Reykjavík


Reykjavík - 18.08.2012, Page 13

Reykjavík - 18.08.2012, Page 13
4 16. ágúst 2012AfmælisvAkA AkureyrAr ÁGÚSTFMÆLISV K KUREYR R Á FYRSTU ÆFINGU hins nýja leikverks. Saga leggur hópnum línurnar og Aðalsteinn Bergal fylgist með af áhuga í bakgrunninum. Völundur Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið? Erfiðast að eiga við efasemdirnar hjá sjálfri mér Nýtt leikrit eftir eina ástsælustu leikkonu Akureyrar, Sögu Jónsdóttur, byggt á atriðum úr ævi Vilhelmínu Lever, verður frumsýnt á Akureyri 30. ágúst nk. Verkið heitir „Borgarinnan“ og segir frá Vilhelmínu sem fæddist árið 1802 og dó árið 1879. Vilhelmína var ein af merkustu konum sinnar samtíðar, lét til sín taka og barðist af einurð gegn karlaveldinu. Hún stóð fyrir ýmsu sem ekki var algengt að konur þess tíma sinntu, s.s. veitinga­ sölu, gistihússrekstri, húsbyggingu og mörgu fleira. Í sögubókunum verður Vilhelmína þekktust fyrir að hafa verið fyrst kvenna til að kjósa til bæjarstjórnar Akureyrar í fyrstu kosningunum fyrir 150 árum síðan, þó þá væru enn 19 ár þar til konur fengju kosningarétt. Hún var þá vel efnuð og gat leyft sér eitt og annað í krafti þess, en ekki alveg ljóst hvern­ ig stóð á því að henni tókst að kjósa! Vilhelmína bjó lengst af í Inn­ bænum á Akureyri og er saga henn­ ar merkileg og skemmtileg að sögn leikskáldsins Sögu Jónsdóttur. Faðir Vilhelmínu, Hans Lever kaupmað­ ur með meiru var einnig merkileg persóna, framkvæmda– og uppá­ tækjasamur og þótti ansi stríðinn, ekki síst við yfirvaldið. „Þetta leikrit segir frá Vilhelmínu, föður hennar og mörgu samferða­ fólki, ástum þeirra og sorgum,“ segir Saga. En hvað knúði Sögu áfram til ritunar þessa verks? „Stundum gerist það þegar fólk er ekki í fastri vinnu að það koma dauðir tímar. Ég var að spjalla við bróður minn, Hreiðar Jónsson, og hann fór að tala um þessa konu Vil­ helmínu Lever sem ég hafði aldrei heyrt minnst á. Hann sagði: „Af hverju skrifarðu ekki leikrit um hana?“ Mér fannst það sem hann sagði mér um hana mjög spennandi og fór að lesa mér til.“ Hefurðu skrifað leikrit áður? „Ég hef skrifað töluvert í gegn­ um tíðina, þætti fyrir sjónvarp fyrir börn og fullorðna, útvarpsþætti fyrir fullorðna, bæði með öðrum og ein. Oft hefur mig vantað stutta leik­ þætti þegar ég hef verið að kenna til dæmis. Síðan hef ég gert leikgerðir úr ævintýrum og sögum. En aldrei skrifað heilt leikrit, oft byrjað, en hent því frá mér.“ Var þetta löng glíma? “Ja, ég veit ekki hvað telst langt í svona vinnu. Ég byrjaði, að mig minn­ ir, í byrjun árs 2010. Ég hellti mér út í þetta og skemmti mér vel, fannst þetta spennandi. Svo komu tímar sem mér fannst þetta allt ómögulegt, þetta yrði aldrei sýnt o.s.frv. Í desem­ ber 2010 fékk ég styrk úr sjóði Jóns Kristinssonar hjá LA til að halda áfram að skrifa og það ýtti hressilega við mér um tíma. Þegar ég byrjaði á þessu verki áttaði ég mig ekki á að 150 ára afmæli Akureyrarbæjar væri svona nálægt og þegar mér var bent á það fór ég aftur á flug, fannst ein­ hvernveginn að það yrði að minnast þessarar konu á þessum tímamótum.“ „Ég vildi auðvitað hafa þetta stóra og glæsilega sýningu en vissi ekki alveg hvernig ég ætti að fara að því að koma henni á koppinn. Mörgum sem ég ræddi við fannst að ég ætti bara að hafa þetta fyrirlestur eða leiklestur, annað væri fásinna. Og ég verð að játa að mér óx þetta í augum, en þegar ég talaði við nokkra leikara og spurði hvort þeir væru til í að lesa leikritið saman fyrir mig nú í vor, þá voru allir svona áhugasamir og jákvæðir, þá held ég að þetta hafi verið ákveðið, að keyra áfram.“ Og það er leikhópurinn Litla kompaníið sem stendur að uppfær- slunni? „Já, við köllum hópinn Litla kompaníið, eitthvað varð barnið að heita. Hvort það verður framhald á hans starfi veit enginn, en ég er fjárhagslega ábyrg fyrir þessu dæmi. Verð að standa og falla með verk­ inu. Ég fékk styrk frá Eyþingi til að klára handritið, 500.000 krónur og afmælisnefndin ætlar að styrkja okkur líka, en það vita allir að það er ekki auðvelt að fá styrki nú til dags.