsins, muni ekki verða
síður skeinuiiættar í handknattleiknmn, en
þær eldri.
Félögin hér hafa undanfarin ár haft fim-
leikahús Barnaskólans til afnota fyrir vetrar-
starfsemina. Á seinni árum hafa æfingar ekki
getað hafist fyrr en einmn til einum og hálf-
um mánuði seinna á hverju hausti. Þetta er
mjög bagalegt, því áhuginn dofnar hjá með-
limunum, auk þess sem þetta hefur sína ó-
kosti gagnvart þjálfuninni að sleppa svona
löngum tíma úr, frá því að æfingar hætta á
haustin og þar til æfingar hefjast aftur innan-
húss. Félögin í Reykjavík byrja t. d. æfingar
mjög snemma á haustin, eða urn leið og æfing-
ar hætta úti. Þetta ásamt því, að fimleika-
húsið hér er allt of lítið, hefur orsakað það,
að handknattleikslið héðan eru orðin mun
lakari en reykvísku liðin. Meðan aðstæður
voru svipaðar hjá hafnfirskum og reykvískum
íþróttafélögmn, sýndu hafnfirðingar að þeir
gátu fyllilega staðið reykvíkingmn á sporði í
handknattleiksíþróttinni. Vegna þessara að-
stæðna hér, til æfinga, vildi ég skora á íþrótta-
nefnd bæjarins að beita sér fyrir því, í sam-
vinnu við hafnfirska íþróttamenn að bætt
verði úr brýnustu þörfum íþróttamanna, svo
sem með byggingu íþróttahúss og íþrótta-
svæðis.
ENGIDALUR OG FRAMKVÆMDIR
FÉLAGSINS ÞAR
Eins og áður er getið hefur félagið und-
anfarin ár haft lítinn hluta af Engidal, en
nú undanfarin tvö ár haft allt svæðið á leigu.
Á árinu 1946 hafði félagið nokkrar skemmt-
anir þar til að afla félaginu tekna og til að
standa straum af kostnaði þeim, sem þurfti
að framkvæma á svæðinu. Skemmtanir þess-
ar gáfu töluverðan ágóða. Áformað var að
hafa svipað fyrirkomulag s. 1. sumar, en eins
og kunnugt er, var einstaldega vont tíðarfar
og brugðust þar með vonir félagsins um fjár-
hagslegan ágóða, en þar sem félagið hefur
svæðið á leigu til langs tíma, þá má gera ráð
fyrir að úr rætist.
Flestum er það ekki kunnugt, að Engidal-
ur er ríkiseign og má því ekki selja svæðið
nema með samþykki Alþingis. Félagið hefði
fullan hug á því, að geta keypt það og mun
beita sér fyrir því að svo verði, þegar ástæð-
ur eru fyrir hendi. Ilafnfirðingar vita, að stað-
urinn liggur mjög vel við til hverskonar í-
þróttaiðkana og skemmtistarfsemi. Einnig
mætti gera þarna annað Hellisgerði, því
að hraunið umlykur svo að segja svæðið, en of
fáir slíkir staðir eru til á landi voru.
Að endingu vill félagið óska meðlimum síti-
um, mótherjum og Hafnfirðingum gleðilegra
jóla og farsæls nýjárs.
Guðsveinn Þorbjörnsson.
Sundfélag
Hafnarfjarðar
Það er yngsta íþróttafélagið hér í bæ.
Það er stofnað 1945, um vorið. Það tók
strax forystu um sundkennslu og í sundmál-
unum. Var þá og talsverður áhugi fyrir sundi
í öðru félagi hér í bæ, F. H. Varð þetta til
þess, að drjúgir árangrar náðust í sundi þetta
sumar. Kom það í ljós á sundmóti, sem haldið
var um haustið.
Sumarið næsta, 1946, var augljós minnk-
andi áhugi meðal manna á æfingum fyrr-
nefndra félaga. Þó sóttu sundæfingar hjá fé-
lögunum milli 30 og 40 manns, eldri og yngri.
ÆFINGATAFLA
KNATTSPYRNUFÉL. HAUKAR
veturinn 1947—48.
Kvenfl.
Þriðjud. kl. 8—9.
Föstud. kl. 8—9.
I. og II. fl. karla
Þriðjud. kl. 9-10.
Föstud. kl. 9—10.
III. fl Karla
Þriðjud. kl. 7—8.
Föstud. kl. 7—8.
Eftir áramót verður Garðar S. Gíslason.
Smávægilegar breytingar kunna að verða
á æfingatöflunni og verður breytingin þá
auglýst síðar.
Úr sundmóti varð ekki um haustið.Það er
nauðsynlegt að koma af stað mótum og halda
þau til þess að örfa menn og konur til þátttöku
og iðkunar þessarar fögru íþróttar. Nokkuð
mikill hluti þessarar deyfðar liggur hjá félag-
inu S. H. og stjórn þess, sem hefur verið óvirk
þetta ár.
Sökin liggur einnig í öðru. Tveir til þrír
sumarmánuðir eru ekki einhlýtir til að koma
upp og æfa flokk sundfólks. Til þess þarf starf-
ið að vera aðallega að vetrinum til. Vetrar-
tíminn hefur ekki notast hingað til, vegna
þess að sundlaugin er ekki yfirbyggð og á
vetrum aðeins helmingur hennar nothæfur.
Ekki er mögulegt að halda kennara við
kennslu á kvöldin í hvaða veðri sem er, í op-
inni laug og hálfri.
Verði bót ráðin á þessu atriði, er enginn
vafi á að úr muni rætast.
Verkefni þau, sem bíða í sundmálum Hafn-
arfjarðar, eru svo mörg, að enginn vafi er á
því að S. H. mun sjá ,að það má ekki bregðast
köllun sinni.
Hér í Hafnarfirði verður að alast upp ný
kynslóð sundæska. Kynslóð, sem elst upp í
Sundlaug Hafnarfjarðar. En slíka kynslóð, er
ekki hægt að ala upp nema á nokkuð löng-
um thna. Slík kynslóð verður ekki alin upp
nema við bætt skilyrði frá því sem nú er.
Þessi kynslóð sundæska Hafnarfjarðar verð-
ur að koma frá skólunum. Þegar slík sund-
æska kemur fram, mun Sundlaug Hafnar-
fjarðar verða fjölsóttur og vinsæll samkomu-
staður.
Þegar hægt verður að kenna sund í Sundfé-
lagi Hafnarfjarðar tíu mánuði, í stað tveggja
til þriggja, þú munu hér koma fram sund-
menn og sundkonur á borð við þá íþrótta-
menn aðra, er fram hafa komið í öðrum grein-
um íþrótta.