Reykjavík


Reykjavík - 18.08.2012, Qupperneq 23

Reykjavík - 18.08.2012, Qupperneq 23
14 16. ágúst 2012AfmælisvAkA AkureyrAr . ÁGÚST FMÆLISV K KUREYR R RANGÁRVÖLLUM | 603 AKUREYRI | SÍMI 460 1300 | FAX 460 1301 | no@no.is | www.no.is Ert þú að flytja? Er búið að lesa af mælunum? Norðurorka minnir alla þá sem eru að flytja á nauðsyn þess að skilað sé inn álestrum af hitaveitu- og raforkumælum. Gott er að hafa þetta í huga á þessum árstíma þegar mikið er um að skólafólk sé að koma til náms í bænum. Álestur er forsenda þess að rétt uppgjör geti farið fram. Hægt er að skila inn mælaálestrum á heimasíðu Norðurorku undir slóðinni: http://www.no.is/is/einstaklingar/maelaalestur Þá eru viðskiptavinir einnig minntir á kosti þess að vera í bein- og boðgreiðslur en einnig er hægt að sækja um þær á heimasíðu Norðurorku undir slóðinni: http://www.no.is/is/einstaklingar/bodgreidslur „Spilum það sama og 1965“ Laugardaginn 25. ágúst verða tón­ leikar á Ráðhústorgi þar sem tvennir tímar mætast. Þá koma á sömu tón­ leikum fram „gamla“ unglingasveitin Bravó Bítlarnir og Brák, nýlegt band sem þykir framúrstefnulegt. Sævar Ben, meðlimur Bravó, segir í samtali við Akureyri vikublað að Bravó hafi verið stofnuð árið 1964. Þeir hituðu upp fyrir stórsveitina Kinks, 12 ára gamlir í Austurbæjarbíói, sem verður að teljast nokkuð góð byrjun á ferli. Sævar segir að hljómsveitarmeðlimir hafi komið við og við saman sl. þrjú ár og hann spáir stuði. „Ég held að þetta hljóti að verða skemmtilegt, þarna mun ægja saman gjörólíkum straumum,“ segir Sævar sem leikur á bassa. Kristján Guðmundsson spilar á hljómborð, Gunnar Ringsted á gítar og Þorleifur Jóhannsson á trommur. Nýr í bandinu er Brynleifur Hallsson. „Við munum bara spila það sem við vorum að spila árið 1965. Þetta er bara svoleiðis,“ segir Sævar. Brák flytur tónlist Þorsteins Kára en hann hefur samið lög og spilað með mörgum mismunandi hljóm­ sveitum. Tónlist Brákar sver sig um margt í ætt við tónlist sem hann hefur áður spilað, t.d. sveitaballa­ bandið Buxnaskjóna, en þó kveður nú við glænýjan tón. Tónsmíðarnar eru sveipaðar dulúðugum og draum­ kenndum blæ. Nú fyrir skömmu kom út sex laga platan Tómhyggja. Allur hljóðfæraleikur á plötunni, söngur, hljóðvinnsla og blöndun er í höndum Þorsteins Kára. Plötuna má nálg­ ast öllum að kostnaðarlausu á brak. bandcamp.com en sveitina skipa auk Þorsteis Kára, Áki Sebastian Frosta­ son, Jón Haukur Unnarsson og Ingi Jóhann Friðjónsson. a GÖTULISTAHÁTÍÐIN HAFURTASK Á AKUREYRI 20.–25. ÁGÚST Búum okkur til viðurværi sjálf og sköpum okkar eigin tækifæri Hugmyndin að Hafurtaski kviknaði á milli tveggja vina í lest á leiðinni frá Helsingjaborgar til Kaupmannahafnar sumarið 2011. Þessir tveir vin- ir, skólasystkini úr Menntaskólanum á Akureyri, bæði rétt skriðin yfir tvítuginn, voru jafnframt stofnmeðlimir Leikhópsins Þykistu og höfðu þegar hér kemur við sögu erindrekast í tvær vikur í borg Hamlets á alþjóðlegu götulistahátíðinni Passage11. „Afhverju gerum við þetta ekki heima?“ „Gerum það“ Með vindinn í fangið og heims­ yfirráð á to–do listanum gengu vinirnir inn á næsta fund Leikhóps­ ins Þykistu þar sem hugmyndin að Götulistahátíð á Akureyri sumarið 2012 skyldi seld hinum meðlimun­ um. Neistar kviknuðu, stormar geisuðu í höfðum, pennar hripuðu og fólk sló sér á lær. Ákveðið var að láta slag standa og láta áherslur þessa stærsta verkefnis Leikhóps­ ins hingað til endurspegla tilgang og markmið Þykistu– að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að læra, skapa og koma sér og verkum sínum á framfæri. Verkefnið fékk nafnið „Götulistahátíðin Hafurtask“ og áhersla lögð á sviðslistir utan sviðs – allt hafurtask ungra Akureyringa skal borið út á götur og sýnt hverj­ um sjáandi. Gréta Kristín Ómars­ dóttir og Svava Björk Ólafsdóttir tóku að sér framkvæmdastjórn Hafurtasks og hafa leitt vagninn síðan. Gengið var á náðir Menning­ arráðs Eyþings og Evrópu Unga fólksins til að fjármagna verkefnið – og Þykista fékk skjól yfir höfuð­ storma sína og athvarf til athafna í Ungmennahúsinu í Rósenborg, Menningarhúsinu Hofi og Tónlist­ arskólanum á Akureyri. Ráðnir voru fimm faglærðir snill­ ingar til að annast listasmiðjur sem verða dagana 20.