“ „Samstarfið við LA hefur verið frábært, við fáum æfinga– og sýn­ ingaaðstöðu ofl. í leikhúsinu. En það sem skiptir öllu máli er ótrú­ lega flottur hópur fólks á aldrinum 15 til 65 ára, leikarar og fólkið sem sér um leikmynd, búninga, ljós, hljóð, hár, förðun, grafíska hönnun o.fl. Mér finnst það kraftaverki líkast að þekkja svona margt hæfileikaríkt, frábært fólk og það er heiður að vinna með því. Allir voru tilbúnir, sama við hvern ég talaði. En ég er hrædd um að ég sé að ganga fram af fjölskyldu minni og ættingjum, mörg taka þau þátt í vinnunni og hafa að auki þurft að hlusta á mig allan þennan tíma tala um Vilhelm­ ínu! Og kallinn minn Guðmundur Óskar hefur staðið við bakið á mér og hvatt mig áfram, svo smíðar hann leikmyndina núna af miklum krafti. Ég er afar þakklát öllu þessu fólki, þetta er ómetanlegt!“ Og þetta er búið að vera gaman? „Að skrifa þetta leikrit og kynnast Vilhelmínu aðeins, setja síðan verkið upp, er eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert og kannski stærsta verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur um æfina. Ég vil taka það fram að þetta er alls ekki sagnfræði, það eru skáldaðar persónur með og atriðin að sjálfsögðu. Ég breyti jafn­ vel tímaröð en reyndi að ímynda mér hvernig ástandið var á þessum árum. Erfiðast var að eiga við efasemdirnar hjá sjálfri mér, en þegar ég heyrði efasemdir hjá öðrum eins og: „Hver hefur áhuga á að sjá leikrit um löngu dauða kellingu! Til hvers ertu að þessu? Ætlarðu ekki bara að hafa eina sýningu? Er það ekki heldur mikil bjartsýni að hafa fleiri!“, þá hljóp einhver púki í mig og ég setti undir mig hausinn.“ Og gefandi að fá aftur tækifæri í leikhúsinu eftir nokkurt hlé – eða hvað? „Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að vinna aftur í leik­ húsinu þó í stuttan tíma sé, ég sakna þess auðvitað. Ég byrjaði þarna níu ára gömul og á sínum tíma ætlaði ég aldrei að fara þaðan! En enginn ræður sínum næturstað, eins og sagt er. En ég er ekki hætt að leika eða vinna að leiklistinni, alls ekki. Þú situr nú í stjórn LA á stormasömu skeiði. Hefur það verið krefjandi? „Já ég er í stjórn LA. Það hefur verið mjög erfitt svo ekki sé meira sagt, en það tókst að halda rekstrin­ um í húsinu sem er afar mikilvægt og leikárið er spennandi framundan. Ragnheiður Skúladóttir er kraftmik­ il og skapandi kona og við vorum heppin að fá hana sem listrænan stjórnanda. Ég hef heyrt rætt um að það verði að sameina LA, Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Þó tölur á blaði segi að það sé hag­ kvæmt að sameina stofnanir þá er það mín skoðun að það sé oft alveg galin hugmynd. Við getum og eigum að vera stolt af leikhúsinu okkar. Það koma alltaf tímar sem eru erfiðir í leikhúsi, ekki bara hjá LA. Einhvern­ veginn virðist aldrei hægt að komast hjá því, sama hvað reynt er. Akureyri er bær sem hefur upp á mikið að bjóða og það er gott að búa hér. Yndislegt að sjá allt þetta fólk í bænum, sitja úti á kaffihúsum eða hlaupandi og gangandi um allt, bærinn er skemmtilega skreyttur og alltaf eitthvað að bætast við. Ég hálf­ kvíði því þegar afmælið er búið, vona samt að okkur takist að hafa bæinn svona fallegan og fjörlegan áfram.“ Hvað ertu ánægðust með hér í bænum? „Við getum verið stolt og ánægð með svo margt, það er t.d. fullt af hæfileikaríku og flottu fólki hér sem við ættum að styðja betur við og leyfa að njóta sín.“ Frumsýning á Borgarinnunni verður 30. ágúst, sýnt verður 31. ágúst og 1. sept. kl. 20.00 í Samkomu­ húsinu á Akureyri og eru aðeins ör­ fáar sýningar fyrirhugaðar. Miðasala fer fram á leikfelag.is og midi.is. a Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.