Reykjavík


Reykjavík - 26.05.2012, Blaðsíða 1

Reykjavík - 26.05.2012, Blaðsíða 1
26. maí 2012 20. tölublað 3. árgangur v i k u b l a ðMORGUNBLAÐIÐ | 41 • 20 vel búin sumarhús frá 15 m2 upp í 60 m2 • Heitir pottar eru við flest húsin, einnig sauna í nokkrum • Húsin eru leigð út í vikuleigu, helgarleigu og einn dag, allt eftir óskum hvers og eins • Gott tjaldsvæði á skjólgóðum stað Opið allt árið • Sími 820 1300, 690 3130 gladheimar.is • gladheimar@simnet.is Glaðheimar sumarhús Blönduósi Opið allt árið Frábær staður á góðu verði GRÍMSEYJARDAGAR 1.-3. JÚNÍ Gistiheimilin Básar og Gullsól við heimskautsbauginn Verið velkomin Beint flug frá Akureyri kl. 13 alla dagana www.grimsey.isMyn d: Fr ið þj óf ur He lg as on Þ etta er þrettánda hátíðin og hún hefur alltaf verið að vinda upp á sig með hverju árinu sem líður,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði, en hann er jafnframt stofnandi hátíð- arinnar. Þjóð- lagahátíðin vann Eyrarrósina árið 2005, sérstök verðlaun fyrir menningar- starfsemi á lands- byggðinni sem þykir með ein- hverjum hætti skara fram úr. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður haldin 4.-8. júní og er yfirskrift hennar að þessu sinni Söngvaskáldin góðu. Varðveita þjóðlög „Með því að efna til hátíðar viljum við meðal annars hvetja til varðveislu ís- lenskra þjóðlaga, stuðla að nýsköpun íslenskrar tónlistar, safna saman listamönnum úr ólíkum áttum og varpa ljósi á menningararfinn,“ segir Gunnsteinn. „Við reynum eftir bestu getu að höfða til allrar fjölskyldunnar og síð- ast en ekki síst viljum við halda nafni þjóðlagasafnarans séra Bjarna Þor- steinasonar á lofti, en á Siglufirði er einmitt starfrækt þjóðlagasetur sem heitir í höfuðið á séra Bjarna.“ Gunnsteinn segist ekki í vafa um að Héðinsfjarðargöngin hafi gert það að verkum að fleiri gestir taki þátt í hátíðinni. „Í fyrra héldum við stærstu hátíð- ina fram til þessa, bæði hvað aðsókn og fjölda gesta snertir, og ég er sann- færður um að í ár verði það sama uppi á teningnum. Með tilkomu gang- anna er lítið mál fyrir Eyfirðinga að heimsækja Siglufjörð. Við vorum með hátt í tuttugu tónleika í fyrra og fjöldinn í ár er svipaður og flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Síðasta daginn verður til dæmis ópera Mozarts, Don Giovanni, frum- flutt á íslensku á tónleikum í Siglu- fjarðarkirkju. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins leikur og fram koma fjölmargir ungir og efnilegir söngv- arar. Sjálfan Don Giovanni syngur Fjölnir Ólafsson barítón. Fest sig í sessi Jafnhliða þjóðlagahátíðinni eru fjöl- mörg námskeið. Að þessu sinni verð- ur til dæmis hægt að sækja námskeið í búlgörskum þjóðdönsum, sænskri vísnatónlist, flókagerð og vegg- hleðslu. Einnig verður hægt að læra að syngja í kór og að spila á úkúlele. Námskeiðin hafa notið vinsælda. „Það er erfitt að segja til um hversu margir sækja hátíðina því margir sækja alla viðburði en aðrir aðeins staka. Okkur telst til að í fyrra hafi um 2.000 sæti verið setin á tón- leikunum. Fólk kemur alls staðar að af landinu. Aðgangur er ókeypis fyrir börn og við reynum að stilla verði á tónleika og námskeið í hóf. Sumir koma ár eftir ár. Frakki nokkur kom að hlusta á Sigur Rós spila með Steindóri Andersen á hátíðinni fyrir nokkrum árum og nú er hann fasta- gestur. Ég segi hiklaust að þessi há- tíð hafi fest sig í sessi,“ segir Gunn- steinn Ólafsson, listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. karlesp@simnet.is Norðurland eystra Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gunnsteinn Ólafsson Ljósmynd/Gunnsteinn Ólafsson Dans Torgið á Sigló er upplagður staður fyrir þjóðdansa sem fólk stígur ekki nema í tilheyrandi þjóðbúningum. Ljósmynd/Gunnsteinn Ólafsson Trommað. Á þjóðlagahátíðinni verða ýmis námskeið sem eru hvert öðru ólíkara Siglufjörður Bærinn er nú hluti hins víðfeðma sveitarfélags, Fjallabyggðar. Æ fleiri ferðast um þessar slóðir. Með opnun Héðinsfjarðarganga er leið greið. Þjóðlagahátíðin á Siglu- firði verður haldin 4.-8. júní. Hátíðin hefur fest sig í sessi og verður veglegri og viðameiri með hverju árinu sem líður. Söngvaskáldin góðu er yfirskrift hátíð- arinnar í ár. Varpa ljósi á menningararfinn folkmusik.is - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Skylda á skólastjórnendur til að sjá kvikmynd um einelti Stofn andi Regn boga barna seg ir kvik mynd ina Bully með al ann ars sýna blindni skóla stjórn anda gagn vart ein elti í skól an um, slík blindni sjá ist oft hér á landi Stef án Karl Stef áns son leik ari og stofn andi sam tak anna Regn boga­barna, sem berj ast gegn ein elti, tel­ ur það skyldu kenn ara, skóla stjórn enda og nem enda að sjá kvik mynd ina Bully. Kvik mynd in, sem er banda rísk, sýn ir af­ leið ing ar ein elt is og er hún að mati Stef án Karls af ar raun sæ. „Og það er maka laust hvað hún er ís­ lensk, ver andi am er ísk. Það munu all ir sjá eitt hvað í þess ari mynd sem þeir geta tengst.“ Með al þess sem sýnt er í mynd inni er of beldi sem fram fer í skóla bíl, en þeg­ ar skóla stjór an um er sýnt það, sér hann það ekki. „Það er þessi blindni sem mað ur verð ur mjög oft vitni að hérna heima. Þetta er ekk ert ann að en ótti við að tak ast á við eitt hvað sem þú þekk ir ekki.“ Stef án Karl seg ir vanta skil grein ingu á hug tak inu ein elti, slíkt sé ekki til í ís­ lensk um lög um, en lög festa þurfi bann við ein elti. Dæmi eru um að þeir sem beitt ir eru ein elti hrökkl ist úr skóla og flytji jafn vel á milli sveit ar fé laga. Stef án Karl vill af nema skóla skyldu, en taka þess í stað upp náms­ skyldu. Slíkt gæti til dæm is gagn ast þeim sem lagð ir eru í ein elti í s ól an um. Sjá nán ar á bls. 8-9 520 0000 - Dugguvogi 4 - 104 Reykjavík

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.