–25. ágúst – þar sem öllum á aldrinum 15 til 30 ára er boðið að skrá sig til leiks og taka þátt í því að búa til sýningar fyrir Götulistahátíðina Hafurtask. Þessir snillingar eru Arna Vals­ dóttir með RÖDD Í RÝMI – safaríka, leikræna raddgjörningasmiðju. Anna Richardsdóttir með DANS INN ÚT – einlæga og orkumikla dansspunasmiðju. Guðrún Daníelsdóttir (Garún) með RÁÐGÁTULEIKHÚS – krefj­ andi og krassandi leiklistarsmiðju Heimir Ingimarsson með HLJÓÐAKÓRINN – nýstárlega og lærdómsríka kórasmiðju Ragnar J. Ragnarsson (Humi) með TÓNSJEIK – sjúklega grúvaða og skemmtilega tónlistarspunasmiðju. Upplýsingar og skráning í smiðj­ urnar er enn í gangi á hafurtask.is Að mati Þykistu hefur ungmenni Akureyrar lengi vantað opinn vett­ vang eins og Götulistahátíðina Hafurtask – þar sem ekki einung­ is er boðið upp á tækifæri til að drekka í sig þekkingu, efla færni sína og víkka sjóndeildarhringinn undir handleiðslu fagfólks – heldur gefst ungu fólki einnig færi á að sýna sig og sanna á eigin forsend­ um. Öllum ungmennum stendur til boða að koma fram á Hafurtaski, sér að kostnaðarlausu – hvort sem þau tilheyra formlegum hóp, óform­ legum eða engum hóp. Þykista að­ stoðar alla hópa við kynningar og undirbúning sinna atriða. Þegar hafa skráð atriði Nemendafélag TónAK, Hjólabrettafélag Akureyr­ ar, Fjöllistahópurinn Fönix, Lopa­ bandið, Eikverjar og margir, margir fleiri – Bæði einstaklingar og hóp­ ar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir upprennandi listafólk Norðurlands og ómetanleg reynsla sem hlýst af þátttöku. Götulistahátíðin Hafurtask 25. ágúst verður allsherjar uppskeruhá­ tíð hæfileika, sköpunar og metnaðar ungs fólks á Akureyri og öllum er boðið að mæta til veislunnar. Gréta Kristín Ómarsdóttir, einn aðstandenda Hafurtasks. Íþróttabærinn Akureyri Mikið og öflugt íþróttalíf hefur ein­ kennt Akureyri síðustu áratugi. Sam­ einað handknattleikslið bæjarins í meistaraflokki karla hefur staðið sig mjög vel, sameinaður kvennameist­ araflokkur í fótbolta situr á toppi efstu deildar, Þór hefur átt mjög góðu gengi að fagna og er í toppbaráttunni í 1. deild og þá eru ónefndir ótal aðrir hópar sem gert hafa garðinn frægan, skíðamenn, krulluspilarar, íshokkílið, blakfólk, bridgespilarar, sundmenn og svo mætti lengi telja. Aðstaða til íþróttaiðkana er enda með því besta sem þekkist í 18.000 manna samfélagi en mikil upp­ bygging hefur orðið á sviði íþrótta undanfarið og hefur miklum fjár­ munum verið varið til frístunda­ starfs. a Afmælisrit Lystigarðsins Bækur hafa komið út á árinu sem tengja má sögu­ legum tímamótum Akureyrar. Ein þeirra er bók um sögu Lystigarðsins í 100 ár (1912–2012). Mjög ítarlega er farið í upphafið, hvernig garðurinn varð til og þá miklu sjálfboðavinnu sem konur fyrst og fremst unnu allt til ársins 1953 þegar Akureyrarbær yfirtók rekstur garðsins. Í bókinni er mikið af myndum frá öllum tímabilum. Bókin er rituð af Ástu Camillu Gylfadóttir lands­ lagsarkitekt. Meðhöfundur er Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins. a Heim­il­is­iðn­aðar­s­kól­in­n­ býður­ úr­val­ n­ám­s­keiða Kennum fólki að framlei a fallega og yt­sama hlut­i með ræt­ur í þjóðlegum menningararfi • Þjóð­bún­in­g­ar kven­n­a, barn­a og­ karla • Skyrtu- og­ svun­tusaumur • Víravirki • Baldýrin­g­ • Sauð­skin­n­sskór • Jurtalitun­ • Kn­ipl • Orkerin­g­ • Útsaumur • Harð­an­g­ur • Skatterin­g­ • Spjaldvefn­að­ur • Mið­aldakjóll • Tóvin­n­a • Spun­i • Vattarsaumur • Vefn­að­ur – sjöl úr hör og­ ullarkrep • Dúkavefn­að­ur • Svun­tuvefn­að­ur • Myn­dvefn­að­ur • Prjón­ og­ hekl fyrir örvhen­ta • Prjón­ fyrir byrjen­dur • Prjón­alæsi • Dúkaprjón­ • En­g­laprjón­ • Dómin­ó prjón­ • Prjón­að­ir vettlin­g­ar • Hekl fyrir byrjen­dur • Heklað­ir lopavettlin­g­ar • Leð­ursaumur • Skírn­akjólar • Rússn­eskt hekl - g­run­n­n­ámskeið­ • Rússn­eskt hekl - Han­dstúkur • Rússn­eskt hekl - Sjöl • Rússn­eskt hekl - Hetta í mið­aldastíl • Rússn­eskt hekl - Lopapeysa • Tauþrykk • Lissug­erð­ • Blautþæfin­g­ Heim­il­is­iðn­aðar­fé­l­ag Ís­l­an­ds­ | Net­hyl­ur­ 2e | 110 Reykjavík | Sím­i 551-5500 | www.heim­il­is­idn­adur­.is­ Frjáls útsaumur

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.