Reykjavík


Reykjavík - 12.05.2012, Page 6

Reykjavík - 12.05.2012, Page 6
12. maí 20126 MatuR Andrea Guðmundsdóttir mat­ gæðingur í Listaháskóla Íslands býður lesendum Reykjavíkur upp á forvitnilegar uppskriftir frá öllum heimshornum. Þá er komið að salati númer tvö. Síðast vorum við með pasta og rækjusalat og núna er það saltfiskssalat, ættað frá Spáni. Ef nemendurnir í Listaháskólanum eru glaðir með það sem boðið er uppá, þá er vitað að það er í lagi með matinn. Þau hafa reynst ákaflega góðir dómarar. Þetta salat fékk toppeinkunn svo ég læt það vaða. Saltfiskssalat með heimabökuðu brauði og aioli Fyrir fjóra 1 poki spínat 700 gr vel útvatnaður saltfiskur 600 gr soðnar kartöflur í sneiðum 2 vænir tómatar í sneiðum 1 gul paprika í sneiðum 1 rauð paprika í sneiðum 1 rauðlaukur í sneiðum 1 væn lúka ólífur Dressing 2 msk hvítvínsedik 5 msk ólífuolía salt og pipar Setjið spínatið á fat og raðið öðrum hráefnum fallega yfir. Helling dressingu yfir í lokin. Aioli 2 eggjarauður 1 egg 1 tsk salt 3 hvítlauksrif smátt söxuð 1/2 sítróna, safi 1 1/2 dl bragðlítil olía Þeytið eggjarauður og egg ásamt salti þar til blandan er orðin létt og ljós. Hellið þá olíu saman við í mjórri bunu þar til blandan þykknar verulega. Bætið þá hvítlauk og sítrónusafa saman við. Best er að nota töfrasprota. Olívubrauð með oregano 1 msk þurrger 1 tsk sykur 2 1/4 bolli léttmjólk 5 1/2 bolli hveiti 1/3 bolli olívuolía 1 1/4 bolli svartar olívur, skornar í tvennt 2 msk oregano Velgið mjólkina og setjið gerið og sykurinn saman við í stóra skál. Setjið þá 3 bolla af hveiti út í. Blandið saman og látið standa og hefast á heitum stað í 30 mínútur. Setjið þá olíuna út í og restina af hveitinu og hnoðið saman á hveitistráðu borði í ca 10 mínútur eða þangað til deigið er orðið fallegt og meðfærilegt. Smyrjið skál með olíu og látið deigið í skálina og hyljið með volgu viskustykki eða plastfilmu. Látið standa þar til deigið hefur tvöfaldast. Setjið ólívur og oregano á hveitistráð borð, síðan deigið og hnoðið, stráið smá hveiti yfir brauðið áður en það fer í ofninn. Brauðið er síðan bakað í ca 45 mínútur við 190 gr ca. Verði ykkur að góðu! Salt fiSkS Sal at með heima bök uðu brauði og ai oli Spánn www.reykjavikblad.is www.hafnarfjordurblad.is www.reykjanesblad.is www.vesturlandblad.is www.akureyrivikublad.is Reykjavíkurborg Skóla- og frístundasvið Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Norðlingaskóla. Skólinn er heildstæður grunnskóli með rúmlega 400 nemendur á komandi skólaári og um 70 starfsmenn. Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur. Áhersla er á samkennslu árganga og að starfsfólk skólans vinni í teymum. Skólinn leggur áherslu á að vera í nánum tengslum við grenndarsamfélagið. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og skólaþróun. Meginhlutverk aðstoðarskólastjóra er að:  Vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar.  Vera staðgengill skólastjóra og bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í samstarfi við hann.  Hafa í samráði skólastjóra umsjón með starfs- mannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun, starfsþróun o.fl. Menntunar og hæfniskröfur:  Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.  Viðbótarmenntun í stjórnun æskileg eða kennslureynsla á grunnskólastigi.  Reynsla af faglegri forystu á svið kennslu og skólaþróun.  Færni og metnaður til að leita leiða fyrir framsækið skólastarf.  Lipurð og færni í samskiptum.  Vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins. Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf umsækjanda, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um þátttöku umsækjanda í framsæknum verkefnum og skólaþróun og annað sem málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2012. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2012. Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Sif Vígþórsdóttir skólastjóri í síma 411-7640 eða 664-8445 eða Ellert Borgar aðstoðarskólastjóri í síma 411-7640 eða 664-8446. Athygli umsækjenda er vakin á heimasíðu skólans www.nordlingaskoli.is. Staða aðstoðarskólastjóra Norðlingaskóla · Nautakjöt í ostrusósu · Núðlur með grænmeti · Kjúklingur í sataysósu · Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.