Reykjavík


Reykjavík - 18.08.2012, Page 15

Reykjavík - 18.08.2012, Page 15
6 16. ágúst 2012AfmælisvAkA AkureyrAr ÁGÚSTFMÆLISV K KUREYR R Náttúruvörur úr íslenskri ætihvönn Mikið mál? Minna mál með SagaPro www.sagamedica.is Tíð næturþvaglát eru heilmikið mál fyrir marga einstaklinga. SagaPro er náttúruvara úr íslenskri ætihvönn ætluð þeim sem eiga við þetta vandamál að etja. Með SagaPro fækkar næturferðum á salernið og þar með færðu betri hvíld. SagaPro fæst í heilsubúðum, apótekum, stórmörkuðum og Fríhöfninni. 08 12 -1 Páll Skúlason aðalræðumaður Páll Skúlason fræðimaður og fyrr­ um rektor Háskóla Íslands verður aðalræðumaður þegar Akureyringar fagna 150 ára afmælinu. Afmælis­ nefnd ákvað að leita til Páls en hann er heimspekingur, fæddur og upp­ alinn á Akureyri, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands og virtur fræði– og ræðumaður og þekktur fyrir að vekja fólk til umhugsunar með orðum sín­ um, að sögn Sigríðar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra afmælisársins. Páll er fæddur árið 1945 á Akur­ eyri. Kvæntur Auði Þorbjörgu Birg­ isdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá MA og doktorsprófi í heimspeki árið 1973. Deildarforseti heimspekideild­ ar var hann 1977–79, 1985–87 og 1995–97 og rektor Háskóla Íslands 1997–2005. a Einstök kórahefð á Akureyri Segir bæjarlistamaður 2011–2012, tónagjöf færð bæjarbúum 29. ágúst nk. verður svokölluð tóna­ gjöf til bæjarbúa afhent í Hofi, ekk­ ert kostar inn en enginn fær fleiri en fjóra miða til ráðstöfunar. Afmæli­ skór Akureyrar flytur ný kórverk eft­ ir tónskáld frá Akureyri en í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar setti Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju og kórstjóri, sér­ stakan afmæliskór saman, sem flytur fjölbreytta tónlist sem hvergi hefur verið flutt áður. Eyþór leitaði til nokkurra tón­ skálda sem tengjast bænum og bað þau um að semja tónverk sem verða frumflutt á tónleikunum. Tónleikar þessir verða gjöf kórfólksins, tón­ skáldanna og Eyþórs til bæjarins. „Tónagjöfin er hugmynd sem ég gekk með í kollinum nokkuð lengi. Ég fékk nokkur tónskáld sem tengj­ ast Akureyri til að semja kórverk og gefa bænum. Flutningur verkanna er svo gjöf okkar allra, tónskáldanna, kórfólksins og mín til bæjarins,“ seg­ ir Eyþór. Hann segir kórahefðina á Ak­ ureyri einstaka. „Það er gríðarleg gróska í kórastarfi og hefur lengi verið. Mörg tónskáld sem koma frá Akureyri semja fyrir kór og gríðarlega margir aðilar sem hafa kynnst tónlist í gegn um kórastarf í bænum eru í dag tónlistarmenn að atvinnu. Mig langaði líka með þessu til að þakka fyrir þann heiður sem mér var sýndur í fyrra þegar ég var útnefndur Bæjarlistamaður Akureyrar.“ Að sögn Eyþórs tóku allir hlutað­ eigandi afskaplega vel í hugmyndina. „Bæði tónskáld og kórfólk. Ég fékk líka afskaplega falleg og sterk við­ brögð frá starfsfólki Akureyrarstofu, en ég bar hugmyndina fyrst undir þau.“ Eyþór segir tónverkin öll afar vel skrifuð. „Gríðarlega ólík en öll skemmtileg. Allir gefa sína vinnu. Hvað hugsar Eyþór þegar hann heyrir orðið: Akureyri? „Spennandi og stórkostlega falleg­ ur staður þar sem ég mun vonandi alltaf búa.“ Verkin sem flutt verða eru: Aldamótakvæði (Michael Jón Clarke við texta Páls J. Árdal) Akureyri (Birgir Helgason við texta Jóns Sigurðssonar ljós­ myndara) Hvíld (Hörður Áskelsson við texta Snorra Hjartarsonar) Lítil kveðja til Akureyrar (Jón Hlöðver Áskelsson við texta Böðvar Guðmundssonar) Tröppurnar (mini–ópera eftir Gísla Jóhann Grétarsson við texta Margrétar Brynjarsdóttur) Þrusk (Sigrún Magna Þórsteins­ dóttir við texta Svavars A. Jónssonar) Auk þess flytja allir viðstaddir afmælissöng Jóns Hlöðvers Áskels­ sonar, Akureyri 150 ára. Ástkær akureyrskur tenór mun fara með hlutverk í einu verkinu, landsþekkt útvarpskona líka og svo munu nokkrar ungar stúlkur syngja með í einu verki, segir í upplýsingum frá aðstandendum. a EYÞÓR INGI alltaf á kafi í tónlist. V ölu n du r Garðyrkjufélag Íslands færir Lystigarðinum gjöf Á meðfylgjandi mynd eru Helgi Þórsson listamaður og Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lysti­ garðsins að opna pakkann en Kristín Þóra Kjartansdóttir formaður Garð­ yrkjufélags Akureyrar bíður spennt eftir að sjá innihaldið. Á þessu ári er 100 ára afmæli Lystigarðsins á Akureyri fagn­ að. Af því tilefni ákváðu félagar í Garðyrkjufélagi Akureyrar að færa garðinum veglega gjöf fyrir hönd Garðyrkjufélags Íslands. Lista­ maðurinn Helgi Þórsson í Kristnesi var fenginn til að smíða bekk sem afhentur var aðstandendum og unn­ endum Lystigarðsins við hátíðlega afmælisathöfn garðsins þann 29. júlí síðastliðinn. Bekkurinn forláti var þá borinn á sinn stað við norðurhlið hringstígsins um gamla gosbrunninn og fer hann afar vel þar enda sér­ hannaður inn í umhverfið. Viðurinn í bekkinn, sem er lerki, var fenginn úr Vaðlareit en Beate Stormo útbjó skínandi áletraðan skjöld. Bekk­ urinn er þannig úr garði gerður að heilu fjölskyldurnar eða vina­ hóparnir komast fyrir á honum og eins er hægt að leggja sig í sólinni og hlusta á þyt í laufi. „Unnendur Lystigarðsins eru hvattir til þess að líta gripinn augum og njóta hans sem skyldi, en gott er að hvíla þarna lúin bein á rölti um Lystigarðinn á Ak­ ureyri,“ segir í fréttatilkynningu. a

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.